Morgunblaðið - 31.05.1959, Qupperneq 24
VEÐRIÐ
Suðaustan kaldi — skúrir
119. tbl. — Sunnudagur 31. maí 1959
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13
Stormur og ísrek
við Nýfundnaland
í VIKUNNI sem nú var að líða
var frekar dauft yfir karfaveið-
inni vestur á Nýfundnalandsmið-
um. — Sem kunnugt er af frétt-
um gerði storm þar og mikinn ís
rak inn á veiðisvæðið. Eftir að
veðrinu slotnaði hefur verulega
dregið úr aflabrögðum. Menn
gera sér þó vonir um að fiskurinn
muni jafna sig brátt aftur, en
eins og er, þá er aflinn ekki mik-
ill. Eru skip nú á heimleið af
miðunum og eru sum sem ekki
eru með fullfermi.
í síðustu viku var rólegt í tog-
arahöfninni og aðeins þrír togar-
ar lönduðu Fylkir 338 tonnum,
Marz 313 og Jón forseti 350 tonn-
um.
Frá togurum sem eru við A-
Grænl. á Fylkismiðum segir, að
karfaaflinn sé góður. Er Askur
væntanlegur af þessum miðum í
dag eftir stutta útivist og er með
fullfermi. Neptúnus er einnig
væntanlegur af þessum sömu mið
um á mánudaginn með fullfermi.
Á mánudaginn kemur hingað
einnig togarinn Egill Skalla-
grímsson með fullfermi af Ný-
fundnalandsmiðum.
Nú eru fjórir togarar við
Grænland á saltfiskveiðum, allt
togarar frá Bæjarútgerð Reykja-
víkur.
Utankjörsíaðakosning
hefst í dag
UTANKJÖRSTAÐAKOSNING
hefst í dag og verður kosið frá
kl. 2—6 síðdegis. Kjörstaður í
Reykjavík er Melaskólinn. Úti á
landi er kosið hjá sýslumönnum,
Söngmót að Hlé-
garði á sunnudag
Á SL. vori var stofnað Kirkju-
kórasamband Kjósarsýslu, að til-
hlutun söngmálastjóra þjóðkirkj-
unnar.
Eftir áramót hófust söngæfing-
ar hjá þrem kórum, sem hafa æft
að staðaldri, og nú síðast með að-
stoð söngkennara, Kjartans Jó-
hannssonar.
Samsöngur verður í Hlé-
garði sunnudaginn 31. maí kl. 9.
Ferðir verða frá Bifreiðastöð ís-
lands kl. 8,30.
bæjarfógetum og hreppstjórum.
Erlendis er kosið hjá sendiherrum
og ræðismönnum.
Sjálfstæðisfólk, sem verður f jar
verandi úr bænum á kjördag, er
beðið að hafa samband við kosn-
ingaskrif stof u S jálf stæð isf lokks-
ins, Morgunblaðshúsinu 2. hæð,
símar 12757 og 135G0.
Bjarni
mm
Gunnar
Jóhann
Ólafur
Ragnhildur
Fyrsfi kosningafundur Sjálf-
stæðisfélaganna n.k. þriðjud.
S JÁLFSTÆÐISFÉ-
LÖGIN í Reykjavík
efna til 1. almenna kjós-
endafundarins í Sjálf-
stæðishúsinu n.k. þriðju-
dag 2. júní.
Ræðumenn á fundin-
um verða Bjarni Bene-
diktsson iritstj., Gunnar
Thoroddsen borgarstj.,
Jóhann Hafstein banka'
Allmikill ís frá Jan
Mayen suður að Hvarfi
RIKISÚTVARPIÐ hafði það eftir
Jóni Eyþórssyni, veðurfræðingi í
hádegisfréttum sínum í gær, að
óvenjulega mikill ís hafi verið
við Jan Mayen síðustu vikuna.
Þaðan hefði ísbrúnin svo legið
nær beint í suðvestur í stefnu á
Kolbeinsey. Var hún fyrir rúmri
viku 30 sjómílur fyrir norðan
eyna. Þaðan hefir ísbrúnin legið
í suðvestlæga stefnu, en beygir
til suðurs hér um bil samhliða
Vestfjarðaströndinni. Var hún
Arbók F.l. um Barða-
strandasýslu, er komin út
ÁRBÓK Ferðafélags íslands 1959 |
er nýkomin út. Er hún að þessu
sinni um Barðastrandasýslu, og
hefir Jóhann Skaptason, bæjar-
fógeti tekið bókina saman, en for-
mála ritar Jón Eyþórsson, veður-
fræðingur. — Bókin er 176 blað-
síður að stærð, gefin út í 655 ein-
tökum.
