Morgunblaðið - 10.10.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.10.1959, Qupperneq 1
46. árgangur 223. tbl. — Laugardagur 10. október 1959 Prentsmiðja MorrrunblaSsins Shaldsmenn hlutu 102 scefq meirihlufa Verkamannaflokkurinn missti fylgi til Frjálslyndra LONDON, 9. óktóber. — í H A'L DSFLOKKUR- IN N vann óvæntan stórsig- ur í brezku þingkosningunum og tryggði sér stjórnartaum- ana þriðja kjörtímabilið í röð. Hafa íhaldsmenn hlotið meira en 100 þingsæti fram yfir Verkamannaflokkinn í neðri deildinni, en þar sitja 630 menn. Hafa vonir Verka- mannaflokksins um að binda endi á 8 ára samfellda stjórn íhaldsmanna brostið hrapal- lega. Stjórnmálafregnritarar eru yfirleitt sammála um það, að sigur íhaldsmanna sé per- sónulegur sigur Macmillans, því að hann einn hafi endur- vakið traust brezku þjóðar- innar á flokknum eftir ófarir Edens og stjómar hans í Súez- stríðinu. hegar úrslit í fjórum kjördæm- um voru enn ókunn höfðu íhalds menn hlotið 364 menn kjörna, unnið 23 sæti af Verkamanna- flokknum, en Verkamannaflokk- urinn hafði hlotið 257. Frjáls- lyndir höfðu hlotið 5 þingsæti, staðið í stað, en kommúnistar höfðu hlotið afhroð eins og búizt var við, eingungis fengið 0,1% atkvæða og engan mann kjörinn. Búizt var við, að íhaldsmenn hefðu sigrað í tveimur af kjör- dæmunum 4, sem úrslit voru , ókunn í — og verður meirihluti j þeirra í neðri deildinni þá 102 þingsæti. Þessi sigur íhaldsmanna kom vægast sagt á óvart, því almennt hafði verið spáð, að það væri und ir hælinn lagt hvor ynni meiri- hluta, íhaldsflokkurinn eða Verkamannaflokkurinn. Macmill an sagði jafnvel sjálfur kvöldið fyrir kosningarnar, að mjóu mundi muna. Fyrir kosningarnar höfðu íhaldsmenn 56 þingsæti meiri- hluta í neðri deildinni — og mörg þeirra hefðu unnizt naumlega. í flestum þessum kjördæmum jókst fylgi íhaldsmanna til muna — og víða annars staðar, þar sem Verkamannaflokkurinn taldi sig eiga öruggt þingsæti, fóru íhalds menn með sigur af hólmi. Öll hin 23 töpuðu þingsæti Verkamanna flokksins féllu íhaldsmönnum í skaut eins og fyrr segir. Ihaldsmenn héldu þó ekki alls staðar velli. Þeir töpuðu nokkr- um sætum til Verkamannafl. í baðmuliariðnaðarborgunum en að öllu saman lögðu var tap Verkamannafl. 23 þingsæti. Núna kusu 78,5% kjósenda, sem voru 35,4000,000, en í kosn- ingunum 1955 var kjörsókn 76,8%. Verkamannaflokkurinn hafði -wænzt þess, að góð kjör- sókn gæfi honum byr undir báða vængi, en reyndin varð gagn- stæð. Gaitskell ber sig vel ' Gaitskell, leiðtogi Verkamanna flokksins, var samt hinn bratt- asti, þegar hann kom til London í kvöld frá kjördæmi sínu í Leeds þar sem hann hafði tapað fylgi. en unnið þó örugglega. — Tap okkar var ekki íkja- mikið, sagði hann, ekki meira en svo, að við getum unnið það upp. Aðeins 3 Englendingar af hverj- um 200 hefðu nægt íhaldsmönn- um til þess að gera þeim sigurinn álitlegan. Atkvæðamagn íhalds- manna minnkaði í rauninni mið- að við kosningarnar 1955, þá hlutu þeir 49,9%, en 49,4% núna. Verkamannaflokkurinn hlaut nú 43,9,% en 46% í síðustu kosning- um. En frjálslyndir