Morgunblaðið - 26.11.1959, Page 10
10
MORCVISBLAÐIÐ
Fimmtudagur 26. nóv. 1959
Margt undartegt
í Kjœrböl-málinu
Kaupmannahafnar-
bréf frá
Páli Jónssyni
Kaupmannahöfn í nóvember
„MARGT er undarlegt í Kjærböl-
málinu“, skrifaði hið óháða
danska blað „Information“ ný-
lega. „Undarlegast af öllu er þó
það, að okkur finnst augljóst,
hvað hafi gerst, þegar um yfir-
lýsingarnar frá skipstjórum
Kjærböl
Grænlandsverzlunarinnar er að
ræða. En við sem skrifum í blöð-
in verðum að gæta þess, að það
sem virðist augljóst, verður að
vera lögfræðilega sannanlegt. —
Þess vegna verðum við að taka
á málinu með silkihönzkum, ef
við viljum ekki eiga refsingu á
hættu“.
Tillaga stjómarandstöðunnar
(vinstrimanna og íhaldsmanna)
um að höfða ríkisréttarmál á
hendur Kjærböl, fyrrum Græn-
landsráð'herra, verður að líkind-
um rædd á þjóðþinginu innan
skamms.
Ennþá er ekki fyrirsjáanlegt,
hvort þingið samþykkir eða feiir
þessa tillögu. Ef stjórnarflokk-
arnir standa sameinaðir á móti
• • • M • • -953» -
• * • MBS • • • ESÉ* •
• • • * • • iw •
• *•«■•••■■•
henni, þá nær hún ekki fram að
ganga. Ennþá er ekki afráðið,
hvernig þeir snúast í þessu máli.
Um það eru skiptar skoðamr í
öllum þremur stjórnarflokkun-
um.
Eitt af blöðum stjómarandstöð-
unnar sagði nýlega, að líklega
greiði sumir jafnaðarmenn at-
kvæði á móti tillögunni. Aðrir
þingmenn jafnaðarmanna og flest
ir þingmenn róttæka flokksins og
réttarsambandsins muni ekki
greiða atkvæði, en fáeinir úr
stjórnarliðinu muni sennilega
gera sitt til, að Kjærböl komi
fyrir ríkisrétt.Verði tillaga stjóm
arandstöðunnar því líklega sam-
þykkt. Þetta er þó sem sagt ekki
annað en getgátur. Sem stendur
virðist vera algerlega óvíst um
afdrif þessa máls á þinginu.
Skiljanlegt er, að mótspyrnan
er mest meðal jafnaðramnna, þar
sem flokksbróðir þeirra á þarna
hlut að máli. En þarna kemur
líka annað til greina. Sagt er, að
jafnaðarmenn óttist, að ríkisrétt-
armál á móti Kjærböl skapi for-
dæmi og kunni þannig að stuðla
að því, að H. C. Hansen forsætis-
ráðherra komi fyrir ríkisrétt út
af Blechingberg-málinu.
Eins og áður hefur verið getið
um hér í blaðinu, sagði „Informa
tion“ fyrir skömmu svo frá, að
danskir stjórnmálamenn ræði nú
þennan möguleika. Eitt af blöð-
um stjórnarandstöðunnar, „Dag-
ens Nyheder", skrifaði seinna, að
svo einkennilega standi á, að það
séu stjórnarflokkarnir en ekki
stjórnarandstaðan, sem tali um
þetta. Stjórnarandstaðan hafi
hvorki íhugað né rætt um ríkis-
réttarmál á hendur forsætisráð-
herranum og geri það ekki á
meðan óvíst sé, að hvaða niður-
stöðu umboðsmaður þjóðþingsins
komist. Hann hefur Bleching-
bergmálið til umsagnar. En stjórn
arflokkarnir óttist auðsjáanlega,
að skýrsla hans kunni að verða
forsætisráðherranum óþægileg. í
ljósi þess í'hugi stjórnarflokkarn-
ir afstöðu sína í Kjærbölmálinu.
Verði Kjærböl stefnt fyrir
ríkisrétt, þá veuður það fimmta
ríkisréttarmálið í Danmörku. —
Hinn frægi lögfræðingur A. S.
Örsted, sem var giftur systur
Oehlenschlægers, var fyrsti ráð-
herrann, sem kom fyrir þennan
rétt. Það var árið 1855. Hann
var sakaður um að hafa varið fé
til vígbúnaðar án samþykkis
þingsins, en var sýknaður. Næst-
★
f KVÖLD efnir Gideonfélagið
til Biblíuhátíðar í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík, í tilefni
af að nú er að hefjast úthlut-
un Nýja testamenta í 12 ára
bekkjum í öllum barnaskólum
landsins. Að þeirri úthlutun
lokinni má reikna með, að all-
ir unglingar á aldrinum 12 til
18 ára, eigi Nýja testamenti
félagsins.
Það hefur lengi verið föst
venja Gideonfélaga á Norður-
löndum, að halda árlega Bibl-
íuhátíð ýmist í kirkjum eða
kristilegum samkomuhúsum,
enda fyllilega viðurkennt að
þau starfi í þágu hins kristna
safnaðar.
Gideonfélagið hefur gefið
um 400 hjúkrunarkonum Nýja
testamenti. 1600 eintökum hef
ur það útbýtt á sjúkrahúsum.
Um 1200 Biblíum hefur verið
dreift á hótel, farþegaskip cg
fangahús. Að rúmu ári liðnu
munu um 20 þúsund ungling-
ar hafa eignast Nýja teseta-
menti þess.
