Morgunblaðið - 31.05.1959, Page 3

Morgunblaðið - 31.05.1959, Page 3
Sunnudagur 31. ma! 1959 VORGUNBLAÐIB Mitt sérstaka yndi var veiði- skapurinn og góðir hestar Spjallað við Sigurð Ólatsson, Höfn Hornafirði, sjötugan í TILEFNI af því, að einn af frumbyggjum Hafnar í Horna- firði og mikill athafnamaður í kauptúninu, Sigurður Ólafsson, verður sjötugur þann 31. maí, datt mér í hug að heimsækja þennan heiðvirða og lífsreynda mann og eiga við hann stutt sam- tal. Sigurður hefur um mörg ár verið útgerðarmaður, en nú síð- ustu árin afgreiðslumaður Flug- félags íslands í Hornafirði. Hann tók mér glaðlega að vanda og bauð mér nefið úr silfurtóbaks dósum. Þegar ég fór að minnast á afmaelið við hann vildi hann ekkert um það tala og sagðist frekar kvíða fyrir því, heldur en hitt. — Þú ert fæddur á hinu forna höfuðbóli Úlfljóts í Bæ í Lóni, sagði ég til þess að reyna að koma þessu af stað. — Já, foreldrar mínir voru Sveinbjörg Sigurðardóttir og Ól- afur Einarsson, en faðir minn drukknaði við Papós ásamt tveim öðrum bændum frá Bæ, er ég var sex ára. Þeir voru að róa út í Papósskipið. Einn af þeim, sem var í förinni komst upp í skip- ið og fór með því til Kaupmanna hafnar, en það vissu menn ekk- ert um í landi, fyrr en hann kom bráðlifandi með sama skipi næsta sumar. Svona voru nú samgöng- urnar við umheiminn á þeim tímum. Ég ólst upp með móður minni og stjúpa, Þorleifi Eiríks- syni og hjá honum dvaldist ég alltaf öðrum þræði, þar til ég kom alkominn hingað á Höfn. — Fórst þú ekki snemma til sjós? — Það mun hafa verið ferm- ingarvorið mitt, sem ég byrjaði að róa og eftir það stundaði ég alltaf öðrum þræði, þar til í stríðslokin seinustu. Um tvítugs- aldur reri ég nokkur sumur úr Seley á Heyðarfirði og var þar einnig stundum á mótorbát- um, sem þá voru nýfarnir að ryðja sér til rúms. í Seley var ég samtíða Oddi karlinum sterka af Skaganum og Gvendi ralla og ýmsum svoleiðis körlum. Já, það var oft skemmtiiegt þar og margs að minnast frá þeim gömlu og góðu dögum. — Hvenær byrjaðir þú útgerð sjálfur? —• Árið 1919 keyptum við Jón Brunnan mágur minn gamla Björgvin frá Vestmannaeyjum og hófum útgerð á honum frá Hornafirði á vetrarvertíð og stundum á Austfjörðum að sumrinu. Annars stundaði ég að- allega heyskap á sumrin, átti þá dálítið bú, nokkrar kindur og hesta, og hafði mikinn áhuga á því, sérstaklega á hestunum. Mitt sérstaka yndi var veiðiskapur- inn og góðir hestar, enda komu hestarnir í góðar þarfir við sjó- sóknina, því langur vegur er frá Bæ í Þorgeirsstaðaklif og þegar mikið lá á var oft farið nokkuð geyst og kom sér þá vel að vera á öldum gæðingum. — Þú hafðir lengi með hönd- um vöruflutninga á Björgvin hér í sýslu? Sigurður Ólafsson með orðuna frá Bretakonungi — Já, við fluttum vörur á Hvalsneskrók, Bæjarós, Papós, og af söndunum í Suðursveit og Ör- æfum. Það var oft erfitt að losa við sandana, en það heppnaðist alltaf vel og urðu aldrei neinar skemmdir á vörunum. Eitt sinn brugðum við okkur út í Öræfi til að ná í kol úr strönduðum tog- ara og höfðum með okkur létti- bát, sem við kölluðum Kussu til að ferja kolin um borð. Einu sinni sökk Kussa með öllum farmin- um, en