tvöfölduðu liðlega htkvæðamagn sitt enda þótt þeim tækist ekki að koma fleiri manna sinna á þing. Nú hlutu þeir 5,8%, en 1955 fengu þeir 2,6%. Og það er einmitt þessi breyt- ing, sem vekur nú ugg meðal for ystu Verkamannaflokksins. Sigur íhaldsmanna hleypti slíku fjöri í viðskiptalífið í Lon- don í dag, að „elztu menn sögð- ust ekki muna annað eins“. Þröngin í kauphöllinni varð geysimikil og slegizt var svo að segja um verðbréfin, aðallega í þungaiðnaðarfyrirtækjum, þvi Verkamannaflokkurinn hafði boð Framh. á bls. 2. iLunik 3. fjærst •.. ^ jorou Vekur mikla athygli í Danmörku LONDON, 9. okt. — Skýrt var frá því í Tassfréttum í dag, að Lunik III hefði þá verið fjærzt jörðu, og muni á morgun halda aftur í áttina til jarðar. Fer Lunik 294,000 mílur lengst frá jörðinni, en verður næst henni — 25,000 mílur — 18. okt. Dregið hefir mjög úr hraða rakettunnar, og fer hún nú ekki mikið hraðar en venjuleg þota, um 875 mílur á klst NORTH BRUNSWICK, New Jersey, 9. okt. — í dag létu 9 skólastúlkur og prófessor þeirra lífið, þegar strætisvagn, sem þær voru í, rakst á vöruflutningabíl, sem hlaðinn var sprengivökva. Brast út geysilegur eldur og létu 10 lífið þegar, en 11 aðrar skóla- stúlkur slösuðust meira og minna. Varð slysið í þoku og rigningu. NAFN Magnúsar Hafliðasonar á Hrauni í Grindavík, var á forsíð um danskra blaða þegar í gær- morgun, er þau birtu fréttina um fund bjarghringsins á Hrauns- fjörum með stórum fyrirsögnum. Og meira að segja reyndu dönsku blöðin að ná tali af honum sím- leiðis í gær. Það fer ekkert framhjá Magn- úsi, þegar hann gengur á fjörur. Hann segist hafa af því mikla ánægju og á fjöruferðinni í gær morgun , kom hann auga á sæ- barða flösku í fjörunni. — Það var fiöskuskeyti. Lítilsháttar sjór hafði komizt inn í flöskuna, sem var með upphleyptu rósaútflúri á. í flöskuskeytinu var miði og mátti lesa að á honum stóð að fiöskuskeytinu hafði verið varp- að í sjóinn á Grand Bank-miðum vestur við Nýfundnaland 16. nóv. 1958. Magnús Hafliðason á Hrauni, Eysteinn Jónsson undirritaði 123 skatta- og tollalög Hækkun úr rúmlega 9 milljónum i rúmar 1700 milljónir króna EYSTEINN Jónsson ber ábyrgð á gífurlegri skatta- hækkunum hér á landi en nokkur annar íslendingur fyrr eða síðar í sögu þjóðarinnar. Á þeim árum, sem Eysteinn var fjármálaráðherra, undir- ritaði hann 123 lög um skatta og tolla.. Eru þar þó ekki talin sum mestu gjaldalögin eins og jólagjöfin 1956 og bjargráðin 1958. Þegar Eysteinn tók við em- bætti fjármálaráðherra af Ásgeiri Ásgeirssyni voru tekj ur ríkisins í fjárlögum fyrir 1934 af sköttum og tollum áætl aðar níu milljónir og áttatíu þúsund krónur — 9080.000,— kr. f fjárlögum fyrir 1959, sem byggja á skatta- og tollalög- gjöfinni, eins og hún var, þeg- ar Eysteinn fór frá, voru skatt ar og tollar áætlaðir sjö hundr uð og sjötíu og átta milljónir og sex hundruð þúsund krón- ur 778.600.000,— kr. Þessi fjárhæð er þó gersam- lega villandi. Til þess að fela verk sín, fékk Eysteinn Út- flutningssjóð aðgreindan frá ríkissjóði. En tekna til hans er aflað með sköttum og