Morgunblaðið - 30.09.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.09.1959, Blaðsíða 22
22 MORCVNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 30. sepí. 1959 Stöðvun í þróun íþróttamála yfirvofandi ef ekki fást stór- auknar fjárveitingar íþróttaþing ÍSÍ sammála um brýna nauðsyn aukins starfs hreyfingarinnar SÚ TILLAGA sem mest var rædd á nýafstöðnu íþróttaþingi ISÍ var um fjárhagsmál. Hún var flutt af fráfarandi — og nú- verandi stjórn ÍSÍ og hljóðaði svo: íþróttaþing ÍSÍ haldið í Reykjavík 25.-27. sept. 1959 skorar á Alþingi og ríkisstjórn að hækka stórlega fjárfram- lög til íþróttasambands Islands og íþróttasjóðs. Tillagan var samþykkt samhljóða. ★ Skuldir íþróttasjóðs Hermann Guðmundsson fram- kvæmdastjóri ÍSÍ hafði samið greinargerð fyrir tillögunni og flutti framsögu fyrir henni. I þeirri greinargerð segir m. a. svo: „í langan tíma hefur erfiður fjárhagur verið þröskuldur í vegi fyrir eðlilegri þróun og fram gangi iþróttahreyfingarinnar. Fjárframlög meðlimanna sjálfra hafa hvergi nærri nægt og þótt Alþingi og rikisstjórn hafi sýnt virðingarverða viðleitni með því að styrkja rekstur íþróttahreyf- ingarinnar og byggingu íþrótta- mannvirkja, þá hafa þeir styrkir hrokkið skammt, svo sem sjá má á þvx, að ÍSÍ getur ekki lagt á- herzlu á æskulýðsstarf sem nauð- synlegt er t. d. með sumarbúðum drengja, námskeiðum fyrir æsku lýðsforingja og af sömu orsök er ekki hægt að halda uppi nægi- lega þróttmiklu útbreiðslustarfi. Samkvæmt síðustu skýrslu íþróttanefndar ríkisins vantar íþróttasjóð nú kr. 9.566.808,00 kr. til ógreiddrar áætlaðrar þátttöku í byggingu íþróttamannvirkja, en fjárveitingar Alþingis til íþrótta- sjóðs hafa frá 1953 til ársins 1958, að þ.vi ári meðtöldu, samanlagt numið kr. 6.750.000,00. Þaff er því ljóst, aff ef ekki á aff verða stöðvun í þróun íþróttamála, þá verður aff fá stóraukið fé til íþróttamann- virkja og hinna frjálsu íþrótta samtaka í landinu. Þaff fé getur ekki komiff svo neinu verulegu nemi, nema með fjárveitingu Alþingis. Enda er þaff svo alis staffar í veröldinni, þar sem eitthvaff íþróttalíf er, þá styrkir ríkis- valdið íþróttastarfiff, mismun- andi mikið að vísu, en þó víða á miklu stórtækari hátt en þekkist hér á landi, því aff öll þróun íþróttamála er komin þar lengra en hér.“ ★ Stórmál Þannig segir í upphafi greinar- gerðar framkv. stjóra ÍSÍ fyrir áskorunartillögunni til Alþingis og ríkisstjómar. Síðan er vikið að samanburði á styrkjum ÍSÍ og hliðstæðra sambanda í Noregi og Svíþjóð. Þann samanburð ásamt fleiri upplýsingum um málið geymum við okkur um sinn. En sannarlega er hér um mikiff mál aff ræða, sem varffar hvern ein- stakan mann, þann er vill styff ja aff aukinni líkamsrækt þjóffar- innar og trúir á mátt íþróttanna til uppeldisáhrifa á viffkvæmt æskufólk sem uppvex nú á fjöl- breytilegri og flestir segja hættu- Iegri tímum en áður hafa þekkzt í sögu þjóðainnar. Þessi staðreynd var mjög studd af verndara ÍSt, forseta íslands, Ásgeiri Ásgeirssyni sem ávarpaði þingið við setningu þess, svo og af fulltrúa menntamálaráðherta Birgi Thorlacius ráðuneytisstjóra sem tók til máls við sama tæki- færi. if Aldrei jafn veigamikiff og nú Ásgeir Ásgeirsson forseti ís- lands sagði m. a. á þessa leið. Ég vil fyrst og fremst þakka ykkur, íþróttaleiðtogum víffs vegar aff af landinu fyiir starf ykkar í þágu íþróttanna og þjóðarinnar í heild. fþrótta Frh. á bls. 23 mh Mohair t> A Ð var þröngt á þingi í Markaðnum í Hafnarstræti 11 sl. mánudag. Hópur kvenna var þar saman kominn, og allar voru þær spyrjandi, skoðandi og masandi. Afgreiðslustúlkurnar stóðu með mælistiku í hendi og mældu hvern strangan upp á fætur öðr- um. Konurnar stóðu með efnin í fanginu og biðu eftir afgreiðslu, allar voru þær „næstar“ og stöðugt