Morgunblaðið - 14.06.1959, Page 24
VEÐRIÐ
SV-kaldi eða stinningskaldi,
rigning öðru hverju.
*
Ufvarpsum-
rœðurnar
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIO 23. og
miðvikudagskvöldið 24. þessa
mánaðar fara fram útvarpsum-
ræður stjórnmálaflokkanna. Hefj
ast þær kl. 8,10 bæði kvöldin, og
verður ein 45 mín. umferð fyrra
kvöldið, en þrjár umferðir síðara
kvöldið. Hefur hver flokkur þá
20 mín., 15 mín. og 10 mín til
umráða.
Fyrra umræðukvöldið verða
framsöguræðurnar fluttar af seg
ulbandi og verður röð flokkanna
sem hér segir: Alþýðflokkur,
Sjálfstæisflokkur, Framsóknar-
flokkur, Alþýðubandalag og Þjóð
varnarflokkur.
Síðari umræður fara fram í út-
varpssal og tala flokkarnir þá í
þessari röð: Alþýðubandalag,
Sjálfstæðisflokkur, Þjóðvarna-
flokkur, Framsóknarflokkur og
Alþýðuflokkur.
13 Akranesbátar
AKRANESI, 13. júní. — 16 bátar
munu fara héðan frá Akranesi
norður til síldveiða í sumar.
Fyrsti báturinn, Ólafur Magnús-
son, hefði lagt af stað þangað
i dag ef veður hefði leyft. En svo
varð ekki, því að nú er hann
stinningshvass á suðvestan og
talsverður hroði í sjóinn.
Birgir Kjaran
Björn Ólafsson
Sveinn Guðmundsson
Auður Auðuns
Bjarnl Benediktsson
Kosningafund ur
annað kvöld
ANNAÐ kvöld kl. 8,30 efna
Sjálfstæðisfélögin í Reykja-
vík til kosningafundar í
Sjálfstæðishúsinu.
Ræðumenn verða þessir:
Björn Ólafsson, alþingis-
maður
Bjarni Benediktsson, ritstjóri.
Reykvískir Sjálfstæð-
ismenn! Ilorðum enn
sóknina. Fjölmennum í
Sjálfstæðishúsið annað
kvöld.
Pétur Sigurðsson
Fundir á vegum
Sjálfstæðismanna
Á MORGIJN og hinn daginn efn-
ir Sjálfstæðisflokkurinn til funda
og samkoma, sem hér segir:
í Grindavík
Sjálfstæðisflokkurinn boðar til
stjórnmálafundar í samkomuhús
inu í Grindavík annað kvöld og
hefst hann kl. 8,30. Frununæl-
endur á fundinum verða Ólafur
Thors, formaður Sjálfstæðis-
flokksins og Jóhann Hafstein,
alþingismaður.
Á Siglufirði
Sjálfstæðismenn á Siglufirði
efna til samkomu þar á staðn-
um annað kvöld. Þar flytja ræð-
ur: Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, og Einar Ingimundarson,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins á Siglufirði. Skemmtiatriði
annast Haraldur Á. Sigurðsson,
Ómar Ragnarsson og Hafliði
Jónsson.
f Garði
Sjálfstæðisflokkurinn boðar til
stjórnmálafundar í samkomuhús-
inu í Garði þriðjudaginn 16. þ.m.
og hefst hann kl. 8,30 sd.
Frummælendur á fundinum-
verða: Ólafur Thors, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Matthías
Á. Mathiesen, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði.
Frú Auður Auðuns, forseti
bæjarstjórnar
Birgir Kjaran, hagfræðingur
Sveinn Guðmundsson, vél-
fræðingur
Pétur Sigurðsson, sjómaður
Stefnis-fnndur
kl. 4
HAFNARFIRÐI. — Átta ungir
Hafnfirðingar halda stuttar'
ræður á Stefnis-fundinum í
dag, sem hefst í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 4. Auk þeirra taka
til máls Matthías Á. Mathiesen
og Geir Hallgrímsson. Er allt
stunðingsfólk Matthíasar vel-
komið á fundinn meðan hús-
rúm leyfir.
Vinstri stjórnin sat að völdum í 2% ár, en gat þó aldrei borið fram úrræði til að leysa vanda
efnahagsmálanna. Eftir að hafa fleytt sér áfram með bráðabirgðaúrræðum allan sinn feril vildi
stjórnin enn fá umhugsunarfrest í nóvemberlok í vetur og það Alþýðusambandið um, að það
féllist á, að full vísitala kæmi ekki á kaup eins og lög gerðu ráð fyrir. Þá hrökklaðist stjórnin
frá og forsætisráðherrann Hermann Jónasson sagði á Alþingi um leið og hann kvaddi: „Af
þessu leiddi, að hin nýja kaupgreiðsluvisitala kom til framkvæmda um mánaðamótin, og NÝ
VERÐBÓLGUALDA ER ÞAR MEÐ SKOLLIN YFIR“.
