Morgunblaðið - 26.11.1959, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.11.1959, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 26. nóv. 1959 M ORCVNBT AÐIÐ 9 set inn til höfuðborgarinnar eða í allra næsta nágrenni. Einkum urðu um þetta harðar deilur árm 1896 ogl912—14. I>eir, :sem vildu ilytja, töldu, að skólinn kæmist við það í meiri snertingu við hið andlega líf höfuðstaðarins, eink- um háskóla ríkisins og aðrar æðri menntastofnanir, að skólastarfið myndi taka meiri og víðtækari þroska út í höfuðstaðnum, að kennslan myndi verða ódýYari þar, nota mætti söfn og rann- sóknarstofur annarra skóla. A móti Var því haldið fram, að skól- inn þyrfti að hafa mikið land- rými og stórt bú, að því bæri að stefna, að hann yrði sjálfum sér nógur í kennaraliði og tækjum, auðvelt væri að hafa samband við höfuðstaðinn, þegar þörf gerð ist, ódýrara myndi fyrir ríki, svo og nemendur, að hafa skólann í Ási o. s. frv. Hinir síðarnefndu höfðu betur, skólinn var ekki íluttur. Og nú mundi enginn Norðmaður halda því fram, að búnaðarháskóli þeirra væri betur settur í Oslo en í Ási. Allt frá upphafi háskólans í Ási hefur aðsókn þangað verið góð og oftast miklu meiri en hægt var að taka á móti. A fyrra tímabili skólans, 1859—-1897, út- skrifuðust þaðan (úr framhalds- deild eftir 1871) 326 nemendur. Nemendur útskrifuðust annað hvert ár, og voru því að meðal- tali útskrifaðir 19 nemendur hvert sinn eða tæplega 10 að meðaltali miðað við ár. Síðara tímabil skólanS, 1897—1958, hafa útskrifazt alls 1351 búfræðikandí- dat eða að meðaltali um 22 á ári, flest 38 og fæst 6 (enginn 1903). Úr öllum deildum skólans hafa að meðaltali á ári útskrifazt um 50 kandídatar sl. 60 ár (1898 —1957). Þetta sama tímabil var hægt að taka inn í skólann tæpan helming þeirra, er sóttu (49%). Af fyrrnefndum 50 kandídötum árlega eru 22 búfræðikandídatar, 14 skógræktarkandídatar, 6 mælingamenn, 5 garðyrkjukandí- datar og 3 mjólkurfræðikandí- datar. Síðustu árin hefur aðsókn verið hvað mest, og árin 1947— 1956 komust aðeins 31% inn af þeim, er sóttu. Hin síðari ár hafa árlega verið teknir milli 70 og 80 nemendur í háskólann í Ási og nemendur skólans alls verið um eða nokkuð yfir 200. Haustið 1959 voru tekn- ir inn 92 nýir nemendur, og má því að næstunni búast við fjölda þeirra 250—300. Nemendur skólans hafa með sér fjörugt og fjölbreytt skólalíf. Hafa þeir komið upp sérstöku félagsheimili í því skyni ásamt ágætum íþróttavelli! Þar iðka þeir skemmtanir, íþróttir, mál- fundi, fyrirlestra o. fl. Fyrir sérstakan velvilja frá skólanum hafa Islendingar feng- ið aðgang þar, jafnan einn á ári. Mun það upphaflega gert fyrir atbeina þáverandi ritara skólans, Olavs Klokk, en þar hafa íslend- ingar jafnan átt hauk í horni, þar sem Klokk var. Fram til árs- ins 1958 hafa alls 16 Islendingar verið innritaðir í Búnaðarháskól- ann í Ási, þar af 12 í búfræði- deildina og 4 í skógræktardeild- ina. 18 aðrir útlendingar hafa innritazt