Morgunblaðið - 14.11.1959, Blaðsíða 2
2
MORGUTSTt T.A Ð 1Ð
L'augardagur 14. nóv. 1959
Bretar hjóða tollfrelsi
gegn eftirgjöf landhelgi
KAUPMANNAHOFN, 13. nóv.
(Frá Páli Jónssyni) — Ritzau
fréttastofan skýrir frá því í dag,
að Bretar hafi lagt til, að Danir
Norðmenn og Svíar fái sameig-
inlegan innflutningskvóta fyrir
fryst fiskflök í Bretlandi. Er það
T unglskot
reynt
WASHINGTON, 11. nóv. — Haft
er eftir áreiðanlegum heimildum,
að Bandaríkjamenn geri sér
vonir um að geta skotið cldflaug
umhverfis tunglið í lok nóv. eða
byrjun desember. Ef sú tilraun
heppnast vel er reiknað með að
annarri eldflaug verði skotið i
desember og henni stefnt til Ven-
usar. Sú eigi síðan að ganga á
braut umhverfis sólina.
Það var ætlun Bandaríkja-
manna að skjóta tunglflaug hinn
3. október, eða um svipað leyti
og Rússar skutu sínu vel heppn-
aða Lunik. En þessi tilraun fór
út um þúfur, því fyrir mistök
sprakk bandaríska tunglflaugin
á skotpallinum skömmu áður en
tilraunin átti að fara fram.
En það er ætlun Bandaríkja-
manna að reyna að koma sinni
timglflaug á braut umhverfis
tunglið, en ekki umhverfis tungl
og jörðu, eins og Lunik.
Ef slíkt tækist, fengjust mun
betri og fyllri upplýsingar um
eiginleika tunglsins en fært hef-
ur verið að afla með Lunik, hin-
um rússneska.
Nú er mikið kapp lagt á að
Ijúka undirbúningi svo að til-
raimin dragist ekki mikið leng-
ur.
Rússnesk vopn
TEHERAN, fran: — íranska
kvöldblaðið „Kayhan“ sagði frá
því á mánudaginn í fréttum frá
Abadan, að 15 rússnesk skip og
yfir 100 flutningaflugvélar hefðu
flutt fjölda af þotum, jeppum,
þungavopnum og skotfærum til
Basra 1 írak. — Blaðið sagði, að
meginhluti þessara farma hefði
verið fluttur til Bagdad. Einnig
sagði það, að allmargir rússnesk-
ir liðsforingjar hefðu komið með
vopnasendingunum.
tillaga Breta, að þessar þjóðir
megi árlega selja tollfrjálst 20
þúsund tonn af frystum fisk-
flökum til Bretlands, þó gegn því
skilyrði, að þessar þjóðir skuld-
bindi sig til að víkka landhelgi
sína ekki upp í 12 sjómílur.
Fréttastofan segir, að Norður-
landaþjóðirnar telji sig ekki geta
gengið að þessu, í fyrsta lagi
vegna þess, að þær sætta sig ekki
Hollendingar verja
V-lndíur
HAAG, 13. nóv. Reuter: — Land-
varnarráðherra Hollands, S. H.
Visser skýrði þjóðþinginu í dag
frá því að ríkisstjórnin hefði gert
sérstakar ráðstafanir til varnar
hollenzku Nýju Gíneu. Hann
greindi ekki nánar frá því í
hverju varnarráðstafanir þessar
hefðu verið fólgnar, en til þeirra
hefði ríkisstjórnin lagt 18%
milljón gyllina. Hann sagði að
umræddar varnaraðgerðir hefðu
komið til framkvæmda í byrjun
þessa árs.
Hollenska Nýja Gínea er vest-
urhluti samnefndrar eyju norður
af Ástralíu. Hafa Indónesíumenn
gert tilkall til hennar, en Hol-
lendingar vilja ekki sleppa henni.