tollum, sem í engu eru frábrugðnir öðrum samskonar gjöldum. Samkvæmt þeim gögnum sem hægt hefur verið að afla verður að ætla að tekjur hans af þessum gjöldum verði ekki minni nú í ár en níu hundruð og sextíu milljónir króna — 960.000.000,— kr. Eysteini Jónssyni hefur þess vegna tekizt að leika hag rík- isins og almennings svo að við lok ráðherradóms hans eru skattar og tollar á almenningi orðnir a. m. k. 190 sinnum hærri en þegar hann tók við. Með þessu er þó engan veg- inn allt talið, því að margvís- legum gjöldum hefur verið velt yfir á bæjar- og sveitar- sjóði og aðrar almannastofn- anir, sem ýmiskonar skyldur hafa verið lagðar á herðar en ekki séð fyrir nægum tekju- stofnum. Nú er svo komið, að jafn vel Tímanum ofbýður. Hann segir með stórum stöfum: „Verulegur samdráttur í verzlun vegna skattpíningar á almenningi“. Það er rétt að nú er þrengt að verzluninni með „skatt- píningu“. Þar er þó einn aðili, sem ekki þarf að kvarta. Stærsta verzlunar og atvinnu- fyrirtæki landsins, sjálft SÍS er útsvarsfrjálst hér í Reykja- vík vegna ranginda Eysteins Jónssonar og Framsóknar. Um þetta þegir Tíminn. Hann gleymir líka að geta þess, hvaða íslendingur öðrum frem ur beri ábyrgð á „skattpíningu á almenningi“. Segja má raun ar, að óþarft sé að nefna hann berum orðum. Nafn Eysteins Jónssonar mun ætíð koma al- menningi í hug, þegar hann heyrir „skattpíningar" getið. sem margir þekkja, er mlklll dugnaðarmaður. Hann er og skemmtilegur heim að sækja. Hús sitt, en það er hér á mynd- inni, kyggði hann árið 1930. Meðan hann er úr þessari átt fer Magnús daglega á fjörur og gengur þá norðaustur með ströndinni að Festarfjalli. Townsend opinberar BRÚSSEL, 9. okt. — Tilkynnt var hér í dag, að Pétur Towna- end, sá hinn sami og bendlaður var við Margréti Bretaprinsessu, hafi nú opinberað trúlofun sina með belgískn stúlku, Jamagne að nafni. Er hún dóttir sígarettuiðju hölds, og var ein af þeim 10 stúlk- um sem flughetjan fyrrverandi hafði kynni af í hnattferð sinni I fyrra. í síðastliðin sex ár hefur hann haft meiri og minni kynni af þeirri belgísku og oftsnni* neitað að nokkur alvara væri þeirra í milli, þar til loksins aú: Verkfalli aflétt NEW YORK, 9. okt. — Hafnaiu verkamenn í höfnum frá Maine til Texas, sem verið hafa í verk- falli í 8 daga, hurfu aftur til vinnu sinnar í dag. Var beitt Taft-Hartley lögunum, en með þeim getur stjórnin skyldað menn til að hefia vinnu um ákveðinn tíma. — Var hér um 85 þúsund verkamenn að ræða. JÓHANNESBORG, 8. okt. — NTB—AFP. — Yfir 300 konur i Suður-Afríku voru sendar í fang? elsi í dag til fjögurra mánaða vistar fyrir að efna til mótmæla- fundar fyrir utan réttarsal í Durban í gær. Laugardagur 10. október. Efni blaðsins er m.a.: Bls. 3: Ný gerð af síldarpressu. — 6: Lenin-myndir eftirsóttar. — 8: Onassis og Callas. — 10: Ritstjórnargreinarnar: — Rfttr kröfu Morgunblaðsins? — l*eir sigruðu þrátt fyrir Súez. — 11: Þróun íslenzkra efnahagsmála i tíð V-stjórnarinnar, eftir Ólaf Stefánsson, viðskiptafræðing. — 18: íþróttir. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.