Morgunblaðið - 10.10.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.10.1959, Blaðsíða 2
2 MORCUKBLAÐ1Ð LaugarSagur 10. oKt'. 1959 — Brezku kosningarnar Framh. af bls. 1. aS þjóðnýtingu stálbræðslanna og hlutabréf voru því ekki í stöð- ugu verði síðustu öogana fyrir kosningarnar. En sigur Ihalds- manna boðar framhald efnahags málaþróunar þeirrar, sem þeir hafa stuðlað að á undanfönum árum . Ráffherrar juku fylgi sitt Macmillan jók fylgi sitt í kjör- dæmi sínu í úthverfi Lundúna. AUir helztu leiðtogar íhalds- manna fóru einnig með sigur af hólmi — og margir bættu við sig álitlegu atkvæðamagni. Lloyd utanríkisráðherra jók meirihluta •inn t.d. um 4,000 atkvæði og ný- lendumálaráðherrann, Lennox- Boyd, sem mest var gagnrýndur af Verkamannaflokknum fyrir kosningamar jók meirihluta sinn um liðlega þúsund atkvæði í Bed fordshire. Árásir Verkamanna flokksins á íhaldsstjórnina vegna atburðanna á Kýpur, Kenya, Nyasalandi og Suez virðast því hafa haft harla lítil áhrif. Frjálslyndir vongóffir Forystulið Verkamannaflokks- ins segist nú ætla að hefja harð- ari sókn en nokkru sinni fyrr. En ljóst er, að sú sókn mun ekki ein ungis beinast gegn íhaldsflokkn- um, því Verkamannaflokkurinn hefur tapað töluverðu fylgi til frjálslyndra, sem eftir öllum sól- armerkjum að dæma fá sama þingmannafjölda og síðast, eða 6 menn kjörna. Framkvæmdastjóri frjálslynda flokksins, Herbert Harris, lét svo um mælt í dag, að e.t.v. mundu frjálslyndir verða sterkari í and- stöðu gegn íhaldsflokknum en Verkamannaflokkurinn eftir næstu kosningar. Bretar væru búnir að missa traust sitt á Verkamannaflokknum — og fylg isaukning frjálslyndra væri þýð- ingarmikil vísbending um það, sem í vændum væri. Frjálslynd- ir mundu innan skamms verða Verkamannaflokknum yfirsterk- ari og höfuðandstæðingur íhalds manna. Litlar breytingar á stjórninni Menn eru nú þegar farnir að bollaleggja hvaða breytingar Macmillan muni gera á stjórn sinni. Allir þykjast þess fullviss- ir, að honum verði falin tjórn- arforysta áfram — og hann muni verða við þeim óskum drottning- ar. Hins vegar er líklegt, að ein- hverjar smábreytingar verði gerð ar þó stjórnin verði að mestu óbreytt, því Macmillan hrósaði henni mjög í kosningahríðinni og sagði hana samhentustu sveit manna, sem um langt skeði hefði farið með völdin. — Vitað er, að nýlendumálaráðherrann, Lenn- ox-Boyd, er orðinn þreyttur eftir að hafa verið í 5 ár í fremstu víg línu ef svo mætti segja — og menn spá því að hann fái eitt- hvað umfangsminna ráðherraem bætti. Endurskipulagning Verkamannaflok ksins Og í sambandi við ógnir þær, sem nú steðja að verkamanna- flokknum hugleiða menn hvernig flokkurinn ætlar nú að endur- vígbúast. Ljóst er, að endurskipu lagningar er þörf og jafna verð- ur deilur innan flokksius hið skjótasta. Það tókst ekki með öilu fyrir kosningarnar — og olli sennilega miklu um fylgistap flokksins. Vitað er, að margir af hinum frjálslyndu fylgismönnum Gaitskells vilja varpa þjóðnýt- ingaráformum algerlega fyrir borð og draga úr áhrifum verka- lýðsfélaganna í flokknum — og helzt taka sér til fyrirrnyndar bandaríska demokratafiokkinn á ýmsum sviðum. Innan verka- mannaflokksins eru hins vegar sterk þjóðnýtingaröfl af gamia skólanum, sem ekki munu láta í minni pokann fyrr en í fulla hnefana. Stjórnmálafréttaritarar telja þess merki, að vinstri arm- urinn reyni jafnvel að einangra Gaitskell og frjálslyndari öflin. En eitthvað verður að gera. Þessar kosningar sýndu það ljós- lega, að Verkamannaflokkurinn er búinn að tapa ítökum sínum meðal unga fólksins — og slíkt boðar aldrei gott. Meðalaldur þingmanna Verkamannaflokksins er miklu hærri en meðalaldur íhaldsþingmanna. í þessum kosn ingum kom það líka í ljós, að öldungarnir eru sízt sigurstrang- legri en ungu mennirnir. Þess voru nú mörg dæmi, að ungir lítt þekktir frambjóðendur íhalds- manna reyndust þekktum og rót- grónum verkamannaflokksleið- togum skeinhættir og jafnvel sigr uðu óvænt. 