Morgunblaðið - 26.11.1959, Page 16

Morgunblaðið - 26.11.1959, Page 16
16 MORCVNfíLAÐlÐ Fimmtudagur 26. nóv. 1959 Jósef J. Björnsson skólastjóri og alþingismaður 1 DAG eru 100 ár liðin frá fæð- ingu þess merka manns, Jósefs J. Björnssonar. Var hann fæddur að Torfustöðum í Núpsdal í Vest- ur-Húnavatnssýslu 26. nóvember 1859, sonur hjónanna Bjöms Björnssonar og Ingibjargar Hallsdóttur. A 17. ári lagði hann af stað til Noregs og fékk ingöngu í bún- aðarskólánn á Stend skammt frá Björgvin. Var sá skóli 2ja ára skóli og námið bæði bóklegt og verklegt. Jósef tók þaðan burt- fararpróf með ágætiseinkunn og snéri að því loknu til Danmerkur og stundaði þar framhaldsnám í eitt ár. Fór síðan heim til ís- lands og er talið að þá hafi hann verið bezt lærður allra tslend- inga í búnaðarfræðum. Hann var Um tíma við um- bótastörf hjá Einari Guðmunds- syni bónda á Hraunum í Fljót- um. Tók síðan að sér leiðbein- ingar um jarðrækt og áveitur í Skagafirði. Árið 1882 var Bún- aðarskólinn á Hólum í Hjaltadal stofnaður og gerðist Jósef skóla- stjóri hans og var það í það sinn í 6 ár en hætti árið 1888. Aftur tók hann við skólastjórn 1896 og var þá um 6 ára skeið eða til 1902, þegar skólinn var gerður að bóklegum skóla með vetrarkennslu aðeins í stað árs- skóla eins og áður var. En Jósef varð 1. kennari skólans 1902 og hélt því starfi alla tíð til 1934. Bóndi var Jósef um langan tíma alls. Fyrst á Bjarnastöðum í Kolbeinsdal, síðan á Asgeirs- brekku, en lengst á Vatnsleysu í Viðvíkursveit. Stundaði hann bú- skapinn lengi samhliða kennsl- unni við skólann og fór nokkuð oft gangandi á milli sem þó er talsverð leið. Jósef var þríkvæntur og eign- aðist 14 böm. Eru 8 þeirra á lífi og allt hið merkasta fólk. Fyrsta konan var Kristrún Frið- bjarnardóttir frá Fyrirbarði í Fljótum. Misti hann hana í hin- um skæðu mislingum 1882 eftir tæpa árs sambúð. Önnur konan var Hólmfríður Bjorhsdóttir frá Ásgeirsbakka. Lifðu þau saman í farsselu hjónabandi um 10 ára skeið og eignuðust 7 börn. Þriðja og síðasta kona Jósefs var Hildur Björnsdóttir, hálfsystir Hólm- fríðar. Er hún enn á lífi. Allar voru konur þessar mikilhæfar. Er hin síðasta, frú Hildur, sú eina er við hinir yngri nemend- ur Jósefs höfðum kynni af. Og það leyndi sér ekki, að hún er gáfuð kona og fyrirmyndar hús- freyja. Þau hjón eignuðust 6 börh og eru 3 þeirra á lífi. Auk sinna aðalstarfa stundaði Jósef Björnsson mörg önnur opinber störf. Hann var þing- maður Skagfirðinga í 8 ár frá 1908—1916. Hreppstjðri Viðvík- urhrepps 1893—’96, oddviti um skeið. í yfirskattanefnd Skaga- fjarðarsýslu nærri 20 ár; for- maður búnaðarfélaga í Viðvikur- og Hólahreppi lengi og margt fleira. Jósef flutti með konu sinni til Reykjavíkur 1941 og átti þar heima fimm síðustu ár æfinnar umvafinn ást og umhyggju konu og barna og barnabarna. Hann andaðist 7. október 1946 og var jarðaður að viðstöddu fjöl- menni „heima á Hólum“ 17. s. m. — Jósef J. Björnsson var frábær hæfileikamaður og ljúfmenni. Framfaramaður í búnaði. Hug- ljúfur og gestrisinn heimilisfað- ir. Umhyggjusamur