bættust nýjar og nýjar í hópinn. Kvennaþátturinn fór á stúf- ana til að vita hvað þarna væri um að vera. Hvað var verið að selja svona eftirsótt? Jú, ný send- ing af mohairefnum hafði verið tekin fram og salan hafin. Ljóm- andi falleg fjólublá og mosagræn efni lágu þar í stranga og voru tvær ungar stúlkur að skoða þau. — Hvað kostar þetta? — 412 krónur. — Ekkert ódýrara? — Ekki svona þykkt. Þynnri efnin eru ódýrari. — Ég ætla að fá þetta græna. — Þannig gekk það allan daginn. Ekki var viðlit að eiga viðtal við afgreiðslustúlkurnar að þessu sinni, þær voru alltaf á sprettinum. Seinna í vikunni náðum við tali af verzlunarstjór- anum, fiú Maríu Pétursdóttur. og báðum hana að segja okkui örlítið frá þessum merka at- burði, þegar mohairefnin komu: — Ja, það v^r eins og efni hefðu ekki komið í bæinn fyrr, sagði frú María. Búðih fylltist á svipstundu. Þetta er í fyrsta skipti, sem við höfum orðið að loka stundarkorn til að rýma verzlunina, afgreiða konurnar, sem inni voru og hleypa þeim út bakdyramegin, áður en nýj- um viðskiptavinum var boðið inn. Slíkt hefur að sjálfsögðu Sigrún: Það er slegizt um þessi mo'iair-efni Olga: Frönsku efnineruekki síður falleg komið fyrir, þegar um útsölur er að ræða, en á venjulegum söludegi höfum við ekki áður þurft að grípa til slíkra bragða. — Og hvað er svona sérstætt við þessi efni? — Þau eru nú fyrst og fremst ljómandi falleg og svo tízkufyrir- brigði. Gerðirnar eru tvenns konar, langhært og slétt mohair með slikju og svo hnökrað efni, sem ekki er síður eftir- sótt. Það kemur mjög lítið af hverjum lit og hverri tegund, mesta lagi einn strangi og oft eki nema nokkrir metrar. Kven- fólk leggur mikið upp úr því, það vill ekki ganga í sams konar kjól og vinkonan á. Bærinn er held- ur ekki svo ýkja stór. — Þetta eru dýr efni. Veigrar kvenfólk sér ekki við að kaupa svona dýr efni? — Ekki höfum við orðið var- ar við það. Efnin kosta svona frá 250—500 krónur meterinn, 140 cm. breið. í einfaldan kjól þarf ca 1,25—1,80 m, en tilsvar- andi meira í dragtir og kápur. Við heyrum engan kvarta yfir verðinu, þvert á móti er stöð- ugur straumur að spyrja um, hvenær efnin komi aftur. — Og hvenær koma þau aft- ur? — Við eigum von á annarrl sendingu eftir mánaðarmotin. En við vorum rétt í þessu að taka upp ný, frönsk efni, — viljið þér líta á? Og afgreiðslustúlkurn- ar, Sigrún og Olga, breiddu úr nýjum, frönskum efnum, sem voru röndótt, munstruð og marg- lit: — Þessi eru ekki síður falleg og mjög eftirsótt, sögðu þær. — Mikið keypt í víð pils, sem eru sérstaklega vinsæl um þessar mundir. Frakkarnir hafa auga fyrir því sem fagurt er. íslenzka kvenfólkið kann vel að meta fal- lega vöru. Markvörffur Arsenals, Standen, gripur inn i leiklnn og stöffvar hættulegt upphlaup Blackpools. Á myndinni sjást frá vinstri fyrirliffi Arsenals, Vic Grows, miffvörffur Arsenals Dodgin, miff- herji Blackpools Durie (í hvítri peysu) og aff baki Standens sést í vinstri bakvörff Arsenals, Mc Cudlough. Myndin var tekin sl. Iaugardag — Arsenal vann, 2:1. Manchesier United lapar enn 10. UMFERÐ ensku deildarkeppn innar fór fram sl. laugardag og urðu úrslit þessi: 1. d*ild Arsenal — Blackpool .......... .. 2.1 Burnley — Birmingham .......... 3:1 Fulham — Chelsea ............... 1:3 Leeds — Newcastle ............. 2:3 Leichester — Tottenham......... 1*1 Manchester City — Blackburn .... 2.1 N. Forest — Bolton ............ 2:1 Preston — Manchester U........ 4.0 Sheffield W. — Luton .......... 2:0 West Ham — W. B. A............. 4:1 Wolverhampton — Everton ....... 2:0 markið en Clamp setti hitt. — Hinn frægi enski dómari Arthur Ellis, sem dæmdi leikinn milli Fulham og Chelsea fékk afar slæma dóma fyrir frammistöðu sína og var honum kennt um að Chelsea vann. Hann dæmdi m.a. vítaspyrnu á Fulham þegar einn varnarspilari Fulham spyrnti knettinum í horn. Fyrir Fulham skoraði Chamberlain en fyrir Chelsea skoruðu Greaves, Sillett og Livesey. 