Morgunblaðið - 22.10.1959, Page 9

Morgunblaðið - 22.10.1959, Page 9
Fimmtudagur 22. okt. 1959 Mnncjnsm. 4 fhð 9 Friðun miða, framtíð lands EINS og skýrt hefur verið frá í blöðum og útvarpi eru fyrir nokkru hafin samtök um útgáfu merkis „er sé tákn réttlaetiskröfu íslenzku þjóðarinnar um fisk- veiðilögsögu, er tryggi fárhags- og menningarlega velferð þjóð- arinnar í framtíðinni“. Að samtökum þessum standa tuttugu og tveir menn, fjórir frá hverjum hinna fimm stjórnmála- flokka landsins, auk tveggja af forystumönnum Slysavarnafélags íslands. Gefin hafa verið út rúmlega 100 þúsund merki og er ætlunin, að þau verði seld þá daga, er kosningar fara fram til alþingis, 25. og 26. þ. m. Framkvæmda- nefnd samtakanna hefur nú þeg- ar sent frá sér þau merki, sem eiga að fara upp til sveita og til kauptúna og kaupstaða utan Reykjavíkur. Væntir framkvæmdanefndin þess, að enginn gangi svo til kosn inga, að hann eigi beri merki þetta. I ávarpi samtakanna til þjóðar- innar, sem áður hefur verið birt, segir svo, að „hreinar tekjur af sölu merkisins gangi til að búa sem bezt úr garði hið nýja varð- skip, sem þjóðin nú á í smíðum“. Helzt hefur verið rætt um, að fénu verði varið til kaupa á þyr- ilvængju á hið nýja varðskip. Að öðru leyti ákveður stórn land- helgisgæzlunnar hversu fénu verður varið. Meginatriði þessa máls er þó, að öll íslenzka þjóðin nú auðsyni „vilja sinn til þess, að í engu verði vikið fyrir ofbeldi því, er eitt af mestu herveldum heims nú beitir þjóð vora“, eins og í ávarpinu segir. Gerðar hafa verið ráðstafanir til þess, að allar helztu frétta- stofur og áhrifaríkustu blöð margra þjóða sem ítarlegascar fregnir af viðbrögðum ísienzku þjóðarinnar í landhelgismálinu. Hvetja samtökin alla, sem eiga ættingja eða vini meðal íslend- inga erlendis, að senda þeim nú þegar merki þetta að gjöf; fast þau í bókabúðum Lárusar Blönd- al í Reykjavík og hjá umboðs- mönnum samtakanna um allt land. Allir, er með einhverjum hæt:i vilja ljá framkvæmdanefndinni aðstoð sína við talningu, drecif- ingu og sölu merkisins, eru beðn- ir um að snúa sér hið fyrsta til nefndarinnar, sem hefur bæki- stöð í skrifstofu Slysavarnafélags íslands, Grófinni 1, Reykjavík. Œvar se^ur á svið Anthony Quinn og Yoko Tani kyssast á Eskimóavísu, með því að nugga saman nefjum, í kvikmyndinni „Hvítir skuggar'*. Hann kom aldrei til íslands, en • •• S.L. SUMAR var Mbl. búið að gera ráðstafanir til að ná tali I af ameríska kvikmyndaleikaran- um Anthony Quinn, er hann færi hér í gegn á leið sinni til Grænlands, þar sem hann átti að leika í kvikmynd. Það fór nú | samt svo, að Quinn kom aldrei í til íslands, því leikarar og allur 1 nauðsynlegur útbúnaður var flutt norður í auðnirnar með einkaflugvélum frá Montreal í Kanada. Nú höfum við fengið mynd, sem tekin var á Grænlandi af aðalleikurunum Anthony Quinn og japönsku leikkonunni, Yoko Tani. Kvikmyndin, sem ber nafn ið „Hvítir skuggar', fjallar um unga eskimóann Imuk, sem er bjarndýraveiðimaður, og konu hans, um baráttu þeirra fyrir lif- inu, fyrstu samskiptum þeirra við menningu hvítra manna, sem er þeim framandi og óvinsam- leg, og um hina ungu ást þeirra. Quinn segist hafa lifað sig ákaf- lega vel inn í hlutverkið, enda virðist hann æði eskimóalegur í útliti á myndinni. Þegar hann var kominn í fötin af Eskimóa einum, fannst honum hann vera orðinn reglulegur Eskimói. Ant- hony Quinn er, eins og kunnugt er, einkum frægur fyrir