Landssvæðið er 400 þús. ferkíló-
metrar á stærð og búa þar 700
þúsund manns.
við kvótatakmörkun á fiskflök-
unum og 1 öðru lagi vegna þess,
að þær vilja engum rétti afsala
sér í landhelgismálunum. Snert-
ir þetta mál Dani vegna fisk-
veiðihagsmuna í Grænlandi.
Telja Danir, það óhæft hjá Bret-
um að blanda hér saman fisk-
verzlun og landhelgismálum.
Hammarskjöld
fer til Laos
NEW YORK, 9. nóv. — Fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, Dag Hammarskjöld, mun
leggja af stað héðan til Laos á
morgun, þriðjudag, til þess að
afla sér „upplýsinga frá fyrstu
hendi“ um vandamál það, sem
olli því, að Laos sneri sér til S. þ.
með beiðni um að senda stjórn-
inni aðstoð — eða a. m. k. að
senda rannsóknarnefnd til lands-
ins, eins og gert var
Hammarskjöld mun dveljast í
Laos í viku til tíu daga. — Frétta
menn segja í þessu sambandi, að
svo sé litið á , að skýrsla rann-
sóknarnefndar S. þ. um ástandið
í Laos hafi veitt nægar sannanir
fyrir utanaðkomandi íhlutun um
málefni ríkisins til þess að rétt-
læta, að Sameinuðu þjóðirnar
haldi áfram að fylgjast náið með
framvindu mála í Laos.
Biskupinn flytur ávarp við hátíðamessuna i Selfosskirkju.
(Ljósmynd: Stúdíó)
Prestar vilja vinna
meira saman í hópum
SELFOSSI, 13. nóv. — Aðalfund-
ur Prestafélags Suðurlands var
haldinn hér á sunnudaginn og
mánudaginn var. Prestar á félags
svæðinu fjölmenntu á fundinn
nema frá Reykjavík. Á sunnu-
daginn voru messur í nálægum
kirkjum og hér í Selfosskirkju
var hátíðamessa um kvöldið.
Hátíðamessa
Þó illslcuveður væri var margt
manna við hátíðamessu, enda fór
hún fram með óvenjulegri við-
Þing S.U.S. sett í gærkvöldi
Skýrsla formanns bar vott um mikið
og fjölbætt starf
spuequies SujiJ va\yiHWId
ungra Sjálfstæðismanna var sett
í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík
kl. 8,30 í gærkvöldi.
Geir Hallgrímsson, hæstaréttar
lögmaður, formaður sambands-
ins, setti þingið með ræðu. Bauð
hann þingfulltrúa velkomna,
ekki sízt þá, sem komið hafa um
langan veg. Þá ávarpaði Geir
forraann Sjálfstæðisflokksins, Ól-
af Thors, sem var gestur við
þingsetninguna.
Að ræðu Geirs Hallgrímssonar
lokinni var Matthias Sveinsson,
formaður FUS á Selfossi, kjör-
inn fundarstjóri. Gaf hann síðan
formanni flokksins orðið. *
,Carmina Burana' endur-
tekin í Háskólanum
ÝMSIR, sem gátu ekki komið því að það yrði endurtekið. Það verð-
við að hlusta á tónverkið Carm-
ina Burana eftir þýzka nútímatón
skáldið Carl Orff, er það var
kynnt I háskólanum í síðastliðn-
um mánuði, hafa óskað eftir því,
Heimdellingar
VINSAMLEGAST gerið skil í
Landshappdrættinu. — Dregið 1.
desember nk.
★
Óðinsfélagar
VINSAMLEGAST gerið
skil fyrir miðum í Lands-
happdrættinU hið fyrsta. —
Dregið 1. des. nk.
ur því flutt aftur af hljómplötu-
tækjum háskólans í hátíðasalnum
á morgun, sunnudaginn 15. nóv.
kl. 5 síðdegis. Tónlistarkynning-
unni lýkur um kl. 6.30.