og ástríkur eiginmaður og íaðir, merkur al- þingismaður og félagsmálastjórn- ari. Voru allt þetta merkir þætt- ir í lífi hans. En við sem nutum kennslu hans, leiðbeininga og vináttu og þeir voru fjölda margir, við munum hann fyrst og fremst sem slíkan. Hann var brautryðj- andi í búnaðarfræðslu á Islandi og hann stundaði sitt fræðslu- starf á því sviði lengur en nokk- ur annar. Fróðleiksmaður var hann með afbrigðum í öllu sem að búnaði laut, og þekkt var um hans daga, skarpgáfaður og á- gætur kennari, mikill verkmað- ur, ósérhlífinn og hagsýnn í vinnubrögðum. Eg hygg, að hann hefði verið bezt til fallinn að vera prófessor og rannsókn- armaður við stóra vísindastofn- un. Þá hefði hann notið sín bezt. Það er alltaf þýðingarmikið og merkilegt, að renna huganum yf- ir minningarnar um mikilhæfa samfylgdarmenn, sem engar brýr hafa brotið að baki sér, en notið trausts og vinsælda til æviloka. Jósef J. Björnsson var einn af þeim. Og nú þegar heil öld er liðin frá fæðingu þess merka manns, þá geta afkomendur, venzlamenn, nemendur og vin- ir lítið með ánægju til baka yfir sögu hans og hugsað til þessa stórfróða, glaðlynda, skemmti- lega og gáfaða fræðara. Við hljótum að gera ráð fyrir því, að bjart sé í kringum hann á ! hinu æðra tilverustigi. i Jón Pálmason. Kjötsöcj, vigt, áleggshnífur Nú þegar óskast keypt kjötsög, vigt og áleggshnífur. Tilboð sem greini verð og ásigkomulag sendist af_ greiðslu blaðsins fyrir laugardag merkt: „Kjötsög — 8477“. Sendisveinn óskast hálfan daginn ( frá kl. 2—6). Bókaútgáfan Helgafell Sími 16837. U ngling vantar til blaðburða við Lönguhlíð Afgreiðslan — Sími 22480. LANDSHAPPDRÆTTI ^ SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS VINNINGASKKÁ: 1. Rambler-station bifreið model 1959 .. kr. 175.000.00 2. Braun radiogrammofénn .....:.... kr. 19.500.00 3. Góðhestur . Á . kr. 15.000.00 4. Philco kæliskápur HEILDARVERÐMÆTI kr. 315.460,00 Diegið 1. desembei ........ kr. 12.000.00 5. Farmiði Rvík—New York og heim ...... kr. 8.620.00 6. do ....... — . 8.620.00 7. Grundig segulbandstæki ................ kr. 8.500.00 8. Farmiði fyrir 2 m/ Gull- fossi til Kaupmannahafnar ................ kr. 8.440.00 9. Hoover sjálfvirk þvottavél m/ þurrkara . . kr. 8.250.00 10. Pfaff sjálfvirk saumavél í tösku ...... kr. 8.200.00 11. Gólfteppi .... kr. 7.500.00 12. Kvikmyndasýningarvél m/ tjaldi .... kr. 6.000.00 13. Raíha-eldavél kr. 6.000.00 14. Farmiði m/Gullfossi til Khafnar og heim ★ MIÐAR FÁST ENNÞÁ í HAPPDRÆTTIStíiLNJM í AUSTURSTRÆTI - OG í SJALFSTÆÐISHÚSINU RAMBLER ST4TIOM i»59 er stærsti vinningurinn .............. kr. 4.220.00 15. Shellgas-eldavél m/ bakara- ofni og 10 kg .hleðslu ............... kr. 4.100.00 16. Kvikmyndaupptökuvél ............... kr. 4.000.00 17. 14 feta flugustöng m/ hjóli ............... kr. 4.000.00 18. Passap Automatic prjónavél m/ kambi .... kr. 3.410.00 19. Armstrong strauvél ............... kr. 2.950.00 20. General Electric hrærivél ............... kr. 1.150.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.