Morgunblaðið - 14.11.1959, Síða 8

Morgunblaðið - 14.11.1959, Síða 8
8 MORClimtr AfílÐ L'augardagur 14. nðv. 1959 Birgir Gunnarsson formaður Heimdallar AÐALFUNDUR Heimdallar, F.U.S. var haldinn í Sjálfstæðis- ihúsinu í fyrrakvöld. Formaður félagsins, Baldvin Tryggvason, lögræðingur, setti fundinn og skipaði Sigurð Helga- son, lögfræðing fundarstjóra. Fundarritari var Stefán Snæ- björnsson, húsgagnasmiður. Skýrsla formanns Því næst flutti formaður skýrslu fráfarandi stjórnar. Gat hann þess fyrst, að fjármálin hefðu nú eins og oft áður reynzt eitt erfiðasta úrlausnarefni stjórn arinnar, en með því að leggja mishá gjöld á félaganna, hefði tekizt að halda í horfinu, og væri fjárhagur félagsins nú allgóður. Skömmu eftir að stjórnin tók við. var stofnað til svokallaðra Birgir Gunnarsson Klúbbfunda, þar sem meðlimir fé lagsins, gestir þeirra og nokkrir fleiri komu saman til hádegis- verðar í Sjálfstæðishúsinu 2.— 3ja hvern laugardag. Á meðan setið var undir borðum, var hlýtt á erindi um eitthvert ákveðið efni. Hafa fimm shkir fundir ver- ið haldnir. Þá hélt félagið æsku- lýðsfund* fyrir báðar kosning- arnar, þar sem nokkrir Heim- dellingar gerðu grein fyrir við- horfum sínum til þjóðmálabar- áttunnar. Ferðadeild félagsins starfaði með líkum hætti og áður, en vegna kosninganna í sumar. var farið í nokkrar færri ferðir en t.d. í fyrrasumar. Vegna kosn- inganna réðist félagið ekki í að setja á svið leikrit í sumar. Hins vegar hefur verið ákveðið að efna til leiksýninga í vetur í Sjálf stæðishúsinu, og hefur samizt um það við Gunnar Eyjólfsson leik- ara, að hann stjórni sýningun- um. Mun þessi starfsemi hefjast fljótt eftir áramótin. Stjórnin hefur tvisvar á starfstíma sínum beitt sér fyrir söfnun nýrra fé- lagsmanna, og hafa félaginu baetzt um 300 nýir meðlimir. Fyr- ir síðustu kosningar var Heim- dallur ásamt Sambandi ungra Sjálfstæðismanna aðili að útgáfu tveggja bæklinga, „Komi her — Fari her — Veri her“ og „Víti til varnaðar“. Ennfremur sendi fé- lagið öllum þeim, sem þá gengu að kjörborðinu í fyrsta sinn, bréf, þar sem gerð var grein fyrir stefnu félagsins. Um svipað leyti hófst einnig samstarf Heimdallar Og S.U.S. um útgáfu á fjögurra síðna blaði, „Frá ungu fólki“, sem komið hefur út nokkrum sinnum sem fylgirit Morgunblaðsins. Enn fremur gaf félagið út kosninga- handbækur fyrir báðar kosning- arnar á þessu ári. Nýlega kom út á vegum Heimdallar ræða sú, sem Birgir Kjaran hagfræðingur flutti á fundi Stúdentafélags Reykjavíkur í vor um efnið: „Hve mikil opinber afskipti eru samrýmanleg lýðræðislegu þjóð- skipulagi. Einnig komu nýlega út „Félagstíðindi“. Loks gat for- maður þess, að Heimdellingar hefðu að sjálfsögðu nú eins og endranær innt af hendi mikið starf í sambandi við kosningabar- áttu flokksins. Stjórnarkjör Þegar formaður h'afði lokið skýrslu sinni las gjaldkeri, Krist- ján Ragnarsson, reikninga félags- ins. Kom í ljós, að afkoma félags- ins hefur verið góð. Þessu næst gerði Jón E. Ragnarsson stud. jur. grein fyrir tillögum uppstillinga- nefndar. Baldvin Tryggvason hafði eindregið færzt undan end- urkjöri sem formaður félagsins. Nefndin gerði að tillögu sinni, að formaður næsta starfsár yrði Birgir ísl. Gunnarsson stud. jur. Þar