Morgunblaðið - 10.10.1959, Síða 3
Laiigardagur 10. okt. 1959
wonnriýnr. 4ðið
3
Ný gerö af síldarpressu ^
Rœtf við höfund
pressunar, Císla
Halldórsson
verkfrœðing
NÝLEGA kom á markað í
Bandaríkjunum ný gerð af síld-
arpressu, sem Gísli Halldórsson,
verkfræðingur, hefur fundið upp
og smíðuð er hjá Edw. Renniburg
and Sons Co., Baltimore, en það
fyrirtæki mun vera einn elzti
framleiðandi síldar- og fisk-
vinnslutækja, og m. a. voru
fyrstu vélarnar í Síldarverk-
smiðjum ríkisins frá Renniburg,
og eins vélarnar, sem settar voru
upp hjá Lýsi og mjöl í Hafnar-
firði, en þær munu vera hinar
síðustu, sem komið hafa hingað
til lands.
Morgunblaðið frétti af þessari
nýjung og átti í því tilefni sam-
tal við Gísla Halldórsson, sem er
landsmönnum kunnur fyrir ým-
is konar uppgötvanir og verk-
legar nýjungar — og nú síðast
fyrir bók sína um geimflug. „Til
framandi hnatta“, sem kom út
á síðastliðnu ári.
Gísli sagði svo frá þessari
nýjung:
Meðan ég var í Bandaríkjun-
um á árunum 1952—’56, átti ég
því láni að fagna að sjá um ýms-
ar tæknilegar stórframkvæmdir,
og m. a. voru mér veitt einka-
leyfi á ýmsum nýjum tækjum,
fyrst og fremst þurrkurum og
kælum, sem notaðir eru víðs
vegar um Bandaríkin og víða um
heim til að þurrka og kæla ýmiss
konar efni, m. a. þurrktæki til
Gísli Halldórsson setti upp iykteyðingarkerfi í síldarverksmiðju í Bandaríkjunum árið 1954.
Verksmiðjan stendur nálægt einum stærsta baðstað Bandarikjanna — og verða engir baðgesta
varir við nokkra lykt. — Slík tæki þyrfti að setja upp á Kletti.
framleiðslu á eldflaugadrifefni,
sem er mjög sterkt sprengiefni
— sterkasta eldflaugadrifefni,
sem þá þekktist í Bandaríkjun-
um. —
Höfundurinn ásamt þurrkara fyrir eldflaugaefnl.
Skátar í landinu eru
nú yfir 5000 talsins
— Þeir safna á morgrun fé til starfsemi sinnar
Á MORGUN er
merkj asöludagur
hinn árlegi#einstaklinga, sem orðið geti góðir
skáta, sem
jafnan er annar sunnudagur i
októbermánuði, og munu þeir þá
selja merki sín á götum hér í
höfuðstaðnum og víða úti um
land.
Göfug starfsemi
Skátafélagsskapurinn lætur
alla jafna lítið yfir sér, enda er
starfsemi hans þannig vaxin, að
hún fer að mestu leyti fram í
kyrrþey, nema helzt þegar um er
að ræða þátttöku hans í umfangs
meiri bjögunarstörfum, sem ekki
eru fátíð og alþjóð eru vel kunn.
í Bandalagi íslenzkra skáta
(BÍS) eru nú 8 skátafélög víðs
vegar um landið með yfir 5 þús-
und meðlimum alls. Að því er
næst verður komizt eru 2/3 þessa
fjölda 15 ára að aldri eða yngri,
og miðast starfsemi skátahreyf-
ingarinnar að verulegu leyti við
það, að skapa úr þeim dreng-
lynda, hrausta og úrræðagóða
borgarar þjóðfélagsins, gagnlegir
þeim, sem minna mega.
Eðlileg fjárþörf
Eitt frumskilyrði þess að ár-
angur náist í þessu efni er það,
að foringjar þeir, sem leiðbeina
æskufólkinu, séu vel menntaðir.
Þarf því að kosta talsverðu til
kennslu þeirra. Augljóst er, að
svo ungir félagar hafa ekki bol-
n:gan til að rísa undir þessum og
öðrum útgjöldum, sem óhjá-
inni. Af þeim ástæðum nýtur fé-
lagsskapurinn með réttu nokkurs
styrks af opinberu fé, en er þrátt
fyrir það nauðbeygður til að
leita á náðir almennings með
merki sín.
