Morgunblaðið - 23.09.1959, Síða 9

Morgunblaðið - 23.09.1959, Síða 9
Miðvikudagur 23. sept. 1959 uancnwnr.,4 ðið 9 Féla«srekstri ríkis ogbæjar slitið ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram skuli fara félagsslit á rekstri Reykjavíkurbæjar og ríkisins á fæðingardeild Landsspítalans. — Sem kunnugt er, er bærinn nú að láta gera fæðingarheimili í húsum sínum á horni Þorfinns- götu og Eiríksgötu. Dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið hefur tilnefnt landlækni til við ræðna við fulltrúa bæjarins um slit á fyrrgreindum félagsrekstri. Nú hefur bæjarráð tilnefnt af sinni hálfu borgarritara og borg- arlækni. Friedrich Gulda Víðfrœgur píanóleikari kemur hingað HINGAÐ kemur næstu daga hinn víðfrægi anisturríski pianó- Ieikari Friedrich Gulda og mun halda tvenna tónleika á vegum Rikisútvarpsins, báða í Þjóöleik húsinu. Friedrich Gulda er fæddur 16. mai, árið 1930, í Vínarborg. Hann stundaði nám hjá Felix Pazofsky og Prof. Bruno Seidlhofer og hlaut árið 1946, sextán ára gam- all, fyrsíu verðlaun á tónlistar- keppni í Genf. Hann hóf þá tónleikaferðir víða um lönd, fyrst í Evrópu og síðan til Bandaríkjanna (lék í Carnegie Hall 1950) og Suður- Ameríku, og varð.brátt einn eft- irsóttasti píanóleikari heims. Tuttugu og eins árs hlaut hann þau ummæli gagnrýnanda í Vín að hann væri Austurríki það sem Chopin hefði verið Póllandi, Lizt Ungverjalandi og Clara Schu- mann Þýzkalandi. Aðrir jöfnuðu honum til Giesekings. Tuttugu og fjögurra ára gamall jók hann enn á frægð sína með túlkun sinni á Beethoven, er hann lék allar 32 sónötur meistarans (í réttri tímaröð) á samfelldum tónleik- um átta kvöld í röð. Friedrich Gulda er mjög um- talaður píanóleikari sakir fjöl- hæfni sinnar og margháttaðrar tónlistarstarfsemi. Auk klassisk- ar tónlistar leikur Gulda stund- um jazz og hefur samið nokk- ur tónverk í þeim stíl. Hann hefur sína eigin hljómsveit, „Klassisches Gulda-Orchester“, er hlotið hefur mikið lof gagn- rýnenda. Nokkrar tónsmíðar klassiskar liggja einnig eftir hann, s.s. „7 Galgenlieder" eftir Morgenstern og strokkvartett. Fyrri tónleikar Gulda, föstu- daginn 25. september, eru ein- leiks-tónleikar. Á efnisskránni eru verk eftir Mozart og Chopin og Eroica-tilbrigðin op. 35 eftir Beethoven. Siðari tónleikarnir verða með hljómsveit Ríkisút- varpsins, undir stjórn Róberts A. Ottóssonar, mánudagskvöldið 28. þ.m. Verða þá eingöngu flutt verk eftir Beethoven, píanókonsert í Es-dúr op. 73, Egmont-forleikur- inn og sinfónía no. 5 í c-moll (Ör- lagasinfónían). Hljómleikar listamanna FJÓRIR rússneskir listamenn sem staddir eru hér á landi um þessar mundir héldu hljómleika í Þjóðleikhúsinu s.l. sunnudag. Allir eru þeir vel þekktir í heima landi sínu og raunar víðar, þótt ungir séu að órum'(elzt 30 ára) og hafa hlotið eftirsóknaverða viðurkenningu og lof gagnrýn- enda á alþjóðlegum tónlistar- hátíðum. Og ekki var annað að heyra í Þjóðleikhúsinu, en að listamennirnir hefðu fyllilega til verðlauna sinna unnið, — túlkun þeirra var öll með slíkum glæsi- brag að hljómleikarnir urðu enn einn áfangi á sigurbraut hinna ungu listamanna. Það sem und- jrritaður hefði eitthvað við áð athuga, er að honum fannst veitt af fullmikilli rausn, tónleikarnir stóðu hátt á þriðju klukkustund, og hvar eru ungir kompónistar Rússaveldis? Mikhail Voskresenski lék a-moil sónötu Mozarts af mikilli innlif- un, og Fiðrildi Schumans með ljóðrænni mýkt og myndugleik. Tvö Ijóð eftir Skrjabin lék hann eins og sá sem valdið hefur, eink- um þó hið seinna ógleymanlega. Voskresenski lék að lokum són- ötu eftir Prokopijev, og kom í ljós að tæknin var óbrigðu^. rússneskra Ljudmila fsaéva kóluratúra söng sig inn í hjörtu áheyrenda í lagi Vlasovs, Gosbrunnurinn. Hún gerði nokkrar breytingar á söngskránni og tilkynnti það sjálf á íslenzku jafnóðum, og gerði mikla lukku. Hún söng að lokum Sofðu unga ástin mín, á rúss- nesku, og sá ég ekki betur en mörgum landanum vöknaði um augu, að heyra þetta yndislega lag sungið á svo framandi máli, og kom í ljós að eitt orð var óbreytt í rússneska textanum: