Morgunblaðið - 03.11.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.11.1959, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 3. nóv. 1959 MORCVTSHLAÐ1Ð 3 Hér sést þegar verið var að landa fiski úr Hall veigu Fróðadóttur. Löndun hófst kl. 3 um nótt- ina og var þá enn svarta myrkur. Það kom sér vel fyrir fiskikaupmenn í Grimsby að fá aflann, því að þurrð mátti heita á fiskmarkaðnum. msÍIÉIIs Þórarinn Olgeirsson ræðismaður Islands í Grimsby og Sig- urður Þórarinsson skipstjóri ræðast við skömmu áður en fisklöndun úr togaranum hófst. 1» A Ð er ljóst af fréttum frá Grimsby, að harðvít- ugar deilur stóðu um það, hvort heimila ætti fisk- löndun úr Hallveigu Fróðadóttur og öðrum ís- lenzkum togurum. Á fundi uppskipunarmanna, þar sem ákveðið var með mikl- um meirihluta atkvæða að afgreiða íslenzk skip urðu heitar umræður um mál- íð, en stjórn félagsins stóð sameinuð um það, að af- greiða skyldi íslenzk skip, svo að litið hefði verið á það sem alvarlegt van- traust á hana, ef verka- menn hefðu snúizt gegn því. Sigur íslendinga í mál- inu er annars auðskilinn. Það er skortur á fiski í Bretlandi yfir vetrarmán- uðina. Þeir geta ekki án ís- lenzka fisksins verið. Af fréttum frá Grimsby má einnig sjá, að félag yfirmanna á brezkum togurum hefur mjög róið undir því að upp- skipunarmenn afgreiddu ekki íslenzk skip. Er auðséð að for- maður félags skipstjóra og stýrimanna, Dennis Welch, hefur verið potturinn og pann íslendinga an í mótmælaaðgerðunum. — Þegar hann frétti af ákvörðun ( félags uppskipunarmanna um að afgreiða íslenzk skip, lýsti hann því yfir, að hann hefði orðið fyrir sárum vonbrigðum. Hann bætti við: — Ef upp- skipunarmenn hefðu ákveðið að stöðva afgreiðslu íslenzkra togara, hefðum við staðið með þeim í gegnum þunnt og þykkt. Ef félagsstjórn þeirra eða hafnarstjórnin hefði gripið til refsinga gegn uppskipunar mönnum fyrir að afgreiða ekki íslenzk skip, þá hefðum við stöðvað siglingar brezkra togara, þar til úr hefði verið bætt. Dennis Welch kennir fiski- kaupmönnum og öðrum sem hagsmuni hafa af viðskiptum við fslendinga um það, að löndunarbanninu var aflétt. Álit sambands flutningaverkamanna. Félag uppskipunarmanna í Grimsby er ein deildin í hinu geysistóra verkalýðssambandi flutningaverkamanna. Einn af forstjórum þess, Mr. Peter Henderson fagnaði því, að löndunarbanninu á íslenzkum fiski hefði verið aflétt. Hann bætti við: „Þessi ákvörðun staðfestir stefnu sem sambandið ákvað fyrir nokkrum mánuðum — að ekki megi gera upp á milli í Grimsby fiskiskipa, hvaða þjóðfána, sem þau bera. Atvik eins og það, þegar togaranum Harð- bak var vísað frá, geta aðeins valdið enn frekari erfiðleik- um í samskiptum Breta og ís- endinga“. Forystugrein í Grimsby-blaði. Blaðið Evening Telegraph birti siutta forustugrein um málið, og hljóðaði hún svo: „Meirihluti íbúanna í þessu héraði fagnar þeim fregnum, að fiskiðnaðurinn þarf ekki frekar að stríða við neitun uppskipunarmanna á að aí- greiða íslenzka togara. Fiskveiðideilan við íslend- inga er hörmuleg. En þó að hón snerti afkomu margra í héraðinu og þó að hún valdi enska sjávarútvegingum erf- leikum, þá er hún fyrst og fremst milliríkjadeila og verð ur ekki leyst með neinum at- höfnum hér í Grimsby. í Grimsby ríkir mik- il andúð á Islendingum meðal fólks, sem hefur afkomu sína af sjávarútveginum, baéði á sjónum og í landi. Fólk hef- ur andúð á aðferðum þeim, sem íslendingar beita til að viðhalda yfirráðum yfir um- deildu svæði. Því er það skiljanlegt, að menn séu ófúsir að stuðla að fisklöndunum fslendinga, þeg- ar vinir þeirra hafa orðið fynr erfiðleikum af þeirra hálfu. Það er verkefni ríkisstjórn- arinnar, að leysa deiluna og við vonum að hún hafi jafnt í huga aðstæður þessa héraðs, sem og almenn og víðtækari áhrif málsins. Höfnin í Grimsby hefur þeg ar, eftir að deilan hófst af- greitt íslenzka togara, og