— Er þess að vænta, að fólk
bregði vel við og taki skátunum
vinsamlega á morgun, þegar þeir
fara um götur í ckátabúningi sín
um og bjóða merkin til sölu, en
þau kosta 10 krónur.
Tilraunasprengiefni, sem var
framleitt í einu þessara tækja,
gafst svo vel, að ákveðið var að
byggja verksmiðju til að fram-
leiða þetta efni í stórum stíl, og
var hún reist fyrir ameríska flug-
herinn, og kostaði milli 20—30
milljónir dollara. Mér var falið
að reikna út og teikna mjög stór
tæki í þessa verksmiðju, af
þeirri gerð, sem ég hafði fengið
einkaleyfi á, og sá ég um upp-
setningu og reynslu þeirra í árs-
lok 1955.
Áður en ég hvarf aftur til ís-
lands frá Bandaríkjunum síðast
á árinu 1956, lauk ég við teikn-
ingu af nýrri gerð síldarpressu,
sem ekki var þá búið að smíða,
þegar ég fór þaðan. Nú eru hins
vegar 7 slíkar pressur í notkun
í Bandaríkjunum og hafa reynzt
hið bezta.
Til fróðleiks þeim, sem hafa
áhuga á síldariðnaði, þá eru
pressur þessar ekki nema 12 fet
á lengd, en afköst þeirra hafa
numið allt að því 4800 málum á
klukkustund (30 "tonn á klst.), á
Mennhaden-fiski, sem er feitur
fiskur, svi'paður síld og veiddur
eins og hún. Öruggt ætti að vera,
að afköst pressunnar á síld, eins
og hún gerist og gengur hér á
landi, séu á milli 3200 og 4800
mála á sólarhring.
Til samanburðar má geta þess,
að hin gamalkunna 18 feta
pressa, sem þekkt er hér á landi
og víðar og ávallt hefur þótt sér-
staklega góð pressa, afkastar
venjulega ekki nema 2400 mál-
um, enda þótt hún komist hæst
upp í 3000 mál. Samanburður á
þessum tveim pressum verður
ennþá athyglisverðari, þegar bor
ið er saman verð þeirra, því að
þar sem gamla 18 feta pressan
kostar nú, án drifútbúnaðar,
25,160 dollara flutt um borð í
New York, þá kostar nýja press-
an, einnig án drifútbúnaðar, að
eins 16,850 dollara flutt um borð
í New York. Drifútbúnaðurinn
sjálfur, ásamt hraðabreyti og
mótor, sem er af mjög fullkom-
inni gerð, kostar 9215 dollara, og
verður þá heildarverð nýju press
unnar með öllum útbúnaði 26,065
dollarar.
Með pressum þessum hefur
tekizt að fá pressukökur, sem
innihalda aðeins 48 prósent vatn
og mjöl með aðeins 7 prósent
fitu. Hraði pressunnar getur orð-
ið allt að 12 snúningar á mínútu
Það sem einkennir þessa pressu
frá öðrum pressum er fyrst og
fremst, að skrúfan er samsett úr
fjórum keilum, og eru þær mis-
jafnlega brattar. Á milli keil-
anna losnar pressukakan, og auð
veldar þetta mjög pressunina,
Pressan hefur það m. a. til síns
ágætis að vera fyrirferðarminni
en aðrar álíka afkastamiklar
pressur, og á hvað það snertir
sammerkt við þurrkara þá, sem
ég fékk einkaleyfi á í Bandaríkj-
unum, sem einkennast af mjög
víðum belg og meiri afköstum
fyrir ákveðna lengd og fyrirferð,
heldur en áður hafði þekkzt.
Má geta þess, að hinn fyrsti
þurrkari af þessari gerð hefur nú
verið smíðaður hér á landi í vél.
smiðjunni Héðni og settur upp í
Krossanesverksmiðjunni, þar sem
hann er nú í fullum gangi og
hefur reynzt hið bezta. Stendur
nú til að setja á hann hita- og
loftstillitæki, eins og ég hef
venjulega notað við slíka þurrk-
ara í Bandaríkjunum.
