Morgunblaðið - 30.09.1959, Qupperneq 11
Miðvikudagur 30. sept. 1959
MORGVTSBL AÐIÐ
11
Sœl er sú trú
í 159. tbl. „Tímans“ þ. 6. skrif-
ar skólastjóri Samvinnuskólans,
sr. Guðmundur Sveinsson, grein
er hann kallar „Sjálfstæðisflokk
urinn gegn samvinnufélögunum.“
Einkunnarorð greinarinnar eru:
„Þess betur sem ég kynnist mönn
um, því betur finn ég hve góðir
þeir eru“. Ætla mætti af orð-
um þessum að leitazt væri við
að sanna að svo væri, en tæplega
mun hlutlaus lesandi sjá að það
sé reynt. ’
Þegar í upphafi greinarinnar
er andstæðingunum brugðið um
sjónleysi á hin góðu verk sam-
vinnumanna og sjái þeir aðeins
svik og lævísi í þeim. Öðru máli
gegnir um samvinnumenn sjálfa
að áliti greinarhöfundar. Alls-
staðar sjá þeir hið góða, jafnvel
í fari andstæðingarina og óhikað
halda þeir í áttina að markmu
(Hvaða marki?), þótt einstaka
smáatvik verði á veginum. Til-
beiðslu þeirra á málefni sínu er
jafnað við trú kristinna manna á
Krist, minna má ekki gagn gera.
Síðar í greininni er svo talið
sjálfsagt og eðlilegt, að foringja-
vald ákveðins flokks skipi trún-
aðarstöður samvinnufélaganna.
og þess svo að endingu getið, að
samvinnumenn fáist ekki tii að
bera eldsneyti að hatursbálum ,
Eftir lestur greinarinnar mætti
auðveldlega ætla, að samvinnu-
menn væru hinir einu útvöldu
sauðir, en andstæðingar þeirra
hafrarnir, hverjir skulu útreknir '
í hin yztu myrkur.
Leitazt verður hér við í örfáum
orðum að andmæla ofangreindum
ummælum og grafa fyrir rætur
hugtakaruglings skólastjórans.
Varla mun sá íslendingur til,
sem ekki viðurkennir sögulegt
hlutverk samvinnufélaganna hér
á landi, framlag þeirra í verz'i-
unarmálum og nytjastörf ýmlss
konar. A sínum tíma voru pau
snar þáttur í viðreisn þjóðarinn-
ar eftir alda áþján og óáran.
Mun hlutur þeirra í þessu vart
ofmetinn. En árin liðu, og sönn-
uðu að „völd spilla og mikil völd
spiila ótakmarkað“. Skynugir
stjórnmálamenn sáu að vissasta
leiðin til valda, var að taka :
sína þjónustu og styðjast við fé-
j lagsmálahreyfingu sem væri
sprottin upp úr alþýðunni sjálfri.
Og þetta tókst. Framsóknar-
flokkurinn lagði samvinnuhreyf-
inguna undir sig, það var hennar
ólán.
Innan samvinnuhreyfingarinr,-
ar íslenzku er fólk af öllum stért-
um og með mjög mismunandi
stjórnmálaskoðanir. Því er rík
ástæða til að halda slíkum fé-
lagsskap utan við stjórnmál. —
Telja má víst, að þar séu and-
stæðingar Framsóknar eins fjö’-
mennir og Framsóknarmenn sjálf
ir, en hverjir ráða niðurstöðum
mála í kaupfélögunum? Eru
það ekki Framsóknarmennirnir?
Ósveigjanlega harður kjarni for-
ustuliðs þeirra sér um, að engin
ákvörðun sé tekin öðru vísi en í
samræmi við vilja flokksins, og
komi einhver, sem ekki er „sann-
trúaður“ með réttmætar og hóg-
værar aðfinnslur á fundum, kveð
ur við: Úlfur! Úlfur!
Vandlega er þess gætt, að rétt-
linumenn Framsóknar séu í
hverri trúnaðarstöðu og þar með
sköpuð augljós ástæða til tor-
trvggni, jafnvel þótt ekkert væn
að.
Nei, herra skólastjóri og hátt-
virtn cand. theol. Hér er ekki
verið að berjast gegn samvinnu,
heldur gegn ofurvaldi eins flokks
yfir samvinnunnni og tæplega
verður þess langt að bíða, að
þeir, sem hafa önnur stefnumið í
þjóðmálum en Framsókn, lexti
nýrra leiða.
Hvað viðvíkur meintri vald-
fiíðslu bæjaryfirvalda Reykja-
víkur gegn ,KRON“, þá er ekki
annað vitað en verzlanir þess
séu á allt að 20 stöðum í Reykja-
vík og nágrenni, svo einhvern
veginn hefur það fengið lóðir og
þrátt fyrir það kemur SÍS upp
sínum verzlunum við hlið þess.
Átti þó SÍS upphaflega að /era
heildsöluverzlun og samnefnari
kaupfélaganna. Nefna má og að
þegar á góma ber hjá K. H. að
koma á fót kexgerð í sambandi
við þurrmjólkurframleiðslu hér-
aðsins, mátti það ekki fyrir SÍS.
Hvílíkt lýðræði!
