Morgunblaðið - 28.11.1959, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.11.1959, Qupperneq 11
10 MOHCTJISBT AÐ19 Eaugaraagur 28. n<5v. 1959 Laugardagur 28. nov. 1959 M OBTiTJNB t~A Ð1Ð 11 líJiMaMtS* Thg.: H.f. Arvakur Reykjavik. Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinssoa. « Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands. I lausasölu kr. 2.00 eintakið ÞJÓÐNYTINGARSTEFNA EÐA FRJÁLST EFNAHAGSKERFI Léleg lífskjör í Sovét. SÍÐASTLIÐINN miðviku- dag var rætt um það hér í forystugrein blaðsins, að í mörgum löndum hefðu helztu formælendur þjóðnýting- ar nú komizt að þeirri niður- stöðu, að sú stefna væri orðin úrelt. Af þjóðnýtingarmönnum, sem svo mætti kalla, munu það hafa verið jafnaðarmenn á Norður- löndum, sem fyrstir áttuðu sig á, að þjóðnýting í stórum stíl myndi ekki geta samrýmzt frjálsu skipu- lagi. En áfram var talað um ríkis- eign á stærstu atvinnufyrirtækj- unum og voru t. d. jafnaðarmenn í Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi mjög fylgjandi þeirri stefnu. En nú hafa gerzt þau miklu tíðindi að þýzkir jafnaðarmenn hafa fallið frá þjóðnýtingarstefnunni og fréttir herma, að mikill meiri- hluti innan brezka Verkamanna- flokksins vilji gera slíkt hið sama. Dregið úr deilum A Vesturlöndum hefur undan- farið dregið mjög úr deiluni um grundvallarskipulag þjóðfélags- ins og er líklegt að þær verði enn minni í framtíðinni. Sú grundvallarstefna, sem hefur sigrað, eða er að sigra í þessum löndum er frjálslynd stefna, sem byggir á frelsi einstaklingsins, verndun eignaréttarins, sam- hjálp þeim til handa er við erfið- leika eiga að stríða hverju sinni og sem jafnastri aðstöðu til menntunar og annars, er þarf til þess að njóta þeirra gæða er lífið hefur upp á að bjóða. Sigur þessarar stefnu hlýtur að vera alveg sérstakt gleði- efni þeim íslendingum, er hafa fylgt Sjálfstæðisflokkn- um að málum, því að líkur benda til að hann hafi fyrstur allra hægriflokka mótað þessa stefnu í höfuðdráttum. Villa kommúnista Aðurnefnd forystugrein Morg- unblaðsins gefur Þjóðviljanum tilefni til hugleiðinga sl. fimmtu- dag, er hann nefnir: „Gróðastefn- an hefur tapað“, og þar segir meðal annars, að það hafi sann- azt síðustu árin, að áætlunar- búskapur og sósíalismi (þ. e. kommúnismi) hafi algera yfir- burði yfir auðvaldsrekstur, eins og komizt er að orði. Sönnunin á að vera fólgin í því, að sögn Þjóðviljans, að framleiðsluaukningin og fram- farir á sumum sviðum tækni og vísinda hafi verið örari í Sovét- ríkjunum, en í öðrum löndum á undanförnum árum. 1 Þýzkalandi Hitlers voru tækniframfarir á sumum sviðum miklu meiri en annars staðar, fyrst og fremst að því er snerti hemaðartæki, svo sem flugvélar. Allar líkur benda til, að þess- ari samstilltu hernaðarvél hefði tekizt að leggja undir sig allan, eða nær allan, hinn gamla heim, ef Bandaríkin hefðu ekki lent í heimsstyrjöldinni. Ef þetta vit- firringslega áform hefði heppn- azt, mætti segja að það hefði ver- ið mikið tæknilegt afrek, en hefði það sannað yfirburði naz- ismans? — ☆ Þiíi þýzkii stríðsglæpamenn eru enn í haldi i Spandan-fangelsinn í Beilín — haia „setið inni“ í 13 di. — Nú ei búizt við, að þessir „dýrastn iangoi heimsins" veiði biótt lótnii lonsii.... ☆ Kaldur v. Srhirarh Almenningur í kommúnista- ríkjunum býr við fullkomið ó- frelsi og léleg lífskjör. En jafn- vel þótt hann ætti að búa við miklu betri efnaleg gæði en al- menningur í Vesturlöndum, þá vildum við vissulega samt ekki skipta, því góður efnahagur er mikilvægur, en frelsið er ómet- anlegt. Því miður skilur víst varla nokkur þessa staðreynd til fulls, nema hann hafi sjálfur misst frelsið. Og því miður mun rússneska þjóðin ekki hafa fullan skilning á mikilvægi