Morgunblaðið - 26.11.1959, Side 2
2
MORGUNBT AÐ1Ð
Fimmtudagur 26. rióv. 1959
Frjálslegri viðskipti
er kjörordid í Evrópu
STRA’SSBOHG, 25. nóv. NTB-
Reuter. — Ráðherranefnd Hins
sameiginlega markaðar Evrópu
birti í dag ákvörðun sína um að
ráðstafanir hlutaðeigandi ríkja tii
frjálslegri verzlunarhátta skyldu
einnig taka til landa utan svæðis-
ins. í yfirlýsingu, sem birt var í
dag, segir að ríkin sex, að standa
að Hinum sameiginlega markaði,
muni veita öðrum ríkjum sömu
innflutningsívilnanir og þau eiga
Breytingar á rit-
stjórn Þjóðviljans
ÞJÓÐVILJINN skýrir frá því að
gerðar hafi verið breytingar á
ritstjórn blaðsins. Hefur Magnús
Torfi Ólafsson, sem verið hefur
blaðamaður, nú verið ráðinn rit-
stjóri ásamt þeim Magnúsi Kjart-
anssyni og Sigurði Guðmunds-
syni. Þá hefur ívar H. Jónsson
tekið við fréttaritstjórastarfinu
af Jóni Bjarnasyni, sem gerður
hefur verið að ritstjóra frétta-
þátta.
sjálf að njóta hvert gagnvart öðru
eftir 1. janúar lð60.
Umræddar ráðstafanir skulu
ná til allra aðildarríkja Al’þjóð-
legu tollá- og viðskiptanefndar-
innar og nokkurra fleiri landa.
í yfirlýsingu sinni hvetur nefndin
öll önnur ríki í Efnahagssam-
vinnustofnun Evrópu (OEEC) til
að gera svipaðar ráðstafanir. Rík-
in sem til greina koma í sam-
bandi við innflutningsívilnanir
um áramótin, munu einnig njóta
góðs af tóllalækkunum ríkjanna
á Sameiginlega markaðinum, sem
koma til framkvæmda 1. júlí nk.
Slíkar lækkanir kom þó ekki til
greina þegar svo stendur á, að
lækkanirnar mundu leiða til þess
að tollar yrðu lægri en þair eru
milli ríkjanna sex, sem standa að
hinum sameiginlega markaði.
Ný nefnd
Á fundinum í Strassborg urðu
ráðherrarnir ennfremur ásáttir
um að setja á laggirnar nefnd,
sem hafi samvinnu við önnur
Evrópuríki um að kanna mögu-
leikana á því að stuðla enn að
frjálslegri viðskiptaháttum 1
Evrópu og heiminum yfirleitt.
Ónýtu
fleygt af
DÆMI um það hvernig óþurrk-
arnir í sumar hafa leikið bændur
var að sjá í Þingvallasveitinni í
gær. Vegfarendur á leið frá Sogs-
virkjuninni til Þingvalla sáu
hvar fólk frá Miðfelli í Þingvaila-
hreppi var önnum kafið við hey-
vinnu. Það var að aka gulnuðu,
illa förnu heyi á heygrind út af
túnbletti, til að fleygja því. Þar
hefur sjálfsagt verið fleygt 50—60
hestum af ónýtu heyi.
Víða á bæjum þar um slóðir
munu bændur nú vera að losa
af blettum sínum hrakið og ónýtt
hey, þó ekki sé það í eins stórum
stíl og þetta. Og þó heyskapur-
inn hafi verið erfiður þar.náðist
þó nokkurt hey framan af sumri,
og ástandið því heldur skárra þar
um slóðir en þegar kemur austur
í Rangárvallasýsluna og Skafta-
fellssýslur. En heyið er allt frek-
ar lélegt.
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðaður fundur í sam-
einuðu Alþingi kl. 1,30 og að
honum loknum eru boðaðir
fundir í deildum. — A dagskrá
sameinaðs þings eru þrjú mál:
1. Fyrirspurnir:
a. Lántaka í Bandaríkjunum.
Hvort leyfð skuli.
b. Vörukaupalán í Banda-
ríkjunum. — Hvort leyfð
skuli.
2. Byggingarsjóður ríkisins. —
Hvernig ræða skuli.
3. Byggingarsjóðir. — Hvernig
ræða skuli.
Fjögur mál eru á dagskrá efri
deildar:
1. Gjaldaviðauki 1960, frv. — 1.
umræða.
2. Dýrtíðarráðstafanir vegna at-
vinnuveganna, frv. — 1. umr.
3. Tollskrá o. fl., frv. — 1. umr.
4. Bifreiðaskattur o. fl., frv. —
1. umræða.
Á dagskrá neðri deildar eru
tvö mál:
1. Bifreiðaskattur o. fl. frv. —
1. umræða.
2. Áburðarverksmiðja, frv. ____
1. unuæoa.
heyinu
túnunum
Heyið sem feygt var af tún-
blettinum frá Miðfelli, mun hafa
verið slegið seint í ágúst, náðist
þá illa hrakið upp í sæti, og ekki
verið viðlit að hreyfa það síðan.