mamma. ísaéva söng svo lagið á íslenzku og tókst mætavel, einnig gamlan íslenzkan húsgang af mikilli kæti. ígor Politkovski lærði list sína undir handleiðslu fiðlusnillings- ins Davíðs Oistraks, og varð nem andinn síst meistara sínum til minnkunar. Hrifnastur varð und irritaður af túlkun hans á Ljóði Chausson þá var eins og eitt ilm- andi blóm tónlistarínnár væri um stund borið að vitum manns, og gleýmist ekki. Undirleikarinn Taisia Merku- lova aðstoðaði landa sína af ein- stakri hæversku og skilningi og varð hlutur hennar ekki sístur. Áheyrendur fögnuðu þessum ágætu gestum innilega, og hafi þeir þökk fyrir komuna. Vikar. Nokkrar íbúðir lausar í fjölbýlishúsi því er B.s.f. Framtak, hefur • uppsteypu á nú í haust. Upplýsingar á skrifstofu félagsins, Flókagötu 3, mið- vikudags- og fimmtudagskvöld kl. 20,30—22 og í sima 19703. Nýkomið Hurðargúmmí Kistuloksgúmmí Lim Hurðarhúnar — ytri Hurðarstrekkjarar Slitboltar Ford, Chevrolet, Dodge, Kaiser, Buick, Ponti aé o. fl. — Stýriskulur í Ford ’55—’57 Spindilboltar í Ford-vöru og fólksbila, Dodge, Chevrolet og fl. — Hosur í Chevrolet, Dodge, — Ford, Kaiser, o. m. fl. Hosubönd Vatnslásar í Dodge, Chevrolet, Ford, Willy’s, o. fl. Glitaugu Hoodbarkar í flestar gerðir. Innsogsbarkar í fl. gerðir. Handbremsubarkar í fl. gerðir Hraðamælissnúrur í ameríska bíla. — Ljösaperur Ljósavír Tengi Rofar Kertavír og fjölda margt fleira. raýAUHHf Laugavegi 103. Sími. 24033. íbúð óskast 3ja til 4ra herb. íbúð í timbur- húsi í Rvík eða Hafnarfirði. FyrirframgreiðslE? ef óskað er. Get útvegað 4 herb. íbúð j steinhúsi. Upplýsingar í sima 50077, milli 4 og 6. Zenith Stromberg Solex blöndungar í flestar gerðir bifreiða og véla ★ Rúðuþurkarar 6 og 12 volta. — P. STEFÁNSSON h.f. Hverfisgötu 103. Sími 13450. jSœa Tjarnargötu 5. Sími 11144. Til sölu i dag Chevrolet Bel-Air ’57 Skipti á ódýrari bíl koma til greina. Mercedes Benz 180 ’54 Glaésilegur einkabíll. Opel Record ’54 Má greiðast áð nokkru leyti með ríkistryggðum skuldabréfum. Pobeta ’54 Skipti á góðum, ódýrari bíl koma til greina. Nash ’52 2ja dyra með ofverdrive. Plymouth ’55 einkabifreið. — Tjarnarg. 5, sími 11144 Til sölu Kjötsög, hræri- og hakkavéla- samstæða og áleggsskurðar- hnífur. — Bíla- o[5 búvélasalan Baldursgövu 8. ^ Sími 23136.„ Lærið falmál erlendra þjóða í fámennum flokkum. Auk helztu heims- málanna kennum við líka út- lendingum íslenzku. — Innrit- un frá 5—7 í Kennaraskólan- um og í síma 1-32-7 í alla virka daða. — Kennsla héfst 8. okt. Barnakörfur Hjólgrindur dýnar Ingólfsstræti 16. — Sími 12165. Stúlka óskast til iðnaðarstarfa. — Upplýsingar í síma 10690. Vatnabátur Til sölu er ný-upþgerður vatnabátur. Einnig Johasson utanborðs-mótor 9,8 hesta, í mjög góðu lagi. ■— Upplýsing- ar í sima 35911. Höfum til sölu 6 cyl. Dodge mótor og 8 cyl. ’53 Ford mótor með gírkassa. Báðir mótorarnir ný uppgerð ir. Mikið af varahlutum í ’54 Ford vörubíl. Varahlutir í Dodge Veapon. Telefunken bíl útvarp,. Rafmagnshandsög og spil á Willy’s-jeppa. Bíla- og búvélasalan Baldursgötu 8. — Sími 23136 Bifreiðar til sölu Buick 1947 Chevrolet 1949—1955 Reno 1955 Moskwitch 1957 og 1959 Willys station 1951 Bifreiðasala STEFÁNS Grettisg. 46. Sími 12640. Sé bíllinn til sölu fæst hann hjá okkur. Kranabílar Vörubílar Fólksbilar Jeppar Bændur, ef yður vantar land- búnaðarvél, þá fæst hún hjá okkur. — Jarðýtur Dráttarvélar Múgavélar Sláttuvélar Blásarar Rafstöðvar og flest önnnr landbúnaðartæki. Bila- og búvélasalan Baldursgötu 8. — Sími 23136. BÍimilNN við Vitatovg. Sími 12-500 Ford ’55, ’56 Chevrolet ’51, ’52, ’53, ’54, ’55, ’58, ’59 Chrysler ’41, mjög góður Opel Caravan ’55 Austin A-70 ’49 Úrval af ýmsum tegund- um bifreiða. — Höfum kaupendur að ný- legum sendiferðahílum. » BÍLASALIIVN við Vitatorg. Sími 12-500. 15*0*14 Fólksbílar Station bílar Sendihílar og Jeppar til sýnis og sölu daglega. Mai mm Aðalstr., 16, sími 15-0-14 Hjólbarðar 560x15 640x15 600x16 jeppa 1100x20 P. STEFÁNSSON h.f. Hverfisgötu 103. Sími 13450. i p{íMcrsþfr!tmémr\

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.