sem ekki höfðu borizt fleiri tillögur var hann sjálfkjörinn. Með honum voru sjálfkjörnir í stjórn: Guðni Gíslason stud. jur., Gunnar Tómasson verzlunar- skólanemi, Jón E. Ragnarsson stud. jur., Kritsján Ragnarsson skrifstofumaður, Magnús Step- hensen iðnnemi, Ólafur Davíðs- son menntaskólanemi, Ólafur Jensson skrifstofumaður, Othar Hanson fiskvinnsiufræðingur. Varastjórn: Magnús I.. Sveins- son skrifstofumaður, Ragnar Kjartansson nemandi, Þórður Óskarsson verzlunarskólanemi. Umræður Að loknu stjórnarkjöri fór fram kjör fulltrúaráðs félagsins og síðan hófust umræður um skýrslu stjórnarinnar og önnur mál. Þessi tóku til máls: Þór Vil- hjálmsson lögfræðingur, Pétur Sæmundsen viðskiptafræðingur, Magnús Óskarsson lögfræðingur, Ágúst Hafberg framkvæmda- stjóri, Jóhann Ragnarsson etud. jur., Haraldur Teitsson fram- kvæmdastjóri, Othar Hanson fisk vinnslufræðingur og Geir Hall- grímsson formaður S.U.S. AO síðustu tók hinn nýkjörni formaður til máls. Þakkaði hann sérstaklega fráfarandi formanni mjög góð störf í þágu félagsins á undanförnum árum og mælti nokkur hvatningarorð til félags- manna. ★ Eitt sinn kom upp eldur í íslenzku krLstniboðsstöðinni, og urðu miklar skemmdir. Konsó- menn brugðu skjótt við og komu me9 trjávið til viðgerða á því, sem eldurinu hafði eyðilagt. Starf trúboðann a í Konsó FREGNIR af íslenzku trúboðun- um, sem dveljast í kristniboðs- stöðinni í Konsó í Eþíópíu, bera það með sér, að starfsemi þeirra fer vaxandi með hverjum degi. — Um þetta leyti eru liðin fimm ár, síðan Felix Ólafsson, kristni- boði, og Kristín, kona hans, sett- ust að í Konsó og hófu þar kristni boðsstarf. En fyrir einu ári var formlega stofnaður kristinn söfn- uður í Konsó, er skírn fór fram. Fer þeim fjölgandi, sem snúa baki við djöfladýrkuninni, sem þarna ríkir, og vilja gerast kristn ir. Benedikt Jasonarson, sem nú hofur leyst Felix af hólmi, held- ur námskeið í kristnum fræðum fyrir þá, sem óska að taka skírn, og er þátttaka í námskeiðum þessum góð. Auk þess eru guðs- þjónustur haldnar og farnar prédikunarferðir út í þorpin. Þá hefur skólastarfið í Konsó einnig aukizt að mun. Til þessa hafa verið starfræktir tveir bekk- ir. Það hefur háð kennslunni, að skilningurinn á námi er takmark aður, enda kunnu Konsómenn hvorki að lesa né skrifa, þegar kristniboðarnir komu. Margir nemendur vilja aðeins sækja skólann, þegar þeim sjálfum hentar. Heimavist fyrir drengi hefur gefið góða raun, og í haust stóð til að hafa þriði» bekfc, ef starfsmenn fengjust. Sem dæmi um árangur þes*a kennslustarfs má geta þess, dð Felix kristniboði hefur fengið bréf frá drengjum, sem hvorki kunnu að lesa né skrifa, en eru pú vel ritfærir, jafnvel á framandi tungu. Bréfin eru nefnilega rituð á amharisku, máli hins ríkjandi þjóðflokks í landinu. Kennsla verður öll að fara fram á því máli, þótt það sé jafnóskylt Konsómálinu og ís- lenzkan. í sjúkraskýli kristniboðsstöðv- arinnar er jafnan margt um manninn. Koma sjúklingar þang- að hópum saman, jafnvel 70—100 á dag, enda fer orðstír íslenzku hjúkrunarkonunnar, Ingunnar Gísladóttur, vaxandi í þorpunum í nágrenninu. Ingunn er Konsó- mönnum í senn hjúkrunarkona, ljósmóðir og læknir, og hefur hún bjargað mörgu mannslífinu þenn- an tíma, sem hún hefur starfað meðal þessara frumstæðu manna. A¥ ♦ * BRiDGE A¥ ♦ + EINS og öllum bridgespilurum er kunnugt, kemur það oft fyrir að sagnhafi, í miðju spili, leggur upp spil sín og lýsir því yfir, að hann eigi afganginn eða gefi einn eða fleiri slagi. Oft hefur komið fyrir, að sagnhafi hafi sagt rangt til, t. d. eigi alls ekki alla slagina ef varnarspilararnir spila rétt og hafa spilarar því ekki verið á eitt sáttir um hvern- ig íara eigi að í slíkum tilfell- Úm.