Árbækur Ferðafélagsins hafa
að geyma margvíslegan fróðleik
um land og þjóð, enda ritaðar af
völdum mönnum, paulkunnugum
þeim héruðum, sem fjallað er um
hverju sinni, sögu þeirra, atvinru
vegum og lífi fólksins, sem þar
býr og hefir búið. Mun ekki ann-
ars staðar að finna ýtarlegri Js-
landslýsingu en í þessum merku
bókum F. í.
Auk hinnar greinargóðu hér-
aðslýsingar í Árbókinni nýju, er
þar m. a. skýrsla um heiðuvsfé-
laga, ævifélaga og kjörfélaga F. í.
Formaður Ferðafélags Akureyr-
ar, Kári Sigurjónsson, segir frá
síðasta aðalfundi félagsins og
starfi þess. — Jón Eyþórsson rit-
ar minningarorð um Geir G.
Zoega, fyrrv. vegamálastjóra og
forseta F. í. um 22 ára skeið. Þá
er birt 1 ritinu ársskýrsla F. f.
fyrir starfsárið 1957—’58 og fund
argerð aðalfundar 1958. Einnig er
birtur rekstrarreikningur félags-
ins 1957—1958.
Mikill f jöldi ágæta mynda prýð
ir Árbókina. Hafa margir lagt til
myndir, en þar er þó örýgstur
hlutur Páls Jónssonar, bókavarð-
ar, en flestar myndir hans eru
nýjar. — Árbókin er hin prýði-
legasta að öllum frágangi eins og
jafnan áður.
um 30 sjóm. norðvestur af Barða
og Straumnesi í lok næstsíðustu
viku, og samkvæmt síðustu fregn
um frá varðskipinu Ægi virðist
hún haf i færzt heldur nær land-
inu á þeim slóðum.
ísbrúnin liggur síðan áfram til
suðvesturs að 64. gr. norðl. br. og
45. gr. v.l., en þaðan er mjótt
belti af ísreki suður undir Hvarf
á Grænlandi, sums staðar nokkuð
þétt, en víða eru stór lón á miiii.
Sundkeppni
í Hafnarfirði
SUNDKEPPNI milli Hafnfirðinga
og Akureyringa verður háð í
Sundhöll Hafnarfjarðar kl. 5,30 í
dag. Keppt verður um verðlauna-
grip sem Kaupfél. Hafnfirðinga
hefur gefið.
stj., ólafur Björnsson
prófessor, Ragnhildur
Helgadóttir cand. jur.
Funduirinn hefst kl.
20,30. Allt Sjálfstæðis-
fólk velkomið.
Flokkráðsfundur Sjálíslæðis-
manna í Gullbringu- og Kjósarsýsla
Rætt verður um undirbúning
alþingiskosninganna og skipulags
mál flokksins í kjördæminu.
Ólafur Thors, form. Sjálfstæð-
isflokksins og Gunnar Helgason,
erindreki, mæta á fundinum.
FLOKKSRÁÐ Sjálfstæðisfiokks-
ins í Kjósarsýslu, Kópavogi og
Gullbringusýslu halda sameigin-
legan fulltrúafund í Sjálfstæðis-
húsinu í Reykjavík fimmtudag-
inn 4. júní n.k. kl. 8,30 s.d.
Stofnfundur Sjálfslæðisfélags
Garðahrepps á miðvikudag
STOFNFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Garðahrepps verður haldinn
í samkomuhúsi hreppsins mið-
mvikudaginn 3. júní kl. 8,30 s.d.
Á f'undinum mætir alþingismað
ur kjördæmisins, Ólafur Thors,
form. Sjálfstæðisflokksins og mun
hann að lokinni stofnun félagsins
flytja yfirlitsræðu um stjórn-
málaviðhorfið.
Sveit Stefáns Cuðjóhnsen
íslandsmeistari í bridge
Vorboða-fundur
annað kvöld
HAFNARFIRÐI. — Annað kvöld
kl. 8,30 heldur Sjálfstæðiskv.enna
félagið Vorboðinn fund í Sjálf-
stæðishúsinu og verður þar með-
al annars rætt um stjórnmála-
viðhorfið og kosningarnar. Frum
mælendur verða þeir Matthías Á.
Mathiesen frambjóðandi flokks-
ins og Stefán Jónsson formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna. Á fundin-
um verður fram-
reitt kaffi. Eru
Vorboða-konur
svo og aðrar
Sj álf stæðiskonur
velkomnar á
fundinn meðan
húsrúm leyfir.