okkur tókst að ná henni upp í fjöruna og gátum fyllt Björgvin af kolum. Við vorum dasaðir á eftir og illa hraktir og var þá ekki sparað að kynda upp lúkarinn í Björgvin með þessum ágætu kolum og allir lögðumst við til svefns nema tveir, sem vorum á vakt aftur í stýrishúsi. Eftir nokkra stund er komið var austur að Jökulsá á Breiðamerkursandi sjáum við að rösklega er farið að rjúka úr lúkarnum. Kom þá í ljós, að kviknað var í og voru nú höfð snör handtök við að ræsa mann- skapinn og slökkva eldinn. Það tókst, en ég bjóst við að þurfa þá og þegar að stíma upp í sand, en allt slapp vel eins og ævin- lega. — Þeir segja mér, Sigurður, að þú sért nokkur trúmaður, þó I dag er síðasti dagur hinnar ágætu málverkasýningar Gunn- laugs Schevings listmálara í Listamannaskálanum. Er þessi mynd ein hinna mörgu sterku mynda hans frá lífi þeirra, sem á sjónum vinna og heitir þessi mynd „Nótt á sjó.“ þú bölvir dálítið annað vei fið. Er Er nokkur hæfa í að svo sé? — Ég skal segja þér eina sögu um það. Einu sinni vorum við í hákarlatúr sem oftar vestur við Eyjar. Við vorum búnir að vaka lengi og fórum allir að sofa, nema einn maður, sem skyldi vera á vakt, en hann sofnaði líka. Þá gerðist það, sem veldur því, að ég gæti ekki með nokkru móti verið vantrúaður á ann- að líf, enda er ég sannfærður um það af fleiri atvikum. — í þetta skipti birtist mér látinn vinur minn. Hann kom til mín í h’vítum kufli og aðvaraði mig um bátinn, en ég hrökk upp og sá hann hverfa. Skreiddist ég svo hálfsofandi upp úr lúkarnum og litaðist um. Kom þá í ljós, að stjórinn hafði slitnað og báturinn var rekinn alveg upp undir brim garðinn og hér mátti ekki neinn tíma missa, en það tókst vel að Sr, Óskar J, Þorláksson Ungt fólk og alvara lífsins „Gleði þig ungi maður í æsku þinni og lát liggja vel á'þér unglingsár þín, og breyt eítir því, sem hjartað leiðir þig og eins og augun girnast; en vit, að fyrir allt þetta leiðir Guð þig fyrir dóm“. (Pred: 11,9). ÞAÐ er í samræmi við eðli heil- brigðs æskufólks, að horfa með gleði og bjartsýni til framtíðar- innar. Og vissulega er bjart yfir æskuárum þeirra, sem njóta góðr- ar heilsu, eiga umhyggjusama og þeim tókst að gogga mig upp, því ekki var ég sýndur. í annað skiptið féll ég útbyrðis hér við Hornafjarðarós, en það fór eins og áður að ég flaut og þeim tókst að ná mér. f eitt skipti hef ég misst út mann. Við vorum þá að koma af Austfjörðum í ein- bjarga bát og mönnum, eins og I hverju Þyí versta veðri, sem ég ævinlega. Einu sinni vorum við líka á sjó í mikilli snjókomu og nátt- myrkri og vorum að leggja lín- una. Allt í einu bendir einn há- setinn og spyr, hvort þarna sé ekki sker. „Hvaða bölvuð vit- leysa“, segi ég. En þá voru hvorki til dýptarmælar né radartæki. Við leggjum nú línuna, en þá sé ég að maðurinn hefur haft rétt að mæla og lízt nú sannarlega hefg verið í á sjó. Okkur tókst að ná honum inn aftur, svo það hefur aldrei orðið neitt að mönn- um hjá mér. Við höfum flutt margt fólk á Björgvin og það kom ýmislegt skemmtilegt fyrir í þoim ferð- um og þeir gátu verið hrekkj- óttir strákbjánarnir mínir, þegar svo bar undir. Einu sinni sem oftar var með okkur eldri