““88. gréln alþjóOalaga um bridge tekur af allan vafa um þetta og segir svo i greininni: Ef sagnhafi sýnir spil sín vilj- andi, og sérstaklega krefst eða gefur eftir einn eða fleiri af þeim slögum, sem eftir eru, eða stingur upp á, að ekki sé lengur spilað úr spilinu, þá er þetta talið sem krafa sagnhafa, og a) spilinu er hætt og sagnhafi leggur spil sín upp á borðið og lætur þau liggja þar og gefur fulla skýringu á því, hvemig hann ætlar að spila úr spilunum. b) verjandi getur, hvenær sem er, eftir að sagnhafi hefir gert kröfu sína, lagt upp spil sín og bent meðspilara sínum á, hvernig hann skuli haga spila- mennsku sinni. Sagnhafi get- ur ekki krafizt neinnar refs- ingar fyrir óreglulega spila- mennsku þess verjanda, er þannig hefir lagt spil sín á borðið. Eftirfarandi spil sýnir ljóslega, hvernig sagnhafi getur notfært sér upplýsingar, sem andstæð- ingarnir aðeins ætla sín á milli. ♦ A G 9 5 ♦ K 10 6 3 ¥ G 10 7 ♦ A 8 3 ♦ A G 4 N A 8 ¥ D 2 v ¥ 8 6 4 ♦ D 9 6 v „ A ♦ K 10 5 2 * K D 8 5 ö * 10 7632 A D 7 4 2 V A K 9 7 3 ♦ G 7 4 * 9 mnn Kunni vrttigespnan Leslie Dodds sat í Suðri og var lokasögnin 4 hjörtu. Eftir að sagnir höfðu gengið þannig: Vestur Norður Austur Suður 1 lauf dobl 3 lauf 4 hjörtu Vestur, Harrison-Gray, lét út laufakóng, sem var drepinn með ás í blindum. S. J. Simon, sem sat í Austri áleit, að aðeins væri hægt að hnekkja spilinu, ef Vestur/Austur ætti annað hvort ás eða kóng í tromplitnum, og gæti spilið þannig komizt inn áður en öll tromp Austurs væru af honum tekin og B myndi þá láta út spaðaás og annan spaða, sem Austur myndi trompa. — Þess vegna þegar laufaásinn drap laufakónginn lét Simon laufa 10. Bæði Dodds í Suður og Harri- son-Gray í Vestur skildu hvað þetta þýddi, það hlyti að vera um að ræða einspil í spaða hjá Austri, því ekki gat hann verið að biðja um lauf, þar sem laufa gosi var í blindum. Suður áleit einnig, að ekki gæti hjartadrottning verið hjá Austri, því það væri ósennilegt, að Aust- ur ætlaðist til að Vestur kæmist inn á hjarta, ef Austur væri sjálf- ur með drottninguna. — Suður tók því ás og kóng í hjarta og þriðja hjartað, lét síðan út frá blindum spaða 3 og drap með drottningu. Vestur lét út tigul 6, sem var drepin með ás. Því næst trompaði Suður laufa 4 og lét út spaða 2, Vestur lét spaða 5 og spaða 6 var svínað. Spaða var síðan svínað aftur og fengu því N og S 10 slagi. Er mjög ósenni- legt, að Dodds hefði unnið spilið, ef hann hefði ekki „lesið úr“ spaðakallinu hjá Austri. Nýtt danskt flugfélag KAUPMANNAHÖFN, 11. nóv. — Hið nýstofnaða flugfélag, Flying Enterprise, sem m.a. ætlar að reyna að ná í eitthvað af Græn- landsfluginu, hefur enn ekki feng ið Argonaut-flugvélarnar tvær, en þessar vélar fær félagið vænt- anlega frá brezka