Þetta er fyrsti
fundur Vorboð-
ans í kosninga-
baráttunni, sem nú er hafin, en
Sjálfstæðiskonur hér í Hafnar-
Matthías
firði munu sem fyrr vinna af
einhug og festu að sigri Sjálf-
stæðisflokksins. Þær hafa jafnan
átt mikinn þátt
í eflingu flokks
ins og sigrum
hans, og svo mun
einnig verða nú.
Almenn ánægja
ríkir í röðum
Vorboða-kvenna
sem og annarra
Sjálfstæðis-
manna hér, um
framboð Matthíasar Á. Mathie-
sens, en hann er sem kunnugt
er framúrskarandi vel látian af
öllum sem hann þekkja, enda
drengur hinn bezti, og hinn hæf-
asti maður. Ná vinsældir hans
langt út fyrir raðir Sjálfstæðis
manna, og binda Hafnfirðingar
miklar vonir við Matthías sem
þingmann sinn. — G.E.
Stefán
íslandsmeistaramótinu í sveita-
keppni lauk í fyrrakvöld. Sveit
Stefáns J. Guðjohnsen bar sigur
úr býtum og hlaut 11 stig í sjö
leikjum. Auk Stefáns eru í sveit-
inni Eggert Benónýsson, Guð-
laugur Guðmundsson, Gunnlaug
ur Kristjánsson, Jóhann Jó-
hannsson og Kristján Kristjáns-
son. I síðustu umferðinni tapaði
sveit Stefáns fyrir sveits Halls
Símonarsonar (íslandsmeistari
1958), en það kom eigi að sök,
því sveit Hjalta, er var eina
sveitin er gat náð sömu stigatölu
og sveit Stefáns, tapaði einnig.
Úrslit í 7. umferð urðu:
Sveit Halls Símonarsonar vann
sveit Stefáns J. Guðjohnsen 60:40
Sveit Óla Kristjánssonar vann
sveit Hjalta Elíasonar 59:36.
Sveit Sigurhjartar Péturssonar
vann sveit Eggrúnar Arnórsdótt-
ur.
Sveit Svavars Jóhannssonar
vann sveit Sophusar Guðmunds-
sonar 66:27.
Háskólafyrirlest-
ur í dag
PRÓFESSOR dr. Margaret
Schlaush, prófessor við háskól-
ann í Varsjá og yfirrmður ensku
deildarinnar þar, mun halda
fyrirlestur í I. kennslustofu Há-
skóla íslands þriðjudaginn 2. júní
kl. 8,30 e.h.
Prófessor Schlauch er kunn
m.a. fyrir rannsóknir sínar á forn
um íslenzkum bókmenntum, og
mun fyrirlestur hennar fjalla um
pólska þýðingu Joachims Lele-
wels á Sæmundar Eddu og áhrif
hennar á verk pólska skáldsins
Slowackis.
Sveit Vigdísar Guðjónsdóttur
jafnt Mikaels Jónssonar 36:32.
Endanleg röð sveitanna varð
þessi:
1. sveit Stefáns J. Guðjóhnsen
11 stig, 2. sveit Ásbjörns Jóns-
sonar 10 stig, 3. sveit Hjalta Elí-
assonar 9 stig, 4. Sigurhjartar
Péturssonar 9 stig, 5. sveit Halla
Símonarsonar 9 stig, 6. sveit Óla
Kristjánssonar 8 stig, 7 sveit
Mikaels Jónssonar 7 stig, 8. sveit
'Svavars Jóhannssonar 7. stig,
9. sveit Vigdísar Guðjónsdóttur
6 stig, 10. sveit Ragnar Þorsteins-
sonar 4 stig, 11. sveit Sophonar
Guðmundssonar 3 stig, 12. sveit
Eggrúnar Arnórsdóttur 1 stig.
Verkfall?
Þ E G A R Morgunblaðið var
fullbúið til prentunar síðdegis
í gær, stóð yfir fundur hjá
sáttasemjara ríkisins, Torfa
Hjartarsyni, í kaup- og kjara-
deilu prentara og prent-
smiðjanna.
Þegar þessi fundur hófst
um klukkan 3, höfðu samn-
ingaumleitanir, sem áður
höfðu farið fram, ekki horið
neinn árangur.
Hið íslenzka prentarafélag
hefur boðað til verkfalls
prentara frá klukkan 12 á mið
nætti á sunnudagskvöld hafi
samningar þá eigi tekizt. Ef
til þess kemur stöðvast eðli-
lega öll blaðaútgáfa.