Gísli Halldórsson hefur nýlega
hlotið viðurkenningu sem skrá-
settur, ráðgefandi verkfræðingur
í Bandaríkjunum (Registered
Professional Engeneer) fyrir
tæknistörf, sem hann leysti af
hendi þar.
Hin nýja, fjögraþrepa, 12 feta síldarpressa.
STlíSTlllR
,Á nú að hengja Lása a
Reykjanes, blað Sjálfstæðis-
manna á Suðurnesjum, segir und-
ir ofangreindri fyrirsögn:
„Ekki linnir í dagblöðunum til-
kynningum, skýrslum og yfirlýs-
ingum frá embættismönnum
þeim, sem fara með íslenzk mál á
Keflavíkurflugvelli. Tilefnið *r
„atburðirnir“, sem þar áttu sér
stað þann 6 .sept. Hver og einn
reynir að þvo hendur sínar og
dansa kosninga-rokkið á flug-
veilinum með sem ferlegustum
tilburðum.
Það nýjasta er, að nú á að
hengja Lása — lögregluþjónn nr.
3 hefur ekki skrifað nógu mikið
og ekki tilkynnt nógu mikið —
segir lögreglustjórinn, og þess
vegna varð ég svona seinn fyrir
að vita um „atl)iurðina“.
Nikulás segir ekki frá því sem
gerðist 6. sept., fyrr en í gær —-
28. sept. — Svo átti Eisenhower
að koma í mat, en kom ekki — og
lögreglan hafði svo mikið að gera
við stór-atburði að ekki var tími
til að sinna smá „atburðum*".
Það er rétt, sem þarna kemur
fram, að aumari kattarþvottur en
lögreglustjórans á Keflavíkurflug
velli hefur ekki sést.
En ekki hefur heyrst annað en
ríkisstjórnin láti sér tvísögli
hans og andvaraleysi vel líka.
„Kýs heldur óvissuna
á Vestfjörðum en
öruggt þingsæti
í öðrum kjördæmum4*
Þannig hljóðar fyrirsögnin á
grein ,sem Hannibal Valdimars-
son skrifar í kosningablað sitt
vestra. í greininni sjálfri segir
Hannibal m.a.:
„Framboð mitt í þessum kosn-
ingum er spnirning til Vestfirð-
inga, hvort þeir vilji, að ég sé
fulltrúi þeirra á þingi og vinnl
þar að framgangi þeirra mála. Fái
ég það svar í úrslitum kosning-
anna, að um það kæri þeir sig
ekki, þá veit ég, að ég á ekki að
sitja lengur á Alþingi. — En
fyrir sjálfan mig hefi ég aldrei
haft löngun til að vera þar.
Ég veit vel, að miðað vlð
flokkslegt fylgi, er mjög hæpið,
að ég nái kosningu. Þar þarf
meira til. Meðal annars mikið
starf margra áhugamanna. En ég
hef sjálfur kosið mér heldur ó-
vissuna á Vestf jörðum, en öruggt
þingsæti í öðrum kjördæmum“.
Lengi skal manninn reyna.
Hannibal hefur „aldrei haft löng-
un til að vera „á Alþingi“!
Og Vestfirðingum er ætlað að
trúa, að Hannibal hafi af fúsum
vilja horfið úr öruggu þingsæti í
Reykjavík. Ef þeir trúa því fyr-
ir vestan, þá vita þcir ekki það,
sem hver maður veit í Reykjavík.
Á jafnt að ganga yfir
saklausa sem seka?
Þjóðviljinn reynir í gær að
leyna því, að búið er að víkja
Sigurði Sigmundssyni úr hús-
næðismálastjórn. Fyrirsögn hans
um það efni hljóðar svo:
„Rannsókn fyrirskipuð vegna
skoðananjósna Hannesar Pálss.
En ráðherra lætur rannsókn-
ina ekki ná til fulltrúa íhaldsins
og Alþýðuflokksins í húsnæðis-
málastjórn".
Tíminn er litlu betri. Hann seg-
ir:
„Rannsókn fyrirskipuð á störf-
um Húsnæðismálastjórnar.
Ragnar og Eggert verða einnig
að vikja þaðan.
Öll húsnæðismálastjórn er sam
sek, ef um misbeitingu í lánveit-
ingum er að ræða —“.
Báðir heimta, að jafnt sé látiC
ganga yfir saklausa og seka!