félaginu Over- seas Aviation. Hins vegar hefur enn eitt fé- lagið verið stofnað í Danmörku. Það heitir „Kawa Air“ og að stofnuninni standa frímúrarasam tök. Tilgangurinn er að taka að sér alls kyns leiguflug, aðallega með ferðamannahópa fyrir ferða. skrifstofur. Segjast forráðamenn félagsins ætla með þessu að reyna að koma í veg fyrir að er- lend flugfélög fái jafnmikla flutn inga frá Danmörku og hingað til hefur verið. Þá er ætlunin að hefja innanlandsflug. „Kawa Air“ hefur þegar keypt tvær Argonautflugvélar, en ætl- ar að skipta á þeim og tveimur Viscount-vélum. Starfsemi fé- lagsins hefst fyrir áramót. Líklegt er, að Ingunn komi heim í hvíldarleyfi á næsta ári. — Ung ur íslenzkur læknir og kona hans sem er hjúkrunarkona, dveljast nú erlendis við framhaldsnám, en þau gera ráð fyrir að fara til Eþíópíu til starfa fyrir kristni- boðið. Þá má geta þess, að önnur ung hjón eru í Ósló um þessar mundir við undirbúningsnám til kristniboðsstarfs í Konsó, og standa vonir til þess, að þau geti farið næsta vetur. Eins og kunnugt er stendur Samband ísl. kristniboðsfélaga fyrir trúboðinu í Konsó. Sam- band þetta starfar innan íslenzku kirkjunnar, og, eru í því ýms fé- lög og hópar áhugamanna um kristniboð. Kristniboðssambandið er 30 ára um þessar mundir. Það studdi lengi vel kristniboð í Kína, en þar hafa starfað 2 þjóðkunnir íslendingar, þeir Ólafur Ólafsson og sr. Jóhann Hannesson, pró- fessor. Þegar kommúnistar náðu völdum í Kína, urðu allir erlend- ir kristniboðar að hverfa úr landi. íslenzkum kristniboðsvin- um opnuðust þá dyr til Konsó- þjóðflokksins í Eþíópíu, og hafa þeir nú starfað þar í 5 ár í nánu samstarfi við norska kristniboða, sem eru þar í nágrenninu. Áhugi og skilningur á kristni- boðinu hefur mjög glæðzt hér á landi í seinni tíð. Kristniboðið i Konsó er eingöngu rekið fyrir gjafafé þeirra, sem máhð vilja styðja. í fyrra voru senaar 175 þús. kr. til Konsó, en fyrir þetta fé voru greiddar tæpar 100 þús. kr. í gj aldeyrissls.att. Að auki voru send lyf og sáraumbúðir og ýmis annar varningur. Sumir hafa gefið fatnað — Konsómenn ganga fáklæddir — eða notað lér eft, sem er rifið í ræmur og not- að í sárabindi. Þótt kristniboðið sé tiltölulega nýtt af nálinni með fslendingum, hafa aðrar þjóðir unnið að því árum og jafnvel öldum saman. Árið 1958 töldust vera 38600 karlar og konur starfandi að kristniboði í ýmsum heiðnum löndum. Þeir starfræktu um 2500 sjúkrahús, og leita þangað um 2 millj. sjúklinga árlega. Sjúkra- skýlin eru um 25 þús., og veita þau hjálp 15—20 millj. manna á ári hverju. Skólastarfsemi kristni boðanna er gífurleg. Skólar þeirra eru um 100 þúsund, og eru nemendur um 5 milljónir. Þess má geta, að íslenzk fóstra, Halla Bachmann úr Reykjavík, starfar að kristniboði á Fílabeins ströndinni í Vestur-Afríku. Hélt hún þangað fyrir nokkru á veg- um erlends kristniboðsfélags, er starfar þar meðal frumstæðra svertingja. íslenzk sýning ÍSLENZKA myndlistarsýningin, sem haldiri var í Moskvu í vor og síðan í Kiev og Leningrad, hefur nú verið send til Póllands. Var hún opnuð í Kraká 5. þ.m. Gert er ráð fyrir, að myndirnar verði einnig sýndar í Varsjá. (Frá Menntamálaráðuneytinu).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.