140 atkv. af 40 þús. f kosningum þessum kenndi margra grasa. Sá, sem fæst at- kvæði fékk um gervallt landið var maður að nafni Frost, sem bauð sig fram utanflokka á Mið- Englandi. Hann hlaut 140 atkv. af 40,000 mögulegum, en aðalbar- áttumál hans var afnám allra skatta — og þykir hafa farið ver fyrir honum en Poujade hinum franska, þegar hann reis upp meðal þjóðar sinnar. Annar óháð- ur féll í fimmta sinn í röð, en sá barðist fyrir alheimsafvopn- un. Gamall fasisti, sem þekktur var á árunum fyrir styrjöldina, Sir Oswald Mosley, fékk sárafá atkvæði í kjördæmi í London. Hans baráttumál var að reka alla svertingja af Bretlandseyjum til heimkynna sinna, og William Webster, frá þjóðlega verkalýðs- flokknum, sem sagði: Við erum andkommúnistar, á móti Gyðing- um, sem trúa á yfirburði hvíta kynstofnsins — féll líka. Eins fór með frambjóðendur kommúnista. Allir að einum und- anskyldum töpuðu tryggingarfé sínu. Og frú Sloss í London, fram- bjóðandi íhaldsmanna, var líka meðal þeirra sem töpuðu. Hún er 26 ára, yngsti kvenframbjóð- andinn — og átti von á fyrsta barninu á kosningadaginn. Eigin- maður henníir, sem háði alla kosningabaráttuna fyrir konu sína, var heldur vonsvikinn í dag. Ekki aðeins vegna þess að frúin hafði misst af þingsæti, heldur lika vegna þess, að stork- inum hafði seinkað eitthvað. Ánægja meff úrslitin Víffast hvar á Vesturlönd- um hefur kosningasigri íhalds- flokksins veriff tekiff meff vel- þókrvun meffal stjómmálaleiff- toga. Eisenhower sendi Mac- millan heillaóskaskeyti og kvaffst hyggja gott til sam- vinnunnar, sem framundan væri — og í Washington var þungu fargi létt af stjórnmála- mönnum, því þeir voru famir aff óttast, aff nú yrffi aff hefja undirbúning aff fundi æffstiu manna að nýju. Adenauer lýsti og yfir á- nægju sinni meff úrslitin og sama gerði talsmaður frönsku stjórnarinnar. Og í flestöllum samveldis- löndnim Breta hefur veriff lýst ánægju yfir úrslitunum. ★ Macmillan hélt sjónvarpsræffu í kvöld og þakkaffi Bretum traust iff, sem þeir sýndu honum og stjórn hans. Hann sagffist vona, aff framtíffin yrffi farsæl og trúa á batnandi friffarhorfur. Kosninga- úrslitin hefffu sýnt, aff Bretar treystu íhaldsflokknum bezt til þess aff stýra til farsældar — og vildm halda þeirri heillavænlegu þróun, sem flokkurinn hefffi skap aff þjóffarbúskapnum. Macmillan var stuttorður og svaraffi ekki spurningum fréttamanna, sem biffu hans utan viff Downing Street 10. Kosningaskrifstofur Sjálfstæðismanna í Reykj aneskjördæmi keflavík Sjálfstæffishúsinu. — Sími 21. HAFNARFJÖRÐUR Sjálfstæðishúsinu. — Sími 50228. KÓPAVOGUR Melgerði 1. Símar: 19108 — 11091 Hversvegna sigruðu íhaldsmenn? Almenningur telur, að auknir möguleikar verði bezt notaðir með frjálsu framtaki ÚRSLIT brezku þingkosning- anna, sigur íhaldsflokksins og stóraukinn meirihluti þeirra í Parlamentinu er ó- hjákvæmilegt að túlka fyrst og fremst sem öflugt traust á innanríkis- og efnahagsmála- stefnu flokksins. Utanríkismálin virffast hafa haft sáralítil áhrif á þaff hverjum kjósendur greiddu atkvæði. Jafnvel Súez-máliff virffist gleymt og grafiff í hug- um brezkra kjósenda. Sést þaff einna greinilegast af úr- slitum í kjördæminu Bourne- mouth á suffurströnd Eng- Iands. Þar kom upp alvarleg- asti klofningurinn í thalds- flokknum vegna