Morgunblaðið - 18.07.1959, Síða 13

Morgunblaðið - 18.07.1959, Síða 13
Laugardagur 18. júlí 1959 MORCUNBLAÐIÐ 13 í Keykjadal, verður mönnum star sýnast á ríka sjálfsbjargarhneigð, hinn mikla framkvsemdamann og persónuleika hans. En ef spurt væri, hvert hafi verið mark hans og lífsmið, þá var búrekstur hans og aðrar framkvæmdir og margs konar umsvif að vísu nauðsynleg rás athafnaþörf hans og baráttu- löngun, en þegar betur er gáð þó aðeins braut, sem hann kaus sér, óvitandi og vitandi vits til að geta rétt þeim hjálparhönd, sem um veginn fóru. Um árabil hefur hann fylgzt með ástæðum sveitunga sinna betur en flestir aðrir og vakað yfir velferð þeirra, reiðubúinn að veita lið, þar sem þess var þörf. Og það var athyglisverðast við þennan eðliþátt hans, hve sýnt honum var um að koma að fyrra bragði, finna hvar aðstoðar hans og atbeina var þörf og rétta fram hjálparhönd sína ótilkvaddur. Fyrir þetta stöndum við sveitung ar hans í ómetanlegri þakkar- skuld við hann. Og þegar skyggnzt er um svið- ið að le'iðarlokum, undrast ég, hvernig hvað eina hefur eins og hnigið á eina sveif allt frá upp- vaxtarárum, að ævistarf hans fengi krýnzt svo dýru djásni sem orðið er. Því að það mun uppi um aldur í Mosfellssveit, að hann hefur ánafnað þorra eigna sinna sjóði, sem verja skal til að reisa kirkju að Mosfelli, þar sem hún stóð frá fornu fari, unz hún var ofan tekin fyrir 71 ári. Kirkju Islands er mikil sæmd að þessari höfðinglegu gjöf, minnug þess, að sínum gjöfum er hver líkastur. Ungur drakk hann í sig ást á þessum gamla kirkjustað frá upp- alendum sínum og umhverfi. Frá bernsku ól gamla kirkjuklukkan, sem varðveitzt hefur á æskuheim ili hans í 70 ár, á lotningu fyrir þeim helgidómi, sem hún hefur kallað menn til um aldaraðir. En sú, sem kallaði á hátíðis- og gleði- dögum, átti líka róm harms og grafar. í dag að aflíðandi nóni, þegar veikur ómur hennar berst um dalinn, slær þögn á hollvætt- ir í fellunum í kring, því að um áratugi hefur sú klukka ekki kall að nema yfir opinni gröf í kirkju- reitnum forna. En sú kemur stund, að hún kallar þar til tíða á ný. Guð blessi minningu Stefáns í Reykjadal, gæfumannsins, sem skilaði lífsstarfi sínu í mark. Bjarni Sigurðsson. f Það er g->mall og góður siður að kveðja vini sína þegar þeir leggja upp í ferðalag, og þeim mun vandlegar, sem ferðin er áætluð lengri. Nú hefur einn vina minna lagt upp í sína sið- ustu ferð án þess, að ég ætti kost á að kasta á hann kveðju. Því skrifa ég linur þessar. Stefán Þorláksson ólst upp hjá fósturforeldrum, Ólafi Magn ússyni bónda á Hrísbrú í Mos- fellsdal og konu hans Finnbjörgu Finnsdóttur. Ungur fór hann heiman og fór að sjá fyrir sér sjálfur, sem honum tókst m£ð ólíkindum, því ekki munu farar efnin hafa verið mikil. Hjá fóstur foreldrum sínum nam hann þá list að treysta á sjálfan sig, enda skorti hann ekki áræði, þegar út í lífsbaráttuna kom. Greind átti hann einnig góða og aflaði sér furðuforða af hagnýtri þekk- ingu. Stefán var um allmörg ár búsettur í Reykjavík og fékkst þar við ýms störf, fluttist síðan að Reykjahlíð í Mosfellsdal og var þar bóndi um nokkur ár. Siðan byggði hann nýbýli úr landi Reykjahlíðar og kallaði Reykjadal. Þar var heimili hans það sem eftir var ævinnar. Ýms opinber störf voru hon- um falin — meðal annarra hreppstjóra-embætti í Mosfells- hreppi — og rækti hann þau öll af alvöru og samvizkusemi. Er mér þetta vel kunnugt sem sam- starfsmanni hans i einni af nefnd um þeim, er hann var formaður fyrir, En það eru ekki þessi störf hans, sem ég hef hér lauslega drepið á, er valda því, að ég kveð hann nú með línum