Morgunblaðið - 03.11.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.11.1959, Blaðsíða 1
ptaripmMa 24 síður 46. árgangur 244. tbl. — Þriðjudagur 3. nóvember 1959 Prentsmiðja Morgunbla Tryggvi Helgason við nýju sjúkraflugvélina. (Ljósm. vig.) Mikið mannfall ALSIR — Á sunnudaginn voru l.ðin 5 ár síðan stríðið í Alsír hófst fyrir alvöru og á því tíma- bili hafa fallið þar, særzt eða týnzt hvorlti meira né minna en 239,665 manns. Af frönskum her- mönnum hafa fallið 9,300 menn og 22,000 særzt. Uppreisnarmenn hafa misst 120,000 manns, en 55,000 hafa særzt. Af innbornum borgurum hafa fallið 12,000, 7,500 særzt og 6,900 týnzt. Af evrópsk- um borgurum í Alsír hafa 2,070 fallið, 4,600 særzt Rottuplóga í Höín Kaupmannahöfn 2. nóv. Reuter. DÖNSKU heilbrigðisyfirvöldin tilkynntu í dag, að íbúar Kaup mannahafnar yrðu að gera sér- stakar varúðarráðstafanir til að bægja burt rottuplágu, sem herja mundi í borginni eftir hið óvénju þurra og hlýja sumar. Sjónvarpshneykslið vestra afhjúpað Játning van Dorens: hann áttaði sig of seint WASHINGTON, 2. nóv. — NTB- Reuter. — Bandaríski kennarinn Charles van Doren játaði í dag, að hann hefði vitað fyrirfram um svörin við spurningunum, sem hann græddi 129,000 dali á fyvir 3 árum, þegar hann tók þátt í sjónvarpssendingaþættti sem stóð yfir í 14 vikur. í yfirlýsingu til rannóknar nefndar Bandaríkjaþings, kvaðst van Doren ekki einungis hafa vitað um spurningarnar og svörin við þeim, áður en spurningaþátt- urinn hófst, en hann fékk líka fræðslu og þjálfun í því, hvenær honum bæri að svara spurning- unum svo að þátturinn yrði skemmtilegur fyrir áhorfendur. Charles van Doren hafði áður neitað fyrir kviðdómi í Washing- ton, að hann hefði vitneskju um svörin fyrirfram, en varð nú að Deiluaðilar í stálverk- fallinu hjá sáttasemjara En lítil von um árangur New York, 2. nóv. NTB/AFP. FULLTRÚAR bandarískra stál- framleiðenda og hinna 500.000 stáliðnaðarmanna, sem enn eru í verkfalli, hittust í dag hjá sátta semjara ríkisins í Washington, eftir að ríkisstjórnin hafði stefnt þeim þangað. Samninganefndirn ar ræddu við sáttasemjarann hvor í sínu lagi. Til mála getur komið, að seinna verði reynt að halda sameiginlegan fund til að gera enn eina tilraun til að binda endi á verkfallið, sem staðið hef ur x þrjá og hálfan mánuð. Leiðtogi stáliðnaðarmanna, David McDonald, kvaðst hins vegar ekki búast við neinum samningsviðræðum, þar sem full trúanefnd stálframleiðenda hefði ekki það umboð, sem nauðsyn- legt væri til að komast að sam- komulagi. Leiðtogi stálframleið- endanefndarinnar, Conrad Coop- er, kvaðst að sínu leyti ekki skilja, hvers vegna nefnd hans hefði verið kölluð fyrir sátta- semjarann, en vonaodi kæmi það í ljós. játa sök sína, eftir að mörg blöð í Bandaríkjunum höfðu haldið því fram, að spurningaþættir sjón varpsstöðvanna væru fyrirfram undirbúninr og þátttakendur látnir vita um spurningar og svör. Charles van Doren er 33 ára gamall og kenndi áður ensku við Columbía-háskólann í New York. Hann var alveg rólegur þegar hann lagði fram játningu sína í hinum stóra sal, þar sem yfir- Framli. á bls. 23. Sjúkra- vé[ ti[ Akur- eyrar AKUREYRI, 2. október. — Kl. 10 í gærkvöldi kom hing> að ný björgunarflugvél frá Bandaríkjunum. Stjórnuðu henni Aðalbjörn Kristbjarn- arson og Tryggvi Helgason, en Tryggvi er eigandi vélar- innar, ásamt deildum úr Slysavarnafélagi og Rauða- krossfélagi hér nyrðra. Þeir félagar héldu frá Bradley* field um 80 mílur norður af New York miðvikudaginn 28. okt. sl. Þaðan héldu þeir norður undir landamæri Kanada og var það fyrsti áfanginn. Næsti áfangi var Goose Bay. Þar voru þeir veður- tepptir í einn dag, en hugðust að halda þaðan norður á Baffins land. Þangað gátu þeir þó ekki farið sakir veðurs, en héldu eftir einn dag norður á Labrador og fóru þaðan til Grænlands. Á Labrador tóku þeir benzín, en Framh. á bls. 2. Beztu SKÖMMU eftir að til- kynnt var, að ítalska ljóðskáldið Salvatore Quasimodo hefði hlotið Nóbelsverðlaunin í bók- menntum, sendi Morgun- blaðið honum heilla- óskaskeyti og bað hann í kveðjur til íslendinga hálfkæringi að svara nokkrum spurningum. I gær barst blaðinu skeyti frá skáldinu, þar sem hann þakkaði heilla- óskirnar og hað blaðið um að færa íslendingum beztu kveðjur: Spurningarnar, sem blað- ið sendi og svör skáldsins voru þessi: 1) Hafið þér haft nokk- ur kynni af Islendingasög- unum eða öðrum bók- menntum fslendinga? S v a r : Því miður þekkj- um við á Italíu ekki mikið til islenzkra bókmennta og ljóða. Það væri þess vegna þörf á auknum menningar- skiptum milli landanna. 2) Haldið þér, að stefna yðar í ljóðlist, sem hefur átt svo erfitt uppdráttar, muni verða sigursæl? S v a r : Ég trúi því að ljóðskáld nýju kynslóðar- innar muni tala skýrum rómi um vandamál sam- tímamannanna. 3) Hvað þarf skáldskapur til þess að hann verði sí- gildur? S v a r : Það er ekki hægt að kenna neinum að verða skáld. 4) Ilvaða álit hafið þér á Krúsjeff? S v a r : Ég tel hann mesta vitring heimsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.