Viðvíkjandi atkvæðisrétti fé-
laga á aðalfundum SÍS er það að
segja, að nokkuð er hvikað frá
hugsjóninni, þegar verzlunar-
magn félaga er látið hafa áhrif
á atkvæiðsrétt þeirra. Er það og
í góðu samræmi við stefnu þess
flokks, sem vill að menn hafi mis-
munandi atkvæðisrétt eftir þvi
hvar þeir eru búsettir á landinu.
Og hvað snertir trúna á hið
góða í fari andstæðinganna og
hatursbálin, sem samvinnumenn
fást ekki til að bera eldsneyti
að, verður að spyrja? Hvar sér
maður, þrátt fyrir óheflað orð-
bragð stjórnmálamanna yfirleitt,
ófegurri leiðara en sumt í skrií-
um „Tímans“, sem vill þó láta
kalla sig samvinnublað?
Þar er andstæðingunum —
Sjálfstæðismönnum — brugðið
um landráð, óþjóðlegheit, og
nasisma. Þeir eru kallaðir Grims-
býlýður og malarskríll og líkt við
gangsterflokka Suður Ameríku
og þetta allt í viðbót við hin
venjulegu brigsl um lygi og svik
m. m.
Að endingu þetta: Þegar ég las
umrædda grein, skaut upp í huga
mínum smámynd, sem varð þar
til við lestur biblíusagna a
bernskudögum mínum: Ég sa i
anda fariseann biðj ast fyrir.
Halldór Jónsson, Leysingjast.
Hótel Borg
V a n t a r
herbergisþernur og
slúlkur í kaffistofur
Talið við yfirþernuna og búrstúlkurnar.
Unglinga
vaniar til blaðbur^ar
VBiisvegar um bæíiin
JHtrgttttM&frifr
Sími 22480.
Frá Gagnfræðaskolum
Reykjavíkur
Kennarafundur verður í öllum skólunum fimmtudaginn
1. okt. kl. 15.00.
Nemendur komi í skólana, sem hér segir:
Gagnfræðaskólinn við Vonarstræti: Skólasetning í Iðnó
fimmtudaginn 1. okt. kl. 14.00.
Gagnfræðaskóli Austurbæjar: Skólasetning föstudag-
inn 2. okt. kl. 14.00.
Gagnfræðaskóli Vesturbæjar: Skólasetning í Iðnó
föstudaginn 2. október kl. 16.
Gagnfræðaskóli verknáms: Skólasetning í Iðnó föstu-
daginn 2. okt. kl. 14.00.
Vogaskóli, gagnfræðadeild: Skólasetning í Laugarnes-
kirkju, föstudaginn 2. okt. kl. 16.
Hagaskóii, Gagnfræðaskólinn við Lindargötu, Gagn-
fræðadeild Laugarnesskóla, gagnfræðadeild, Miðbæjar-
skóla og Réttarholtsskóli: 2. bekkir komi föstudag. 2. okt.
kl. 9 f.h. 1. bekkir kl. 10.30 f.h. föstudaginn 2. okt.
Þriðji og fjórði bekkur í Hagaskóla og þriðji bekkur
Gagnfræðaskóians við Lindargötu komi föstudáginn 2.
okt. kl. 14.00.
Áríðandi er, að nemendur komi á auglýstum tíma eða
einhver í þeirra stað, annars á nemandi á hættu að missa
af skólavist í sínu skólahverfi.
Um skiptingu skólahverfa vísast til fréttatilkynninga
í dagblöðum
SKÓLASTJÖRI
M, I. R.
KveijuhljönJaikar Sðvétllstamanna
í Þjóðleikhúsinu í kvöld kl. 20,30.
Einleikur á píanó:
Einsöngur:
\
Einleikur á fiðlu:
Undirleikari:
Mikail Voskresenskí
Ljúdmila ísaéva, sópran.
ígor Politkovskí.
Taisia Merkulova.
Aðgöngumiðar í Þjóðleikhúsinu
frá kl. 13,15 í dag.
VerzSunarbréf
Vanur bréfritari getur tekið að sér erlendar bréfa-
skriftir hálfan eða allan daginn. Tilboð sendist afgr.
Mbl. merkt: „Bréfritari — 9474“.
4ra herb. íbúð
í Vesturbæ er til sölu nú þegar. Sér hiti.
ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON, hrl.
Austurstræti 14 — Sími 15332.
íbúð óskast
3ja til 4ra herb. íbúð óskast á góðum stað í bænum.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upplýsingar í síma
33262.
Vanur skrifsfofumaður
óskar eftir góðu starfi innan skamms. Getur unnið
sjálfstætt að erlendum bréfaskriftum, einkum ensk-
um, og bókhaldi verzlunar- eða útgerðarfyrirtækja
Tilboð merkt: „4411 sendist afgr. Mbl. serrj fyrst.
íbúð
3-—4 herbergja íbúð óskast. Helzt í Norðurmýri eða
Hlíðahverfi. Góð umgengni og reglusemi. Vinsam-
legast hringið í síma 1-13-80 kl. 9—5 í dag eða
næstu daga'.
H armonikkuskóli
KARLS JÓNATANSSONAR
Þeir nemendur sem hafa hugsað til náms í skólan-
um í vetur hafi samband við mig sem fyrst.
KARL JÓNATANSSON,
Egilsgötu 14 — Sími 24197.