Morgunblaðið - 14.06.1959, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.06.1959, Qupperneq 3
Sunnudagur 14. júní 1959 VORCTJlSTtlAÐIÐ Frá aðalfundi Eim- skipafélags íslands MEÐAN á prentaraverkfallinu stóð var haldinn hér í Reykja- vík aðalfundur Eimskipafélags íslands. Formaður félagsstjórnar Ein- ar B. Guðmundsson hrl. setti fundinn. Bauð hann sérstaklega veikomna til fundarins þá Gretti Eggertsson sem er fulltrúi V- íslendinga í félaginu og á jafn- framt saeti í stjórn þess og D. Summerfield framkvstj. Thule Ship Agency í New York en það skipafélag annast alla fyrir- greiðslu fyrir Fossana vestra. Fundarstjóri var kjörinn Tóm- as Jónson borgarlögmaður, en fundarritari Björgvin Sigurðsson frv.kvstj. I upphafi fundarins minntist formaður níu manna, er látizt höfðu frá því á síðasta aðalfundi, er allir höfðu þeir komið mjög við sögu félagsins, en það eru þeir Garðar Gíslason stórkaupm., Ólafur Johnson stór- kaupm., Jóhannes Hjartarson verkstjóri, G. W. Sörensen vél- stjóri, Jón Aðalsteinn Sveinsson vélstjóri, Bjarni Eiríksson kaup- maður, Bolungarvík, Jón Björns son kaupm., Þórshöfn, Þormóður Eyjólfsson ræðismaður, Sigluf., og Sigurjón Jónsson fyrrv. banka stjóri. Risu fundarmenn úr sætum í virðingarskyni við hina látnu. í sambandi við skipabygging- ar á vegum félagsins gat form. þess, að Selfoss, nýjasta skip fé- lagsins hefði kostað um 51 millj. kr. Kvað form. skipið allt vera hið vandaðasta og að næsta skip félagsins, sem smíðað verður á sama stað og Selfoss í hinni miklu skipasmíðastöð í Álaborg yrði væntanlega fullsmíðað og og afhent Eimskip í árslok 1960. Elnar B. Guðmundsson formaður Eimskip Ræðumaður kvað miklar vonir tengdar við þessi nýju skip. Hér væri hinsvegar um gífurlega fjár festingu að ræða; kostnaðarverð beggja skipanna yrði um 102 millj. kr. að óbreyttum aðstæð- um. Við verðum að vona að fram leiðsla íslendinga og atvinnu hættir blómgist svo, að hægt verði að nýta til fulls þessi skip •vo og önnur skip félagsins og annarra landsmanna, sagði for- maðurinn. Nokkuð ræddi hann um skatta mál Eimskipafélagsins og því næst um vinnudeilur og kjara- mál. Vegna verkfalls háseta og kyndara var um stöðvun að ræða i 20 daga til mikils tjóns. Sjó mannafélagið hefur ekki boðað vinnustöðvun. Kvað formaður hin tíðu verkföll, sem skollið hafa á undanfarin ár, vera orðin hreint þjóðarböl og að því þurfi að vinna að koma málum þessum í það horf að efnahag þjóðarinn ar sé ekki stefnt í beinan og bráð an voða. Á árinu 1958 námu vöruflutn ingar með skipum Eimskipafé- lagsins og leiguskipum alls 260 þús. tonnum, en af þessu vöra magni fluttu eigin skip 250 þús. tonn. Hefur aldrei síðan styrjö’d innj lauk verið flutt jafnmiKið með Fossunum og jafnlitið með leiguskipum. Árið 1957 námu flutningar félagsins 227 þúsund tonnum. Með skipum félagsins ferðuðust 6230 manns, þar af með Gullfossi 5838. Formaður skýrði frá eigenda- skiptum á hlutabréfum og kvað þau hafa orðið allmiklu minni á síðasta