Morgunblaðið - 28.11.1959, Page 1

Morgunblaðið - 28.11.1959, Page 1
20 siður Yfirlýsing Nehrus; Árás á Nepal er árás á Indland Stefna indversku stjórnarinnar í landa- mœradeilunni hlauf fraust NÝJU-DELHI, 27. nóv. — (Reuter) — N E H R U, forsætisráðherra Indlands, lýsti því yfir í dag á þingfundi, að indverska stjórnin mundi líta á árás á Líkur til Iousnor ,stúldeiiunnur‘ WASHINGTON, 27. nóv. - David J. McDonald, forseti sambands stáliðnaðarverka- manna, lét svo um mælt í dagr, að hann vænti þess, að deila verkamanna og verksmiðju- eigenda leystist á því 80 daga tímabili, sem verkfallsmönn- um var skipað að snúa aftur til vinnu, samkvæmt Taft- Hartleylögunum. McDonald kvaðst vera bjart sýnn á það, að deiluaðilar fyndu leiðir til þess að jafna ágreininginn á þessu tímabili, já, jafnvel innan 60 daga, sagði hann. grannríkið Nepal sem árás á Indland. — Þetta er í fyrsta skipti sem Nehru gefur slíka yfirlýsingu, en hann hefur margsinnis lýst hinu sama yfir varðandi smáríkin Bhut- an og Sikkim. — „Ég geri mér fyllilega ljóst, hvað í þessu felst“, sagði Nehru, „hér tök- um við á okkur mikla ábyrgð“. • Meira en landamæradeila Nehru lýsti þessu yfir við lok umræðna í þinginu um utanrík- ismál, sem staðið hafa í þrjá daga og verið allharðar. — Stefna Nehrus og stjórnarinnar í landa- mmæradeilunni við Kína hlaut þó að lokum traust mikils meiri- hluta þingsins. — í ræðu sinni sagði forsætisráðherrann m. a., að ekki bæri að líta á deiluna við Kína einungis sem landa- mæraþrætur — þar væri miklu meira í húfi. Ef til hernaðarátaka drægi með Kína og Indlandi, væri ekki aðeins Asíu stefnt í voða, heldur friðinum í heiminum öll- um. Því kæmi ekki annað til greina í þessari deilu en að reyna allar leiðir til friðsamlegs sam- komulags, sem færar þættu án þess að skertur væri heiður og réttur Indlands. Framh. á bls. 23. S ' Bjarga kommúnistar sænsku stjórninni? Urslitaatkvæðagreiðsla um söluskatts- frumvarpið á þriðjudag STOKKHÓLMI, 27. nóv. NTB. — í dag fór fram atkvæðagreiðsla í báðum deildum sænska þings- ins um frumvarp stjórnarinnar þess efnis, að lagður skuli á 4% veltuskattur. — I efri deild var frumvarpið samþykkt með 77 at- kvæðum gegn 70, en neðri deild- in felldi það með 117 atkv. gegn 107. — Kommúnistar greiddu at- kvæði gegn frumvarpinu. Samkvæmt stjórnarskránni verður nú að hafa eins konar sameiginlega atkvæðagreiðslu í báðum deildum um málið — þ. e. a. s. hvor deild greiðir atkvæði, en síðan eru þau lögð saman, með og móti. — Mun þessi atkvæða- greiðsla fara fram n.k. þriðjudag. Miklar'umræður urðu um mál- ið í neðri deild, þar sem þeir töl- uðu báðir, Erlander forsætisráð- herra og Straeng efnahagsmála- ráðherra. Einnig töluðu foringjar stjórnarandstöðunnar. — Áður en gengið var til atkvæða, hafði Erlander forsætisráðherra lýst því yfir í báðum deildum, að stjórnin mundi segja af sér, ef frumvarpið yrði fellt. Meðal stjórnmálamanna hér er almennt talið. að kommúnistar muni sitja hjá við atkvæðagreiðsl una á þriðjudaginn, og bjarga þannig stjórninni frá falli, er þeir hafa nú gert kjósendum sínum ljóst, að þeir séu mótfallnir frum varpinu. Augun i þeim logu BÖRNIN eru þegar byrjuð að safna efni í áramótabrennur og hlaða upp bálkesti. — Aug- un í þeim loga af áhuga, svo maður gæti haldið að kvikn- aði í öllu saman, ef neisti hrykki úr þeim í hlaðann. Ljósmyndari Morgunblaðs- ins tók í gær mynd af stráka- hóp, sem var að hlaða upp köst vestan við íþróttavöllinn. Þar var nú líf í tuskunum — enda hrundi kösturinn að minnsta kosti einu sinni, þeg- ar of margir strákar príluðu upp á hann í einu, og skömmu áður en ljósmyndarinn og blaðamaðurinn komu, hafði stór strákur, sem átti þar leið hjá, sparkað í köstinn, svo hann hrundi. En þolinmæði þrautir allar vinnur, og litlu Áframhaldandi aftökur í Ungverjalandi Úr skýrslu Sir Leslie Munros um Ungverjalandsmálin NEW YORK, 27. nóv. SIR Leslie Munro, sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Ungverjalandsmálinu, sagði í skýrslu, sem birt var Alls- herjarþinginu í dag, að sann- anir lægju fyrir um það, að enn væri haldið áfram réttar- höldum og aftökum í Ung- verjalandi í sambandi við uppreisnina 1956, þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagn- stæða. I skýrslu sinni segir Munro einnig, að nýjar upplýsingar beri það með sér, að enn sé hætta á frekari aftökum. — Af opinberri hálfu í Ungverjalandi hafi slíku raunar verið neitað, en ungversku stjórninni væri innan handar að kveða niður allar grunsemdir, ef hún hefði hreinan skjöld — með því að leyfa hon- um að koma til Búdapest til þess að athuga málið milliliðalaust. — Öllum beiðnum þar um hafa ungversk stjórnarvöld hins vegar synjað til þessa. Framh. á bls. 19. strákarnir byrjuðu bara aft-1 ur, iðnir eins og maurar. — Hvað á hann að vera stór þessi? spurði blaðamað- urinn. — Eins stór og hann getur orðið. — Hvað er það stórt? — Alveg upp í himin. — Hvað gerið þið, ef ein- hver kveikir í honum of snemma? — Sá verður laminn — og svo byrjum við bara aftur. __Við höldum vörð við köstinn frá því snemma á morgnana og fram á nótt. Bezt væri aðl það yrði alltaf rigning þangað til um áramót. — Þá getur nú orðið erfitt að kveikja í kestinum að lok- um. — Við hellum benzíni á allt ( saman, eða fáum okkur blás- ara. Já, það er enginn skortur á hugmyndaflugi á þessum aldri. — Þið eruð þarna með þrjá dívana. — Já, það er hætt að sofa á þeim. — Ég er orðinn leiður á ykkur, sagði einn snáðinn. Og þá var ekki um neitt að ræða fyrir ljósmyndarann og blaðamanninn að hypja sig — og gefa snáðunum vinnufrið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.