það er stefna forustumanna í sjáv arútvegi og fiskiðnaði, að á engan hátt megi gera upp á milli skipa, eftir því af hvaða þjóðerni þau eru. Þeirri stefnu getur eitt fé- lag í fiskiðnaðinum ekki breytt, félag sem þar að auki er sjálfu sér sundurþykk". Þessir menn komu einkum við sögu á fundi uppskipunarmanna. Þeir beittu sér fyrir því að löndunarbannið var fellt niður með miklum meirihluta atkvæða. Þeir eru talið frá vinstri: Mr. P. Mills, bæjarstjórnarfulltrúi, Matt Queen, ritari, Mr. G. Freer, formaður, Mr. W. Wilkins, varaformaður, Mr. A. Kemp og Mr. H. Briggs. STAKSTEINAR Olíuhney’tslið Ekki hefur verið meira un annað mál talað undanfarna daga en olíuhneykslið svonefnda, enda er það eitt umfangsmesta afbrotamál, sem rannsakað hef- ur verið hér á landi. t ritstjórn- argrein í Timanum sl. sunnudag er m. a. komizt svo að orði um skýrslu rannsóknardómaranna. „Af skýrslu þessari verður það ráðið, að Hið íslenzka steinolíu- hlutafélag hefur flutt inn toll- frjálst ýmis tæki, er það hefur notað í þjónustu þá, er það hefur innt af höndum við varnarliðið. Sú hefð mun hafa skapazt, að íslenzk fyrirtæki fengju einnig að flytja inn tollfrjálst þau tæki, er þau notuðu eingöngu vegna starfa í þágu varnarliðsins“. Og blaðið heldur áfram: „Hér skal ekki Iagður dómur á það, hvort H.t.S. hefur gerzt brotlegt við landslög með þessum tollfrjálsa innflutningi. Rann- sóknardómararnir láta ekki í ljós neitt álit á því atriði, enda eðlilegt, þar sem annars á eftir að dæma í málinu“. Um þetta atriði þarf ekki aS fjölyrða. Aðeins er nóg að varpa fram þeirri spurningu, hvers vegna svo rækilega var séð um, að fylgisskjölin dyldu hið sanna samhengi en í skýrslu rannsókn- ardómaranna kemur einmitt fram, að það hafi þeir gert. 1 skýrslunni segir meðal annars: „f stórum dráttum gekk þessi innflutningur þannig fyrir sig, að fyrirtækin pöntuðu hjá Esso Export Corporation New York munnlega eða skriflega varning- inn með beiðni um að fylgisskjöl með varningnum væru stíluð á var'narliðið eða erlenda verktaka á Keflavíkurflugvelli en send H.f.S. eða Olíufélaginu h.f.“ Hefur hér verið um að ræða beint samsæri hins erlenda fyrir- tækis og olíufélaga SÍS að rang- færa eða öllu heldur falsa fylgis- skjölin. Ennfremur er á það bent í fyrrnefndri skýrslu, að utan- ríkisráðuneytið hefur aldrei veitt H.f.S. leyfi til tollfrjáls innflutn- ings bifreiða, tækja, varahluta eða byggingarefnis. Tíminn segir ennfremur á sunnudag: „í sambandi við þær umræður, sem orðið hafa um þessi mál, hefur jafnan verið lögð áherzla hér í blaðinu, að þau yrðu rann- sökuð til hlítar og þeir seku látn- ir hijóta sína refsingu, ef um sekt reynist að ræða“. Menn hljóta að brosa í kamp- inn, þegar þeir iesa þetta, því hingað til hefur Tíminn ætíð sagt, ef samvinnufélögin hafa verið gagnrýnd, að það væri árás á samvinnustefnuna og ekki hef- ur mátt benda á óreiðuna hjá Esso, svo blaðið hafi ekki rokið upp til handa og fóta. Hinn 9. júlí sl. segir Tíminn á forsíðu í fyrirsögn í tilefni af rannsókn oliumálsins: „Ekki er kunnugt að rannsókn hafi leitt í ljós neitt misferli“. Síðan hefur blaðið það eftir framkvæmdastjóra innflutnings- deildar SÍS, Helga Þorsteinssyni, að eitt helzta ákæruatriðið á hendur Esso hafi verið „að H.Í.S. hafi selt einn kassa af frostlegi, sem hefði verið ætlaður til nota varnarliðsins“. En í skýrslu rann sóknardómaranna, sem birtist í Tímanum sl. sunnudag segir m. a., að meðal hins Tollfrjálsa inn- flutnings hjá Esso og Olíufélag- inu h.f. hafi verið 216,703 pund af frostlegi! Auðvitað er það smávægilegt atriði á móti hinu, að í fyrsta þætti olíuhneykslisins hefur komizt upp um „heimildar- laust tollfrelsi milljónainnflutn- ings olíufélagsins“, eins og segir í fyrirsögn hér í blaðinu 31. okt. s.l. Það finnst Tímanum ekki „neitt misferli"!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.