Morgunblaðið - 10.10.1959, Qupperneq 20
D-listafundur
í Kefkvik
FRAMBJÓÐENDUR D listans í
Reykjaneskjördæmi boða til
Stjórnmálafundar í Bíóhöllinni í
Keflavík þriðjudaginn 13. okt. kL
8,30 s.d.
Ræður og ávörp flytja:
Ólafur Thors, Matthías Á. Matt
hiasens, Aflreð Gíslason, Sveinn
S. Einarsson, Séra Bjami Sigurðs
son, Karvel Ögmundsson og
Guðm. Guðmundsson.
Fundarstjóri: Eggert Jónsson.
Allt stuðningsfólk D-Iistans
velkomið.
HéruSsmót Sjólf-
slæðismunnu í
r'
Arnessýslu
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna
í Árnessýslu verður haldið í Sel-
fossbíói í kvöld 10. okt. kl. 8,30.
Ræður og ávörp flytja alþing-
ismennirnir: Sigurður Ó. Ólafs-
son, Guðlaugur Gíslason, Ingólf-
ur Jónsson og Jón Kjartansson
sýslumaður.
Leikararnir Haraldur Á. Sig-
urðsson og Ómar Ragnarsson,
skemmta með upplestri og gam-
anþáttum. Hafliði Jónsson að-
stoðar. Hljómsveit Óskars Guð-
mundssonar leikur fyrir dansi.
Söngvari með hljómsveitinni
verður Emmy Þórarins.
m
Eirpottarnir, sem fundust hjá Ytri-Rauðamel.
Fjórir eirpottar fund
ust í hraungrjóti
Taldir 3-400 ára gamlir
Varnargarðurinn á
Mýrdalssandi brast
Hvatarfundur
ó mónudogs-
kvöld
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉL.
HVÖT heldur fund í Sjálfstæðis-
húsinu n. k. mánudagskvöld og
hefst hann kl. 8,30.
Ræður flytja frú Auður Auð-
uns, forseti bæjarstjórnar, frú
Ragnhildur Helgadóttir, alþm.,
og frú Ragnheiður Guðmunds-
dóttir, læknir.
Skemtmiatriði verða að lokn-
um ræðuhöldunum.
í GÆR var blaðamönnum boðið
að líta á fjóra eirpotta, sem nú
eru til sýnis í Þjóðminjasafninu.
Fundust þeir í sumar í hraun-
gjótu hjá Ytri-Rauðamel i
Hnappadalssýslu. Talið er að
pottar þessir séu erlend smíði.
Að því er þjóðminjavörður tjáði
fréttamönnum munu þeirra lik-
ar ekki vera á þjóðminjasafninu
i Kaupmannahöfn, og þær athug-
anir, sem gerðar hafa verið varpa
engu ljósi á uppruna pottanna.
Engar heimildir munu vera til
er skýri á nokkrun hátt hvernig
pottamir hafa hafnað nýir og
ónotáðir i hraungjótunni. Um
fund þeirra segir svo í fréttatil-
kynningu Þjóðminjasafnsins:
Snemma í júní síðastliðnum
voru tveir drengir á fermingar-
aldri, Þorsteinn Helgi Jóhannes-
son og Jóhann Már Jóhannsson,
að leik í hrauninu fyrir austan
bæinn á Ytri-Rauðamel í Hnappa
dalssýslu. Þeir smugu niður í
gjótur og fylgsni hraunsins, sem
þarna er sprungið mjög og stór-
karlalegt og sér víða niður í djúp
ar gjár en hraunturnar gnæfa á
milli. í einni hraungjótunni, um
200 m norð-norðaustur frá bæn-
um, fundu drengirnir fjóra eir-
potta stóra, og voru þrír hver
innan f öðrum, en sá fjórði og
minnsti lá rétt hjá þeim á hvolfi.
Sýnilegt var að pottarnir höfðu
verið faldir þarna endur fyrir
íslenzkra lista-
manna opnar sýningu
I DAG klukkan 6 opnar Félag ís-
lenzkra listamanna samsýningu
í Listamannaskálanum.
Sýningin er mjög fjölbreytt,
og taka alls 27 listmálarar og
Fró íulltrúaráði
Sjalfstæðis-
felaganna í
. Reykjavík
ÁRÍÐANDI fundur verður hald-
inn með umdæmafulltrúum úr
Langholts- og Vogahverfi og
Smáíbúða- og Bústaðahverfi kl.
5 í dag í Valhöll við Suðurgötu.
— Nauðsynlegt er að umdæma-
fulltrúar úr þessum hverfum
mæti á fundinum.