kona, okkur vel kunn. Hún var alltaf að biðja fyrir sér og var mjög ekki á. Liggjum við nú að um nóttina, en þegar farið'var að ! hrædd> en tU olyg&s fyrír hana draga, var fiskur á hverjum ein- tóku strákarnir hana og bundu asta krók þarna inni á milli! við mastrið, því pá væri henni skerjanna, en lítið á línunni, sem óhætt. Þetta lét hún sér vel líka lá * dýpra. Þannig endaði þetta °® fannst mikið oryggi í þvi. allt vel og sýndi hér sem oftar J — Bjargaðir þú ekki einu sinni að það var vakað yfir mér og' Englendingi og varst heiðraður fyrir? — Jú, það gekk á ýmsu hjá minum monnum. — Þú hafðir lengi á -hendi af- greiðslu við skipin hér utan við Ós? — Já, og það voru nú oft mikl- ar svaðilfarir og oft teflt í tví sýnu og farið út í ljótan sjó, en maður þoldi illa áeggjan. Einu þessum aumnigjum, en maður varð að hafa vakandi auga á þeim. í þetta skipti var flugvél frá þeim að taka sig upp hér á fjörunum í ofsa norðanroki. Skipti það engum togum, að vél- Bátur Sigurðar. sinni sem oftar kom Esja hér að og átti þá að taka hér haust- afurðir. Hafnsögumaðurinn, hinn reyndi sjómaður Björn Eymunds son, segir hér sé alveg ófært. En ég var kominn með bátinn tilbúinn að draga á milli upp- skipunarbátanna Segi ég þá við Björn, hvort við eigum ekki að koma út í Ósinn og skoða hann. Við höldum svo allt út að Hlein og liggjum þar við brimið. Þá segir einn dugnaðarhásetinn: — „Á hvað eruð þið að glápa, ætl- uðu þið ekki út í Esju?“ Þetta þoldi ég ekki og út var farið. — Þegar að Esju kom, hafði Ásgeir skipstjóri póstinn tilbúinr á lúg- unni og sagðist ekki fara inn, það væri bráðófært. Þá segir Björn hafnsögumaður: — „Það er ekki verra fyrir þig að faia inr, en okkur út“ Og inn fór skipið og um kvöldið átum við góða máltíð hjá Ásgeir skipstjóra og hann var þá anægður. — Varst þú ekki stundum hætt kominn? — Ég lenti tvisvar í sjónum, í annað skiptið við Seley. Þá var ég á mótorbát hjá Páli í Sel- látrum og var að pumpa, þegar bára kom á bátinn og tók mig út. En ég flaut á stakknum og ein- hvers konar hundasundi, unz in hvolfdist yfir sig og beint í hafið. Við brugðum strax við á Björgvin og tókst að ná einum manni, sem hafði komizt í gúmmí bát. Svo kom þettr. óhemju vesen seinna um haustið út ai þ’essu, þó manni tækist að bjarga ein- um mannræfli, sem sennilega er þó dauður eamt. — Svo hættirðu við sjóinn og snerir þér að flugmálunum? — Ég varð að h:.tta við sjóinn í stríðslokin síðari vegna fótanna. Þá gat ég ekki meira, en ekki var mér ljúft að fara i land. Fyrstu xynni mín ar flugvélun- um voru ekki beysin, og aldrei hefði ég þorað að fljúga i þeim tíkum, sem þeir voru að fljúga í fyrst Agnar og Örn. En þetta breyttist og svo kom áætlunar- flugið og þá sneru þeir sér til mín með afgreiðslu fyrir sig. Þannig lenti ég inn í flugmálin frá sjónum. Nú eru flugmálin eitt af áhugamálum mínum enda eig- um við Hornfirðingar engum meira að þakka góðar samgöngur en Flugfélagi íslands. Ég þakka Sigurði fyrir viðtal- ið, óska honum til hamingju með afmælið og vona að hann eigi enn eftir að starfa í þágu flug- málanna um langan tíma. —gs. ástríka foreldra, fá að njóta menntunar og búa sig