Morgunblaðið - 03.11.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.11.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ Lægir í dag, frost 3—6 stig. o fgmiM* 244. tbl. — Þriðjudagur 3. nóvember 1959 AKUREYRARBRÉF Sjá bls. 13. Svart af milHsíld í Vestm.eyjahöfn VESTMANNAEYJUM, 2. nóv: — Fyrir nokkru urðu menn varir við það, að smásíld var komin hér inn í höfnina. Var þetta kræða, sem eigi varð nýtt. Nú um helgina varð á þessu breyting. Þá fylltist höfnin, að því er virðist, af síld af millistærð. Út af Naust hamrabryggju kastaði 15 tonna bátur, Guðbjörg, í dag loðnunót. Fylltist nótin á svip stundu. Fór þá vélskipið Júlía til aðstoðar við litla bát- inn. í kvöid var búið að veiða í nótina um 500 tunnur og ætl aði báturinn með síldina inn til Grindavíkur, þar sem hún verður brædd. Hér í Vest- Stólu og drukku 180 flöskur uf Sherry NÝLEGA hefur lögreglan handtekið tvo pilta, 16 og 17 ára gamla, sem stolið hafa um 15 kössum af sherry og ýmis konar skrautmunum, mest úr keramik. Skrautmunum stálu þessir unglingspiltar í vörugeymslu Jóns Jóhannessonar við Borg- artún 6, en áfenginu úr birgða geymslu Áfengisverzlunarinn ar í sama húsi. Höfðu þeir komizt inn í miðstöðvarklefa hússins og þaðan mfðfram vatnsleiðslum að birgða- kössum Áfengisverzlunarinn- ar. Munu þeir alls hafa náð í um 180 flöskur af sherry og lítur út fyrir að allt þetta sherry hafi farið ofan í þá sjálfa, því það er allt búið en ekkert af því munu þeir hafa selt. mannaeyjum er ekki vélkost- ur til þess að bræða síld. í ráði er að á morgun fari enn stærri bátur út með hin- um litla 15 tonna báti, er það 90 tonna vélskip, Suðurey. Síðast fyrir 5—6 árum, gekk síld hér inn á höfnina í all- stórum stíl. — Bj. Guðm. V. B. segir upp samningum TRÚNAÐARRÁÐ Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur ákvað á fundi sínum 29. október að segja lausum samningum við vinnuveitendur um kaup og kjör. Samningurinn rennur út 1. des- ember næstkomandi. Nýi Drangur við hafnarbakkann á Akureyri. (Ljósm. vig.) Ekið í veg fyrir Á SUNNUD AGSKV ÖLDIÐ er einn af bílum sjúkraliðsins kom þeysandi eftir Suðurlandsbraut- inni, með blikandi hættuljós á þaki og veinandi sírennu, munaði minnstu ,að slys hlytist af, vegna fádæma kæruleysis sem bílstjóri einn sýndi. Ók hann í veg fyrir sjúkrabílinn, sem var á leið í slysavarðstofuna með slasað fólk. Varð nokkur skellur. Var það ökumanni sjúkrabílsins að þakka að ekki hlauzt verra af. Lög- reglustöðinni var þegar tilkynnt um þetta um talstöð sjúkrabíls- ins. Er lögreglubíll kom á vett- vang, var enginn bíll á árekstrar- staðnum. Brimið eyðilaoði varnargarðinn FORÁTTUBRIM og versta veður hefur verið undanfarna daga og bátum á Suðurnesjum ekki gefið á sjó. Á laugardagskvöldið var svo mikið brim í Sandgerði, að stein- steyptur varnargarður, sem Guð- mundur Jónsson á Rafnkelsstöð- um lét gera, til að verja lóð sína sjávargangi, eyðilagðist að mestu. Norðlendingar hafa eignazt nýjan Drang AKUREYRI, 