Morgunblaðið - 03.11.1959, Page 17
Þriðjudagur 3. nðv. 1959
MORCUISBLAÐIÐ
17
Sextugur í gœr
Ásmundur Eiríksson
MÁNUDAGINN 2. nóvember
1959 er Ásmundur Eiríksson,
forstöðumaður Hvítasunnusafnað
arins í Reykjavík. sextugur.
f>ann merkisdag hefði ég
gjarnan viljað taka í hönd hans
— en vík er milli vina. Þessi litla
grein verður því handtak mitt
yfir hafið. .
Ekki var ég nema sjö ára að
aldri. er ég hlýddi fyrsta sinn á
mál Ásmundar. Það var á sam-
komu í Betel í Vestmannaeyjum.
Enn er mér frásögn hans í fersku
minni. Hann sagði frá, hvernig
hann sem ungur maður fékk
berkla í bakið. Sjúkdómurinn
lagðist svo þungt á hann, að hann
gat ekki hreyft sig um tíma. Varð
að nota sérstakar styrktarum-
búðir. Mér fannst ég Uða og þjást
xneð þessum unga manni, sem ég
sá í huga mér liggja fjötraðan
við sjúkrabeð, þegar jafnaldrar
hans fullir af lífsþrótti unnu að
því að sjá æskuhugsjónir sínar
rætast. En,þegar allt virtist von-
laust, heyrði ég Ásmund segja:
„En þá kom Jesús“. — Hvílík um
skipti. Eg sá vonleysi víkja, von-
irnar rætast, ungi maðurinn stóð
frammi fyrir okkur alheilbrigð-
lir. Frá þessari stundu fannst mér
Ásmundur ekki alveg eins og
venjulegir menn. Hann hafði
haft nánari afskipti af Jesú en
flestir sem ég þekkti.
Brátt fann ég einnig, að Ás-
mundur leit á börn sem sjálf-
stæðar persónur. Það er meira en
mörgum fullorðnum er gefið.
Hann talaði við okkur í sunnu-
dagaskólanum benti okkur á
Jesúm sem Frelsara, lækni og
leiðtoga. Ekki einungis fyrir full
orðna, heldur einnig fyrir börn.
Um tíma var hann forstöðu-
maður Betelsafnaðarins og varð
uppfræðsla hans og umgengni
ÖU söfnuðinum til mikillar bless-
unar. Ekki sízt okkur sem þá vor
um unglingar.
Ásmundur er Skagfirðingur að
«tt, kominn af merku bænda-
fólki. Á Reykjahóli í Fljótum
gleit hann barnsskónum við holl
gveitastörf í fögru umhverfi.
Sú þjálfun hefur sjálfsagt
reynzt honum notadrjúg, þegar
út í köllunarstarf lífsins kom.
Starf þess sem sáir Orði Guðs
í mannshjötrun er að mörgu leyti
hliðstæð starfi bóndans. Kost-
gæfni og þolgæði eru þá farsælir
eiginleikar. Þeir hafa Ásmundi
geíizt.
í upphafi minntist ég á sjúk-
dómsbaráttu hans. Síðar í lífinu
hefur hann fengið að reyna oftar
en einu sinni sannleiksgildi þess
sem Matthías Jochumsson kvað
um Hallgrim Pétursson:
Guðs-manns líf er sjaldan
happ né hrós
heldur tár og blóðug þyrnirós.
En Ásmundur hefur ekki stað-
ið einn.
í sköpunarsögu Biblíunnar
segir svo: Og Drottinn Guð
sagði: Eigi er það gott, að maður
inn sé einsamall; ég vil gjöra hon
um meðhjálp við hans hæfi.
Hafi nokkur kona skilið þetta
hlutverk sitt réttilega, þá er það
Þórhildur Jóhannesdóttir, kona
Ásmundar. Hún hefur staðið við
hlið manns síns í starfi hans svo
trúlega og af þvílíkum skilningi,
að fágætt er.
Á heimili þeirra er gott að vera
gestur. Annast finnst víst eng-
um hann vera gestur, þegar hann
dvelur þar.
Árið 1945 fluttust þau hjón frá
Vestmannaeyjum til Reykjavík-
ur og hafa þau starfað í þjónustu
Fíladelfiusafnaðarins þar síðan.
Guð gefi þeim mörg starfsár enn.
Þetta er engin tæmandi lýsing
á manninum Ásmundi Eirikssyni.