Er því ekki lengur um annað að
gera en henda því.
Þing Farmanna- og
fiskimannasam-
bandsins
NlTJÁNDA þing Farmanna- og
fiskimannasambands Islands var
sett í gær í Reykjavík. Mættir
eru um 30 fulltrúar víðs vegar
að af landinu. Forseti sambands-
ins, Ásgeir Sigurðsson skipstjóri,
setti þingið með ræðu. Þingfor-
seti var kjörinn Þorsteinn Árna-
son vélstjóri, Reykjavík, og rit-
ari Guðmundur Jensson.
í dag var kosið í nefndir og
byrjað að ræða dagskrármál, en
helzt þeirra eru hafna- og vita-
mál, skipabyggingar, réttindamál
sjómanna, sameining á vélfræði-
kennslu við Sjómannaskólann,
veðurathuganir, landhelgismál,
hagnýt meðferð fiskjar, auk
margra annarra mála.
Búizt er við að þingi ljúki á
laugardag.
Fríverzlunarlöndin bíða átekta
Ríkin sjö sem sömdu um Frí-
verzlunarsvæði Evrópu hafa á-
kveðið að bíða átekta og tillagna
frá Hinum sarrieiginlega markaði,
áður en þau gera ráðstafánir til
að brúa bilið milli þessara
tveggja viðskiptabandalaga í
Evrópu. Þetta er haft eftir góðum
heimildum í London í kvöld. Það
er enn helzta markmið ríkjanna
á Fríverzlunarsvæðinu, að banda-
lögin verði sameinuð, en þau hafa
ekki í hyggju að gera sérstakar
ráðstafanir að svo komnu máli
til að koma slíkri sameiningu til
leiðar. Þessi sjö ríki vilja ekki
gera neitt það, sem síðar kyimi
að torvelda slíka sameiningu, og
þess vegna munu þau bíða átekta.
Hins vegar er því haldið fram,
að ríkisstjómir þessara ríkja
muni kynna sér niðurstöður ráð-
herranefndarinnar í Strassborg
ráekilega, áður en Fríverzlunar-
sáttmálinn verður endanlega stað
festur í byrjun desember.
Tvær ísiisk-
sölur í gær
f GÆR seldu tveir togarar afla
sinn í V-Þýzkalandi. Annar tog-
aranna Svalbakur, seldi í Cux-
haven 136 tonn af ísvörðum fiski
fyrir 108.800 mörk, sem er ágætt
markaðsverð. í Bremerhaven
landaði Þorsteinn þorskabítur
115 tonn og seldi fyrir 86.200
mörk.
ÞORBJÖRN KARLSSON,
verkfræðingur, ritar fróðlega
grein um jarðboranir í síð-
asta hefti Iðnaðamála. Segir
hann m.a. frá því, að fyrir
skemmstu hafi verið boruð
vestur í Bandaríkjunum tæp-
lega 8 km. djúp hola í olíuleit.
Þetta er dýpsta holan, sem
boruð hefur verið og þrisvar
sinnum dýpri en „stóri bor-
inn“ okkar getur borað, enda
er hann af minnstu gerð
þeirra bora, sem notaðir eru
við olíuleit.
En djúpa holan í Texas bar
engan árangur og segir Þor-
björn, að þessi misheppnaða
borun sé dæmigerð fyrir olíu
leitina í dag. Sífellt sé varið
meira fé til borana, en árang-
urinn sé oft lítill sem enginn.
Þessi aukni kostnaður hafi þó
ekki haft jafnmikil áhrif á
olíuverðið og ætla mætti, því
borunartækni hafi fleygt fram
og útlit sé fyrir að borunar-
kostnaður muni jafnvel fara
lækkandi á næstu árum.
í greinínni skýrir Þorbjörn
mismunandi borunaraðferðir
og greinir frá hinum ýmsu
vandamálum, sem við er að
etja í boruninni. Nú eru ýmist
notaðir svonefndir höggborar
eða snúningsborar. Höggbor-
arnir eru eins konar meitlar,
sem gjarnan eru notaðir, þeg-
ar um hörð jarðlög er að ræða,
en snúningsborarnir eru
líkastir venjulegum trébor,
nema hvað vatn, loft eða aur-
leðja er notuð til þess að
þrýsta svarfinu upp úr bor-
holunni.
En mikill jarðhiti getur oft
tafið fyrir boruninni og enda
þótt borinn sé stöðugt kældur
flýtir hitinn fyrir tæringu bor
tækjanna. T. d. hefur 240
stiga hiti verið mældur í 4600
metra borholu í Texas. í
Fróðleg grein um
jarðboranir
Hveragerði segir Þorbjöm, að
hitinn hafi komizt upp í 200
stig í 400 metra dýpi, en 130
stig á sama dýpi í Reykjavík.
