Morgunblaðið - 23.09.1959, Síða 24

Morgunblaðið - 23.09.1959, Síða 24
VEÐRIÐ Norðvestan átt. Léttir til. V erzl unarviðskipti Spánverja og íslendinga. _______Sjá bls. 13. 208. tbl. — Miðvikudagur 23. september 1959 Banaslys á Suður- landsbraut LATJST eftir klukkan 9 í gær kvöldi varð banaslys á Suður- landsbraut skammt frá gatna- mótum Suðurlandsbrautar og Miklubrautar. Bifreið á leið inn Suðurlandsbrautina ók á gang- andi mann miðaldra, og féll hann í götuna og mun hai'a lát- izt samstundis. Að ])ví er sjónarvottar tjáðu blaðinu í gærkvöldi var bifrcið- in mikið dælduð að framan og gatan blóði drifin. Blaðinu var ekki kunnugt um nánari tildrög slyssins, en málið var í rannsókn. . -------------------- V V Þeirvilja að þing verði kallað -•^•— , £ myndinni var dregið J——— saman RfKIS ÚTVARPIÐ birti I gær- kvöldi bréf er Framsóknarflokk- urinn hafði sent forsætisráðherra í gær og er á þessa leið: „Hér með leyfum við okkur, að óska þess, að þér, herra for- sætisráðherra, leggið til við for- seta íslands að Alþingi verði kvatt saman til aukafundar nú þegar til þess að taka afstöðu til bráðabirgðalaga um verðlagningu landbúnaðarafurða, þar sem nýj- ustu yfirlýsingar Sjálfstæðis- flokksins gefa ástæðu til að efast um, að lögin hafi nú lengur roeiri hlutafylgi á Alþingi". 5 Líkfnndur í VífiIsslaSahroani? HAFNARFIRÐI. — Á laugardag- inn var lögreglunni hér skýrt frá þýí, að þrjár telpur á aldrinum 10—12 ára hefðu orðið varar við lík af .manni í svokölluðu Vífils- staðahrauni upp af Hafnarfirði, en þar höfðu þær verið í berja- mó. Sögðust þær hafa gengið fram hjá hellisskúta nokkrum í hrauninu, og þá komið auga á líkið, sem hulið hafi verið grjóti að nokkru leyti. Ekki gátu telp umar gefið neinar upplýsingar um útlit þess, að öðru leyti en því, að það hafi verið í fötum. Kváðust þær hafa orðið mjög hræddar við sýn þessa og tekið rás niður í bæ. Þar skýrðu þær svo heima hjá sér fra at- iYfir litlu að hælast ÞEGAR vinstri stjórnin, hrökklaðist frá völdum 4. desember sl., eygði forystuflokkur hennar, Framsóknarflokkurinn, þá leið eina til bjargar að biðja Sjálfstæðisflokkinn að koma í þjóðstjórn með sér og öðrum hinum uppgefnu vinstri flokkum, þrátt fyrir allar svívirðingarnar um Sjálfstæðis- menn. — Sjálfstæðismenn höfnuðu hins vegar því tilboði. Þeir vildu ekki taka þátt í því botnlausa sukki og spill- ingu, sem ólánsstjórnin hafði leitt yfir þjóðina. Hins vegar töldu þeir að islenzkum kjósendum bæri réttur til þess að taka málið í sínar hendur og kveða upp dóm sinn um menn og málefni i almennum kosningum. SAMIÐ UM TII.TEKIN MÁL Sjálfstæðismenn tóku þess vegna þann kost að semja við Alþýðuflokkinn um að verja minnihlutastjórn hans van- trausti með ákveðnum skilyrðum. Þau skilyrði voru, að stjórnarskrárbreyting yrði framkvæmd, verðbólguskriða vinstri stjómarinnar stöðvuð og fjárlög afgreidd greiðslu- hallalaus. Öllum þeim skilyrðum var fullnægt. Af þessu leiðir, að Sjálfstæðisflokkurinn ber ekki ábyrgð á öðrum athöfnum minnihlutastjórnar Alþýðu- flokksins en þeim, sem sérstaklega var samið um, og getið var hér að framan. Sjálfstæðisflokkurinn er t. d. andvígur bráðabirgðalögum stjórnarinnar, þar sem bændur eru sviptir rétti, sem þeir hafa átt í heilt ár. Sjálfstæðismenn lýstu sig andvíga þessari ráðstöfun og bera því enga ábyrgð á henni. AF LITL.U AÐ HÆLAST Um áframhaldandi setu minnihlutastjórnar Alþýðuflokks- ins fram a$ kosningum er það að segja, að flestum mun sýnast sem nógur glundroði ríki í íslenzkum stjórnmálum þótt stjórnin væri ekki knúin til þess að segja af sér nú, enda þótt mikill meirihluti Alþingis sé mótfallinn bráða- birgðalögum hennar, ef Framsóknarflokkurinn svíkur ekki yfirlýsta afstöðu sína til þeirra. Hins vegar er ástæðu- laust fyrir Alþýðublaðið í gær að hælast beinlínis um yfir því, að stjórn þess skyldi ekki felld af þessu tilefni. — Þar er vissulega yfir litlu að hælast og vandséð hverjum slíkt ætti að gagna. burði þessum, sem síðan var til- kynntur lögreglunni. Voru tveir menn gerðir út á laugardag til að leita á þessum slóðum, en þeir urðu einskis vísari, — og frekari leit hefir ekki borið árangur. — Vegna hræðslunnar, sem greip telpurnar, hafa þær ruglazt í rím inu og geta ekki bent á fyrr- nefndan stað, en í hrauninu eru fá kennimerki til að átta sig á. Fjölsótt bifreiða- sýning FRANKFURT, 