Morgunblaðið - 22.10.1959, Síða 19

Morgunblaðið - 22.10.1959, Síða 19
Fimmtudagur 22. okt. 1959 MORCU NRL AÐlh 19 Fjölga þarf prestum í Reykjavík og Hafnarfirði Bisliupinn ræðir um málið á blaðamannafundi. BISKUPINN yfir Islandi, hr. Sig- urbjöm Einarsson, hélt í gærdag sinn fyrsta fund með blaðamönn- um Reykjavíkurblaðanna. í>ar gerði biskup að umtalsefni þörf- ina á fjölgun presta í Reykjavík og Hafnarfirði. Kvaðst hann vilja nota tækifærið til þess eins að gera almenningi grein fyrir því hversu á horfði í máli þessu. Biskup kvaðst strax vilja taka fram, að varðandi fjölgun presta í Reykjavík, þá liggi ekki fyrir nein ákvörðun í því efni frá kirkjumálastjórninni. í lögum er svo mælt fyrir, að í Reykjavík skuli vera svo margir þjóðkirkju prestar, að sem næst 5000 manns komi til jafnaðar á hvern prest. í kaupstöðum utan Reykjavíkur 4000. Þá virðist sem lög þessi geri ráð fyrir því, að kirkjustjórnin annist um þær breytingar, sem af ákvæðum þessum leiða, þ. e. a. s. að bæta við prestum eftir þörf- um. Safnaðarráð Reykjavíkur á eftir þessum margnefndu lögum að gera tillögu um skiptingu sókna, ef þess er þá óskað af við- komandi safnaðarnefnd, þar sem fjölga á prestum. Nú eru þess sem kunnugt er dæmi að innan sömu sóknar þjóni tveir prestar. Þá sagði biskup, að hann hefði fengið upplýsingar um það frá Hagstofunni, hvernig safnaðar- menn þjóðkirkjunnar skiptast nið ur á milli hinna ýmsu presta- kalla. Er þessi tala nú nærri því eins árs, miðuð við áramótin 1958. Þá voru í Háteigspresta- kalli 7003 þjóðkirkjumenn, í Lang holtsprestakalli 7081, í Laugar- nesprestakalli 8069, í Nespresta- kalli 8959, í Bústaðasókn 6127, en henni þjónar sami prestur og Kópavogskaupstað, þar sem eru 4526 þjóðkirkjunnar menn. Loks eru svo Hallgrímssókn og Dóm- kirkjusókn, sem eru tvímennings- prestaköll með 13000—14000 í hvorri. Síðan þetta manntal var gert, hefur fólki fjölgað verulega, og kvaðst Sigurbjörn Einarsson bisk up telja það varlega áætlað, að um 9000 manns sé til jafnaðar á prestana í Reykjavíkurprestaköll unum, sem hér hafa verið nefnd. Ég dreg því þá ályktun, sagði biskup, að hér í Reykjavík vanti fimm presta, éinn í hvert þessara fimm: Háteigs-, Laugarness-, Langholts-, Bústaða- og Nessókn. Hér bætti biskupinn því við, að í Hafnarfirði þyrfti einnig að bæta við presti, því þjóðkirkju- presturinn þar, hefur þrjár út- sóknir: Garðakirkju, sem nú verð ur endurreist, Bessastaðakirkju, og undir hana fellur allt Silfur- túnið, og loks Kálfatjarnarkirkju. Biskup sagði, að öllum msfetti Ijóst vera af því, sem hér hefur verið rakið, að fjölga þarf prest- um í Reykjavík um fimm og í Hafnarfirði um einn. Um fram- vindu þessa máls kvaðst biskup ekkert geta sagt á þessu stigx. í sjálfu sér er framkvæmd máls- ins gjörsamlega hliðstæð því, þeg ar fjölga þarf kennurum í skól- um landsins. Eru lögin um prestana og framkvæmd fræðslu- laganna í landinu mjög sama eðlis. Ló við slysi Harður árekstur í Köldukinn AKUREYRI, 21. október. — Síðastliðið mánudagskvöld varð harður árekstur austur í Köldu- kinn í S-Þingeyjarsýslu. Nánari atvik eru þau, að vörubifreið ók á jeppakerru, sem