Morgunblaðið - 26.11.1959, Page 24
VEÐRIÐ
Hvass NA — Hiti 2—5 stig
Biblíuhátíð
Sjá bls. 10.
264. tbl. — Fimmtudagur 26. nóvember 1959
Sjómaður bíður
bana í Bremerhaven
FREGNIR hafa borizt um það
frá hafnarborginni Bremerhav-
en, að þar í borg hafi látizt 1
sjúkrahúsi af völdum slyss Sig-
urður Guðmundsson sjómaður,
skipverji á togaranum Röðli, til
heimilis Efstasundi 79 hér í bæ.
Sigurður heitinn hafði komið
til Bremerhaven í síðustu sölu-
ferð togarans. Hann mun hafa
verið á leið til skips í myrkri, er
hann féll af bryggjunni sem tog-
arinn lá við, og hafði hann feng-
ið mikið höfuðhögg við fallið.
Var Sigurður þegar fluttur í
sjúkrahús meðvitundarlaus. Þar
hafði hann svo legið, að mestu
eða öllu leyti rænulaus' frá því
slysið varð, 11. nóv. og þar til
hann lézt 22. nóv. sl.
Sigurður Guðmundsson sem
var 46 ára að aldri, lætur eftir
sig konu, Huldu Pétursdóttur og
þrjú börn á aldrinu 2—8 ára.
Hús 6 manna fjöl-
skyldu skemmist mik-
ið af eldi
EldsupptÖk’ út frd
rafmagnsofni
ENN varð eldsvoði í fyrrinótt
í Smáhúsahverfinu við Suð-
urlandsbraut. Kom upp eldur
í Iitlu húsi, Suðurlandsbraut
77, og urðu skemmdirnar svo
miklar á húsinu að fjölskyld-
an, hjónin og fjögur börn,
urðu að flytjast á brott úr
húsinu, og stendur fjölskyldan
uppi húsnæðislaus.
1 þessu litla húsi bjó eigandi
þess, Dagur Óskarsson. I húsinu
Feróa-
bannið
staðfest
í SAMBANDI við rannsókn á
máli Olíufélagsins og fyrrum
forstjóra þess, Hauks Hvann-
bergs, hafði verið farið fram
á það við rannsóknardómar-
ana, að Haukur fengi að fara
utan til lækninga. Þessu synj-
uðu rannsóknardómararnir.
Skaut Haukur Hvannberg
forstjóri þá synjun þessari til
Hæstaréttar. í gær kvað
Hæstiréttur upp úrskurð sinn.
Rétturinn staðfesti úrskurð
héraðsdómaranna „þess efnis
a>ð ekki yrði Ieyst af honum
(Hauki Hvannberg) bann það
er áður hafði verið við því
Iagt að hann færi úr lögsagn-
arumdæminu“.
hefur hann lagt stund á bólstrun
húsgagna. Hafði hann verið að
hreinsa til í vinnuherbergi. Þar
stóð rafmagnsofn, og féll ofan á
rauðglóandi vírana ló og kusk,
og gaus þá upp eldur. Dagur
reyndi að slökkva eldinn, en
hann læsti sig óðara um her-
bergið. Dagur fór þá fram í íbúð-
ina, vakti konu sína, Hólmfríði
Jónsdóttur, og börn þeirra fjög-
ur, sem eru á aldrinum 5—11 ára.
Eldurinn ' breiddist óðfluga út
um bólsturunarverkstæðið, en
þar var allmikið af efni til bólst-
urgerðar. Kona Dags fór í síma
og sjálfur fór Dagur að næsta
brunaboða til að kalla á slökkvi-
liðið. Var elduíinn allmagnaður
er slökkviliðið kom á vettvang.
Borið var út úr íbúð fólksins inn-
anstokksmunir og önnur verð-
mæti. Eldurinn komst úr vinnu-
stofunni og inn í eldhúsið, en í
öðrum íbúðarherbergjum urðu
skemmdir af reyk og vatni. —
Verulegar brunaskemmdir urðu
í vinnustofunni, og þar brann og
eyðilagðist allt efni Dags,
húsgagnaáklæði, dýnuhálmur,
gúmmímottur og fleira. Allt var
í vátryggingu hjá Degi, þó ekki
væri það hátt vátryggt.
Er tjón Dags mjög mikið og
tilfinnanlegt, en sjálfur hefur
hann átt við vanheilsu að stríða.
Þúsund kr. hrognakassi
STYRJUHROGN? — Já, gjör-
ið svo vel. — Þetta er rúss-
neski kavíarinn sem kominn
er í nokkrar búðir hér í bæn- kavíarkassa, en í honum eru glasið kostar aðeins 172krónur,
6 glös af styrjuhrognum og
um. Sigurjón Þóroddsson
verzlunarstjóri hjá Silla &
Valda sýnir ungri dömu einn
en ekki 178, eins og talið var
í fyrstu. Nokkur glös höfðu
hann kostar 1032 krónur, þvi selzt í gær.