VESTURBÆJARHVERFI
Opnuð hefur verið hverfis-
skrifstofa fyrir Vesturbæjar-
hverfi í Morgunblaðshúsinu II.
hæð. Sími 23113. Skrifstofan
verður opin kl. 3—7 og 8—10.
myndhöggvarar þátt í henni, ung
ir og gamlir. Þeir sem ekki hafa
sýnt áður á sýningum félagsins
eru: Steinþór Sigurðsson, Magn-
ús Þór Jónsson, Skarphéðinn
Haraldsson og Málfríður Krist-
jánsdóttir. Auk þess eru á sýn-
ingunni myndir eftir tvo látna
listmálara Kristínu Jónsdóttur
og Snorra Arinbjarnarson, og
vill félagið heiðra með því minn-
ingu þessara ágætu listamanna.
Aðrir sem þátt taka í sýning-
unni eru: Sigurður Sigurðsson,
Karl Kvaran, Jóhannes Jóhann-
esson, Valtýr Pétursson, Jóhann-
es Kjarval, Vilhjálmur Bérgsson,
Bjarni Jónsson, Guðrún Svava
Guðmundsdóttir, Magnús Á.
Ámason, Einar E. Baldvinsson,
Hjörleifur Sigurðsson, Hafsteinn
Austmann, Guðmunda Andrés-
dóttir, Margrét Jónatansdóttir,
Barbara Árnason, Sigurbjörn
Krisinsson, Kristján Davíðsson
— og myndhöggvarar: Guðmund
ur Benediktsson, Jón Gunnar
Árnason, Kristján Davíðsson og
Sigurjón Ólafsson.
— Félag ísl. listamanna hélt
síðast sýningu í fyrra. Sýningin
verður opin til 25. þessa mánað-
ar frá kl. 13—22 daglega.
löngu og verið þá nýir og ónotað-
ir. Þeir eiga saman og eru mjög
vandaðir og vel smíðaðir gripir
og hafa verið dýrir á sínum tíma.
Sá stærsti er röskir 50 sm í þver-
mál. Talið er að pottarnir séu
ekki yngri en 300—400 ára, og
þykir fundur þessi einkennilegur
og merkilegur.
Pottar þessir eru nú komnir i
Þjóðminjasafnið og hafa þeir
sem hlut áttu að máli stuðlað
góðfúslega að því, þeir Gestur
Guðmundsson bóndi á Rauðamel
fyrir hönd finnendanna og Ric-
hard Thors fyrir hönd landeig-
andans. Pottarnir eru nú til sýn-
is í Þjóðminjasafninu og verða
það fyrst um sinn á venjulegum
sýningartíma.
STÚDENTAFÉLAG Háskólans
hélt aðalfund sinn í gær. For-
maður var endurkjörinn Pétur
Gautur Kristánsson stud. jur.,
en með honum i stjórn þeir Jón
J. Arnalds stud. jur., Svavar
Sveinsson stud. med., Kristinn
Sigurjónsson stud. jur., og Hall-
dór Halldórs frá Höfnum stud.
phil.
í FYRRINÓTT brast varnargarð-
urinn á Mýrdalssandi undan hin-
um mikla vatnsþunga, sem á
garðinum hefur hvílt undanfarna
rigningardaga, og hefur ástandið
orðið ískyggilegra með hverjum
deginum. Á fimmtudagskvöldið
þótti sýnt að hverju fór. Er alvar-
legt ástand ríkjandi eystra vegna
þessa.
Ragnar Jónsson verzlunarstjóri
sagði að sauðfjárslátrun hefði
stöðvazt af þessum sökum og
hefði hún verið tæplega hálfnuð.
Eins mun slátrun líklega stöðvast
á Kirkjubæjarklaustri því þaðan
hafa sláturafurðir verið fluttir
daglega til Reykjavíkur.
Brandur Stefánsson vegaverk-
stjóri, mun hafa von um það, að
hann geti fyllt upp í skarðið í
varnargarðinum á svo sem sólar-
hring, þegar veðrinu slotar.
En I flóðinu í nótt, urðu
skemmdir við brúna sem smíðuð
var í sumar á Blautukvísl. —
Flóðið ruddi sér leið undir brúna,
og vatnsflaumurinn hetur grafið
undan uppfyllingunum beggja
vegna brúarinnar og sigið.
Alvarlegt er það líka fyrir
vegagerðarmennina, að bilanir
hafa verið tíðar á jarðýtunum
þrem sem þeir hafa til varnar. Er
það vegna þess hve þær eru bún.
ar að vera lengi í vatni og sandi.
Höfðu tvær ýtur verið óvirkar
á fimmtudaginn.
