Morgunblaðið - 14.11.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.11.1959, Blaðsíða 12
12 MORCUrUiLAÐIh Laugardagur 14. nóv. 1959 rogtntMftfrifr Úcg.: H.í. Arvakur. Eeykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innanxands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið AUKIN AFKÖST - BÆTT LIFSKJÖR MENN greinir á um, hvort Bandaríkin búi við hið bezta þjóðskipulag. Eng- inn ágreiningur er aftur á móti um það, að engin þjóð búi við betri lífskjör en Bandaríkjaþjóð- in. Sumir segja að svo sé vegna þjóðskipulagsins, aðrir telja, að það sé þrátt fyrir óheppilegt þjóð skipulag. Þeir, sem halda því fram, að það sé þrátt fyrir þjóðskipulagið, sem betri lífskjör séu í.Bandaríkj unum en nokkursstaðar annars- staðar, segja, að það sé hin mikla framleiðsla ein, sem ráði lífs- kjörunum þar. Framleiðslumagn- ið eigi aftur orsakir sínar í auð- æfum landsins og mikilli tækni. Þennan ágreining þarf ekki að rekja lengra. Á hann er drepið hér, vegna þess að hann sýnir hversu fráleit sú kenning er, sem flutt var í Þjóðviljanum í fyrra- dag, þegar um ástandið á íslandi var sagt: „Aukin afköst þýða ekki bætt- an hag verkafólks, heldur meiri gróða til atvinnurekendans". ★ Sú skýring, sem kommúnistar hafa sífellt gefið á því að Banda- ríkjaþjóðin byggi við betri lífs- kjör en aðrir, að það væri vegna þess, að framleiðslan sé þar meiri en annarsstaðar, sannar, að einn- ig þeir verða að viðurkenna, að afkastaaukning, jafnvel þar sem þeir kalla hið mesta auðvalds- þjóðfélag af öllum, kemur verka- lýðnum að gagni. Því fer sem sagt fjarri, að það sé atvinnurek- andinn einn sem græði á afkasta- aukningu og þar með meiri fram- leiðslu. í nútímaþjóðfélagi leið- ir þetta til þess, að verkamaður- inn fær einnig bætt kjör. Þetta á hvarvetna við. í tilvitn- aðri Þjóðviljagrein er um það talað, að með breyttum þjóðfé- lagsháttum mundu verkamenn verða fúsari til þess að léggja meira að sér en áður, af því að þá mundu þeir njóta ávaxtanna af erfiði sínu. Einnig ’sú rök- færsla sýnir, að sjálfir þjóðfélags hættirnir hafa hér ekki úrslita- þýðingu, heldur er það vinnu- semi, afköst og framleiðsla, sem raunverulega ráða því, hver kjör almennings eru í hverju landi. Ef kommúnistar fá ekki verka- lýð, sem undir þá er seldur, til þess að vinna meira en áður og auka afköst sín, þá geta þeir ekki bætt kjör hans. ★ Kommúnistar segja, að saman- burður á milli hinna kommúnisku landa og þeirra lýðræðisþjóða, sem lengst eru komnar, sé ósann- gjarn af því, að kommúnisku löndin hafi verið svo langt á eft- ir, þegar hið nýja þjóðskipulag var tekið upp. Þrátt fyrir mikla vinnu og miklar tækniframfarir eru lifskjörih enn aftur úr í þess- um löndum. Það er m.a. vegna þess, að valdhafar þar þurfa lítt eða ekki að skeyta um óskir fólksins, heldur geta einbeitt kröftunum að tilteknum viðfangs efnum, svo sem geimförum og tunglskotum og þess vegna náð þar skjótari árangri en aðrir. Það er svipað eins og þegar Faróarnir reistu pýramída forðum. Þeir þykja enn á okkar dögum tækni- legt undur, en enginn vildi vera í sporum þess verkalýðs, sem þrælaði til