að Ási frá byrjun fram til 1958. A árunum 1897—1958 úrskrif- uðust frá Ási alls 3062 kandídat- ar, þar af 1351 í búfræði, 873 í skógrækt, 359 í mælingafræði, 279 í garðrækt og 200 í mjólkúr- fræði. Auk þess stunduðu nám við skólann 414 óreglulegir nemendur. Kannsókn 1939—1941 sýndi, að um 90% af nemendum skólans var úr sveit. Árin 1951—1954 var meðalaldur kandídata við burt- fararpróf 28,7 ár. Er það mjög hár meðalaldur. Árið 1955 var athugað, hvaða stöður í þjóðfélaginu kandídatar frá Ási skipuðu, þeir er voru undir 70 ára aldri. Náðist til 953 búfræðikandídata. Skiptust þeir í stöður, svo sem eftirfarandi töl- ur sýna: Atvinnurekendur (bændur o. fl.) 191 = 21,1% Ráðunautar 174 = 18,3% Starfsmenn við búnaðarskóla 124 13,0% Við tilraunir og rannsóknir 75 = 7,9% Starfsmenn Bún- aðarháskólans 67 7,0% í ráðuneytinu og við skyld störf 29 3,0% Hjá bönkum og kornverzlunum 28 . . 2,9% Við einkafyrir- tæki 148 15,5% Ýmislegt (og óvíst) 117 — 12,3% Búnaðarháskólinn hefur nú yfir að ráða landsvæði, sem er 540 ha að stærð, um 130 stærri og minni byggingum, en auk þess búa margir af starfsmönn- um skólans í eigin húsum. Mjólk- urkýr eru um 80, auk geldneyta, sauðfé um 60, hestar 4, gyltur 15—18. Búnaðarháskólinn er vel búinn af söfnum og rannsóknartækjum. Auk þess á hann stórt og gott bókasafn. Árið 1957 voru til í því safni alls um 166.000 bækur og rit, sem klæddu um 2000 hillu- metra. Árlegur vöxtur safnsins er um 70 hillumetrar. Og að síðustu skal svo minnzt á starfsmenn skólans. Þeir voru 1. janúar 1959, sem hér segir: Prófessorar 29 Dósentar 4 Tilraunast j órar 8 Amanuenser 11 Lærðir aðstoðarmenn 26 Bústjóri 1 Kennarar og vísindamenn há- skólans eru þannig 79 að tölu. En auk þess hafa ýmsar vísindastofn- anir landbúnaðarins aðsetur sitt í Ási í meiri eða minni tengslum við háskólann. Þá er fjöldi verka- manna, skrifstofufólks, iðnaðar- manna matreiðslukvenna, lær- linga o. s. frv. alls 282 að tölu, svo að samtals verða starfsmenn háskólans 361, auk um 100 verka- manna, þegar sérstök störf kalla að. Þar að auki eru svo áður- nefndir 85 vísindamenn og aðstoð armenn þeirra, sem eru að meira eða minna leyti tengdir háskólan- um í störfum sínum, en launaðir af öðrum aðilum. Þannig verða þeir, er beint eða óbeint vinna að búnaðarvísindum í Ási allt að 500 talsins og íbúatalan alls hátt á 2. þúsund manns. Frá því að vera lítið meira en eitt stórt heimili 1859 hefur stofn unin í Ási þannig vaxið upp í það að vera allstórt þorp. Það hefur því farið á þann veg, er Bjanes búnaðarmálastjóri mælti eitt sinn í umræðum um flutning háskól- ans til höfuðborgarinnár. Orð hans voru þessi: „Naar Högskolen ikke kan flyttes til byen, maa byen flytte ut til Högskolen". Þannig hafa orð þessa landbún- aðarfrömuðar Norðmanna orðið að veruleika. Það er borgin, sem flutti út að Ási. Þannig er búnaðarháskóli Norð manna í dag. Hann er sjálfura sér nógur í kennslu og rannsókn- um búnaðarvísinda. En hann er í samstarfi við aðra aðila, bæði í borg og sveit. Og þannig mun hann vinna að framgangi land- búnaðarins um ókomnar aldir. Afmælishátíðin var haldin dag- ana 3.