undir lífið og eiga sjálfir einhver göfgandi hugðarefni, til þess að vinna að í tómstundum sínum. En þó að bjart sé yfir æskuár- unum og allt leiki í lyndi, þá er lífið samt ekki leikur, heldur er innsta eðli þess alveara og á- byrgð. Það er því nauðsynlegt að búa sig þannig undir lífið, að hægt sé að mæta alvörunni með ró og festu og geta sigrast á þeim erfiðleikum, sem flestum mæta, fyrr eða síðar á lífsleið- inni. Trúaralvara og siðferðileg festa þarf að vera sterkur þáttur i þeim undirbúningi, sem ungt fólk fær, er það býr sig undir þau framtíðarverkefni, sem það velur sér. Það er misskilningur að halda að heilbrigt trúarlíf skyggi á lífs- gleði hinna ungu. Það gerir að- eins gleðina heilbrigðari og hreinni. Það er eðlilegt að menn gleðj- ist á æskuárum sínum, en gæta verða menn þess, að mörg víxl- spor hafa verið stigin undir yfir- skyni falskra gleði. Guð leiðir oss fyrir dóm, líf- ið sjálft prófar oss, og það er mest um vert að standast það próf með heiðri. Vér, sem eldri erum, erum stöðugt að gefa æsk- unni heilræði og lífsreglur, ekki vegna þess að vér höfum löng- un til þess að finna að ungu fólki, eða ráða fyrir það, heldur viljum vér leiðbeina því í sam- ræmi við vora eigin lífsreynslu og vara við þeim hættum, sem orðið hafa á leið vorri. Margur maður hefur harmað það alla ævi, að hafa ekki, í æsku, farið að ráðum foreldra sinna eða annarra, sem vildu honum vel. II Á vorum dögum er óneitan- lega mikið gert, til þess að gefa hinum ungu sem bezt tækifæri, til þess að búa sig undir lífið. En það er ekki nóg að hugsa aðeins um þann undirbúning, sem miðar allt við veraldlega hagsæld og aðstæður. Hamingju- samur getur sá einn orðið, sem þroskar sinn innri mann og er sér þess meðvitandi, að hann ber ábyrgð á lífi sínu fyrir Guði og mönnum. Oft hættir þeim, sem alist hafa upp í meðlæti við því, að gefast upp, þegar erfiðleikar verða á veginum, í stað þess að sýna þol- gæði og reyna að sigrast á erfið- leikunum. Guð tekur ekki frá oss alla erfiðleika, en hann veit- ir oss styrk, til þess að sigrast á þeim og hver unninn sigur gerir oss styrkari í baráttu lífsins. í fljótu bragði kann svo að virð ast sem margt ungt fólk vilji forð ast alvöru lífsins og hugsi lítið um skyldur sínar við Guð. En þess skulum vér minnast, að hver sá æskumaður, sem vill stefna að háleitu marki, lifa heilbrigðu lífi og verða hamingjusamur, hann miðar líf við Guðs vilja og þau sannindi, sem flutt eru í fagnaðarerindi Jesú Krists, því um það getum vér borið vitni, sem öðlazt höfum nokkra lífs- reynslu, að allt það bezta, sem vér höfum notið í lífinu, hefur verið í nánum tengslum við Frelsara vorn og fagnaðarerindi hans. Þú sem ert ungur, og lest þess- ar línur mínar í dag, minnstu þess að æskuár þín eru dýrmæt- ur undirbúningstími undir fram- tíðina. Aðeins um nokkur ár nýt- ur þú hinna.björtu æskuára, síð- an kemur þroskaaldurinn og lífið leggur margvíslegar skyldur á herðar þér. Njóttu gleði æskuáranna þann- ig, að þau geti orðið þáttur í manndómi fullorðinsáranna og Guð og hans vilji verði leiðar- ljós þitt í lífi og starfi. — Ó. J.Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.