tengd var aft- an í jeppa, er stóð á vegarbrún- inni. I þann mund, er slysið varð, voru 2 menn að fara upp í kerruna, en er þeir sáu hvað verða vildi, köstuðu þeir sér út í skurðinn við veginn. Mátti engu muna að þarna yrði alvar legt slys, því að kerran lagðist sarnan við áreksturinn, og vöru- bifreiðin skemmdist svo mikið, að ekki var hægt að aka henni af siysstaðnum. Aðfaranótt laugardags s.l. valt 4 manna fólksbifreið við Fnjósk- árbrú í Dalsmynni og urðu á henni talsverðar skemmdir. Bif- reiðin var með plastyfirbygg- ingu. Bifreiðastjórinn var einn í bílnum og sakaði hann ekki. Kristniboðssambnndið 30 drn Kristniboðsvika í húsi KFUM þessa viku SAMBAND íslenzkra kristni- boðsfélaga er 30 ára um þessar mundir, en það var stofnað sum- arið 1929. Fyrstu tvo áratugina studdi það starf íslenzkra kristni boða í Kína. íslendingar ráku þá ekkert sjálfstætt kristniboðs- starf, en höfðu í þess stað ágætt samstarf við norsk kristniboðs- félög, og hafa tengslin haldizt allt til þessa. En nú hefur kristni boðssambandið í nokkur ár rek- ið kristniboðsstöð í Konso-hér- aði í Suður-Eþíópíu. Til þessa hafa fimm kristniboðar starfað þar, en tveir þeirra dveljast nú hér á landi. Vonir standa til að fleiri verði sendir út í náinni framtíð, m.a. einn læknir. í Konso vinna kristniboðarnir ásamt nokkrum innlendum sam- verkamönnum að líknarstörfum, skólahaldi og prédikun fagnaðar erindisins. Hefur nú myndazt söfnuður þarlendra manna, og er það fyrsta dótturkirkja ís- lenzkrar kristni úti í heiðnum löndum. Það er eir.nig mikið fagnaðarefni þeim, sem starfinu unna, að hér á landi gætir nú sífellt vaxandi skilnings á al- mennri skyldu kristinna manna gagnvart kristniboði. Eins og venja hefur verið und- anfarin ár, stendur nú yfir kristniboðsvika í húsi K.F.U.M. og K„ og er hún haldin á vegum kristniboðssambandsins. Sam- komur eru á hverju kvöldi þessa viku kl. 20,30. Þar tala ýmsir kunnir ræðumenn, en auk þess er mikill söngur og hljóðfæra- sláttur. f kvöld tala Ástráður Sigursteindórsson skólastjóri og séra Sigurjón Þ. Árnason, en annað kvöld verða sýndar mynd ir frá Konso. Allir eru velkomnir á samkomur þessar meðan hús- rúm leyfir. Kjærb^R. Kjœrböl-málið fyrir ríkisrétti Smásíld í Vest- manneyjum VESTMANNAEYJUM, 21. okt.: Undanfarna daga hefur orðið vart við talsverða síld í höfninni hér. í gær kastaði vélbáturinn Guðbjörg með loðnunót og fékk 260 tunnur síldar í nótina. — Síldin var mjög smá, 10—12 sm. löng og fitulítil, 11 prósent. Fór aflinn í bræðslu, nema 30—40 tunnur, sem voru frystar. Talið er vafasamt að þessum veiðum verði haldið áfram, nema fitu- magn síldarinnar aukist. — BG. ÞAÐ er nú nær fullráðið, að ríkisréttur fjalli xun málKjærböl, fyrrum Grænlandsmálaráðherra. Ástæðan er sú, að j ráðherratíð sinni gaf hann danska þinginu villandi upplýsingar varðandi siglingar að vetrarlagi til Græn- lands — og Grænlandsfarið Hans Hedtoft, sem fórst í vetur með 95 manns innanborðs, var byggt affi nokkru með hliðsjón af þess- um upplýsingum. Þingmenn Vinstri flokksins samþykktu í gær kröfu um að ríkisréttur fjallaði um málið og bxiizt er við, að, íhaldsþingmenn samþykki