Carl Orff er eitt helzta núlif-
andi tónskáld Þjóðverja, en lítið
þekktur hér á landi. Carmina
Burana eru latnesk, þýzk og
frönsk miðaldakvæði flökkustúd-
enta um vorið, vínið og ástina.
Við þau samdi Carl Orff 1936
þessa tónsmíð fyrir hljómsveit,
kóra og einsöngvara. Þetta er eitt
víðkunnasta og vinsælasta tón-
verk síðustu áratuga, enda í senn
nýstárlegt, alþýðlegt og fjöl-
breytilegt, bæði fallegt, fjörlegt
og þróttmikið. Það er hér flutt
af þýzkum listamönnum undir
tilsjón höfundar, en stjórnandi er
Wolfgang Sawallisch.
Dr. Jakob Benediktsson mun
skýra textana og Guðmund-
ur Matthíasson tónlistarkenn-
ari skýra frá tónskáldinu og
tónverkinu. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
RÆÐA ÓLAFS THORS
Ólafur Thors flutti ýtarlega
ræðu um stjórnmálaviðhorfið að
loknum kosningum. Lagði hann
áherzlu á, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur nú loks fengið á Al-
þingi þá sterku aðstöðu, sem
hann hefur lengi haft meðal þjóð
arinnar, og skýrði síðan, hvaða
verkefni bíða úrlausnar í þjóð-
félaginu og hver væri skoðun
miðstjórnar og þingflokks Sjálf-
stæðismanna um það, hvernig
við skyldi snúast.
Að ræðu Ólafs Thors lokinni
ávarpaði fundarstjóri hann með
nokkrum orðum, en þingfulltrú-
ar hylltu formann flokksins með
dynjandi lófataki.
Skýrsla formanns
Þessiu næst flutti Geir Hall-
grímsson skýrslu um störf sam-
bandsstjórnar. Kom þar fram, að
S.U.S. hefur starfað með miklum
myndarbrag að undanförnu. For-
maðurinn gat m.a. um mót, stjórn
málanámskeið, útgáfustarfsemi,
erindrekstur, fundi með trúnað-
armönnum og almenna stjórn-
málafundi, sjávarútvegsmálaráð
stefnu, þátttöku í starfi samtakra
ungra stjórnmálamanna í ríkjum
Atlanshafsbandalaginu — og um
ýmsa aðra sarfsemi. Þá ræddi
hann um það starf einstakra fé-
laga innan S.U.S., sem sambands
stjórnin hefur aðstoðað sérstak-
lega við. f sambandinu eru nú
alls 28 samtök ungra Sjálfstæð-
ismanna í öllum héruðum lands-
Nefndakosningar
Að skýrslu formanns S.U.S.
lokinni var kosið í fimm nefndir
til að undirbúa mál fyrir þing-
fundi. Nefndirnar munu sitja áð
störfum árdegis í dag. Miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins býður þing-
fulltrúum til hádegisverðar í
Sjálfstæðishúsinu, en kl. 2 hefst
almennur þingfundur. Á fundin-
um í gærkvöldi voru þeir Jósef
Þorgeirsson, Akranesi, og Ólafur
B. Thors, Reykjavík, kosnir til
að vera ritarar þingsins.
Við lauslegt manntal í gær-
kvöldi taldist starfsmönnum
þingsins svo til að um 150 þing-
fulltrúar væru komnir til að sitja
sambandsþingið. Sennilegt er tal-
ið að þingstörfum ljúki annað
kvöld.
Gjafir til Reyni-
va llakirkju
VALDASTÖÐUM, 12. nóv. —
Vegna þess hvað grein um af-
mæli Reynivallakirkju lá lengi
hjá blaðinu,,var ekki getið um
allar gjafir, sem kirkjunni hafa
borizt. En þær, sem hafa borizt
síðan, eru tveir vegglampar frá
Halldóru Halldórsdóttur frá
Valdastöðum. Peningagjafir frá
eftirtöldum: Jóni Bjarnasyni,
Sandi, Kristínu Pétursdóttur,
Þórsgötu 17, Reykjavík og Birni
Guðnasyni frá Eyjum. Allt er
þetta mjög vel þakkað fyrir
kirkjunnar hönd. — St. G.
höfn, og vakti gleði kirkjugesta.