þess að koma upp þeim tilgangslitlu furðuverkum. Þótt segja megi, að stundum sé hæpinn samanburður á milli afkasta og lífskjara hjá þjóðum. sem ólíkt skipulag hafa, þá er hann þeim mun auðveldari hjá þeim lýðræðisþjóðum, sem við hvorttveggja skipulagið búa. Minnkandi hrifning almennings í Bretlandi af þjóðnýtingu á rætur sínar að rekja til þess, að verka- lýður hefur sjálfur séð og fund- ið, að fyrirtæki verður sízt bet- ur rekið, afkastameira né fær- ara til þess að standa undir líf- rænlegum launagreiðslum við það að komast • í eign ríkisins. Það er samanburðurinn, sem fólk ið sjálft hefur getað gert, er þarna ræður úrslitum. ★ Hér á landi hafa margar or- sakir leitt til þess, að lífskjör al- mennings hafa mjög batnað á þessum mannsaldri. Verkalýðsfé- lög og margháttuð samtök al- mennings eiga sinn þátt þar í. Frumorsökin er tvímælalaust aukin afköst, aukin framleiðsla. Kjarabarátta, þar sem þessi grundvöllur gleymist, verður gagnslaus eða verra en það. Ó- mögulegt er að skipta meiru en aflað er. Samtök launþega hér á landi eru svo sterk og óflug, að þeim er treystandi tii þess að sjá til þess, að launþegi fái jafn- skjótt í sinn hlut það, sem hon- um ber af auknum afköstum og vaxandi framleiðslu. En ef geng- ið er lengra í kröfunúm, bá er beint brotið á móti hagsmunum þeirra, sem barizt er fyrir, bá er efnt til greiðsluþrots, sem áður en varir hlýtur að bitna á öllum þeim, sem lifa þurfa af framleiðsl KALDAR KVEÐJUR ÞAÐ voru kuldalegar kveðj- ur, sem Tíminn sendi fyrrverandi utanríkisráð- herra Framsóknar, dr. Kristni Guðmundssyni, er hann á dögun- um hélt til London í því skyni að gegna sendiherrastarfi sínu þar. Tíminn sagði, að „mjög væri ó- klóklega og óheppilega á málum haldið“-með því að láta manninn hverfa aftur til þess starfs, sem hann fær há laun fyrir að gegna. Það er málstaður fyrir sig að halda því fram, að íslendingar ættu að slíta stjórnmálasambandi við Breta vegna framferðis þeirra hér við land. Morgunblaðið er UTAN UR HEIMI Ettir- maður de Caulle? F’F FRAKKAR eru spurðir, hvað gerast muni í mál- efnum ríkisins, þegar de Gaulle er allur, munu flestir yppa öxlum með uppgjafar- svip og gefa þannig til kynna, að hér sé spurt um það, sem ómögulegt er að svara. — Ýmsir hafa þó sínar hug- myndir í þessu efni. Ef gert er ráð fyrir því, að fimmta lýðveldið franska reynist á traustum grunni byggt, þann- ig að það lifi áfram, búast margir við því, að Antoine Pinay, fjármálaráðherra, slíku andvígt en viðurkennir, að viss rök megi færa fyrir því. Hitt er fráleitt að hafa opið sendiráð í London, standa undir sórkostlegum kostnaði af því, hafa sendiherra skipaðan þar á háum launum en láta hann ekki mánuðum eða misserum saman koma til stöðu sinnar. Ef núverandi sendiherra gerir illt verra með því að gegna þeirri stöðu, sem hann er skipaður í, þá er annaðhvort að fá nýjan mann, honum hæfari, til að gegna stöð- unni, eða ‘ leggja stöðuna alveg niður og losna við kostnaðinn af henni. HENRI — greifinn af París verði næsti forseti Frakk- lands. Ýmsar fleiri uppá- stungur heyrast og. • Hvað hugsar de Gaulle Eðlilegt er