Morgunblaðið - 22.11.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur 22. nóv. 1959
MORGVNBtAÐIÐ
23
Fiskiðnaða rná mskeið
haldið í Reykjavík
46 þátttakendur víðs vegar af landinu
FYRRA laugardag hófst hér í eyri, 1 frá Húsavík, 1 frá Seyðis-
bænum fiskiðnaðarnámskeið á
vegum sjávarútvegsmálaráðu-
firði, 1 frá Reyðarfirði, 3 frá
Djúpavogi og 1 frá Eyrarbakka.
Kennarar á námskeiðinu eru
neytisins og veitir fiskimatsstjóri, aujj. Bergsveins Bergsveinssonar,
því forstöðu. Þátttakendur eru
46, þar af 5 stúlkur. Námskeiðið
stendur í þrjár vikur og fer fram
daglega verkleg og bókleg
kennlsa.
Bóknámið fer fram í fundarsal
1 Hamarshúsinu. Eru daglega
flutt þrjú erindi um mál er varða
framleiðslu og fiskmat á hrað-
frystum fiski til útflutnings, svo
og mat á ísvörðum fiski áður en
hann er tekinn til vinnslu. Verk-
lega kennslan fer fram í hrað-
frystihúsinu ísbjörninn á Sel-
tjarnarnesi á kvöldin, eftir að
daglegum störfum þar er hætt,
og í hraðfrystihúsi Júpiters og
Marz á morgnana.
Þátttakendur í námskeiðinu
þurfa að hafa unnið við þessi
störf áður og verða m.a. að leggja
fram heilbrigðisvottorð og um-
sögn frá viðkomandi yfirmats-
manni um fyrri störf. Eru þátt-
takendur víðs vegar að af land-
inu, 3 piltar frá Hafnarfirði, 2
stúlkur og X piltur af Seltjarnar-
nesi, 10 piltar og 3 stúlkur úr
Reykjavík, 3 piltar frá Akranesi,
2 frá Grundarfirði, 2 frá Ólafs-
vík, 1 frá Bolungarvík, 3 frá
ísafirði, 2 frá Súðavík, 1 frá Hofs-
ós, 1 frá Siglufirði, 1 frá Ólafs-
firði, 1 úr Hrísey, 3 frá Akur-
yfirfiskmatsstjóra, dr. Sigurður
Pétursson, gerlafræðingur, Sig-
urður Haraldsson, efnaverkfræð-
ingur, Finnbogi Árnason, yfirfisk
matsmaður, Lýður Jónsson, yfir-
fiskmatsmaður, Ólafur Árnason,
yfirfiskmatsmaður, Einar Jó-
hannsson, fiskvinnslufræðingur,
Óttar Hanson, fiskvinnslufræðing
ur, Einar Ingi Sigurðsson, skrif-
stofustjóri, Arnlaugur Sigurjóns-
son, eftirlitsmaður og Guðmund-
ur Jóhannsson, eftirlitsmaður.
Að námskeiðinu loknu geta
þátttakendur starfað við fiskmat
og hverskonar eftirlit með fisk-
framleiðslu, að loknum hæfileg-
um reynzlutíma.
Glæsilegir tónleikar
Deep River Boys
Helgarnámskeið
Sambands ísL ung-
temnlara
SAMBANDIÐ íslenzkir ung-
templarar efnir til svokallaðs
helgarnámskeiðs í ýmsum grein
um félagsmála, dagana 27., 28.
og 29. nóvember n. k.
Á námskeiðinu, sem ætlað er
ungu fólki, verður veitt fræðsla
um fundi og fundastjórn, dag-
skrá funda og skemmtisamkoma,
leiðbeint verður í upplestri og
um framkomu ræðumanna, og
fleira. Leiðbeinendur á námskeið
inu verða Einar Björnsson, full-
trúi, Magnús Óskarsson, Iögfræð
ingur, Guðrún Ásmundsdóttir,
leikkona og séra Árelíus Níels-
son, sem verður forstöðumaður
námskeiðsins.
Námskeiðið hefst föstudags-
kvöldið 27. nóv. kl. 8,30 og verð-
ur leiðbeint til kl. 11 um kvöldið.
Verður svo haldið áfram á laug-
ardag kl. 16,30 og til kl. 19,00,
og á sunnudagskvöld lýkur nám-
skeiðinu með dansæfingu í Góð-
templarahúsinu. ÖUn ungu fólki,
sem áhuga hefur fyrir félags-
starfi, er heimil þátttaka í
námskeiðinu meðan húsrúm leyf
lr. Þátttökugjald er kr. 20,00. —
Innritun fer fram að Fríkirkju-
vegi 11 (bakhúsi), þriðjudaginn
24. nóv. kl. 5—7 e.h.