Hún kemur kannske bezt fram
í sálmversi, sem hann orti sjálf-
ur, því að hann er bæði vel rit-
fær og hagmæltur:
Varðmenn Drottins, vogið, þorið:
Verja dýrstu sannleiksmet-
Frumkristninnar förum sporið,
Færum aldrei mark um set!
Verjum Orð Guðs, vörðu hverja,
Vígjum því hvern dropa blóðs,
Einn hvort eða allir herja
Okkur gegn með sverðum
hnjóðs!
Þetta er afmæliskveðja til þín,
Ásmundur, og þakkir. Þakkir frá
barninu, sem þú lézt þér svo
annt um, sem þú klappaðir á koll
inn og hvattir til að fylgja alltaf
Jesú Kristi.
Það eru þakkir frá unglingn-
um, sem þú gafst þér ætíð tíma
til að tala við. Það er mikils
virði á þeim árum sem maður
skilur oft ekki sjálfan sig. Heim-
ur bernskunnar er að baki, heim
ur hinna fullorðnu framundan og
í hvorugum á maður heima. —
Skyldi það ekki verá lausnin fyr-
ir margan unglinginn, að lífs-
reyndur maður gæfi sér tíma til
að tala við hann — ekki prédika
yfir honum heldur tala uppörv-
unar- og leiðbeiningarorð, eins
og þú gerðir. Leyfa unglingnum
að létta á hjarta sínu, fullviss um,
að hlustað er á hann af samúð.
É hef aldrei sagt þér, hvað
þetta var mér mikils virði, en nú
geri ég það.
Þetta eru þakkir frá fulltíða
konunni. sem nú á orðið sitt eigið
heimili. Eftir því sem árin líða,
Byggingarfélag alþýðu Reykjavík
íbúð til sölu
3ja herb íbúð til sölu í fyrsta byggingarflokki.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins, Bræðra-
borgarstíg 47, fyrir kl. 12 á hádegi, fimmtudag. 12.
nóvember.
Stjórnin
Héraðsskólinn að Núpi
Vestur-lsafjarðarsýslu, vantar 2 starfstúlkur í eld-
hús strax.
Upplýsingar veitir Fræðslumálaskrifstofan eða skóla
stjórinn að Núpi.
Skólastjórinn
WILT0\ íSLL\/K GÓLFTEPPI
★ Wilton teppaefni af íslenzkri gerð eru tví-
mælalaust þéttasta og bezta teppaefni, sem
sést hefir hér á landi.
'A' Athygli skal vakin á því að óþarft er að
dúkleggja undir teppin.
★ Leitið upplýsinga. — Lítið á sýnishron.
Klæðum horna á milli með viku fyrirvara.
Nýkomið fjolbreyft úrval af
erlendum golfteppum við allra hæfi
Aðalstræti 9 — Sími 14190.
finn ég betur, hve heilræði þín,
er þú kenndir mér ungri, eru
haldgóð.
Fjölskylda mín öll færir þér
innilegustu heillaóskir og við
óskum þess heitast, að þið Þór-
hildur fáið sem lengst að helga
ykkur þeirri þjónustu, sem við
vitum nauðsynlegasta þjóð okk-
ar, boðun fagnaðarerindisins um
Jesúm Krist Frelsara allra
manna.
G. S.
Óhagstæður vöru*
skiptajöfnuður
BLAÐINU barst í gær yfirlil
Hagstofunnar um vöruskipta-
jöfnuðinn í september sl. og seg-
ir þar að hann hafi orðið óhag-
stæður um 36,2 millj. kr. Hafi
verðmæti innflutningsins numiS
111,5 millj. kr., en útflutningur-
inn varð alls 75,2 millj. kr.
Eftir 9 mánuði ársins er staSa
vöruskipta þannig, að innflutn-
ingur umfram útflutning er aS
verðmæti 281,7 millj. kr. Inn-
flutningurinn nemur alls 1034,3
millj. kr. og á sama tíma nema
verðmæti útfluttrar vöru 752,5
millj. kr. Þess er getið, að af
verðmætum innflutningsins séu
skipakaup 23,4 millj. kr.
TEPPI OG DRECLAR
VORUMERKI
vandaðrar fram-
leiðslu af öllum gerð-
um Teppa og Dregla
í fjölbreyttu úrvali
munstra, lita og gæða.
CENTROTEX — 6701 — PRAHA
EINKAUMBOÐ:
PÁLL JÖH. ÞORLEIFSSON HF.
Umboðs- og heiidverzlun, Reykjavík.
Skólavöi’ðustíg 38 — Símar: 15416, 15417.