að spyrja í þessu sambandi: — Hvað hefir de Gaulle sjálfur í hyggju? — Sú saga er sögð — og varla er hún einber uppspuni — að de Gaulle hafi verið spurður að því, skömmu eftir að hann komst til valda 1958, hve lengi hann hefði haft í hyggju að gerast leiðtogi Frakklands á ný — en hann kvað þá hafa svarað: „Að því hefi ég alltaf stefnt“. — Vafalaust er sannleikur í þessu fólginn — og hafi de Gaulle gert sér far um að hugsa „fram í tímann" hing- að til, hví skyldi hann þá ekki einnig gera það, þegar um það er að ræða, hver verða skuli ( eftirmaður hans í forsetastóli? // Fljúgandi salamandra 44 PTÖÐUGT eru að koma fram nýjungar á sviði flugsins. — Þar á meðal er þessi óvenjulega þyrla — sem sumir nefna „fljúgandi salamöndruna“. Hún er framleidd af Westmiflster- verksmiðjunum í Englandi — þ. e. a. s. almenn fram- leiðsla er reyndar ekki haf- in, en hún hefir verið reynd það lengi, að þess mun nú skammt að bíða, að hún komi á markað. — Framleiðendurnir gera sér miklar vonir um þessa þyrlutegund, sem á að geta verið til margra hluta nyt- samleg. Hún mun fyrst og fremst ætluð til flutninga á tiltölulega stuttum vega- lengdum, því að tekið er fram, að hún geti flutt 5 lesta þunga 160 km leið. Hún fer með 180 km. hraða á klst. fullhlaðin. „Húsið“ undir sjálfum búknum má nota hvort heldur er til farþegaflutn- inga (rúmar 25—40 manns) eða sem „færanlegt“ sjúkra- hús, sem mundi t. d. geta komið sér vel í hernaði. — Þetta „hús“ er hægt að taka af með skjótum hætti, og er þá hægt að flytja stór stykki með því að hengja þau neðan á þyrluna milli hjóla. Þeir munu ekki vera svo fáir í Frakklandi, sem telja að Henri de France, greifinn af Paris, sé hvað líklegastur eftirmaður for- setans. Og ýmsir, sem gerst ættu að vita um stefnur og strauma í málefnum ríkisins, munu bæta við 1 hálfum hljóðum, að greif- inn af París sé einmitt só mað- ur, sem de Gaulle hafi helzt augastað á. sem óbreyttur hermaður — árið 1940 og gegndi þar þjónustu um nokkurra ára skeið. Árið 1950 settist hann svo að í Frakklandi, og hefir komið ár sinni vel fyrir borð á ýmsan hátt. — Framan af aldri var hann áhangandi frönsku konungssinnahreyfingar- innar, en árið 1937 losaði hann sig úr öllum tengslum við hana Hvað — og hver tekur v/ð eftir de Gaulle i Frakklandi? Fáir hugsa svo langt, en sumir gera sér ákvebnar hugmyndir............... • Af konunglegum ættum „Greifinn af París" er eng- inn óperettutitill. 1 Frakklandi eru aðalstitlar einveldistímans enn við lýði — og Henri de Franee er beinn afkomandi Louis-Philippe. — Hann hefir hlotið góða menntun og marg- víslega lífsreynslu. Hann fékk t. d. leyfi til þess að ganga í útlendingahersveitina frönsku — og málgagn hennar, hið öfga- fulla „Action Francaise“. • Börnin tólf Hann hefir ýmislegt ritað um stjórnmál og einnig haldið fyrirlestra, sem vakið hafa at- hygli. Þykir hann bera glöggt skyn á þjóðfélagsmál. — Henri de France er mjög efnaður mað- Framh. á bls. 16. Verður hann eftirmaður de Gaulles í forsætisstóli? — Greifinn af París, efst — og börnin lians tólf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.