ÞESSA dagana stendur yfir heim
sókn eins frægasta söngflokks,
sem hingað hefur komið. Eru það
hinir vinsælu söngvarar Deep
River Boys. Þeir eru hingað
komnir á vegum Hjálparsveitar
skáta og rennur allur ágóði
skemmtananna til hinna þörfu
starfsemi þeirra.
Ég get fullyrt, að sú skemmtun,
sem hér er upp á boðið, er með
því bezta, sem gerzt hefur í ís-
lenzku skemmtanalífi. Ágæt
hljómsveit Svavars Gests að-
stoðar negrana við sönginn, en
leikur einnig nokkur lög án
þeirra.
Skemmtunin hófst á að hljóm-
sveitin lék hið vinsæla Red River
Rock en í því lagi naut sín vel
gítarleikur Eyþórs Þorlákssonar.
Er leikur hans öruggur og fágað-
ur. Höfum við þarna eignast gít
arleikara á borð við þá beztu er-
lendis. Deep River Boys koma
dansandi inn á sviðið, frjálsir og
skemmtilegir í framkomu. Eru
þetta þrír söngvarar og píanisti.
Sungu þeir vinsæl amerísk dæg-
urlög, gömul og ný. Var söngur
þeirra og meðferð hreinasta
snilld. Bezt fannst mér þeir
syngja hið gamla, góða lag
Melancholy Baby, en mikla kát-
ínu vakti hin kómiska túlkun
þeirra á laginu Honey ■— Honey.
Píanóleikarinn lék sóló, Tea
for Two, í frumlegri útsetningu.
Er tækni hans afburðagóð og út-
setningin skemmtileg.
Eftir hlé komu fram Jón Val-
geirs og Edda Scheving. Sýndu
þau nokkra dansa við ágætar
undirtebtir. Eyþór Þorláksson
lék sóló á gítar og Reynir Jóns-
son á harmoniku. Var hvort
tveggja prýðisvel gert.
Deep River Boys komu nú
fram aftur. Fyrst röktu þeir sögu
Blues söngvarana, sungu lög og
skýrðu þróun söngsins, hvernig
hann varð til á vörum alþýðunn-
ar, síðar sálmasöngur og loks
einn vinsælasti þáttur jazzins.
Þennan „sögusöng“ færðu þre-
menningarnir fram á áhrifaríkan
hátt og hápunkti náði stemmn-
íslenzku
bræðurnir
í BLAÐINU í gær birtist frá-
sögn, þýdd úr danska blaðinu
Politiken, um þrjá íslenzka bræð
ur, Einarssyni, sem ekki höfðu
sézt um 50 ára skeið, en hittust á
dögunum í Danmörku. — Hinn
elzti bræðranna var nefndur
Carl í hinu danska blaði og „titl-
aður „amtmaður“.
Mbl. hefir verið tjáð, að hér
muni vera um að ræða Karl J.
Einarsson, fyrrverandi sýslu-
mann og alþm. Vestmannaeyja.
Sigtryggur Eyjólfs
son 85 ára
STYKKISHÓLMI: — Sigtryggur
Eyjólfsson, trésmíðameistari í
Stykkishólmi, á 85 ára afmæli í
dag. Hann er fæddur í Gillastöð-
um í Laxárdal, Dalasýslu. For-
eldrar hans voru Ingigerður Sig-
tryggsdóttir og Eyjólfur Skúla-
son. Hann lærði trésmíði hjá
Guttormi í Hjarðarholti og stund
aði þá iðn æ síðan. Hafði hann
meistararéttindi bæði í skipa-
smíði og húsasmíði. Á ísafirði
var hann um skeið við skipa-
smíði, en kom til Stykkishólms
1923 og hefur ætíð verið hér síð-
an. Fyrir nokkrum árum er hann
hættur allri smíði. Sigtryggur er
góður hestamaður og fór orð af
gæðingum hans á þeim tíma sem
hestar voru hvað mest notaðir
hér á landi. — Á. H.
irigin, er þeir gengu fram salinn,
syngjandi „When The Saints Go
Marchin’ in“. Eftir þennan þátt
sungu þeir mörg lög, sem almenn
ingur þekkir vel, m. a. Twilight
Time og „Dry Bones“, en það
lag sungu Delta Rythm Boys hér
á sínum tíma.
Að endingu sungu Deep River
Boys eitt lag á íslenzku við mik-
inn fögnuð. Var það lagið „Far-
maður fæddur á landi“. Náðu
þeir furðu vel tökum á textanum,
en þó vildi hinn erfiði framburð-
ur þvælast nokkuð fyrir þeim.
Hlógu menn óspart, er einn
þeirra söng: „kúna mí heima og
krakana átta, þau kúna á prasa
og hátta.“
Um leið og söngvararnir
kvöddu og gekk einn þeirra að
hljóðnemanum og sagði: Góda
nott, vid koma aftúr í morgun.“
Menn eru eindregið hvattir til
að sjá þessa skemmtilegu lista-
menn, þar eð hér er á ferðinni
eitt það bezta, sem hingað hefur
komið.