Fyrsfu ummœlin um
norrœnu myndlistar-
sýninguna
DÖNSKU blöðin hafa þegar birt nokkrar greinar um norrænn
listsýninguna í Odense, sem opnuð var 7. júní sl. — Berlingske
Tidende birtir myndir af listaverkum frá öllum Norðurlöndunum,
þar á meðal mynd af einu málverki eftir Jóhannes Kjarval. Kay
I lor, listagagnrýnandi blaðsins segir um íslenzku listamennina:
Abstrakt list er sérstaklega
áberandi meðal íslenzku þátttak-
endanna. Fyrstan þeirra má telja
Svavar Guðnason, þá Þorvald
Skúlason, ásamt Guðmundu And-
résdóttur, Jóhannesi Jóhannes-
syni og Hafsteini Austmann, sem
öll sverja sig í ætt hinnar beinu
línu í samspili við litaþríhyrn-
inga „útklippu-mosaikurinnar".
Jóhannes Kjarval, aldursfor-
seti málaranna sýnir algerlega
aðra og frjálsa hæfileika til þess
að endurnýja list sína, enda þóit
hún byggist á skoðun og tækni,
sem líkist honum gegnum ö.’i
árin, hvort sem um er að ræða
hina stóru vornæturmynd hans
með dulrænum töfrum náttúr-
unnar í litafletinum eða hina sér-
kennilegu mynd með hinum
tveimur andiitum, er nefnist
„Hvísl“.
Sigurður Sigurðsson er einl
fulltrúi hinnar „naturalistisku"
málarastefnu. Litirnir í kyrralífs-
og blómamyndum hans eru mjög
tærir og hreinir.
Af íclenzku myndhöggvurun-
um minnist Kay Flor á Ólöfu
Pálsdóttur, Kemst hann þannig
að orði, að kyrrð og látleysi mséti
manni í höggmynd hins íslenzka
myndhöggvara Ólafar Pálsdótt-
ur af krjúpandi telpu og högg-
mynd hennar af gömlum manni,
sýni reisn.
En einnig meirihluti íslenzku
myndhöggvaranna er abstrakt,
segir blaðið.
„Politiken" sýnir einnig my nd-
ir frá sýningunni frá hinum
ýmsu löndum, og eina frá ís-
landi af höggmynd eftir Ólöfu
Pálsdóttur. — Frétt.aritari.
Kjördæmablaðið viðurkennir
rangfærsiu sína ó ummælum
Olafs í Hóbæ
I KJÖRDÆMABLAÐINU, sem út
býtt var í gær, þó að það sé dag-
sett þriðjudaginn 16. júní er birt
svohljóðandi bréf frá Ólafi hrepp
stjóra Sigurðssyni í Hábæ:
„I tilefni af blaðaviðtali, sem
við áttum hér sunnud. 24. f. m.
vil ég gera athugasemd.
Þar sem ég lýsti því yfir í
fyrstu orðum viðtalsins, að ég
hefði alltaf verið Sjálfstæðismað-
ur, en aðeins þetta eina mál bæri
á milli nú í bili, þar sem ég taldi
það ópólitískt með öllu, þá man
ég ekki til að mitt síðasta orð
væri þannig framborið, að ég
vildi fella þríflokkana. Þetta hef
ég beðið Morgunblaðið að leið-
rétta“.
í umsögn sinni um bréfið segir
ritstjórinn m.a.:
Hann mótmælir því aðeins
„að hans síðasta orð hafi ver-
ið þannig framborið, að hann
vildi fella þríflokkana". Ekki
er að efa, að þetta er rétt með
farið hjá Ólafi og biður blað-
ið hann velvirðingar á óná-
kvæmninni. —“
í þessu felst viðurkenning á
rangfærslu þess meginatriðis á
ummælum þeim, sem Kjördæma
blaðið hinn 2. júní hafði eftir
Ólafi, þar sem hann er látinn
skora á menn að „fella fram-
bjóðendur þríflokkanna". Rit-
stjórinn verður að játa að hafa
búið þessi ummæli til. Er ekki
að efa í hvaða skyni það var
gert. Með því er gefið í skyn,
að Ólafur væri snúinn frá Sjálf-
stæðisflokknum, sem er viðs
fjarri.