21. sept. — Nær 250 þúsund manns skoðuðu 39. Alþjóðlegu bifreiðasýninguna hér um síðustu helgi. Alls hafa þá yfir 320 þúsund manns séð sýn- inguna. S eftir höfninni í Neskaupstað 1 gær og þá tók fréttamaður Mbl. á staðnum þessa mynd. ) Þetta er gamalt hús, er nefnt var Krosshús og stóð fyrir ofan kaupfélagshúsið. Það var selt á uppboði til niður- rifs fyrir nokkrum árum. Kaupfélagið keypti það og i átti að flytja það að Miðbæ i í Norðfjarðarhreppi og nota það þar fyrir útihús. Var lagt af stað með húsið fyrir um það bil tveimur vikum, en er { til átti að taka þótti ekki fært i að flytja það eftir götunni. | Það ráð var því tekið að ýta j ^ því í sjóinn, bundin utan um i j það dráttartaug og vélbátur 5 i fenginn til að draga húsið inn ; á leiruna við fjaðrðrarbotn- Í inn. Þar var það svo dregið á i S Iand með ýtu, en ekki tokst • i betur en svo, að húsið hrundi j ; saman er það tók land og fór i i svo um sjóferð þá. Áframhaldandi óþurrkar VALDASTÖÐUM, 20. sept. — Varla getur heitið, að tekið hafi af steini nú í lengri tíma. Hefir því gengið mjög erfiðlega, að ná inn heyjum af þeim sökum. Og það, sem náðst hefir, mun vera yfirleitt illa þurrt, og því vafa- samt hvernig það kann að verk- ast. Annars er heyfengur mjög misjafn. Sumir hafa náð sæmi legum heyforða, aðrir mjög litlu svo að til vandræða horfir, ef að ekki batnar því fyr. Og mun þá vart duga til. Óvíða mun enn búið að taka upp úr görðum, en þar sem það er búið, er spretta með lélegra móti, eða fyrir neðan meðallag. Farið er að bera á bráðapest á sumum bæjum. Talið er, að fé muni reynast rýrt til frálags að þessu sinni. Um orsakir er ekki vitað. Sumir telja, að orsakanna sé að leita frá því í júní s.l. í kuldakasti, sem þá gerði. Gróður spilltist þá svo mjög, að gras fölnaði og trjágróður feldi lauf. Tók þá fyrir sprettu um nokkurt skeið. Er þetta tilgáta, sem lík- lega verður aldrei ráðin til fulls. Rœðír um stjórnmál Bandaríkjanna VALDIMAR Björnsson fjármála- ráðherra , í Minnesota, sem hér er í boði Stúdentafélags Reykja- víkur og Loftleiða h.f. ræðir um bandarísk stjórnmál á fundi Stúdeníafélags Reykjavíkur í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9. Þegar ráðherrann hefur lokið máli sínu, mun fundarmönnum gefast færi á að bera fram fyrir- spurnir. Öllum er heimill aðgangur að fundinum, en aðgar.gseyrir er 10 kr. fyrir þá, sem eigi hafa stúd- entaskírteini. Valdimar Björnsson er sem kunnugt er meðal þeirra íslend- inga, sem hvað lengst hafa kom izt í mannvirðingu erlendis. — Hann er og að góðu kunnur fiö!da manna hér heima. Má þvi búast við mikilli aðsókn Valdimar Björnsson Gamlir Garðbúar halda fagnað í BYRJUN okt. n.k. er aldarfjórð ungur liðinn frá því er gamli stúdentagarðurinn var tekinn í notkun. Vistmenn fyrsta ársins, 1934—35, hafa nú bundizt sam- tökum um, að minnast þessa af- mælis Gamla Garðs, sem var fyrsta sameiginlegt heimili stúd- enta við Háskóla íslands. í fram- kvæmdanefndinni eru Jóhann Hafstein bankastjóri, formaður, en meðstjórnendur Ragnar Jó- hannesson bókavörður á Akra- nesi, Gunnlaugur Pétursson borg arritari, Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur og Þórarinn Sveins- son læknir. Áformað er, að sem flestir þeirra, er á Garði hafa búið næst- liðin 25 ár komi saman til nokk- urs fagnaðar, ásamt konum sín- um, laugardaginn 10. október n.k. Er þess fastlega vænzt, að Garð- búar fjölmenni og tilkynni bók- ■ ara Garðs, Gunnari Andrew, þátttöku í símum 16037 kl. 12 til 2 síðd. og 16842 kl. 2 til 5 síðd. eigi síðar en 25. þ. m. Biðskák BLED, 22. september: — Leikar fóru þannig í 10. umferðinni á Kandidatamótinu hér, að Fischer vann Benkö og Keres vann Tal. Smyslov og Petrosjan gerðu jafn tefli, en biðskap varð hjá Gligor- ic og Friðrik Ólafssyni. Berserkjasveppur/< fundirm hér á landi NÝLEGA hefur fundizt hér á landi sveppategund, sem nefnd er flugusveppur. — Sveppur þessi er eitraður, en þó ekki banvænn, en neyzla hans getur orsakað æðisköst og ofsjónir. Þessi sveppur er einnig nefndur berserkjasveppur, en talið er að berserkirnir hafi neytt hans til forna til að komast í tilhlýðilegan manndráps- ham. (Sjá nánar bls. 10). Auk þess sem þar segir tjáði Eyþór Einarsson, grasafræðingur, blaðinu í gær, að hann hefði fundið svepp þennan í Vaglaskógi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.