Morgunblaðið - 26.11.1959, Side 15
Fimmtudagur 26. nðv. 1959
M O R C V /V B t;a Ð 1Ð
15
Hrefna Jóhannesdóttir
Akstur
Ungur maður óskar eftir atvinnu við akstur. Er van-
ur stórum bilum. Tilboð leggist á afgr. blaðsins fyrir
laugardag merkt: „Akstur 1919 — 8474“.
Bifreiðaeigendur
fyrirliggjandi Startarar og Dynamoar 6 of 12 volta
í fiestar tegundir amerískra bifreiða.
NOTAÐ — ÓDÝBT
Einnig Felgur á amerískar bifreiðir flestar stserðir.
Bifreiðavarahlutaverzlun
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 — Sími 10600.
Myndin er af Bessa Bjarna
syni í hlutverki vonbiðilsins
í leiknum.
— K.hafnarbréf
Framh. af bls. 10
að vera Kjærböl hvöt til að at-
huga málið nánar. Hann átti
að tryggja sér, að hið raunveru-
lega álit skipstjóranna á vetrar-
siglingunum kæmi fram í þeirri
yfirlýsingu, scm hann las upp á
þingfundi. Stjórnarandstaðan vili
því til vara ákæra Kjærböl fyrir
að hafa vanrækt ráðheraskyldur
sínar, þar sem hann hafi ekki
kynnt sér málið til hlítar, áður
en hann gaf þinginu skýrslu um
það.
Loks er síðasta ákæruatriðið
það, að Kjærböl hafi reynt að
þröngva Palle Brandt ritstjóra
til að hætta að skrifa um, hve
hættulegar vetrarsiglingarnar
væru.
Ef svo kynni að fara, að ríkis-
réttur sýknaði Kjærböl, fyrst og
fremst af því, að engin ráðherra-
ábyrgðarlög eru til í landinu, þá
væntir stjórnarandstaðaon þess,
að forsendur dómsins varpi nýju
ljósi á málið.
— Minning
F. 30. ág. 1890. D. 20. nóv. 1959.
í DAG fer fram frá Fossvogs-
kapellu útför frú Hrefnu Jó-
hannesdóttur, læknisekkju, Brá-
vallagötu 16a er andaðist í Lands
spítalanum 20. þ.m. Hrefna var
fædd í Ólafsvík 30,- ág. 1890.
Voru foreldrar hennar Jóhannes
Stefánsson, verzlunarstjóri, síðar
kaupmaður og kona hans frú
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Hjálmarsen. Systurnar voru
þrjár, Þorstensa, dó ung; og
Soffía, kona Lúðvíks Kristjáns-
sonar iðnaðarmanns hér í bæ, er
hún dáin fyrir nokkrum árum.
Var heimili þeirra Jóhannesar og
Hólmfríðar annálað myndarheim
ili. Hrefiia erfði og tileinkaði sér
hið bezta hjá foreldrum sínum,
vandist snemma á vinnu og
reglusemi, sem kemur sér vel
fyrir alla, ekki síst fyrir hinar
tilvonandi húsmæður.
Hinn 3. okt. 1914 gekk Hrefna
að eiga Árna lækni Helgason,
Árnasonar prests að Kvíabekk í
Ólafsfirði og konu hans Maríu
Torfadóttur Thorgrímsen.
Árni læknir var gáfaður og
glæsilegur hæfileikamaður; var
hann settur héraðslæknir í Höfða
hverfishéraði 1914. Dvöldu þau
hjónin þar til 1924, er Árni var
skipaður héraðslæknir á Patreks
firði 1924. Á Patreksfirði dvöldu
þau þar til Árni læknir andaðist
1943; flutti þá frú Hrefna hingað
til Rvíkur, og hefur dvalist hér
síðan.