þessum. Að vísu þakka ég samstarfið, sem alltaf var snurðulaust. En fyrst og fremst kveð ég manninn og vininn, Stefán Þorláksson. Manninn, sem aldrei virtist geta gleymt því, er honum var einu sinni kært. Ég kynntist Stefáni fyrst veturinn 1922—23. Lausleg voru þau kynni á meðan hann átti heima í Reykjavík, en þau ukust eftir flutning hans í sveitina, og þó mest síðustu ár- in. Þá ræddi hann oft við mig um æskuárin og æskustöðvarn- ar og þó sérstaklega um fósíur- foreldra sína, sem hann talaði ætíð um með sérstakri virðingu. Af eigin raun veit ég að tryggð Stefáns við æskuvinina var ó- brigðul. Að vísu var ég ekki einn af þeim. En ég var tengdur fjölskyldu, sem heima átti nær því í sama túni og hann í æsku. Það fólk þótti honum vænt um og það var nóg til þess, að ég var sjálfsagður með í vinahópinn. Seinna áttu svo börn mín vel- vilja han«, og hjálpfýsi vísa. Þessa tryggð Stefáns áttu allir hans_ vinir — ungir og gamlir — og þeirra vinir og venslamenn. Og hún kom oftar fram í verk- um en orðum. Hún var aldrei auglýst af honum sjálfum, því honum var svo eiginlegt að lifa eftir þessari gömlu speki Háva- mála: „Vin sínum skal maðr vinr vesa, þeim ok þess vin“. Þegar hann leggur nú upp í sína löngu ferð, viljum við, kona mín og ég, þakka samfylgdina, hjálpfýsina og tryggðina. Þakka fyrir okkur og börn okkar og kveðja hann með gömlu, fallegu kveðjunni: Vertu blessaður og sæll og góða ferð. Lárus Halldórsson. t ÞEGAR ég frétti lát míns góða vinar og félaga, Stefáns Þorláks- sonar í Reykjadal, varð mér orð- fall. Það var svo skammt að minn ast, er við glöddumst saman, oft í stórum vinahóp, og fannst allir vegir færir. Það var ekki verið að súta þó vegurinn væri ógreið- ur og vöðin óglögg. Haldið var áfram meðan unnt var. Ósjaldan lentum við í torfærum, en við vorum bjartsýn og Stefán ráða- góður. Samvinnan brást heldur ekki og minnist ég ekki að við þyrftum nokkurn tíma á aðkomu- hjálp að halda til að sigra torfær- urnar. Það var einn af mörgum 'góðum kostum Stefáns, að hann gafst ekki upp, þó torsótt væri að markinu. Úr fátækt braust hann áfram til bjargálna og síðan til fulls sjálfstæðis og hefir sjálf- ur reist sér óbrotgjarnan minnis- varða með verkum sínum. Við sem þekktum Stefán, og nutum vináttu hans, myndum þó ekki telja dugnaðinn aðalkost- hans. Því fer fjarri. Það sem við vinir hans mund- um minnast lengst og bezt, verð- ur hin síglaði og góði drengur og félagi, sem öllum vildi vel gera og var boðinn og búinn til hjálp- ar og aðstoðar, hvenær sem á reyndi. Tryggð Stefáns, dreng- lyndi og fórnfýsi, var með ágæt- um og gestgjafi var hann fram- úrskarandi. Þetta er samkvæmt minni kynningu af honum, í fá- um orðum sagt. En þessi kveðju- orð eru ekki til að rifja upp minningar um fallinn vin. Þau eru aðeins til að þakka fyrir ágæta samfylgd og margskonar vináttu við mig og fjölskyldu mína. Við kveðjum þig Stefán, með þakklátum hug. Vertu sæll. Góða ferð og góða heimkomu. Kristján Karlsson. Your Tröllafoss spills sweiling tears, Your valley cradles emptiness, Stefán, you are missed. Ferhaps you are only on the road alone again (From your new house in another valiey) Bringing flowers from Reykja- dalur? In Sorrow — F. Ponzi. Bjarni Ólafur Björnsson Minningarorð ÞAÐ FLÖGRAÐI sízt að mér að morgni 3. júnx s.l., er ég átti orða- skipti við Bjarna Ólaf Björnsson, að það yrði hinzta sinni. Það er erfitt að saetta sig við það, að góður starfsfélagi og kær vinur, fullur af æskuþrótti, hverfi svo skyndilega úr hópi lifenda. Og sízt myndi kunnuga óra fyrir, að klettar eða klungur yrðu Bjarna að fótarkefli, svo