Ragnar Jónsson sagði að eng.
in leið væri að nota Fjallabaks.
leið til afurðaflutninga og menn
yrðu að vona að veðrinu myndi
slota, svo samgöngur komist á, á
ný yfir sandinn.
Lokið dýpstu borhoSu
hérlendis — 2155 m
Árangur kemur í ljós í dag eða á morgun
UNDANFARIÐ hefir stóri jarð-
borinn verið að verki á mótum
Nóatúns og Hátúns, og er nú
lokið þar borun dýpstu vatns- og
gtufuholu, sem gerð hefir verið
hér á landi — og ekki vitað til, að
svo djúpt hafi verið borað eftir
gufu eða vatni annars staðar í
heiminum til þessa. Dýpst hefir
áður verið borað hjá „Undra-
Iandi“ í Reykjavík, 1300 m. —
Ekki er enn ljóst, hvort heitt
vatn fæst úr þessari djúpu holu.
Það var um hádegi í gær, að
borun var hætt. Var þá komið
niður á 2155 metra dýpi. Gert
hafði verið ráð fyrir að bora 2200
metra niður, en ástæðan til þess
Hvaða leið fór bjarghringurinn?
MENN veltu því fyrir sér
í gær, með hverjum hætti
bjarghringurinn frá danska
Grænlandsfarinu Hans Hed-
toft, hefði borizt hingað og
rekið á land í Grindavík.
Þeir, sem gjörst þekkja til
strauma, töldu útilokað
annað en að bjarghringur-
inn hefði borizt hingað með
hafstraumum. Kortið hér að
ofan sýnir að nokkru haf-
straumana á hafsvæðinu
milli Islands og Grænlands.
Slysstaðurinn, þar sem
Grænlandsfarið fórst, er og
sýndur með x á kortinu.
Talið er að bjarghringurinn
hafi borizt suður í haf með
AG-straumum, en það er
Austur-Grænlandsstraumur-
inn. Frá honum hafi hring-
urinn síðan borizt yfir á
straumsvæði IR, en það er
Irmingerstraumurinn, sem
borið hafi hann upp að ís-
landsströndum.
Bjarghringurinn verður
afhentur sendiráði Dana
hér, og það mun senda
hann til Danmerkur. í gær-
kvöldi hafði sendiráðinu
ekki borizt hringurinn.
að hætt var nú, var sú, að leðj-
an, sem dælt er niður í holuna,
m.a. til kælingar á bornum, hætti
að koma upp úr henni aftur — en
þegar leðjan tekur að leka þann-
ig út niðri í holunni, bendir það
til, að hitt hafi verið á vatnsæð.
í gærkvöldi var unnið að því
að ná borstöngunum upp úr hol-
unni, en síðan verður leðjunni,
sem enn er niðri í henni, dælt upp
og mun þá koma í ljós, hvort
heitt vatn eða gufa fæst úr hol-
unni. Verður sennilega úr því
skorið síðdegis í dag eða á morg-
un. — Fari svo, sem verið getur,
að enginn hiti fáist þarna, mun
þó ekki verða borað dýpra, en
næsta verkefni stóra borsins
verður hjá Suður-Reykjum i Mos
fellssveit. — Er nú unnið þar að
undirbúningi borunar, og verður
borinn væntanlega fluttur þang-
að í næstu viku.
Síldarleit hafin
f FRÉTTUM Ríkisútvarpsins 1
gærkvöldi skýrði Síldarútvegs-
nefnd frá því, að Austur-Þjóð-
verjar hafi tilkynnt, að þeir vilji
kaupa 10,000 tunnur síldar og
standa nú yfir samningar um sölu
á því magni. Jafnframt var skýrt
frá því, að hafin væri síldarleit
á Fanneyju fyrir Suðvesturlandi,
en mikillar óánægju hefur gætt
að undanförnu meðal útgerðar-
manna og sjómanna yfir því, að
skipulagðri síldarleit hefur ekki
verið haldið uppi það sem af er
þessu hausti eins og undanfarin
ár. Fanney fór í síldarleiðangur
í gær og bíður flotinn nú eftir
fréttum frá henni, mun allstór
floti reknetjabáta hefja veiðar
strax og fréttist um síld.
Aðalfundur
Stefnis í dag
HAFNARFIRÐI. -— í dag kl. 4
verður haldinn aðalfundur Stefn-
is, fél. ungra Sjálfstæðismanna
í Sjálfstæðishúsinu. — Venjuleg
aðalfundarstörf.
Eru Stefnis-félagar beðnir að
fjölmenna og taka með sér nýja