Þá segir Þorbjörn: — Vegna
hinnar gífurlegu útbreiðslu
snúningsbora í seinni tíð hafa
kostir höggbora í hörðum
þurrum jarðlögum á meðal-
dýpi fallið í skuggann. í hörð-
um jarðlögum hefur stundum
verið reynt að sameina kosti
þessara tveggja aðferða með
því að byrja með höggbor í
efstu lögunum ,en skipta síð-
an yfir í snúningsborun þeg-
ar dýpra kemur. Hefur sú að-
ferð verið notuð við borun
gufuborsins í Reykjavík og
gefið góða raun.
Hamarborinn, sem er ný
uppfinning, sameinar í einum
bor höggbor og snúningsbor.
Hamarútbúnaðinum er komið
fyrir í venjulegum snúnings-
bor milli álagsstanga og bor-
krónu, sem er fremst á born-
um. Þessi bor líkist venjuleg-
um loftbor ,sem er knúinn af
Þorbjörn Karlsson
Mál drykkjusjúklinga
rædd á bæjarráðsfundi
þessari nefnd eru Kristinn Stef-
ánsson áfengisvarnaráðunautur,
Jónas Guðmundsson skrifstofu-
stjóri og dr. Sigurður Sigurðsson
yfirlæknir. Mun vera ætlunin að
ljúka endurskoðun þessara laga
fyrir lok þessa árs.
Á FUNDI bæjarráðs Reykjavík-
ur á þriðj udaginn, var rætt um
mál nokkurra drykkjusjúklinga,
sem eru á vergangi hér í bænum.
Yfirframfærslufulltrúi hafði
skrifað bæjarráði um bágar að
stæður þessara drykkjusjúkl-
inga. Er um að ræða 10 manns
og munu ástæður þessa fólks
vera þær, að það mun ekki
vera tækt á þau hæli, sem
starfrækt eru fyrir þessa
sjúklinga. Er fólkið á stöðug-
um þvælingi í áfengisleit,
milli þess sem það hefur þak
yfir höfuð sér í fangageymslu
eða fær að vera úti um nætur.
Eru kjör þess hin bágustu.
Iðulega liggur fólk þetta inni í
verkamannaskýlinu.
Nú er verið að endurskoða lög-
in um umferð ölvaðra manna og
drykkjusjúkra. Taldi bæjarráð
að senda bæri nefnd þessari
greinargerð yfirframfærslufull-
trúa um ástæður þessa fólks. í
Fimdiir
kaup
manna
HAFNARFIRÐI — Fyrsti
fundur Kaupmamnafél. Hafn-
arfjarðar á vetrinum verður í
kvöld kl. 8.30. Hann verður
haldinn að Strandgötu 4 (í
húsi Jóns Mathiesens) og með-
al umræðuefna eru trygging-
ar- og verðlagsmál.
Dýpsta borhola
í heimi 8 km.
leðjustraumi í stað þrýsti-
lofts. Hann heggur niður bor-
krónunni 400—1000. sinnum á
mínútu um leið og borinn
snýst 50—100 snúninga á mín-
útu. f sumum hörðum jarðlög
um hefur hamarborinn náð
allt að 10 sinnum meiri bor-
hraða en venjulegur snúnings
bor.
En einn aðalókosturinn við
snúningsborinn er sá, að eft-
ir því sem holan dýpkar eykst
orkutapið vegna núnings bor-
stanganna við holuveggina. í
3 km. djúpri holu tapast t.d.
um 90% af orku þeirri, sem
þarf á yfirborðinu til þess að
snúa borstöngunum í hol-
unni.
Þar af leiðandi hefur miklu
fé verið varið til þess að finna
upp nýjar aðferðir, sem nýta
orkuna betur og gera borun-
ina sjálfa ódýrari.
Hverfilborinn er ein þess-
ara nýjunga. Þar snýst aðeins
borkrónan, sem knúin er með
leðju eða vatni. en sjálfar bor
stangirnar snúast ekki. í Rúss
landi eru menn líka farnir að
nota litla rafmótora til þess
að knýja hverfisborinn — og
eru þessir mótorar látnir
fylgja borkrónunni niður í
jörðina.
Það nýjasta á þessu sviði er
eldborinn, sem er á byrjunar-
stigi í Rússlandi Er bor þessi
líkastur logsuðutæki, sem
bræðir sér göng niður í jörð-
ina. Nefnir Þorbjörn tvo bora
í þessu sambandi. Annar
myndar 2000 stiga hita, hinn
allt að 3500 stiga hita.
30 menn fnrost
í ofviðri
TOKÝÓ, 25. nóv. NTB-AFP: -
30 manns fórust eða er saknað
eftir að flutningapramma og fisk
bát hvolfdi í dag úti fyrir Kyrra
hafsströnd Japans þegar ofviðr
gekk yfir. 1 fiskibátnum voru 21
menn og fóru þeir allir í sjóinn
þegar honum hvolfdi, en björg
unarliði tókst að bjarga sei
þeirra, en átta annarra er sakn
að. Bandarískar leitarflugvéla
voru sendar á vettvang til ai
leita hinna týndu og bjarga þeim
séu þeir enn lífs.