Morgunblaðið - 18.07.1959, Síða 18
18
MOnCVTSHtAÐIÐ
Laugardagur 18. júlí 1959
Islandsmótíð t badminton
Óskar Guðmundsson og Ágúst Bjartmars.
ÍSLANDSMÓT í badminton var 1
haldið í maímánuði, meistara-
iflokksmót í Reykjavík, en 1.
flokks mót á Akranesi. Þátttaka í
báðum mótunum var allgóð. 25
tóku þátt í meistaraflokkskeppn-
inni, þar af 21 frá Tennis- og
badmintonfélagi Reykjavíkur og
4 frá Ungmennafélaginu Snæfell
í Stykkishóimi. í 1. flokks mótinu
voru 12 þátttakendur frá TBR, 6
frá UMF Snæfelli og 2 frá íþrótta
bandalagi Akraness. Dregizt hef-
ur nokkuð að birta greinargóða
lýsingu á mótinu. en hún fer hér
á eftir.
Meistaraflokksmótið.
Keppnin í meistaraflokki var
mjög hörð í flestum greeinum, en
hér er um útsláttarkeppni að
ræða, svo sem kunnugt er.
I einliðaleik karla varð fs-
landsmeistari Ágúst Bjartmarz
frá UMF Snæfelli, en í þetta
skipti þurfti hann ekki að þreyta
úrslitaleikinn við Wagner Wal-
bom eins og venjulega, þar sem
hinn síðarnefndi var ekki meðal
þátttakenda. Það kom þó mjög
á óvænt, hve harða keppni hann
fékk. í úrslitum vann hann Ósk-
ar Guðmundsson frá TBR með
8:15, 15:13, 15:7.
Var viðureign þeirra jöfn og
skemmtileg. Óskar er að verða
einn bezti badmintonleikari
landsins og verður gaman að sjá,
hvernig viðureign þeirra Ágústs
lyktar á næsta íslandsmóti.
Þórir Jónsson og Lárus Guð-
mundsson, báðir frá TBR, áttu
einnig ágæta leiki við Ágúst. —
Þórir vann fyrstu lotuna með
15:4. Hins vegar náðu Ragnar
Thorsteinsson og Karl Maack frá
TBR, sem annars eru góðir ein-
liðaleikarar, litlu spili gegn Ósk-
ari. Gunnar Petersen tapaði einn
ig fyrir Lárusi.
í tvíliðaleik karla urðu fs-
landsmeistarar Einar Jónsson og
Óskar Guðmundsson TBR, og
var sigur þeirra aldrei í neinni
hættu. Eina liðið, sem hefði get-
að gert úrslitin við þá verulega
tvísýn, Wagner Walbom og Þórir
Jónsson, tók ekki þátt í tvíliða-
leiknum. Einar og Óskar unnu
úrslitaleikinn við Lárus Guð-
mimdsson og Ragnar Thorsteins-
son frá TBR með 15:8, 15:7, en
áður höfðu þeir unnið Karl
Maack og Hauk Gunnarsson frá
TBR. Lárus og Ra_gnar höfðu
hins vegar unnið Ágús Bjart-
jnarz og Ólaf Guðmundsson frá
UMF Snæfelli. í fyrstu umferð
unnu Karl og Haukur Kristján
Benjamínsson og Sigurgeir Jóns
son (TBR), Ragnar og Lárus
unnu Finnbjörn Þorvaldsson og
Pétur Nikulásson (TBR) og
Ágúst og Ólafur unnu Guðlaug
Þorvaldsson og Ragnar Georgs-
son (TBR).
í einliðaleik kvenna varð fs-
landsmeistari Jónína Nieljohníus-
dóttir frá TBR. Hún vann Hönsu
Jónsdóttur frá UMF Snæfelli með
11:1, 11:2. Áður hafðu hún unnið
Júlíönnu ísebarn frá TBR, en
leikur Hönsu við Halldóru Thor
oddsen féll niður vegna veikinda
Halldóru. Jónína var mjög vel
að sigrinum komin, enda er hún
frábær keppniskona.