2. deild Aston Villa — Leyton Orient ... 1:0 Brighton — Swansea ........... 1:2 Bristol City — Middlesborough .... 2:0 Charlton — Derby .............. 6:1 Lincoln — Cardiff ............. 2:3 Liverpool — Plymouth .........— 4:1 Portsmouth — Ipswich ........ 0:2 Rotherham — Hull .......... 1:0 Scunthorpe — Sheffield U..... 1:1 Stoke — Bristol Rovers ....... 0:1 Sunderland — Huddersfield.... 0:0 Á laugardaginn léku frland og England (áhugamenn) og endaði sá leikur 1:1. — í sl. viku léku Englendingar unglingalandsleik (undir 23ja ára) við Ungverja og endaði sá leikur 1:0 Ungverjum í vil. — Leikmenn Tottenham máttu þakka fyrir jafnteflið gegn Leichester, sem lék mjög vel. Fyrir Leichester skoraði McDon- ald en fyrir Tottenham Jones úr vítaspyrnu. — Herd og Barnwell tryggðu Arsenal sigurinn yfir Blackpool með ágæfum mörkum, en fyrir Blackpool skoraði Mudic. — Manchester United gengur mjög illa og fyrir leikinn á móti Preston voru margar stöðubreyt- ingar gerðar. T.d. lék Violett hægri framvörð, en sú tilraun heppnaðist ekki vel. Matt Busby leitar nú að bakvörðum og hefur hann m.a. augastað á Eric Cal- dow hjá Glasgow Rangers. Finn- ey átti góðan leik gegn Manchest- er United og skoraði 2 mörk og Taylor og Sneddon settu hvor eitt mark. — Wolverhampton lék mjög vel gegn Everton enda lék Broadbent með og setti annað Að 10 umferðum loknum er staðan þessi: 1. deild: L u J T Mörk st. Tottenham 10 5 5 0 25:11 15 Wolverhampton 10 6 2 2 31:17 14 Arsenal 10 5 4 1 17:10 14 Burnley 10 7 0 3 23:18 14 Blackburn 10 5 2 3 19:12 12 W est Ham 10 4 4 2 22:17 12 Preston 10 4 3 3 19:18 11 N. Forest 10 4 3 3 11:11 11 W. B. A. 10 3 4 3 19:15 10 Chelsea 10 4 2 4 22:21 10 Manchester City 10 5 0 5 20:21 10 Leichester 10 3 4 3 16:22 10 Sheffield W. 10 4 1 5 15:13 9 Blackpool 10 3 3 4 12:16 9 Fulham 10 4 1 5 17:27 9 Manchester U. 10 3 2 5 21:24 8 Newcastle 10 3 2 5 16:22 8 Leeds 10 3 2 5 14:23 8 Bolton 10 3 1 6 13:16 7 Everton 10 2 3 5 12:18 7 Luton 10 2 3 5 8:13 7 Birmingham 10 1 3 6 14:21 5 2. deild: L U J T Mörk St. Aston Villa 10 8 1 1 19:7 17 Cardiff 10 6 3 1 21:15 15 Charlton 10 5 4 1 26:16 14 Middlesborough 10 5 3 2 26:12 13 Sheffield U. 10 5 3 2 22:14 13 Bristol Rovers 10 4 5 1 14:12 13 Huddersfield 10 5 2 3 18:12 12 Rotherham 10 4 4 2 18:12 12 Leyton Orient 10 4 3 3 20:14 11 Liverpool 10 5 1 4 22:16 11 Swansea 10 5 1 4 19:17 11 Sunderland 10 4 3 3 14:17 11 Ipswich 10 5 0 5 23:17 10 Stoke 10 4 2 4 19:16 10 Brighton 10 3 3 4 16:16 9 Scunthorpe 10 2 4 4 9:14 8 Plymouth 10 2 3 5 12:24 7 Bristol City 10 2 1 7 15:24 5 Derby 10 2 1 7 14:24 5 Hull 10 2 1 7 11:28 5 Portsmouth 10 1 2 7 10:21 4 Lincoln 10 2 0 8 9:25 4 Þrír íslenzkir skíSamenn tíl Squaw Valley Á SÍÐASTA fundi Olympíunefnd ar, 24. þ.m. var samþ. að senda 3 skíðamenn til keppni á VIII. Vetr arleikunum í Squaw Valley 18.— 28. febrúar nk. Jafnfxant samþ. nefndin að senda einn fararötjóra með flokknum og að bjóða for- manni Skíðasambandsins, Her- manni Stefánssyni, menntaskóla- kennara á Akureyri, að verða fararstjóri flokksins. Áður hefur Olympíunefnd boð- að þátttöku fslands í frjálsum íþróttum og sundi á XVII. Olym. píuleikunum í Róm 25. ágúst til 11. sept á næsta ári. Um fjölda þátttakenda íslands þar er að sjálfsögðu enn allt óákveðið. Nýlega hafa eftirtaldir aðilar tekið sæti í Olympíunefnd til viðbótar, sem fulltrúar sérsam. banda: Frá Frjálsíþróttasamb, fslands: Brynj. Ingólfsson; frá Sundsamb. ísl.r Ingvi K. Bald. vinsson; frá Knattspyrnusamb. ísl.: Ragnar Lárusson; frá Skíða* samb. ísl.: Ragnar Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.