2. okt. — Síðastliðna nótt kom hingað nýr póst- og svo flóabátur, er Drangur hefur verið nefndur, svo sem fyrri flóa- bátur Norðlendinga, sem gengið hefur hér síðan 1946. ★ 40 farþegar. Nýi Drangur er 191 brúttó lest og er smíðaíur í Ankerlökken í Florö norður af Bergen í Nor- Drukkinn leigubíl- stjóri veldur slysi Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ varð harður bílaárekstur í einu út- hverfi bæjarins. Ölvaður leigubíl stjóri átti alla sök á þessu óhappi. í einkabíl sem leigubíllinn ók á, voru tvær konur sem báðar meiddust svo einnig bílstjóri er bil þeirra ók. Bílstjórinn á einkabílnum, bíl Arents Claessen stórkaupmanns, R-2271, hefur skýrt svo frá að hann hafi verið á leið suður Lang holtsveginn. Sá hann, er nær dró gatnamótum Snekkjuvogar, að bíl var ekið á móti, á sama veg- arhelmingi og hann ók sjálfur á. Kvaðst bílstjórinn hafa talið að þessi bíll myndi ætla að sveigja til hægri niður Snekkjuvog. Hafi hann þá sveigt bílinn á götuna. En allt í einu sá hann að bíll- inn sem á móti kom, tók stefnu beint inn á götuna og skipti eng- um togum að bílarnir skullu' saman. í bíl Claessens stórkaupmanns var kona hans og tengdadóttir og meiddust þær báðar á fótum, einnig meiddist bílstjórinn. Skýringin á þessum gáleysis- lega akstri er árekstrinum olli, kom þegar í ljóst á slysstaðnum, því bílstjórinn á leigubílnum R-7944 Ingi S. A. Olgeirsson var mjög ölvaður undir stýri bílsins. Hafði hann skorizt á höfði við áreksturinn. Einn farþegi var í leigubílnum. Kom í ljós við rann sókn málsins í gær, að hann hafði ekið bílnum nokkru áður, en far- þeginn var að sama skapi drukk- inn sem bílstjórinn. Sjúkrabíll flutti fólkið í Slysavarðstofuna. egi. Hann rúmar 42 farþega í setusal, en svefnrúm er fyrir 8 í rúmum og 4 á bekkjum í svefn- sal. Skipið er ætlað til siglingar á Eyjafirði og til Skagafjarðar með viðkomu í Grímsey og er jafnaðarlega gert fyrir 40 farþega hvað snertir öryggistæki. Hins vegar er hægt að flytja með skip- inu a. m. k. 70 manns í hópferðir og verður þá aukið um öryggis- búnaað. Áhöfn skipsins er 7 manns. — Steindór Jónsson framkvæmda- stjóri sigldi skipinu hingað til lands. 1. vélstjóri er Tómas Krist jánsson. Skipið er búið 400 ha Vichmann aflvéi, auk tveggja AKRANESI, 2. nóv. — Sex rek- netjabátar fóru út á veiðar héðan í morgun. Fimm trillubátar reru — en hvorttveggja var, að þeir reru með litla línu — og hitt, að þeir fiskuðu lítið. — Oddur. Dýralæknir hefur kært Ketlubúið Tíndi upp skjöl sín í bíl á hvolfi UM hádegisbilið £ gær varð árekstur á Reykjanesbrautinni. skammt fyrir innan Hafnarfjörð. Rákust þar saman bifreið frá rússneska sendiráðinu, sem var á leið suður og fólksbifreið frá Keflavík. Sendiráðsbifreiðin var keðju- laus, en vegurinn háll, og hefur hún sennilega af þeirri ástæðu ekki getað sveigt til vinstri eftir að hafa gefið það til kynna með stefnuljósinu. Rákust bílarnir saman og lenti sendiráðsbíllinn utan í steini á vegarbrúninni og hvolfdi á