Morgunblaðið - 04.10.1959, Side 23
Sunnudagur 4. okt. 1959
MORGUNBLAÐIÐ
23
Hin forna Landakirkja
Vestmannaeyinga
endurvígð
VESTMANNAEYJUM, 3. okt.:
Biskupinn Herra Sigurbjörn Ein-
arsson er væntanlegur hingað á
morgun (sunnudag). Fer þá
fram vígsluathöfn í hinni fornu
kirkju Vestmannaeyinga, Landa-
kirkju. Hafa miklar endurbætur
farið fram á kirkjunni. Með
herra biskupnum verður prófast-
ur Kjalarnesprófastsdæmis Garð
ar Þorsteinsson, en við hina
kirkjulegu athöfn munu aðstoða
sóknarprestarnir séra Halldór
Kolbeins og séra Jóhann Hlíðar.
1 ráði er aC fyrrum prestur Vest-
tnannaeyja, séra Sigurjón Þ.
— Miskllð
Framhald af bls. 1.
— f þessu sambandi líkir blaðið
utanríkisstefnu Kínverja við
stefnu Hitlers, segir að þeir vilji
seilast til áhrifa í öðrum löndum
á sama hátt og Þjóðverjar á dög-
um Hitlers. — Þá er frá því skýrt,
að utanríkisráðherra Kína hafi
neitað að taka á móti sendifull-
trúa sambandslýðveldisins, eftir
að Baghdash hélt ræðu sína, og
hafi þá allir sendiráðsmenn
hundsað boð um að taka þátt í
hátíðahöldunum.
★
Þetta vlrðist ætla að hafa enn
víðtækari afleiðingar, því að í
Kairó-blöðunum er frá því skýrt,
að stjórn sambandslýðveldisins
hafi kallað heim alla stúdenta, er
nám hafa stundað í Sovétrikjun-
um og öðrum Austur-Evrópuríkj-
um. Er hér um að ræða um 650
stúdenla.
I siðari fréttum segir, að hald
hafi verið lagt á símskeyti frá
Kaíró þar sem sendifulltrúanum
var boðið að hverfa heim.
— Sauðnautstarfur
Framh. af bls. 1.
gripasafnið í Reykjavík sumarið
1955. Þá hélt sig dálitið sauðnauta
hópur stutt frá skálanum okkar
og sáum við þau af hlaðinu nær
daglega þar sem þau voru á beit
í fjallshlíðinni. Þau héldu sig
mikið á sömu slóðum og þessi
héldu hópinn þar til í júlí að þau
færðu sig ofurlítið til og varð þá
einn tarfurinn viðskila við hóp-
inn og lenti í námunda við vinnu-
skála sem voru innar í dalnutr..
Þegar tarfarnir fara einförum
geta þeir verið mjög hættulegir.
Viðureign tudda og danska
kokksins
Þarna í skálanum var danskur
kokkur, sem datt það snjallræði
í hug að taka mynd af tarfinum
og fór á vettvang með myndavél
og grænlenzkan sleðahund i
bandi. Hann gekk beint að tarf-
inum, sem óðara setti undir sig
hausinn og þaut af stað til að
ráðast á kokkinn, sem í dauðans
ofboði sleppti hundinum, henti
myndavélinni og hljóp heim að
skálanum, en þangað slapp hann
hálfdauður af hræðslu og mæði.
Hann átti hundinum líf sitt að
launa, þvi tarfurinn réðist nú á
hann og tókst í þeirri viðureign
að reka homið í kviðinn á seppa
svo að garnirnar lágu úti. Hund-
urinn gat samt skreiðst heim að
skálanum. Þar var sárið þvegið
Árnason prestur Hallgrímssókn-
ar í Reykjavík, komi hingað og
taki þátt í vigsluathöfninni. Var
séra Sigurjón prestur hér um 20
ára skeið.
Aður en vígsluathöfnin hefst
munu sóknarprestarnir hér, á-
samt sóknarnefndarmönnum og
kirkju meðhjálparanum koma
saman í barnaskólanum. Þaðan
munu þeir ganga í prosessíu með
biskupnum til kirkjunnar, og
munu þeir bera kirkjugripi inn
að altari kirkjunnar en biskup
taka þar við þeim.
Að lokinni sjálfri vígsluat-
höfninni, hefur biskupinn óskað
eftir því að fram fari altaris-
ganga og barnaskírn.
Að lokinni hinni kirkjulegu
athöfn mun öllum kirkjugestum
boðið til kaffjdrykkju í húsi
KFUM og K. Munu þar ræður
verða haldnar.
Geta má þess að í kjölfar end-
urvígslu Landakirkju mun sigla
kirkjuvika. Á hverju kvöldi
munu guðþjónustur fara fram í
kirkjunni og þar verða flutt er-
indi um kristileg efni, og munu
fyrirlestrana halda prestlærðir
menn og leikmenn.
Landakirkja, sem nú er næst
elzt allra kirkna hér á landi, var
byggð á árunum 1774-80.
Sóknarnefnd Landakirkju hef-
ur unnið mikið starf og gott á
undanförnum árum. Landa-
kirkja er til hins mesta sóma
fyrir Vestmannaeyinga, svo
miklu hafa þeir varið til þess að
gera sína fornfrægu kirkju sem
bezt úr garði. Bj. Guðm.
★
í ráði var að biskup og fylgd
arlið hans færi héðan frá Reykja
vík flugleiðis á föstudaginn. En
ekki var þá eða £ gær flugveður.
Fór biskup með skipi frá Þor-
lákshöfn.
