Morgunblaðið - 31.05.1959, Síða 15

Morgunblaðið - 31.05.1959, Síða 15
I Sunnudagur Sí. maí 1959 Sjötugur i dag: Steingrímur Arnason ÆTLA má að margir af vinum Steingríms Árnasonar verði undr andi þegar það sannast að hann er sjötugur í dag. Svo léttur er hann enii í lund og fasi að mið- aldra mönnum finnst hann jafn- aldri. En kirkjubækurnar segja það rétt vera. Steingrímur er fæddur að Kletti í Gufudalssveit, 31. maí 1889. Hann er sonur Helgu í>órð- ardóttur og Árna Úlfssonar, sem bæði eru gildra bændaætta við Briðafjörð. Hann fluttist 11 ára gamall vestur að Eyrardal í Álftafirði til hins þekkta héraðshöfðingja Jóns Guðmundssonar. Kunnugir herma að Jón hafi þegar fengið dálæti á sveininum og séð hvað í honum bjó. Steingrímur byrjaði að stunda sjó 14 ára gamall og innan við tvítugt var hann orðinn formaður í Hnífsdal, einni mestu veiðistöð við Djúp á þeim árum. Þar voru Erlander til Noregs Stokkhólmi, 29. maí — NTB. TAGE ERLANDER forsætisráð- herra Svía hefur þegið boð Ein- ars Gerhardsens forsætisráðherra Norðmanna um að heimsækja Noreg í byrjun júlí. Heimsóknin verður hálfopinber og mun standa fjóra til fimm daga. Er- lander, sem með heimsókn sinni endurgeldur heimsókn Gerhards sens til Svíþjóðar í fyrra, mun sennilega leggja af stað frá Stokkhólmi 6. júlí. frábærir sjósóknar þá, eins og lengst af síðan. Á fyrstu árum Steingríms í Hnífsdal var verið að setja vélar í áraskipin. Auk viðurkenndra s jóstjórnarhæfi- leika þótti hann og sérlega laginn við vélarnar. Mótorbátarnir tóku nú við af áraskipunum í Hnífs- dal, en hafnleysið sagði snemma til sín. Það var því 1916 að nokkr ir ungir formenn úr Hnífsdal, sem flestir áttu báta sína sjálfir, þar á meðal Steingrímur, fóru á vetrarvertíð til Flateyrar þar sem sjálfgerð lífshöfnin bauð alla vel koma. Um þessar mundir kvæntist Steingrímur fyrri konu sinni Kristinu Hálfdánardóttur Örn- ólfssonar hreppstjóra frá Bolung- arvík. Um svipað leyti stofnsetti hann verzlunar og útgerðar fyr irtæki á Flateyri ásamt Jóni Hálf dánarsyni og Guðmundi Péturs- syni. Fyrirtæki þeirra félaga fór vel af stað. M.a. byggðu þeir haf- skipabryggju á Flateyri, sem enn er við líði, að vísu endurbætt og stækkuð síðan. Kristín kona Steingríms var afgragðs kvennkostur, enda var hjónaband þeirra farsælt. Þau eignuðust þrjá mannvænlega syni, sem nú eru allir vaxnir menn í Reykjavík, Kjartan, út- gerðarmaður, Hálfdán, prent- smiðjustjóri og Gunnar kaupmað ur. En skapanornirnar eru misk- unarlausar á kö.flum. Stórhýsi, þar sem Steingrímur og félagar höfðu verzlun sína ásamt við- byggðri fiskgeymslu, brann til ösku eina nótt lítið eða ekki tryggt. Skömmu síðar tók Kristín kona Steingríms bannvænan sjúk dóm og lézt seint á sumri 1927. MORGUNBT. AfílÐ útgerðarm. Steingrímur tók virkan þátt >' opinberum málum þar vestra, enda var hann um tíma bæði í hreppsnefnd og hreppstjóri á Flateyri og sýnir það traust mannsins þar, sem annar staðar. Árið 1982 fluttist hann alfarinn til Reykjavíkur. Gerðist hann þá starfsmaður hjá Kveldúlfi h.f. Keypti fisk í veiðistöðvum við Faxaflóa, Vestmannaeyjum og víðar. Hann átti vélskipið Þóri í sameign með Kveldúlfi og var skipstjóri á því í fiskflutningum. Árið 1932 flutti Steingrímur til Sauðárkróks. Þar tók hann á leigu tvö frystihús og stofnaði útgerðarfyrirtæki ásamt fleirum. og keypti vélskipið Skagfirðing. Á þeim árum fór hann til Belgíu Til Reykjavíkur flutti hann svo 1934. Hann kvæntist aftur 1933 Gretu Mariu