veginum. Einn maður var í bílnum, en hann slapp ómeiddur. Meðan þeir sem að komu tóku úr afturrúðuna, svo hann kæmist út, var hann önnum kafinn við að týna upp skjöl sín og stinga í vasa sína. í hinni bifreiðinni voru 6 manns, og meiddist enginn. DÝRALÆKNIRINN á Hellu, Karl Kortsson, hefur kært Ramg- ársand hf., sem rekur búið á Ketlu á Rangárvöllum fyrir sýslumanni, vegna fóðurskorts kinda frá búinu. Vísaði sýslu- maður máLnu til hreppsnefndar Rangárvallahrepps til frekari rannsóknar, en hún mun ekki hafa gert neitt frekar í málinu enn sem komið er, að því er odd viti hreppsnefndarinnar tjáði fréttaritara blaðsins á Hvolsvelli í gær. Tilefni kærunnar er það, að er slátrað var 334 lömbum frá búinu á Ketlu 20. okt. sl. í slát- urhúsinu á Hellu, lentu 156 lömb í 3. flokki, en 104 voru dæmd óhæf vegna fóðurskorts. Dýralæknirinn er kjötmatsmað- ur á staðnum og taldi hann þarna vera um að ræða brot á dýra- verndunarlögunum, og kærði til sýslumannsins. Kindum Ketlubúsins mun hafa verið beitt á hina nýuppræktuðu sanda búsins fram að rúningu, en eftir það í mýrlendi rétt neð an við Keltu, þar sem kallað er Grafarn.es. Bolinder hjálparvéla. I>á er í því ratsjártæki, 36 mílna, miðunar- stöð, dýptarmælir, sjálfstýring, vökvastýring og auk þess tvö vökvadrifin spil á dekki. Á 4 milljónir. Hinn nýi Drangur mun kosta sem svarar 4 millj. ísl. króna, kominn hingað til lands, Steindór telur sig hafa verið mjög heppinn í öllum viðskiptum við hina norsku skipasmíðastöð, en umboðs maður hennar hér á landi er Magnús Ó. Ólafsson . í Reykja- vík .Rómar hann alla fyrir- greiðslu verktaka, en þetta er fyrsta skipið, sem þessi skipa- smíðastöð smíðar fyrir aðra en Norðmenn. Heimsiglingin gekk með ágæt- um. Hófst hún í Bergen síðastl. fimmtudagskvöld og tók rúrha þrjá sólarhringa. Ganghraði skipsins í hafi var að jafnaði 10 mílur. I reynsluferð var gang- hraðinn 11,3 mílur. Skipverjar, sem voru sex í heimsiglingunní, telja Drang gott sjóskip og fengu af því nokkra reynzlu, þar sem þeir lentu í illviðri og nam vind- hraði þá 8 vindstigum. Hinn nýi Drangur mun hefja ferðir frá Akureyri til Sauðárkróks með við komu á Eyjafjarðarhöfnum og í Grímsey nú í þessari viku og mun verða mikil bót að hinu nýja skipi, enda fullnægir það öllum þeim skilyrðum, er krefjast verð- ur af slíkum skipum. Frá Akureyri til SauSárkróks. Steindór Jónsson hefur annazt póstferðir hér síðan árið 1942 og notað í þær gamla Drang frá 1946. Hafa jafnan yerið af þess- um ferðum mikil not, enda verið fluttir um 5000 farþegar árlega á þessari siglingaleið. vig. D-lista skemmtanir í Reykjaneskjördœmi D-listinn í Reykjaneskjördæmi efnir til skemmtana fyrir starfsfóik sitt frá alþingiskosningunum í kvöld kl. 8,30 á eftirtöldum stöðum: Hafnarfirði í Góðtemplarahúsinu. Hlégarði í Mosfellssveit fyrir héraðið norðan Hafnarfjarðar. Flutt verða stutt ávörp, skemmtiatriði og dansað. D-LISTINN í REYKJANESKJÖRDÆMI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.