Lassi.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
þjóðernissinnanna því yfir dag-
inn eftir, að „Daily Herald“ flutti
fyrrgreinda frétt, að lýðveldis-
herinn hefði aldrei látið sér til
hugar koma annað eins og að
ræna ríkiserfingjanum. — For-
mælandinn sagði: „Ég trúi ekki
þessum sögusögnum. írskir þjóð-
emissinnar mundu aldrei hverfa
að slíkum örþrifaráðum. — Því-
líkt framferði væri í algerri and-
stöðu við þær leiðir, sem hreyf-
ingin hefur alltaf viljað fara til
þess að leysa Norður-írland und-
an yfirráðum Breta — og loks
vil ég bæta því við, að ég trúi
því ekki, að nokkur lýðveldis-
sinni geti látið sér til hugar
koma að ræna litlum dreng“.
— ★ —
Scotland Yard hefur hvorki
viljað segja af né á um sann-
leiksgildi orðrómsins og fréttar
þeirrar, sem „Daily Herald“
flutti. — Talsmaður Scotland
Yard-lögreglunnar sagði m. a. í
þessu sambandi: „Við getúm
ekki sagt neitt frekar um ástæð-
urnar til þess, að sérstakur lög-
regluvörður hefur verið settur
við Cheam-skólann“, — En á
sunnudaginn hafði Scotland
Yard látið svo um mælt, að lög-
regluvörðurinn væri settur vegna
þess, að „óviðkomandi fólk“
hefði sézt í nágrenni skólans.
— ★ —
Hvort ’ sem nokkuð er hæft í
þeim orðrómi, sem gengið hefur
í Englandi undanfarna viku, eða
ekki, má geta þess, að yfirlýst
stefna írsku lýðveldissinnanna og
hins útlæga hers þeirra er, að
sameina írland — með valdi, ef
nauðsyn krefur.
Sigurður Ölason
Hæslarctlarlögmaður
Þorvaldur Lúðviksson
HcraSsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa
Áuslurstræti 14. Sinii 1-55-35
Verzlunarfyrirtæki óskar eftir
Bilreiðastjóra
Uppl. á Hofsvallag. 22. n. hæð t.h. milli kl. 1—3
í dag.
Fokheld íbúð óskast
2ja—4ra herb. íbúð, fokheld eða í smíðum, óskast
til kaups. Góð kjallaraíbúð eða risíbúð, kemur til
greina. Tilboðsendist afgr. Mbl., merkt: „íbúðar-
kaup — 8640“.
Maðurinn minn,
PÁLL KR. JÓNSSON,
Njálsgötu 2, lézt föstudaginn 20. þessa mánaðar. —
Katrín Kjartansdóttir.
Móðir mín,
HREFNA JÓHANNESDÓTTIR,
andaðist í Landsspítalanum 20. nóvember.
Fyrir hönd ættingja.
Hólmfríður Árnadóttir.
Tarðarför konunnar minnar,
JÓRUNNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Akurhúsum, Garði, fer fram frá Útskálakirkju,
þriðjudaginn 24. þ. m. og hefst kl. 13.15 með hús-
kveðju að heimili okkar.
Þorlákur Benediktsson.
Útför
KRISTJÁNS BJARNASONAR
frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, fer fram frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 24. þ. m. kl. 13,30.
Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrún Bjarnadóttir.
Bálför bróður okkar og stjúpföður míns,
GUÐNA G. SIGURÐSSONAR, málara,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. nóvem-
ber kl. 1,30 e. h.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hans skal bent á Rrabbameinsfélagið.
Stefanía Guðjónsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir,
Sigurður Guðjónsson, Haraldur Þórðarson.
Innilegt þakklæti til allra er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför konu minnar,
SIGRÍÐAR ÞORLEIFSDÓTTUR.
Fyrir hönd barna og tengdabarna.
Björn Þórðarson.
Hjartanlegt þakklætisendum vér öllum er auð-
sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför
NIKOLÍNU H. K. ÞORLÁKSDÓTTUR.
Fyrir hönd aðstandenda.
Leifur Guðmundsson.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
HELGU HELGADÓTTUR,
Melahúsi við Hjarðarhaga.
Bjarni Bjarnason,
Aðalsteinn Vigfússon.
Lmilegustu þakkir til allra sem auðsýndu mér
samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns
míns,
KÁRA SIGURÐSSONAR.
Sérstaklega vil ég þakka Karlakór Reykjavíkur,
starfsfólki Útvegsbanka íslands, Magnúsar Víglunds-
sonar h.f. og hraðfrystihúss h.f. Júpeters og Marz.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Guðríður Guðlaugsdóttir.