í tvíliðaleik kvenna uðru ís-
landsmeistarar þær Hulda Guð-
mundsdóttir og Rannveig Magn
úsdóttir frá TBR eftir góðan úr-
slitaleik við Jóninu Nieljohníus
dóttur og Sigríði Guðmundsdótt
ur frá sama félagi. Honum lykt-
aði með 6:15, 15:8, 15:12 fyrir
Huldu og Rannveigu. Áður höfðu
Jónína og Sigríður unnið mæðg-
urnar Hönsu Jónsdóttur og
Rögnu Hansen frá UMF Snæfelli.
í tvenndarkeppni urðu íslands
meistarar Þórir Jónsson og Jón-
ína Nieljohníusdóttir frá TBR.
Þau sigruðu Einar Jónsson og
Júlíönnu fsebarn frá TBR í úr-
slitaleik með 15:13, 15:7, en höfðu
áður unnið Ágúst Bjartmarz og
Hönsu Jónsdóttur frá UMF Snæ
felli. Einar og Júlíanna unnu Pét
ur Nikulásson og Sigríði Guð-
mundsdóttur frá TBR, en Ágúst
og Hansa unnu Kristján Benja-
mínsson og Huldu Guðmunds-
dóttur frá TBR.
1. flokks mótið.
Sigurvegarar í 1. flokks mót-
inu urðu þessir:
Einliðaleikur karlua: Rafn
Viggósson TBR.
Einliðaleikur kvenna: Lovisa
Sigurðardóttir UMF Snæfelli.
Tvíliðaleikur karla: Árni
Ferdinandsson og Davíð Sch.
Thorsteinsson TBR.
Tvíliðalerkur kvenna: Lovisa
Sigurðardóttir og Þuríður Sig-
urðardóttir UMF Snæfelli.
Tvenddarkeppni: Rafn Viggós-
son og Hjördís Hjörleifsdóttir
TBR.
Keppnin í þessu móti var afar
hörð og kom nú greinilega í ljós,
að ný kynslóð tekur að láta að
sér kveða í badmintoníþróttinni.
Auk sigurvegarans í einliða-
leik, Rafns Viggóssonar frá TBR
áttu margir góða leiki í þeirri
grein, t. d. Guðmundur Jónsson
TBR, sem lék við hann í úrslit-
um, og þeir Jónas Gestsson og
Jón Höskuldsson frá UMF Snæ-
felli, sem báðir eru ungir og
efnilegir einliðaleikarar. Yngsti
keppandinn í greininni, Friðrik
Frðriksson, vakti einnig verð-
skuldaða athygli fyrir keppnis-
hörku og einbeittni. Alls tóku 13
keppendur þátt í einliðaleiknum.
Sama harkan var í tvíliðaleik
karla og einliðaleiknum. Sigur-
vegararnir, Árni og Davið frá
TBR, voru tvivegis hætt komnir
í fyrra skiptið fyrir Guðmundi
Jónssyni og Emil Ágústssyni
TBR og í síðara skiptið í úrslita
leiknum við Magnús Einarsson
og Walter Hjaltested TBR, sem
léku mjög vel og komu einna
mest á óvart í þessari keppni.
Davíð er þó sennilegá sterkasti
tvíliðaleikarinn, sem tók þátt 1
mótinu. Rafn Viggósson og Leif
ur Miiller TBR töpuðu óvænt
fyrir Magnúsi og Walter.
í einliðaleik kvenna unnu þær
systurnar Lovísa og Þuríður Sig-
urðardætur frá UMF Snæfelli,
Hjördísi Hjörleifsdóttur og Soffíu
Ingadóttur frá TBR, en sá leikur
var síðri af beggja hálfu.