Fjórir prestar þjónuðu við altar-
ið, en séra Jón Árni Sigurðsson
prédikaði, en í messulok flutti
biskup landsins, herra Sigur-
björn Einarsson, ávarp. Há-
tíðamessa hófst með prósessiu
hempuklæddra presta og biskups.
Var gengið syngjandi um kirkj-
una og bóru stúdentar reykelsi
og kross en skátar báru Ijós. Við
hátíðamessuna sjálfa tónaði einn
prestanna pistilinn, annar tónaði
guðspjallið og hinn þriðji þjón-
aði við altarið Kirkjukór Selfoss-
kirkju söng klassiska kirkjumús-
ik með undirleik kirkjuorganist-
ans Guðmundar Gilssonar.
Fundurinn
Á mánudagsmorgun hófst svo
sjálfur fundur prestafélags suður
lands, en aðalumræðuefni þessa
fundar var samstarf presta. Hafði
það komið glöggt í Ijós á þessum
fundi, að prestar telja nauðsyn á
að þeim léyfist að vinna meira
saman í hópnum hver með öðr-
um, heldur en núverandi kirkju-
skipan heimilar. Það virðist vera
reynsla þjónandi presta, að hve-
nær, sem hægt er að efna til
kirkjulegrar viðhafnar, þá er
jafnan mikill áhugi fólks og
kirkjusókn bregst ekki.
Stjórn prestafélags Suðurlands
var öll endurkosin, en formaður
hennar var séra Sigurður Pálsson
á Selfossi og með honum séra
Garðar Svavarsson, prestur í
Laugarnessprestakalli og séra
Sveinn Ögmundsson í Þykkvabæ.
G. G.
Námskeið fyrir af-
greiðslufólk á vegum V.í.
Upp úr næstu áramótum hefst
hér í Reykjavík námskeið í
verzlunarstörfum er Verzlun-
arskóli íslands gengst fyrir.
Mun námskeið þetta, er verð-
ur til húsa í V. R.-húsinu í
Vonarstræti 4, starfa sem sér
stök deild við Verzlunarskóla
íslands. Námskeiðið verður
eingöngu helgað þjálfun og
menntun þeirra, er vinna af-
greiðslustörf eða ætla að
ieggja þau fyrir sig. Mun það
standa í fjóra mánuði.
• Skortur á sérmenntuðu fólki
1 gær áttu fréttamenn tal við
Magnús J. Brynjólfsson, form.
skólanefndar Verzlunarskólans.
dr. Jón Gíslason, skólastjóra,
Þorvarð Jón Júlíusson, frkvstj.
Verzlunarráðs íslands, og Gísla
Einarsson fulltrúa, um námskeið
þetta. Rakti dr. Jón fyrir frétta-
mönnum þróun verzlunarmennt-
unar hér á landi síðustu hálfa
öidina og benti á hver riauðsyn
væri nú orðin á sérmenntun í af-
afgreiðslustörfum. Þeir, sem út-
skrifast úr 4. bekk Verzlunar-
skóla íslands leggja flestir fyrir
sig skrifstofustörf og því er hér
á landi alvarlegur skortur á sér-
menntuðu afgreiðslufólki, en
þessu námskeiði og væntanlega
fleiri slíkum er ætlað að bæta úr
því.
Magnús J. Brynjólfsson skýrði
frá námskeiðum, er haldin hafa
verið fyrir nemendur Verzlun-
arskólans, þar sem þeim hafa
m. a. verið kennd hagnýt skrif-
stofustörf. Sóttu 35 piltar og- 37
stúlkur slíkt námskeið, er Gísli
Einarsson skipulagði nú í haust
með aðstoð Sölutækni.