ári, en næstu árin á und- an og kvaðst telja það sennilega skýringu að á síðasta aðalfundi Sr. Óskar J. Þorláksson: Vernd Guðs og vandamál þjóðlífsins áfF: Hlustið, þér himnar, því að nú mun ég mæla, og jörðin hlýði á mál munns míns. Kenning mín streymi sem regn, og ræða mín drjúpi sem dögg, eins og gróðrarskúrir á grængresið og sem þungaregn á jurtirnar. Því vil ég kunngjöra nafn Drottins: Gefið Guði voru dýrðina! Bjargið — fullkomin eru verk hans, því að allir vegir hans eru réttlæti. (5.Mós:32.1—6). FYRIR nokkru fékk ég bréf frá gömlum lífsreyndum vini mín- um, þar sem að hann óskaði eftir því, að ég vekti sérstaka athygli, í þessum sunnudagshugleiðingum mínum, á 32. kap. V Mósebókar, þar sem spámaðurinn Móses flutti ísraelsmönnum boðskap í ljóð- um, og hvatti þjóð sína til trúar og þjónustu við Guð og varaði við þeim hættum, sem fráfallið frá Guði hefði fyrir örlög þjóð- arinnar. Selfoss í smíðum í Álaborg. — Krani flytur reykháfinn að yfirbyggingu skipsins. hafi verið ákveðið að greiða 10% ársarð af hlutafénu í stað 4%. Þá flutti formaður fundinum þau gleðitíðindi, að reikningar fyrir árið 1958, sýndu að aflcoma félagsins hefði verið mun betri það árið en sl. tvö ár. Tekjur félagsins urðu meiri 1958 en áður en sama máli gegnir og um allan rekstrarkostnað þess fyrir það ár. Urðu nettótekjur félagsins liðlega 1900 þúsund krónur. í sambandi við hin stórauknu útgjöld félagsins gat formaður þess að brúttó útgjöld Fossanna hefðu orðið 60 millj. kr. árið 1951, en þessi sami kostnaður nam 103 millj. á árinu 1958. Formaður gat þess, að Eim- skipafélagið yrði að haía tekjur, er nægðu til þess að félagið gæti jafnan aukið skipastól sinn og þannig rækt það hlutverk, sem því er ætlað í efnahagslífi ís- lendinga.I þessu sambandi minnti hann einnig á þær miklu greiðsl- ur er félagið verður að inna af hendi á næstu árum vegna hinna nýju skipa félagsins. Eimskipafélagið hefur á und- anförnum árum ráðizt í miklar og fjárfrekar framkvæmdir. Af níu skipum þess hafa 8 verið byggð á sl. llárum. Félagið hefur og á síðustu árum fest kaup á mjög verðmiklum geymsluhús- um, lóðu: í og athafnasvæðum við Skúlagötu, reist mikla vöru- skála og komið upp miklu at- hafnasvæði við Borgartún og kotsað hefur verið kapps um að hafa sem fullkomnust og stór- virkust tæki við upp- og útskip-r un. Hefir þess og jafnan verið vandlega gætt að halda öllum skipum, tækjum og búnaði, sem bezt við og bera skip félagsins glögg vitni um það, að þar er ö!lu haaldið eins vel við og frekast verður á kosið og þessi þróun verðuir að halda áfram, sagði formaður. í lok ræðu sinnar færði form. framkvæmdastjóra og öllum starfsmönnum félagsins á skipum þess og á sjó og landi, og öllum viðskiptavinum félagsms innan- lands og utan, þakkir félagsns. Úr stjórn Eimskipafélagsins áttu að ganga að þessu sinni þeir Bjarni Benediktsson ritstjóri, Jón Árnason fyrrv. bankastjóri, Pétur Sigurðsson forstjóri og Árni Egg- ertsson, Winnipeg og voru þeir allir