Úrslitaleikurinn í tvenndar-
keppni var mjög skemmtilegur
og vel leikinn af beggja hálfu.
Rafn Viggósson og Hjördís Hjör-
leifsdóttir frá TBR unnu Jón
Höskuldsson og Lovísu Sigurðar-
dóttir frá UMF Snæfelli, þó að
þriðja lotan byrjaði með 7:0 fyrir
Jón og Lovísu, sem notuðu tví-
liðaleiksskiptingu, enda er Lov-
ísa karlmannsígildi á leikvelli.
Hjördis var óstyrk í fyrstu, en
sótti sig mjög og átti góðan leik
á köflum. Rafn og Jón sýndu
það í þessari keppni, að þeir eru
á ýmsan hátt frábærir spilarar..
Nojíkrar athugasemdir.
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur sá um framkvæmd
meistaraflokkskeppninnar og var
Pétur Georgsson mótstjóri, en
hann hefur um þriggja ára skeið
verið formaður mótanefndar
TBR og unnið þar mikið og
gott starf. Áhorfendur að úrslita
leikjunum voru óhemju margir.
TBR var einnig falið að sjá um
fyrsta flokks mótið, en nokkru
síðar heyrðust raddir um það,
bæði innan TBR og UMF Snæ-
fells, að æskilegt væri að gefa
stöðum, öðrum en Reykjavík og
Stykkishólmi, kost á að halda
mótið, ef það mætti verða til
þess að glæða áhuga á badmin-
toníþróttinni. Þeir staðir, sem
helzt komu til álita voru ísa-
fjörður, Akureyri, Akranes, Vest
mannaeyjar, Selfoss og Laugar-
vatn. Akranes varð fyrir valinu
að þessu sinni, en þátttaka það-
an var svo lítil og áhugi á íþrótt
inni það lítill á stðnum, að vafa
samt verður að telja, að rétt hafi
verið að hafa mótið þar, þótt
mótstjórinn, Benedikt Hermanns
son, hafi allur verið af vilja
gerður til þess að gera sitt bezta.
Badminton er tiltölulega dýr
íþrótt, og þess vegna er vafa-
samt að leggja mikinn ferða- og
dvalarkostnað á allan þorra kepp
enda. Vonandi verður meiri þátt
taka heimafólks í næsta fslands-
móti í badminton, sem haldið
verður utan Reykjavíkur og
Stykkishólms.
Það mun hafa vakið mikla
ánægju í hópi keppnda á 1. fl.
mótinu, að áhorfndur skyldu þóe
mótinu, að áhorfndur skyldu þó
koma bæði úr Reykjavík og
Stykkishólmi, þ. á. m. íslands-
meistarinn í einliðaleik karla,
Ágúst Bjartmarz, og faðir bad-
mintoníþróttarinnar hér á landi,
Jón Jóhannesson, nýkjörinn
fyrsti heiðursfélagi TBR. Hann
kom með börn sín, sem þegar eru
byrjuð að æfa þessa r.kemmtilegu
íþrótt. Aðaldómari mótsins var
einnig hinn góðkunni badmin-
tonleikari Einar Jónsson, sem sat
á dómarastóli i 8 klukkustundir
með litlum hléum.
20 ára afmæli T.B.R. —
fyrsti heiðursfélaginn.
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavikur minnist 20 ára af-
mælis síns að loknu meistíu’a-
flokksmótinu með skemmtun í
Tjarnarcafé. Þar var Jón Jóhann
esson gerður að fyrsta heiðurs-
félaga TBR, ein og áður hefur
verið getið um, en Karl Maack
var sæmdur gullmerki félagsins.