Þorsteinsdóttir, mik illi gæða og myndarkonu, sem bezta móðir. Eftir að suður kom reynst hefur sonum hans sem tók hann að frysta beitusíld og selja. Hann varð fyrstur til að frysta Faxasíld til beitu, en menn höfðu áður trúað því að þorsk- urinn í Faxaflóa vildi aðeins norðurlandssíld. Síldina frysti hann í Sænska frystihúsinu og stundaði þá atvinnu til ársins 1942. Þá flutti hann til Keflavik- ur og stofnaði ásamt fleirum Hraðfrystihús Keflavíkur h.f. og rak það til ársins 1955. Jafnframt rekstrinum í Keflavík rak hann einnig Hraðfrystistöð Reykjavík- ur, sem hann leigði af Einari Sig urðssyni. Öll þau ár sem Stein- grímur rak frystihúsin hafði hann einnig útgerð með hönd- um. Hann hefur lengi átt sæti í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Þetta er orðið lengra mál en ætlað var í fyrstu. Því veldur langur og breiður ferill hins harð duglega athafnamanns. Kjarni málsins er þó eftir, en hann er þessi: Steingrímur hefur um- gengizt samferðamennina á þann veg að öllum er einkar hlýtt til hans. Hann er ráðsnjall og ráð- hollur. Hreinn í skapi og uppörf- andi. Hjartahlýr og miðlandi, einkum þeim sem bágt eiga. Harð ur í horn að taka ef hann telur menn fara með rangt mál eða vanrækja skyldur sínar. Hann er höfðingi í lund og drengur góður. Þau hjón, Steingrímur og Greta dvelja nú erlendis, hress og glöð. Vinir og ættingjar senda því af- mælisbarninu hlýjar kveðjur um langan veg og ósk um velfarnað þeirra hjón í bráð og lengd. H. Sveinsson. ★ Grána Steingríms höfuöhárin. Halla tekur œvidegi. Sjötíu liöin œviárin, er mér sagt hann telja megi. Man eg Steingrím ungan áöur. Ætíö prúöur, hress og glaöur. Var af mörgum mikiö dáöur, mótorvéla töframaöur. Góöri hœfni, glöggur, heitti. Gaf sig lítt aö dœgurþrasi. Greind og festa garpinn skreytti. Geös og þokkablœr í fasi. Hugur fylgdi hverju verki. Hagsýnn mjög í starfi var hann. Jafnan vinnuvitsins merki, viröum flestum, hœrra bar hann. Stórhuga til starfs og dáöa, stööugt hugöi mikiö vinna. Brast ei dug til bjargarráöa, betri stórum, flestra hinna. Tvisvar giftur gœöa konum, gildum bundinn kœrleiksviöjum,. Á sér gnótt af góöum vonum, glööum tengdur manndóms- niöjum. Fiskiveiöar frœkinn þreytti, frœgur varö í svaðilförum, 15 pegar Sigurfara fleytti, foröum upp á Skagafjörum Sóttu feng á fiskimiöin, trœknir drengir Hnífsdal fróL Þá var lengi þoluö biðin, þó aö gengi hríöum á. Afli sóttur oft meö harki, unnardráttum léðist þá. Vetrarnótt meö vondu slarki, vit og þróttinn reyndi á. Hreinum þar aö hetjusiöum, háska marar bœgöir frá. Vel á þara sollnum sviöum Sigurfara stýröir þá. Svipleg brast á sortahríðin, söng og gnast í viöunum. Hrinurastir hrakti lýöinn, hrannakast af miöunum. Beindi Hel aö köldu fari heiftarþeli grimm og Ijót. Knúöi vélin kugg á mari, kafaldséli dimmu mót. Haröna þrautir, hrönnum veltUt hvíta, blauta hafiö á. Aldan braut, svo yfir helltist. Olían flaut í hafiö þá. Háskavœttir hlógu grimmir, hrannir tætti rokiö þar. Vélar hættu, hljómar dimmir, hennar mœtti lokiö var. Undan halda hlutu stormi hlinir skjalda sœvi á. Hrönnin kalda unnar-ormi, œgiváldið sýndi þá. Upp var dregin öflug voöin, yfir fleyi smáu þá. Öldum þvegin œddi gnoöin, unnarvegi bláum á. Landiö huldi hríðin dimma, hrönn á buldi súöunum. Heift ei duldi gjálfin grimma, galdra þuldi á flúöunum. c Háreist alda úfin rauk um, X yfir faldaskrúöa þá. Dauöinn kaldri krumlu strauk um kjölinn tjaldi súöa á. Framh. á bls. 16. % LESBÓK BARNANNA JVjáJshrenna og hefnd Kára 59. Þorgelr skorrageir mælti Þi við Kára: „Þar er hann nú Eyjólfur Bölverksson, ef þú vilt launa bonuiu hringinn". „Eg ætla það nú eigi f jarri4*, segir Kári og þreif spjót af manni og skaut til Eyjólfs, og kom það á hann miðjan og gekk í gegn um hann. Féll Eyjólfur þá dauður tii jarðar. Þá varð hviid nokkur á bardaganum. Þeir Snorri goði og Hallur af Síðu komu þá með lið sitt og hljópu þegar i milli þeirra. Náðu þeir þá eigi að berjast. Voru þá sett grið fyrst um þingið. 