Hlutverk héraðslæknafrúnna á
íslandi hefur oftast verið mikið
og erfitt. Þar sem ekki voru
sjúkrahús, þurfti oft að taka
sjúka og slasaða menn á heimil-
ið. Varð þá oft hlutverk læknis-
konunnar að hjúkra hinu veika
fólki. f bví hlutverki naut Hrefna
sín vel að hjúkra og hlúa að
hinum stjúku og bágstöddu. Stöð
ug gestanauð á héraðslæknisheim
ilunum eykur og mjög á störf
húsmóðurinnar.
Þau hjónin voru samstillt í
góðvild, glaðlyndi og gestrisni,
enda oftast gestkvæmt á heimili
þeirra. Ég hefi ekki komið á
mörg heimili þar sem hin sanna
íslenzka gestrisni naut sín betur
en á heimili þeirra, þar var allt
veitt af heilum huga.
Frú Hrefna var sérstæður
persónuleiki, djörf og fáguð í
framkomu, hressandi hlátur
hennar og glaðlyndi gat létt á-
hyggjum og sorgum af samferða
mönnunum, hún var heil og ekk
ert tvískipt, berorð og hiklaus í
tali við hvern sem í hlut átti,
trygglynd var hún og vinaföst
og eignaðist því marga vini, —
slíku fólki er gott að kynnast.
Hrefna Jóhannesdóttir var
kona meðalhá vexti, fríð sýnum
og vel vaxin, svipurinn hreinn
og ákveðinn og var hún höfðing-
leg í framkomu.
Þau hjónin eignuðust fimm
börn: Hólmfríði, tannsmið, er bjó
með móður sinni; Maríu er dó
ung; Áslaugu, gifta Gunnari
Proppe verzlunarmanni; Helga,
verkfræðing, giftan Bryndísi
Þorsteinsdóttur hagstofustjóra
og Jóhönnu er ávallt dvaldi með
móður sinni.
Með Hrefnu Jóhannesdóttur er
horfin góð kona og góð móðir,
sem er sárt saknað af börnum,
barnabörnum, frændum og vin-
um.
Ég kveð hana vinarkveðju með
hjartans þakklæti fyrir mig og
mína, og bið Guð að blessa hana
og hennar fólk um alla tíma, og
gefa henni gleðiríka heimkomu
til landsins ókunna.
Kr. Sv.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sýnir
gamanleikinn Tengdasonur
óskast í 30. sinn í kvöld. —
„Tengdasonurinn“ hefur orð-
ið mjög vinsæll hjá leikhús-
gestum og hefur aðsóknin
verið í samræmi við það.
Húsfyllir hefur verið á
leiknum um langan tíma.
Keilir íær
kraftblökk
AKRANESI, 24. nóv. — Vélbát-
urinn Keilir var í dag að taka
reknetin í land og síðan á að
koma fyrir kraftblökk aftan við
stýrishúsið, samskonar og vél-
báturinn Guðmundur Þórðarson
RE 70 hefur notað með ágætum
árangri til að draga inn nótina.
Framtíðaratvirma
Reglusamur maður óskar eftir atvinnu. Margt kemur
til greina, svo sem afgreiðslu- eða lagerstörf. Tilboð
merkt: „Framtíðaratvinna 1707 — 8624“ sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins fyrir 1. desember n.k.
Sjónvarpstæki
Nýtt sjónvarpstæki með H. F.-tónum til sölu. Upp-
lýsingar í síma 19550 frá kl. 9—5 og í sima 22977
eftir þann tíma.
Eitt herbergi
og eldhús í kjallara í Laugarneshverfi til sölu.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guði. Þorlákssonar
og Guðm. Péturssonar.
Aðalstræti 6, III. hæð (Morgunblaðshúsinu)
Símar 1 20 02 — 1 32 02 — 1 36 02.
í dag verður opnuð ný
SEMDIBÍLASTÖÐ
að Einholti 6 hér í bæ
Önnumst allskonar sendibíla-akstur innanbæjar og utan
SÍMI: 15230
SENDIBIL AR H. F,
Ein.riol.i Ö — Reykjavík