Til þess að koma þessu í
verk hefur fámennur hópur
félagsmanna tekið á sig þunga
fjárhagslega byrði, á undan-
förnum árum. Bækur eru dýr-
ar og þær ganga úr sér, eink-
Gideonfélagið hefur gefið nálega átján þúsund unglingum
Nýjatestamenti, þegar lokið er úthlutun þessa árs. — Myndin
er tekin í Melaskólanum í Reykjavík.
Biblíubátíð
anlega á hótelum og sjúkra-
húsum. Þá þarf að koma með
nýjar bækur í stáðinn.
Tilgangur Biblíuhátíðarinn-
ar í Hallgrímskirkju í kvöld
er í og með sá, að kynna al-
menningi starf og framtíðar-
verkefni Gideonfélagsins, í
von um að það veki hjá mörg-
um löngun til að veita því
nokkurn fjárhagslegan styrk
Árleg útgjöld hafa verið 70
til 80 þúsund krónur. Dagskrá
kvöldsins verður fjölbreytt. —
Biskupinn, herra Sigurbjörn
Einarsson, flytur aðalræðuna.
ur í röðinni var Krieger mennta-
málaráðherra, sem var ákærður
1877, af því að hann seldi Tiet-
gen rústir Marmarakirkjunnar.
Seinna sama árið var Hall
menntamálaráðherra stefnt fyrir
ríkisrétt Hann hafði varið of
miklu fé til að reisa nýtt kgl.
leikhús. Viggo Hörup, sem seinna
stofnaði dagblaðið „Politikeri“,
var saksóknari fyrir hönd ríkis-
þingsins í báðum þessum málum,
en báðir ráðherrarnir voru sýkn-
aðir.
Vegna fjárglæfra Albertis var
árið 1909 höfðað ríkisréttarmál
á hendur tveimur ráðherrum,
nefnilega I. C. Christensen, sem
var sýknaður, og Sigurð Berg,
sem var dæmdur í 1,000 króna
sekt.
Ríkisrétturinn er skipaður 15
hæstaréttardómurum og 15 öðr-
um mönnum, sem til þess eru
kosnir af þjóðþinginu. í Dan-
mörku eru ekki til lög um ráð-
herraábyrgð. Er því ekki hægt
að dæma Kjærböl, nema hann
reynist vera sekur við hegning-
arlögin.
Stjórnarandstaðan leggur sem
kunnugt er til, að Kjærböl verði
ákærður fyrir að hafa gefið þjóð-
þinginu villandi upplýsingar, þeg
ar hann vísaði á bug aðvörun
grænlenzka þingmannsins Augot
Lynge, sem taldi vetrarferðir
milli Grænlands og Danmerkur
■■laaansaiignniiKiaiiafliiagi
[ftir Magiuís Björnsson
Hrakhólar og höfuðból hafa að
geyma ellefu þætti um fólk og fyrir
bæri, flest tilheyrandi öldinni sem
leið. I bók Magnúsar kennir margra
og ólíkra grasa, eins og í fyrri
bók hans, Mannaferðir og fornar
slóðir. Yfir grónar traðir gleymsku
og fyrnsku, leiðir höfundurinn per-
sónurnar ljóslifandi fram í dags-
ijósið og kynnir þær þannig fyrir
lesandanum, að hann gleymir þeim
ógjarnan strax.
Bókin er 278 bls. Verð kr. 168.00
BÓKAFORLAG H
ODDS BJÖRNSSONAR
liWiMSMiiWlMBBI—S—I
mjög hættulegar. Þetta gerðist
á þjóðþingsfundi h. 13. man
1957. Danska ríkisstjórnin hafði
skömmu áður ákveðið að láta
smíða nýtt Grænlandsskip, „Hans
Hedtoft", til vetrarsiglinga. Kjær
böl las þá upp á þingfundi yfir-
lýsingu frá skipstjórum Græn-
landsverzlunarinnar þess efnis,
að rétt væri að halda uppi vetrar
siglningum. En Kjærböl nefndi
ekki, að skipstjórarnir höfðu
skömmu áður skrifað undir aðra
yfirlýsingu, þar sem þeir réðu
frá vetrarsgilningum, sérstaklega
ef um farþegaflutninga var að
ræða.
Sagt er, að skipstjórarnir skrif-
uðu undir þá seinni hálfnauðugir,
en gerðu það þó m. a. af þeirri
ástæðu, að þeir óttuðust, að fyrri
yfirlýsingin mundi gera það að
verkum, að nýtt Grænlandsfar
yrði ekki smíðað, og að útgerð
sú, sem Grænlandsverzlunin hef-
ur haldið uppi í tvær aldir, mundi
því leggjast niður, áður en langt
um liði. Grænlandsverzlunin á
nú ekki nema tvö millilandaskip.
Þau eru orðin gömul og endast
ekki mörg ár fram úr þessu.
Aðalatriðið í þessu máli er það,
hvort Kjærböl var kunnugt um
fyrri yfirlýsinguna, þegar hann
svaraði Lynge. Hans C. ChristJ-
ansen, forstjóri Grænlandsverzl-
unarinnar fullyrðir, að svo hafi
verið, en Kjærböl hafi heimtað,,
að henni yrði breytt þannig, að
hún skaðaði ekki skipasmíða-
áform ráðherrans. Tvö vitni, sem
hafa verið yfirheyrð í þessum
mánuði, styðja framburð forstjór-
ans.
Kjærböl segir, að hann hafi að
eins vitaö um seinni yfirlýsing-
una. Sé þetta satt, segir stjórn-
arandstaðan, þá getur það þó
ekki leyst Kjærböl undan ábyrgð.
Honum var að minnsta kosti
kunnugt um, að það var örðug-
leikum bundið að fá þessa yfir-
lýsingu. Hann vissi líka að einn
af skipstjórunum, sem skrifuða
undir hana, hafði opinberlega ráð
ið frá vetrarsiglingum. Þetta á't:
Framh. á bls. 1r