endurkjörnir. Ennfremur var endurskoðandi félagsins Sig- urbjörn Þorbjörnsson, endurkos- inn. Birgir Kjaran hagfræðingur, gjaldkeri félagsstjórnar, geröi glögga grein fyrir reikningum fé- lagsins. Tillaga stjórnarinnar um greiðslu á 10 prósent arði til lut hafa fyrir árið 1958, var sam- þykkt. Varmárvöllur i Mosfelssveit vígður Framkvæmdir v/ð völlinn hafa stadid i 10 ár REYKJUM, 13. júní. — Vígsla Varmárvallar í Mosfellssveit fór fram í gær með leik milli U.M.F. Aftureldingar og U.M.F. Breiða- bliks í Kópavogi. Athöfnin hófst með því að Sig. Gunnar Sigurðs- ' son fyrv. formaður félagsins ávarpaði viðstaðda og lýsti fram- kvæmdunum, sem staðið hafa í 10 ár, en landið var gefið að hreppnum á 40 ára afmæli fé- lagsins 1949. Fyrirliði gestanna Ármann J. Lárusson afhenti blómvöld með heillaóskum en síðan hófst leik- urinn með því að fimm ára snáði Sigurjón Ásbjörnsson spyrnti, við blístru dómarans, til Tómasar Lárussonar v. innherja Aftur- eldingar. Sigurjón litli er sonar- sonur Sigurjóns heitins íþrótta- kappa frá Álafossi. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur en nokkuð ójafn og lauk með sigri Aftureldingar 6 gegn 1 marki. Dómari var Hannes Þ. Sigurðsson og dæmdi hann ágætlega. Eftir leikinn var hóf í Hlé- garði og voru þar ræður fluttar og árnaðaróskir. Hófinu stjórn- aði formaður félagsins, Guðjón Hjartarson Álafossi. Aðrir ræðu- menn voru Guðjón Einarsson frá Í.S.Í., Páll Ólafsson frá U.M.S.K., Þorsteinn Einarsson íþróttafull- trúi, Jón M. Guðmundsson, for- maður knattspyrnunefndar, Ól- afur Þórðarson, Varmalandi, Ólafur Jóhannesson frá Svína- hóli og Einar Björnsson frá Knatt spyrnufélaginu Val í Reykjavík. Þjálfari hjá Aftureldingu er Guðmundur Guðmundsson úr Reykjavík og er hann nýlega byrjaðurogbinda félgasmenn góð ar vonir með hann. Gísli Hall- dórsson teiknaði leikvanginn og hefur hann og Þorsteinn Einars- son verið sérlega hjálplegir með- an á framkvæmdum stóð. Þá minntist formaður félagsins á að nokkrir aðilar hefðu veitt mikils- verða aðstoð með efniskeyrslu, t.d. Álfsnesmöl h.f., en aðaleig- endur þess fyrirtækis eru Bene- dikt á Vallá og Oddur Ólafsson, en margir fleiri komu mjög drengileg afram í aðstoð við þetta nauðsynjamál æskufólks Mosflels sveitar. íslandsmótið í dag: IBK — Akrnnes Frnm — KR í DAG fara fram tveir leikir í ís- landsmóti- 1. deildar í knatt- spyrnu. Verður annar leikurinn háður í Njarðvíkum hinn í Reykjavík. Leikurinn í Njarðvík er á milli Keflvíkinga (IBK) og Akurensinga. Er þetta fyrsti leik- ur íslandsmóts 1. deildar er fram fer í Keflavík. Leikurinn verður leikinn á grasvellinum í Njarðvík um og hefst kl. 4. — Dómari er Jörundur Þorsteinsson en línu- verðir Baldur Þórðarson og Páll Pétursson. — Ferðir verða frá Ferðaskrifstofunni kl. 3 og til baka að leik loknum. í kvöld keppa Fram og KR á Melavellinum. Ég vil hvetja yður, lesendur góðir, að hugleiða efni þessa kapitula Mósebókar, því að þótt spámaðurinn hafi fyrst og fremst talað þessi orð