Morgunblaðið - 23.09.1959, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.09.1959, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 23. sept. 1959 MORGVNBLAÐIÐ 19 - Verzlunarviðskípti Framh. af bls. 13. vaxandi eftirspurn var eftir spönskum vörum á fslandi. En síðari hluta árs 1956, svo’ og á árinu 1957 og 1958, varð vart erf- iðleika með að hafa til nægan fisk upp í gerða samninga. Þetta ástand gerði hinum föstu kaup- endum íslenzks fiskjar þar syðra óhægt um vik, er hinn velþekkti íslenzki „Bacalao“ hvarf af markaðnum, oft tímum saman, enda notfærðu keppinautar okk- ar um Spánarmarkaðinn sér kostgæfilega þessa aðstöðu. Til skýringar því, sem nú var sagt, skal upplýst, að fiskm^gn það, sem héðan hefur verið flutt til Spánar síðustu 4 árin, er, að því ég veit bezt, svo sem hér segir: Árið 1955, 3836 smálestir Árið 1956, 3413 smálestir Árið 1957, 1504 smálestir Árið 1958, 1476 smálestir Þessar tölur leiða uggvænlega þróun í ljós, og mikið skorti á, að við gætum' hin síðari árin fullnægt þörfum hinna föstu við- skiptavina okkar á Spáni. Qg með an þessu fór fram, sátu keppi- nautar okkar, einkum Norðmenr., Færeyingar og Danir ekki auð- um höndum. Þessir aðilar aug- lýstu nú framleiðslu sína af kappi, og þannig tóku Færeying- ar á síðasta ári þátt í hinni ár- legu vörusýningu í Barcelona, en sýningar eru haldnar í júnímán- uði ár hvert á hinu fagra sýning- arsvæði, sem Spánverjar komu upp vegna Heimssýningarinnar er haldin var í Barcelona árið 1929. Með þessari grein fylgir mynd, sem birtist í spönskum blöðum í tiiefni sýningar Færeyja. Nú eru hins vegar, góðu heilli, batnandi horfur um aukinn fisk- útflutning héðan til Spánar, og ber að fagna því. Ég vil og láta þess getið, að ég tel líkur til, að flytja mætti til Spánar fleiri íiskafurðir en saltfisk, t. d. hraðfrystan fisk. Kynnti ég mér nokkuð viðhorf spánskra stjórnarvalda og kaup- sýslumanna til þessarra mála, er ég var nýlega á ferð á Spáni. Niðurstaða mín af þeim a'thugun- um var sú, að mér virðist sem verulegir möguleikar séu á því að selja hraðfrystan fisk til Spánar, hljóti það mál nauðsyn- legan undirbúning Mun þessum athugunum haldið áfram á ná- lægum tíma. ★ Þótt staðreyndirnar um við- skipti Spánverja og íslendinga að undanförnu, og sem hér hefur verið vikið að, séu næsta geð- felldar, nægja þau rök ekki eiu saman til uppihalds þessum við- skiptum framvegis. Gildir þetta jafnt um Spán sem öll önnur við- skiptalönd okkar. Hins vegar er það mín skoðan, að þau viðskiptakjör, sem Spán- verjar bjóða, séu okkur á margan veg hagstæð, og sambærileg við það, sem bezt gerist í öðrum markaðslöndum íslendinga. Og þá fyrst, er fyllilega hefur tek- izt að halda hlut íslands á hinum hefðbundna og trygga Spánar- markaði, er hægt að taka með óblandinni ánægju fréttum af við skiptum okkar við ný markaðs- lönd víðs vegar um heim. ★ Síðari grein: Menningarsamskipti Spánar og íslands. RaÖhús í smíðum Mjög skemmtilegt og sérstætt, raðhús við Hvassa- leiti er af sérstökum ástæðum til sölu. Húsð selzt fokhelt. Teikning og allar nánari uppl. á skrifstofunni. malflutningsskbifstofa Lúðvík Gizurarson hdl. Klapparstíg 29 — Sími 17677. U N G U K \ reglusamur maöur óskar eftir atvinnu strax. Æskilegast væri við út- keyrslu á vörum. Margt annað kæmi til greina. Tilboð 'sendist til blaðsins fyrir laugardag merkt: „Ábyggilegur — 9136*. Smurbrauðsdama óskast í næsta mánuði. Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf, sendist í pósthólf 1256 merkt: „Smurbrauðsdama“ BÖBN BÖKN Þjóðdansanámsskeið Innritun barna hefst föstud. 25. þ.m. kl. 2—4 í Skátaheimilinu. Kennsla verður með líku sniði og áður. Kennt verður á mánud. og miðvikud. Námskeið fyrir fullorðna í gömlu dönsunum og eins í þjóðdönsum hefjast 7. okt. n.k. Öll kennsla fer fram í Skátaheimilinu. Nánar auglýst síðar. Nánari upplýsingar í síma 12507. ÞJÓÐDANSAFÉLAG BEYKJAVlKUK Atvinna Skrifstofustúlka, sem getur tekið að sér öll almenn skrifstofustörf, óskast strax. Einnig geta nokkrar stúlkur komist í verksmiðju- störf. Vakta vinna. Tilboð með upplýsingum um aldur, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 29. þ.m. Merkt: „Atvinna—9135“. Radíofónn til sölu úr Maghony, Radionette með Garrad 3ja hraða plötu- spilara og „Hifi 3-dimension“ hátalarakerfi, FM- bylgju og banddreifingu á stuttbylgjum. Ásvallagötu 46 III. kl. 20—22. Sími 10461. Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9. Hljómsveit Búts Hannessonar (íif: HELGI EYSTEINSSON VETRARGARÐURINN Dansleikur í kvöld kl. 9. Tvær hljómsveitir ERON kvartettinn PLÚTÓ kvintettinn Söngvarar: Stefán Jónssön, Berti Möller og Ásbjörn Egilsson Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. Sími 17985 LÆKKAÐ VEKÐ N N Miðnæturhljómleikar í Austurbæjnrbíói í kvöld kl. 11,15 Allar beztu Jazz — og rock hljómsveitir bæja rins leika. — Söngvarar. % Aðgöngumiðasala í Hljóðfærahúsinu (og í Aus turbæjarbíói eftir kl. 6). Hljómleikarnir verða ekki endurteknir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.