mistakanna við Súez. íhaldsþingmaður þessa kjördæmis, Nigel Nicholson, greiddi atkvæði gegn aðgerffunum viff Súez og svipti flokksfélag íhalds- manna hann stuðningi fyrir vikið. Nýr frambjóffandi íhaldsflokksins jók nú í þess- um kosningum fylgi flokksins í kjördæminu. Skoðanaágreiningur tveggja stærstu flokkanna í varnar- málum og í afstöðunni til Þýzkalándsmálsins var mikiff ræddur í kosningabaráttunni, en það er ekki hægt að sjá, að þetta hafi heldur haft nein teljandi áhrif. — • — Úrslitin í vissum kjördæm- um út um allt Bretland eru til sannindamerkis um þaff, aff þaff er fyrst og fremst efnahagsmálastefnan, sem fær ir íhaldsflokknum sigur. — Þetta er þeim mun athyglis- verffara, þar sem flokkurinn forffaffist þaff aff gefa nokk- ur gylliloforð. Hann hét þvi einu að halda áfram á sömu braut og flokkurinn hefur farið síðustu ár. Hjá Verkamannaflokknum var miklu meiri tilhneiging aff koma meff fögur og gimileg loforff. Til dæmis varff loforff hans um 10 shillinga hækk- un á ellilífeyri mjög fleygt á vörum manna og þá var ekki síður girnilegt loforff hans um stórfellda lækkun á söluskatti t. d. á þvottavélum og fjölda annarra vörutegunda. Ihaldsflokkurinn svaraffi því til aff þessi loforff væru vítaverff, því ómögulegt væri aff framkvæma þau nema meff því aff þyngja tekjuskattinn effa valda verffbólgu. Almenningur gein ekki viff gylliloforffunum. Er þaff brezkum kjósendum til sóma, aff í staff þess virffast þeir hafa hugsaff máliff öfgalaust og komizt aff þeirri niðurstöðu, að róleg framfaraþróun væri heppilegri en trú á krafta- verk. Meff sigri sínum hefur f- haldsflokkurinn yfirstígiff þröskuld gamallar venju, aff enginn stjórnarflokkur geti unniff meira en tvennar kosn- ingar í röff. Þessi óvenjulegi at burffur hefur gerzt einfaldlega vegna þess aff óvenjuleg breyt ing hefur verið að gerast í þjóðlífi Breta. Hún er fólg- in í því, aff þjóðin er meff tækni nútímans að byggja upp nýtt land og nýjar borgir. Auff vitaff verffur fátækrahverfun- um í London og hinum ó- hreinu múrsteinskumböldum liðinna alda ekki útrýmt á einni nóttu, en hitt er stað- reynd, aff aldrei fyrr í sögu Bretlands hefur veriff byggt eins mikiff af snotrum og hreinlegum íbúðum eins og síffustu árin. Þetta hefur sennilega haft meiri áhrif en nokkuð annaff. Þaff er sérstaklega eftirtekt- arvert, aff íhaldsflokkurinn bætti viff sig mestu fylgi í þeim kjördæmum, þar sem flestir nýir bæir og borgar- hlutar hafa risiff. Fyrir kosn- ingarnar spáðu sumir því, að slíkt gæti sums staðar orðiff til að fella frambjóðendur Ihaldsflokksins, vegna þess að mikill hluti íbúa nýju hverf- anna væri úr fátækrahverf- unum og hefði þar af leiðandi veriff hlynntur Verkamanna- flokknum. En þetta fólk virff- ist í ríkum mæli hafa snúizt til fylgis við Ihaldsflokkinn, og það breytir öllu. Hinir, sem enn verffa að hafast við i gamla ófullnægjandi húsnæð- inu, þykjast nú hins vegar eygja von um bætt húsnæði ef sama þróun heldur áfram. Það er aukin tækni í fram- kvæmdum og framleiðslu og aukin kaupgeta, sem hefir snúið taflinu við. Þessar fram- farir hafa orffið undir stjórn íhaldsmanna og því er eðlilegt að þeim sé þakkaðar þær. En vel má vera að viðhorf manna risti dýpra. Bretland, sem hef- ur veriff möguleikasnautt land fyrir allan almúga þjóðarinn- ar er nú aff verffa í vaxandi mæli land möguleikanna. — Menn virðast aimennt telja, að þessir auknu möguleikar verði bezt notaðir í krafti at- hafnasemi einstaklingsins og frjáls framtaks. Menn óttast að sósíalisminn kunni meff viffjum sínum og skriffinnsku að kæfa möguleikana. — • — Undantekningar frá regl- unni sanna hana oft. Þannig