til þjóðar sinnar, þá geta þau engu síður átt er- indi til vor, sem nú lifum og hugsum um vandamál dagsins i dag. Spámaðurinn talaði skýru máli um hinar miklu dásemdir Guðs og velgjörðir hans, og hann var ekki myrkur í máli, þegar hann átaldi þjóðina fyrir guðleysi hennar og spillingu og sýndi fram á, að fráhvarf frá Guði hlyti alltaf að hafa í för með sér ógæfu fyrir þjóðina. Það er þessi sama hugsun, sem kem- ur allstaðar fram í ritum spá- mannanna. Þeir voru vökumenn þjóðarinnar, hin hvetjandi og að- varandi rödd meðal fólksins. Stundum vildi þjóðin ekki heyra þessar aðvaranir spámann- anna og ofsótti þá og líflét, en sannleiks- og aðvörunarorð þeirra gleymdust ekki og geta enn orð- ið oss til lærdóms, því að Guð talar enn til vor í orðum þeirra. Og lögmál hins trúarlega og sið- ferðilega lífs er hið sama í dag og það var á dögum spámann- anna. n Vernd Guðs hvílir yfir þjóð vorri, á liðnum öldum hefur hann leitt oss yfir margar og erfiðar torfærur, bæði í tíman- legum og andlegum skilningi. Oss dylst ekki að vandamálin eru mörg í lífi þjóðar vorrar í dag og flest eiga þau rætur sín- ar í trúarlegum og siðferðilegum veilum mannshjartans. Guðs vilji er mönnunum ekki það leiðar- Ijós sem vera ber og því er hin siðferðilega ábyrgðartilfinning oft harla sljó. Það má játa, að margt hefur verið vel gert í þjóðlífi voru hin síðari ár, en samt fáum vér ekki varizt þeirri hugsun, að þjóðin lifi um efni fram og að öryggis- leysið í efnahagsmálum þjóðar vorrar skapi glundroða og kæru- leysi í hugum margra, ekki sízt þegar vér hugsum um meðferð fjármuna. Margir sóa fé sínu gegndarlaust í áfengi, skemmt- anir og fánýta hluti og afleiðing- in verður fleiri áfengissjúklingar og meira af taugaveikluðu og óhamingjusömu fólki. Vér gerum miklar kröfur til annarra, en oft litlar kröfur til vor sjálfra og því raskast jafnvægi þjóðlífs- ins. Vér sláum oft á strengi sundrungaraflanna, en hirðum minna um hitt, að sameinast um þau viðfangsefni, sem miða til heilla. Er hægt að breyta um stefnu í þessum málum? Er hægt að vekja þjóðina til vaxandi trúar og siðferðilegrar alvöru? Kristinn maður hlýtur að vera bjartsýnn á sigur fagnaðar- erindisins, þó að erfiðleikar verði á veginum um stund. Guð og hans vilji getur ekki beðið ósigur, það væri með öllu óhugsandi. En vér mennirnir getum beðið ósigur, og það gerum vér í hvert sinn er vér förum aðrar leiðir en Guð ætlar oss. Þess vegna hefur margs konar ógæfa dunið yfir heiminn á ýmsum tímum. Slík ógæfa getur orðið hlutskipti vort, ef vér þekkjum ekki vorn vitj- unartíma. Minnumst þess, að trú- mennskan við Guð er eini öruggi vegurinn til gæfu, hverjunrí ein- staklingi og hverri þjóð. „Yfir voru ættarlandi, alda faðir skildi halt. Veit því heillir, ver það grandi, virztu að leiða ráð þess allt. Ástargeislum úthell björtum yfir lands vors hæð og dal. Ljós þitt glæð í lýðsins hjörtum, ljós, er aldrei slokkna skal. (St. Th.).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.