Undanfarna mánuði hafa verið
ókeypis æfingartímar fyrir ungl-
inga í badminton á vegum TBR
og annaðis Ragnar Georgsson
kennslu fyrir þá. Var þetta nám
skeið fjölsótt og tókst vel. Fé-
lagið lagði unglingurn til spaða
og fjaðrabolta auk húsnæðis. —
Þá hefir stjórn TBR ákveðið
að hafa fastan kennara megin
hluta næsta vetrar, og mun hann
arnast tilsögn fyrir alla, seir, þess
óska og eru í íéiaginu.
í byrjun næsta keppniatíma-
KEFLVÍKINGUM tókst loksins
að krækja sér í tvö stig á heima-
leikvelli og hafa vonir þeirra um
að halda sætinu í I. deild batnað
verulega. Leikur ÍBK og Vals
fór fram á Njarðvíkurvellinum
á fimmtudagskvöldið. Hellirign-
ing hafði verið allan daginn og
var völlurinn þyí rennblautur og
glerháll. Ekki bætti úr skák að
völlurinn var nýsleginn og órak
aður, en regnvot ljáin þvældist
fyrir leikmönnum.
Við þessar aðstæður er ekki
hægt að búast við mikilli knatt
spyrnu enda sýndi hvorugt liðið
góðan leik. Keflvíkingar voru á-
kveðnir að vinna og mun ein-
beittari en gegn Þrótti á dög-
unum. Valsmönnum tókst þó að
sýna meiri knattspyrnu, einkum
í fyrri hálfleik, en samleikstil-
raunir þeirra stóðu yfirleitt ekki
nema stutta stund í einu, þess á
milli rann allt út í sandinn.
Á 8. mín. fyrri hálfleiks meidd-
ist Hörður Guðmundsson, bak-
vörður ÍBK, og varð að yfirgefa
völlinn, en í hans stað kom Garð
ar Pétursson.
Fyrsta markið skoraði Gunn-
ar Gunnarsson fyrir Val á 14.
mín. með viðstöðulausri spyrnu
úr góðri fyrirgjöf frá hægri.
Högni Gunnlaugsson kvittaði fyr
ir Keflavík á 18. mín.
Á 34. mín. átti Hólmbert fast
skot á mark Vals, sem Gunnlaug
ur varði naumlega. Tveim mín.
síðar eru Valsmenn í sókn. Matt
hías gaf góðan knött í gegnum
vörn ÍBK á miðjunni og Gunnar
fylgdi fast á eftir og skoraði ör-
ugglega.
Keflvíkingar voru samt ekki
af baki dottnir því rúmlega mín.
síðar lék Páll Jónsson á bakvörð
Vals upp við vítateig skammt frá
endamörkum og skaut á hálf-
lokað markið, snúningsbolta, sem
lenti í netinu. Þetta mark hefði
Gunnlaugur átt að verja.
í síðari hálfleik voru Kefl-
víkingar mun ákveðnari og héldu
uppi sókn meginhluta háifleiks-
ins enda munu þeir hafa fundið
að stigin tvö voru á næstu grös-
um.
Mark Vals komst oft í hættu,
t. d. á 4. minútu var Páll kominn
inn fyrir vörn Vais og í dauða-
færi, en hikaði við að skjóta og
tapaði knettinum. 4. mín síðar
var æsandi augnablik, þegar
Gunnlaugur hljóp út úr markinu
og missti háan knött aftur fyrir
sig. Högni kom aðvífandi og
þurfti ekki annað en að velta
knettinum í netið, en hann tók
þann kost að skjóta og hitti
stöngina. Knötturinn hrökk út á
völl. Þarna fór upplagt tækifæri
forgörðum.
Þórhalli Stígssyni tókst að
tryggja ÍBK sigurinn á 34. mín.,
er hann skoraði af þriggja metra
færi úr þvögu fyrir framan Vals-
markið.