60. Annan dag eftir gengu menn til Lögbergs. Hallur af Síðu stóðu upp og kvaddi sér hljóð og fékk þegar. Hann mælti: Hér hafa orð- ið harðir atburðir I manna- látum og málasóknum. Mun ég enn sýna það, að ég er lítilmenni. Eg vil nú biðja Ásgrím og þá menn aðra, er fyrir þessum málum eru, að þeir unni oss jafnsættir**. Fór hann þar um mörgum fögrum orðum. 61. Kári mælti: „Þ6 að alllr sættist aðrir á sín mál, þá skal ég eigi sættast á mín mál, því að þér munuð vilja virða vlg þessi í móti brenn- unni, en vér þolum það eigi**. Slíkt hið sama mælti Þor- geir skorrageir. 62. Snorri goði stóð þá upp og talaði langt erindi og snjallt og bað að þeir skyldu sættast. Ásgrfmur mælti: „Það ætl- aði ég, þá er Flosi reið heim að mér, að ég myndi við hann aldrei sættast, en nú vil ég, Snorri goði, sættast fyrir orð þín og annarra vina vorra**. Þá mælti Gissur hvíti: „Nú má Flosi sjá sinn kost, hvort hann vill sættast til þess, að sumir séu utan sætta**. Flosi kvaðst sættast vilja, — »»<>6 Þykir mér því botur“, segir hann, „er ég hefi færrl góðam enn I móti mér*. Var þá jafnað saman vígum, en bætt ir þeir, er umfram voru. Þeir gerðu og um brennumálið. Á vígið Þórðar Kárasonar var ekki sætzt. Flosi var gerr ut- an og allir brennumenn. Var þessi sætt nú hand- söiuð og efndist vel siðaa. Frœkinn flugmaður Rauði-Bill hafði séð það fyrir, að þarna gat verið um undankomuleið að ræða, og þess vegna látið nokkra af mönnum sínum raða sér á gjár- barminn. Þeir höfðu safn- að saman stórum stein- um, sem þeir voru við- búnir að velta niður á flugvélina til að brjóta hana. Jón gerði sér strax ljóst, að hann átti aðeins um eitt að velja: Hann varð að stefna vélinni næstum lóðrétt upp úr gjánni, svo að vængirnir yrðu sem minnst skot- mark fyrir grjótkastið. Hann slapp upp úr gjánni, án þess að nokk- ur af stóru steinunum hitti vélina. Þegar hann sá fram á, að hann hafði komist undan, fannst hon um tími til kominn að launa þorpurúnum þessa lúalegu árás. Þeir skyldu fá makleg málagjöld. Jón hafði nú komið auga á hesta ræningj - anna, og allt í einu steypti hann flugvélinni niður að þeim með gífur- legum hávaða. Hestarnir trylltust af hræðslu, slitu sig lausa og tóku sprett- inn. Aftur og aftur renndi Jón vélinni niður á eftir þeim og á þann hátt tókst honum að reka hestana fleiri mílur í burtu. Það var óhugsandi að ræningjarnir gætu náð í þá og þar með voru ör- lög þeirra ráðin. Eftir klukkustund leníi hann heilu og höldnu á flugvellinum í Árbæ með allt gullið. Þetta var síð- asta ferð „Eldingarinn- ar“, hún hafði staðið sig vel í þessari hættulegu för og lokið langri og strangri þjónustu með prýði. Jón fékk nýja vél að launum fyrir afrek sitt. Lögreglustjóri bæjar- ins sendi ‘strax út lið til að leita þorparanna og að fáum dögum liðnum höfðu þeir allir verið teknir til fanga. Hest- j lausir höfðu þeir ekkert færi á að sleppa undan lögreglunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.