öruggur og á- i-æðinn sem hann var í þeim efn- um. En þau urðu þó örlög hans að hrapa í sjó úr Bjarnarey hinn 4. júní s.l., er þar var hópur Eyjabúa við eggjatöku. Bjarni Ólafur Björnsson eða Daddi eins og kunnugir kölluðu hann, var fæddur í Vestrríanna- eyjum 9. maí 1935 og var því 24 ára að aldri, er hann lést. Hann var eitt af 8 börnum hjónanna Ingibjargar Ólafsdóttur og Björns heitins Bjarnasonar vél- stjóra, Bólstaðarhlíð i Vestmanna eyjum. Foreldrar Ingibjargar móður Bjarna, voru Sigríður Ólafsdóttir frá Múlakoti og Ól- atfur b. í Eyvindarholti undir Eyjafjöllum, Ólafsson b. í Hólm- inum, Jónssonar b. í Miðey Jóns- sonar, Þorkelssonar b. að Ljót- arstöðum, Grímssonar. Foreldrar Björns heitins, föður Bjarna, voru Hálldóra Jónsdóttir og Bjarni Einarsson, útvegsbóndi frá Hlaðbæ í Vestmannaeyjum, en Björn lézt á árinu 1947. — Að loknu barnaskólanámi gekk Bjarni í Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum og síðan í Verzlunarskólann. Að námi loknu réðist hann skrifstofumað- ur til Vestmannaeyjabæjar og starfaði þar síðan og hafði þar m. a. með höndum reikningshald og greiðslur fyrir Áhaldahús bæj arins. Svo sem títt er um harðfenga æskumenn, þótti Bjarna jafnan gott að vera, þar sem nokkuð reyndi á afl og atgjörfi, og með- al annars var hann hinn mesti fullhugi við fjallaferðir og veiði- skap, enda léttur og fimur kletta- maður. Hann var félagslyndur og hafði gleði af mannfagnaði. I orðaræðum var hann liðtækur og hafði svör á reiðum höndum, en aldrei lagði hann þó öðrum illt til í orði, hvað ég vissi, né vildi öðrum illt. Til þess var hann oí nukill mannvinur að eðli og upp- lagi. Hann var ör og örlátur og vildi hverjum greiða gera, er hann átti þess kost. Hefur marg- ur kunningja hans, sem átti í hús- byggingu notið góðs af greiða- semi hans gegn litlu gjaldi. Bjarni var ókvæntur og bjó hin siðari ár heima hjá aldraðri móður sinni í Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum og er þungur harmur kveðinn af henni við skyndilegt fráfall þessa dugmikia sonar. Starfsfélagar Bjarna votta móður hans og systkinum inni- lega samúð um leið og þeir þakka honum ljúfar samverustundir liðinna ára. Allir, sem hann þekktu, munu minnast hans með hlýjum huga. Jón Hjaltason. Nýkomið i Jeppa bila Opið í allan dag. Segulrofar Bremsudælur Bremsuslöngur Bremsuborðar Bremsugúmmí Kveikjuhlutir — allir Benzíndælur, venjulegar og rafmagns Fjaðrir Háspennukefli Ampermælar Startara- og dynamokol Stefnuljósaluktir Stefnuljósarofar Stefnuljósablikkarar Slitboltar Couplingsdiskar Flautu-Cutout Benzínstig Strekkjaragúmmí Pedalagúmmí Fjaðragúmmí 'OýHlMHf Laugavegi 103, Reykjavík Sími: 24033 Einar Ásmundsson hæstarcltarlögniabui. Hafsteinn Sigurðsson héraðsdómslögmaður Skrifst Hafnarstr. 8, II. hæð. Sími 15407, 1981? ALLT 1 RAFKERFIB Bilaraftækjaverzlun Halldórs ÓlaLsonar Rauðarárstíg 20. — Simi 14775. Chevrolet mótor V.8. nýlegur til sölu. Passlegur í Garathvörubíla. Upplýsingar í sma 24102. SIGURÐUR SIGTRYGGSSON. A T V I N N A ! Vanur afgreiðslumaður eða stúlka, óskast til að leysa af í sumarleyfi. Jónskjör h.f. Sólheimum 35. — Sími 35495 NauSungaruppboð Nauðungaruppboð það, sem auglýst var í 18., 19. og 20. tölublaði Lögbirtingablaðsins, á verksmiðjuhúsi Garðs h.f., í Sandgerði, fer fram eftir kröfu sveit- arstjórans í Sandgerði á eigninni sjáifri, fimmtud. 23. júlí 1959, kl. 17. SÝSLUMAÐURINN f GULLBRINGU- OG KJÓSARSýSLU P I P I) R OG FITTINGS Helgi Magnússon & Co. Hafnarstræti 19 — Símar: 13184 og 17227. Til solu Upplýsingar í síma 12-555

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.