leik sinn í myndum eins og „Viva Zapataí' og „La Strata", sem báðar hafa verið sýndar hér, en hann segir að þessi upptaka á Grænlandi og í auðnum Norður- Kanada hafi verið alveg einstök reynzla, enda telur hann mynd- ina heilsteypta og áhrifamikla. Myndin er gerð eftir skáldsögu Hans Ruesch, „Land löngu skugganna", og stjórnað af Niholas Rey og Barcio Bandini. Þeir áttu í óendanlegum erfið- leikum þarna norður í auðnun- um, .einkum þar sem myndin er af „teehnorama“-gerð, og því var ekki hægt að taka hana með að- dráttarlinsum. Varð þv£ að mynda öll veiðiatriðin, t.d. þegar veiddir voru hvítabirnir, úr fárra metra fjarlægð. Segir Anthony Quinn að hann hafi aldrei haft eins gaman af neinu um æfina eins og þessum veið- um, þó erfiðar væru og hættu- legar. í næsta mánuði fer annar leik- stjórinn, Baccio Bandini, til Lapp lands, til að taka myndir af hreindýrahjörðum, en þar mun vera hægt að fá fallegri hjarðir en á Grænlandi og Kanada og síðan verður gengið frá mynd- inni. Er gert ráð fyrir að hún komi á markaðinn í apríl í vetur. i SiVlufirði SIGLUFIRÐI, 14. okt. •— Eftir- farandi hefur mér borizt frá Leikfélagi Siglufjarðar: Vetrarstarf Leikfélags Siglu fjarðar er nú að hefjast. Þjóð- leikhússtjóri Guðlaugur Rósin- krans hefur sýnt leikfélaginu þá velvild að leyfa einum af ágæt- ustu leikurum Þjóðleikhússins, Ævari Kvaran að fara hingað til Siglufjarðar og starfa með Leikfélaginu. Ævar setur á svið leikritið „Júpiter hlær“ eftir enska rithöfundinn A. J. Cronin. Einnig mup hann aðstoða við kabarett. Hann hefur einnig nám skeið í framsögn. Þá mun Ævar einnig heimsækja Gagnfræða- skólann og kenna þar framsögn. Gangið / Heimdall í VOR fór fram víðtæk söfnun nýrra félaga í Heimdall, félag ungra j Sjálfstæðismanna. Bættust Heimdalli þá um 200 nýir félagar á l liálfum mánuði. Nú er söfnun þessi hafin að nýju, og er gert ráð fyrir, að henni liúki á kjördag. Samkvæmt 4. grein félagslaga geta allir Sjálfstæðismenn á aldr- inum 16—35 ára orðið meðlimir í félaginu. Sjálfstæðisflokknum er að sjálfsögðu mikill styrkur í, að sem flestir fylgismenn hans gangi í eitthvert Sjálfstæðisfélag. Þess vegna hvetur Heimdallur allt reykvískt æskufólk, sem stuðla vill að sigri Sjálfstæðisflokksins, að ganga í félagið. Það er hægt að gera með þvi að klippa út meðfylgjandi seðil og senda hann útfylltan til skrifstofu Heimdallar, Valhöll, Suður- götu 39. — Ég undirritaður (uð) óska að ganga í Heimdall, félag ungra S j álf stæðismanna. 'NAFN: .............................4.... F.d.: HEIMILI: .............................. SlMI: VINNUSTAÐUR: ................... SKÓLI: 4-5 herbergja íbúð óskast til kaups. Ennfremur 3ja herb. íbúð Háar útborganir. ÓLAFUR ÞORGRfMSSON, hrl. Austurstræti 14. — Sími 15332 Húsið No. 8 við Tprnargötu er til sölu til brottflutnings eða niðurrifs. Tilboð sendist skrifstofu Verzlunarráðs Islands. Póst- hússtræti 7, fyrir 31. þ.m. Ford Merkury Smíðaár 1957 til sölu. Bíllinn hefur alltaf verið í einkaeign. Keyrður aðeins 22 þús. km. Sjálfskiptur. Upplýsingar gefur: HARALDUR GUÐMUNDSSON lögg. fasteignasali. — llafnarstræti 15. Símar: 15415 og 15414, heima. 5 herb. íbúðarhœð á efri hæð í tvíbýlishúsi, komin undir tréverk til sölu við Melabraut. Sérinngangur, sér hiti og sér þvottahús. Bilskúrsréttindi. STEINN JÖNSSON, hdl. Lögfræðistofa — Fasteignasala Krkjuhvoli — Símar 1-4951 og 1-9090.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.