—7. september 1959. Fór hún mjög vel og hátíðalega fram til mikils sóma fyrir rektor Wex- elsen og aðra þá, er að henni stóðu. Hinn fyrsta dag voru fyrirlestr- ar hjá nokkrum þeirra, er kallað- ir höfðu verið til heiðursdoktora, og boð hjá rektor. Heiðursdoktor- efmn voru 8 að tölu, 2 frá Dan- mörku, 2 frá Svíþjóð, 1 frá Finn- landi, 1 frá Hollandi, 1 frá Sviss og 1 frá Bandaríkjunum. Næsta dag, föstudag 4. sept., var hátíðin opnuð með virðulegri athöfn í hátíðasal skólans. Var salurinn þéttskipaður boðsgest- um allt að 300 að tölu. Til há- tíðarinnar var sérstakléga boðið fulltrúum frá æðri menntastofn- unum landbúnaðarins á Norður- löndum, Danmörku, Finnlandi, I íslandi og Svíþjóð, en ekki mun j öðrum útlendum mönnum hafa verið boðið að undanskildum heið I ursdoktorunum. Ávörp voru þarna flutt og gjafir afhentar. Frá nágrannaþjóðunum var um að ræða skrautrituð ávörp, en inn- lendar stofnanir gáfu margar peningaupphæðir, og í sumum tilfellum var þar ekki skorið við neglur. Norsku landbúnaðarfé- lögin gáfu 1(4 milljón kr. og rikis stjórnin lofaði jafn hárri upphæð til að reisa af grunni nýja bygg- ingar, þar sem m. a. á að koma fyrir hátíðasal skólans. Norsku áburðarverksmiðjurnar gáfu (4 milljón kr.r frá tveimur stórum fyrirtækjum alls kr. 400.000,00, en auk þess margar minni gjafir. Síðari hluta þessa dags voru fyrirlestrar hjá heiðursdoktúrun- um óg um kvöldið skemmtun 1 félagsheimili nemenda. Laugardag 5. september náði hátíðin hámarki sínu. Konungur og krónprins voru báðir við- staddir. Rektor Wexelsen flutti ræðu og rakti í skýrum dráttum sögu skólans, flutt var drápa til skóians og heiðursdoktorunum 7 að tölu (1 var fjarstaddur) af- hent viðurkenningarskírteini fyr- ir doktorsnafnbótinni. Eins og áður er sagt, hefur norski bún- aðarháskólinn veitt allmörgum fræðimönnum norskum doktors- nafnbót. Voru 17 þeirra viðstadd- ir þessa athöfn. Gengu þeir allir fyrir rektor og fengu sérstök heiðursskjöl afhent. Um kvöld'.ð var veizla fyrir um 250 manns i Akershus-höllinni, þar sem kon- ungur og krónprins voru m. a. viðstaddir. Sunnudag 6. september var við- hafnarguðþjónusta í kirkjunni í Ási, en skemmtun hjá nemend- um um kvöldið. Mánudag 7. lauk hátíðahöldun- um í félagsheimili nemenda, þar sem saman var komið um 500 manns. Önn dagsins hófst á ný við kennslu og rannsóknir, við nám og leiki. Norska þjóðin hafði sýnt, að hún metur mikils búnaðarhá- skóla sinn. og háskólinn mun eftir afmælið koma fram heilsteyptarl og sterkari en nokkru sinni fyrr. ALLT Á SAMA STAÐ Champíon kraflkertin fáanieg í alla bíla. Þaí ftr sama bvaía tftgund bifrftíðar þér eigií, það borgar sig að nota — Champion - bif reiðakortin EGILL VILHJÁLMSSON HF. Laugaveg llö, suni ZZ240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.