Valsmenn reyndu nú hvað aí-
tók að jafna sakirnar, en ýmist
varði Heimir örugglega eða vörn
bils (sept.—okt.) tr von á tveim
idönskum, frægurn badminton-
leikurum, sem munu bæði keppa
hér og sýna badminton á vegum
TBR. Stóð til að þeir kæmu í
vor, en ýmissa hluta vegna varð
að fresta því til hausts. Senni-
lega verða það þeir J. Jörgen
Hammergaard og Henning
Borsch sem hingað koma. Sá fyrr
nefndi hefir um nokkurt skeið
verið í hópi beztu badminton-
leikarar Evrópu, og ýmsir tolja
Hammergaard og Kobberö beztu
tvíliðaleikarana, sem komið hafa
fram í heiminum í badmiton.
Hennig Bosch er kornungur
spilari, en hefir þegar verið skip-
að á bekk með beztu einliða-
leikurum Evrópu.
Keflavíkur tókst að brjóta sókn-
artilraunir þeirra og hreinsa frá
markinu.
Leikurinn í heild var grófur af
beggja hálfu. Sök*á þessu átti að
nokkru háll völlur, sem leik-
mönnum gekk illa að fóta sig á,
en dómarinn, Halldór Sigurðsson,
átti þar einnig nokkurn hlut að
máli. Hann var mjög hikandi og
óákveðinn í dómum sínum svo
að leikmenn virtust stundum
ekki skilja hann. Ef til vill hafa
ókvæðisorð keflvískra áhorfenda
til dómara og línuvarða átt sinn
þátt í þessu. Hvað svo ramt að
þessu að fyrirliði ÍBK, Hafsteinn
GuðmUndsson, sá sig knúinn til
að kalla til áhorfenda og biðja
þá að þegja. Ruddamennska á-
horfenda setur blett á knatt-
spyrnuíþróttina og er ennfremur
leikmönnum ÍBK til leiðenda og
ama.
Liðin: Lið Vals vantaði nú bæoi
Albert Guðmundsson og Árna
Njálsson. Aftasta vörnin var á-
berandi slöpp og Gunrilaugur var
óöruggur á gripum í markinu.
Framlínan náði stuttum samleiks
köflum, sem lofa góðu, en leik-
mönnum hættir þó við að stað-
næmast og hætta að vera með
í upphlaupi. Gunnar Gunnarsson
var bezti maður liðsins.
Lið ÍBK var breytt frá leikn-
um gegn Þrótti, þannig að Skúli
var settur út, en Haukur Jakobs-
son lék í hans stað vinstri út-
herja. rfaukur heíir áður leikið
sem innherji með góðum árangri,
en þessari stöðu i.unni hann eng-
in skil, enda oftast inni á velli i
sinni gömlu stöðu Þórhallur
Stígsson iék sem innherji í stað
Hauks. Virtust þessar stöðuskipt-
ingar ekki vera til að bæta fram-
línuna.
Bezti maður ÍBK og jafnframt
á vellinum var Sigurður Alberts-
son, vinstri framvörður. Hann
var öruggur í vörn og fylgdist
vel með í sókn. Heimir átti einn-
jg góðan leik í markinu.
Leikur ÍBK einkenndist meira
af baráttuvilja og dugnaði en
leikandi knattspyrnu. En það var
líka það sem dugði. — BÞ.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10
risaskrokk sínum og reynir gagn-
áhlaup á andstæðinginn. En hann
fellur enn — og aftur, og þannig
heldur það áfram, endalaust, að
manni finnst.
★
• Hver einasti áhorfandi, sem
gæddur er einhverjum mannleg-
um tilfinningum, er nú orðinn
svo æstur og upptendraður, að
hann langar mest til þess að ráð-
ast að hvíta léreftinu og gefa
þessum Ingemar svo ærlega á
hann, að hann fljúgi út úr hringn
um og niður á milli áhorfenda-
bekkjanna.
Loks liggur Patterson kyrr —
rís ekki aftur á fætur.
Það var herfilegt — viðbjóð*-
legt!
Keflvíkingar voru
ókveðnir að vinna
og hlutu tvo dýrmæt stigi