samskonar kröfu í kvöld. Síðan munu þessir flokk- ar væntanlega leggja fram til- lögu á þingi um að ríkisréttur- inn skerist í leikinn. „Politiken“ segir í dag, áð stjórnarflokkarnir verði ekki andvígir tillögunni. Mergurinn málsins er sá, að þegar smíði Hans Hedtofts var í bígerð aflaði Grænlandsmála- ráðherrann sér umsagnar skip- stjóra, sem mikla reynzlu höfðu af vetrarsiglingum við Græn- Jand. Erfitt reyndist að finna skipstjóra, sem meðmæltur var þeim andvígir. Barst ráðherran- xxm j hendur umsögn andvíg sigl ingum, en eftir mikla leit fékk hann loks skipstjóra til þess að mæla með þeim. Og það var ein- mitt sú yfirlýsing, sem Kjærböl lét þingheim heyra. Þá hefur ritstjóri nokkur bor- ið að Kjærböl hafi reynt að þvinga hann til þess að birta ekki gagnrýni á framkvæmd málanna. Kjærböl er því bæði sakaður um að hafa reynt að beita þving- unum og fyrir vanrækslu í starfi varðandi birtingu á umsögnum skipstjóranna um vetrarsigling ar við Grænland. siglingunum, því flestir voru efni. Grein Jóhannesar Nordal í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir dr. Jóhannes Nordal bankastjóra, er hann nefndi: „I átt til frjálsari viðskipta". Þess var ekki getið, að greinin var forystugrein í nýútkomnu hefti Fjármálatíðinda. í þessu hefti Fjármálatíðinda, fyrir júlí-september 1959, er einnig grein um utanríkisvið- skiptin 1958, grein um störf Al- þingis á síðustu tveimur þingum og fréttaþættir um margvíslegt Þökkum hjartanlega vinum og fxændfólki, sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsdaginn. Kristján Indriðason, Liikka Friðriksdóttir Eskifirði. Lokað í dag vegna jarðarfarar frá kl. 2—4. VCRXIVMIN £AI LAUCAVCC ÍS Skrifstofur vorar og afgreiðslu verður lokað til hádegis, föstudag. 23. okt. vegna jarðarfarar Friðriks Gunnarssonar forstjóra. Afgreiðsla SmjÖrlíkisgerðanna ht. Móðir mín og tengdamóðir ANNA DANÍELSSEN Brávallagötu 24, andaðist 14. þ.m.. — Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúið. — Fyrir hönd aðstandenda. Sigfrid Sigfúsdóttir og Dagfinnur Einarsson. Jarðarför föður okkar AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAR Krossamýrarblett 15, sem lézt 16. þ.m., fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. þ.m. kl. 3. Blóm vinsam- lega afþökkuð en þeim, sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Móðir, börn, tengdabörn og barnabörn hins látna. Faðir okkar FRIÐBIK GUNNARSSON verður jarðsungin frá kirkju Krists konungs, Landakoti föstudaginn 23. október. Athöfnin hefst með sálumessu kl. 10 f.h. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. Gunnar J. Friðriksson, Jóhanna Friðriksdóttir, Jón Friðriksson Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd, við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa EINARS JÓNASSONAR hafnsögumanns. — Sérstaklega þökkum við lækni hans og hjúkrunarkonum í sjúkrahúsi Hvítabandsins, er veittu honum alla hjálp af einstakri alúð og nákvæmni. Isafold Einarsdóttir Anna Einarsdóttir, Kristinn Ólason, Hjördís Einarsdóttir, Sigurður Jóhannsson, Kristrún E. Castagna, Lawrence Castagna, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.