Aðalfundur
Hafnarfirði — Stefnir, fél.
ungra Sjálfstæðismanna, heldur
aðalfund sinn í Sjálfstæðishúsinu
næstkomandi laugardag 10. otk.
Venjuleg aðalfundarstörf.
— Fundur
Framh. af bls. 1.
Eisenhower og Krúsjeff hafi kom
izt að samkomulagi í grundvall-
aratriðum um fund æðstu manna
í viðræðum sínum í Camp David
fyrir skömmu.
Aðrir álíta, að fundurinn geti
tæpast orðið eins fljótt og þá var
gert ráð fyrir. T. d. muni það enn
óútkljáð, hvort, og þá með hverj-
um hætti, Vestur- og Austur-
Þjóðverjar taki þátt í slíkum
fundi. — Líklegasti fundarstað-
ur er talinn vera Genf.
Nýr — gullfallegur
Svefnsófar
til sölu í dag — sunnudag.
Frá kr. 1900,00 sófinn
Nýtízku áklæði, svampur og
fjaðrir. — Vönduð vinna. —
Einstakt tækifæri. —
Verkstæðið, Grettisgötu 69.
Opið kl. 2—9.
Ú tgerðarmenn
Afgreicjsum í nýbyggingar við erlendar skipasmíða-
stöðvar:
" BERGEN-Diesel: Stærðir: 250 til 660 HK
NORMO-Semi Diesel: — 140 til 280 HK
MARNA-Diesel samstæður fyrir dælu, Ijós og
loftþjöppu.
Auk þess afgreiðum við frá A/S Hydravinsj, Hagavik,
og A/S Norsk Motor, Bergen, allar gerðir og stærðir af
hinum viðurkenndu tví-virku vökvaknúnu
Línu- og netavindum hringnótavindum og
togvindum og Bómuvindum.
Allar upplýsingar:
Vélaverksfœði Sig. Sveinbjörnsson M.
Reykjavík.
Höfum opnað verzlun
að Kópavogsbraut 42 undir nafninu
Verzlunin Cerði
Höfum til sölu ýmiskonar vefnaðarvörur, snyrtivörur,
skólavÖrur, matvörur, öl, sælgæti og túbaksvörur.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
Verzlunin Gerði
Kópavogsbraut 42.
upp og görnunum troðið inn um
gatið og siðan saumað saman.
Seppi lifði það af
Seint um sumarið komu námu-
verkfræðingar úr Meistaravík til
Akureyrar með skipi, sem var að
flytja vistir til námufélagsins.
Frétti ég þá að hundurinn hefði
gróið sára sinna og liti út fyrir
að hann mundi ná sér að fullu.
Kristján sagði að þessi saga
hæfði að fylgja þessari sauðnauts
mynd sem við birtum hér. Tuddi
er nú kominn aftur til heim-
kynna sinna á Grænlandi þ.e.a.s.
hausinn af honum prýðir nú bygg
Unglinga
vantar til blaðburðar
víðsvegar um bæinn
JHwgiinbliiMfe
Sími 22480.
ingar flugvallarstarfsmanna í
Meistaravík.
Hjartans þakkir færi ég öllum, sem glöddu mig á 75 ára afmæli mínu 13. september s.l. með heimsóknum, gjöfum og skeytum og gjörðu mér afmælisdaginn ógleym- anlegan, Guð blessi ykkur öll. Þorbjörg Brynjólfsdóttir, Mánagötu 14.
VOPNFIRÐING AR! Innilegustu þakkir fyrir ánægjulegt kveðjusamsæti, sem þið hélduð okkar 13. sept. s.l., og góðar gjafir, sem okkur voru afhentar við það tækifæri. Guð blessi Vopnafjörð á ókomnum árum. N Guðbjörg Hjartardóttir, Jakob Einarsson, Aagot Vilhjálmsson, Árni Vilhjálmsson.
Ceymslupláss við Miðbæinn. Útihús og ca. 40 ferm. pláss í kjallara til leigu nú þegar. Upplýsingar á skrifstofunni. EINAR SIGURÐSSON hdl. Ingólfsstræti 4, sími 16767 og sími 11374.
Röskur sendisveinn óskast strax til sendiferða fyrir hádegi. HARALD FAABERG H.F., Hafnarstræti 5, simi 1-11-50.
Keflavík Frá Ballettskóla Irmy Toft. Kennsla hefst 6. október. Skirteini afhent sama dag í Tjarnarlundi milli kL 10,30—12.
1. vélstjöra vantar á m.s. Stefnir, Hafnarfirði. Upplýsingar hjá skipstjóra um borð í bátnum, í slipp í Hafnarfirði. —
Faðir okkar ÞÖRÐUR JÓNSSON bókhaldari frá Stokkseyri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjud. 6. októ- ber kl. 1,30 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður í Gamla kirkjugarðinum. Helga Þórðardóttir, Guðrún Þórðardóttir, Kristín Þórðardóttir, Sigurður Þórðarson, Ragnar Þórðarson,
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar STEINUNNAR MAGNÚSDÓTTUR frá Efri-Gegnishólum. Anna Tómasdóttir, Þuríður Tómasdóttir, Guðmundur Tómasson.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við fráfall og útför GUÐRÚNAR GlSLADÓTTUR frá Grjótá. Halia Jónsdóttir, Eyjólfur Finnbogason.
Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og jarðarför SKtTLA JÚLfUSSONAR Vesturgötu 66. Björg Sigurðardóttir og börn. 1
Þökkum innilega sýnda samúð við fráfall föður okkar MAGNÚSAR BJARNASONAR Hagamel 6. Fyrir hönda vandamanna. Sólveig Magnúsdóttir, Valgcrður Magnúsdóttir.
t