er það líka i kosningaúrslit- unum. í nokkrum héruðum, aðallega baffmullariðnaðarhér uffunum í Lancashire, fyrir norðan Liverpool og í Skot- landi, einkum í nágrenni Glasgow, hafa erfiffleikar steðjað að fólki. Markaðs- örðugleikar hafa skapaff at- vinnuleysi á þessum svæffum. Úrslitin í þeim kjördæmum sýndu beizkju en ekki traust I garff ríkisstjórnarinnar. Þar vann Verkamannaflokkurinn nokkur kjördæmi frá íhalds- flokknum og jók almennt at- kvæðatölu sína. — • — Verkamannaflokkurinn tal- affi aff þessu sinni fátt um þjóð nýtingaráform sín. Þó hafði hann lýst því yfir, að ef hann kæmist til valda, skyldi hann aff nýju þjóðnýta stálbræffsl- urnar. í þessu sambandi var þaff athygilsvert, aff íhalds- flokkurinn jók fylgi sitt ein- mitt mjög mikið í stáliffnaðar- héruðunum miklu umhverfis Tyne-fljót. Þetta verffur ekki túlkaff á annan hátt en þann, að sjálfir verkamennirnir í stáliðnaðinum hafi lýst yfir vantrausti á þjóðnýtingu hans. Brezka þjóðin sýnir það með úrslitunum, aff hún er aff verffa æ fráhverfari sósíal- ismanum. Verkamannaflokkur inn hélt aff vísu í heild Iítt á Iofti sósíalismanum. En rót- tækir vinstrimenn, sem nálg- ast kommúnista í skoðunum, hafa þó mjög Iátið á sér bera í röffum hans. Það er hætt við aff þessi rauða fylking hafi ekki orffið til þess aff laða kjós endur aff — kjósendur, sem eru að hætta aff trúa á sósíal- ismann. Enn frekara vitni um þetta ber hin óvænta fylgisaukning Frjálslynda flokksins, mest- megnis á kostnað Verka- mannaflokksins. Sú fylgis- færsla er e. t. v. alvarlegasta aðvörunin til brezka Verka- mannaflokksins. Hér er um aff ræffa þaff fólk sem er á móti ihaldsflokknum en getur ekki lengur sætt sig viff sósíalisma- þefinn af Verkamannaflokkn- um. Þaff má aff vísu varast aff draga of djarfar álýktanir af þessum staffreyndum, en veriff getur aff þarna sé aff brydda á endanlegri hrörnun Verka- mannaflokksins. Þaff má vera, ef ekkert hindrar áframhald- andi framfarir og þróun und- ir stjórn íhaldsflokksins, aff sósíalískur flokkur eins og Verkaamnnaflokkurinn eigi sér ekki frekar viffreisnar von. Þaff má vera, aff Frjálslyndi flokkurinn hafi rétt fyrir sér, þegar hann heldur því fram, að hann eigi eftir aff verffa affalandstöffuflokkur íhalds- manna í framtíffinni. Þ. Th. Brezki sjóliðinn hristi hara höfuðið ÍSAFIRÐI, 8. október: — Fréttaritari Mbl. á ísafirði ræddi í dag lítilsháttar við brezka sjó- liðann, Noel James Newton, sem skorinn var upp við botnlanga- bólgu sl. miðvikudagskvöld hér í sjúkrahúsinu á ísafirði. Var líðan hans orðin allgóð, en frem- ur var hann daufur í dálkinn og vildi lítið segja. Þegar hann var spurður um álit háns á þeirri ráðstöfun, að Bretar hefðu hér herskip, hristi hann bara höfuð- ið, virtist hann að minnsta kosti vera lítð hrifinn af að vera hér við land. Þetta er unglingspiltur, 17 ára að aldri frá Manchester, einka- barn foreldra sinna. Hann hefir verið í sjóhernum í 18 mánuði, og er hann sjálfboðaliði. Er hann rafvirki um borð í freygátunni Palliser. Hann rómaði aðhlynn- ingu alla í sjúkrahúsinu 'og er þakklátur fyrir vingjarnlegt við mót, sem hann hefur hlotið. — Hann hyggst halda á sjóinn á ný. þegar fullum bata er náð. G.K. Fromboðsfundir FRAMBOÐFUNDIR í Norður- landskjördæmi vestra, verða haldnir, sem hér segir: Siglufirði, miðvikudaginn 14. okt. Kl. 8 sd. Haganesvík, fimmtudaginn 15. okt. Kl. 3 sd. Hofsósi, föstudaginn 16. okt. Kl. 8 sd. Sauðárkróki, laugardaginn 17. okt. Kl. 8 sd. Blönduósi, sunnudaginn 18. okt. Kl. 3 sd. Framboðsfundir á Skagaströnd og Hvammstanga verða auglýstir síðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.