Hvalkjötið allt ónothœft
til dýrafóðurs
ÞAÐ er komið babb í bátinn hjá
þeim á Dalvík. Fréttaritari Mbl.
á Dalvík, S. P. J., símaði í gær-
kvöldi, að frá því væri horfið að
frysta kjötið til dýrafóðurs. Hafa
dýralæknar er skoðað hafa hval-
kjötið, ekki viljað gefa því til-
skilin vottorð sem fóður.
Það var ekki búið að ganga
alveg frá frystingu kjötsins er
dýralæknarnir komu til þess að
skoða það.
Stúdentafagnaður 30.
nóv. i Sjálfstœðishúsinu
Stúdentafélag Reykjavíkur held-
ur hinn árlega fullveldisfagnað
sinn í Sjálfstæðishúsinu mánu-
daginn 30. nóvember. Ræðu-
maður kvöldsins verður Jón
Pálmason, fyrrverandi forseti Al-
þingis. Þá munu þeir Kristinn
Hallsson söngvari og Bessi Bjarna
son leikari sjá um söng- og
skemmtiþætti. Loks er í ráði að
fram fari rímnasöngur auk hins
almenna söngs, sem er fastur lið-
ur í samkvæmum Stúdentafélags-
ins 30. nóvember. Að loknum
skemmtiatriðunum verður svo
stiginn dans til kl. 3 eftir mið-
nætti. Nánar verður skýrt frá
sölu aðgöngumiða í auglýsingum
frá félaginu.
Hér mun hafa ráðið um, hve illa
tókst til, lítil þekking manna á
sviði hvaladráps sem þessa. I öll-
um hópnum höfðu verið 10—12
kýr og höfðu þær verið mylkar.
Við aðförina að þeim, hafa
skepnurnar orðið svo óttaslegn-
ar, að mjólkin hefur runnið út í
blóðið. Ekki hafði kjötinu af
þessum skepnum verið haldið
út af fyrir sig, er þær voru
skornar, heldur var það látið
fara til frystingar með öðru
kjöti af hvölunum. Við það að
mjólkin rann út í blóðið í kún-
um, hefur það skaðleg áhrif á
kjötið. Af því að ekki var hægt
fyrir dýralækna að greina á milli
þessa skaðlega kjöts og hins, sem
talið var í fyrsta flokks ástandi,
gátu dýralæknar ekki gefið ó-
yggjandi vottorð um gott ástand
kjötsins til dýraeldis.
Þetta gerir vissulega mikið
strik í reikninginn fyrir Dalvík-
inga, sem ætluðu að láta kirkju
sína fá allan ágóða af fyrirtæk-
inu. Þá hefur og komið í ljós, að
ekki verður hægt að nýta beinin
af hvölunum og ekki heldur inn-
volsið. Er búið að flytja beinin
út á Böggviðsstaðasand við
mynni Svarfaðardalsár, og verða
beinin grafin þar, ef ekki tekst
s.ð kveikja í beinahrúgunni og
brenna hana. Aftur á móti er það
komið í ljós að spikið gefur af
sér verulegt lýsismagn. Þó svo
illa hafi til tekist um hvalkjötið,
eru nú uppi ráðagerðir um það,
að láta vinna það í verksmiðju
til mjölframleiðslu, og mun hval-
mjölsframleiðslan hefjast bráð-
lega. —
Dauðaslys
á brezkum togara
við ísland
SKÝRT er frá dauðaslysi á brezk
um togara á íslandsmiðum í síð-
asta hefti af Fishing News. Það
var bátsmanninum Charles Hald-
enby á togaranum Cape Palliser,
sem skolaði út í fárviðrinu á dög-
unum og týndist hann. Hann var
42 ára.
Frá því er greint í fréttinni,
að Haldenby hafi verið veikur.
fyrir. Þegar hann var á togaran-
um Lord Tedder í sumar missti
hann einn fingurinn og hafði
mein hlaupið í handlegginn á
honum. Var hann ekki búinn að
ná sér eftir þáð, þegar hann
skráði sig á Cape Palliser. Hann
var áður fyrr skipstjóri á Fleet-
wood-togurum.
Stjórnarskiptin rœdd
á fundi í Keflavík
FLOKKSRÁÐ Sjálfstæöisflokksins í Gullbringusýslu boðar til
fundar að VÍK í Keflavík í kvöld kl. 8.30 síðdegis.
Ólafur Thors, forsætisráðherra, flytur ræðu um stjórnarskiptin
og viðhorfið í þjóðmálunum.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til að f jölmenna stundvíslega á fundinn.