frelsisins, því að hún hefur verið kúguð frá örófi alda. Ungverjar og Pólverjar vita aft- ur á móti betur, hvað þeir hafa misst. . Oft er talað um vaxandi fram- leiðslumátt Sovétríkjanna, og ber sízt að gera lítið úr honum. Ef hann kæmi fyrst og fremst hin- um almenna borgara til góða, þá væri það mikið gleðiefni. Fram- farirnar þar hafa orðið í þjóð- skipulagi, sem vissulega tryggir ekki hámark afkasta þar sem það byggir ekki fyrst og fremst á sjálfsbjargarviðleitninni, sem er sterkasta framfaraafl mannsins. En þetta þjóðskipulag beinir framleiðslugetunni í þær áttir, er valdhöfunum sýnist hverju sinni, og þvingar fram þann spamað, er nauðsynlegur er til að ná miklum árangri á afmörk- uðum sviðum. Frelsið er ómetanlegt Ef þetta er borið saman við íslenzka þjóðfélagið, þá er mun- urinn mikill, því að hér verða allar framfarir íbúunum strax til gagns í bættum lífskjörum. Allar líkur benda til, að heildar efna legar framfarir hafi orðið miklu meiri á Islandi, það sem af er þessari öld heldur en í Rússlandi á sama tíma. Þar að auki njót- um við svo ómetanlegs frelsis, sem meðal annars hefur haft þau áhrif, að ef samanburður er gerð- ur á breytingunni á lífskjörum fólksins, þá er hann okkur marg- faldlega í vil. Þeir sem álíta að hér hafi verið of djúpt tekið í árinni, ættu að hugsa til þess, að ef almenning- ur á Islandi byggi í svipuðu hús- næði og almenningur í Rúss- landi, þá hefði það kostað miklu minna, en það húsnæði, er við búum nú í. Mismunurinn hefði án efa nægt til þess að byggja hér mörg orkuver og stórverk- smiðjur. En hvers virði er slíkt strit og sjálfsafneitun, þegar það er ekki til annars en að efla mátt valdhafanna? Mörg fleiri dæmi mætti taka um það, hvernig hægt hefði verið að verja fjármagni þjóðarinnar á annan hátt en gert hefur verið, og eðlilega má gagnrýna ýmislegt af fram kvæmdum okkar síðustu ára- tugina. En við höfum líka frelsi til að mynda okkur skoðanir. Við skulum keppa af öllum mætti að efnalegum framförum, en frelsinu meg- um við aldrei glata. Hafa þeir hlotið næga refsingu? ERLEND blöð hafa undan- farið skýrt frá því, að allar líkur bendi nú til, að „dýrustu fangar heimsins" — þeir þrír af stríðsglæpa- mönnum nazista, sem enn eru hafðir í haldi í Spandau- fangelsinu í Vestur-Berlín — verði látnir lausir áður en langt líður, jafnvel innan útnefndur var eftirmaður Hitlers á síðustu dögum stríðsins, er nú búsettur í Hamborg, lifir af lítilfjör- legum styrk frá ríkinu — og er að skrifa endurminningar sínar. Hann er nú 68 ára gamall — var leystur úr haldi 1956 eftir 10 ára fanga- vist. —- Von Neurath, sem aðstoðarmenn við ýmis störf, fyrir „stríðsglæpi og afbrot 3 yfirumsjónarmen 1 og 14 gegn mannkyninu“. hreingerningakonur. Þar við bætist stjórnarnefnd fang- elsisins, sem tekur laun, er svara um 600.090 ísl. kr. á ári — og hervörðurinn sem sífellt stendur vörð við Spandau, en hann er „lagð- ur til“ af hernámsveldunum fjórum til skiptis, Banda- ríkjunum einn mánuð, síðan Rússum o. s. frv. — Ekki ber þeim blöðum, sem frá þessu hafa sagt, saman um heild- arkostnaðinn af hinni ein- stæðu fangagæzlu. Sum þeirra segja, að kostnaðurinn nemi sem svarar 1,2 millj. isl. kr. á ári í heild — önn- ur, að hver fangi kosti 2 milljónir á ári. Og svo eru ýmsar upphæðir þar á milli. — Hvað, sem rétt er, má ljóst vera, að kostnaðurinn hlýtur að vera gífurlegur. Ferilskrá hinna þriggja dýru fanga er í stuttu máli þannig. fárra vikna. Talið er víst, segja blöðin, að þessir menn verði a. m. k. búnir að fá frelsi sitt, áður en fundur æðstu manna austurs og vesturs verða haldnir. — ★ — Rússar hafa nokkrum sinn um stungið upp á því, að fangarnir þrír verði látnir lausir, eða fluttir til Vestur- Þýzkalands. — Ekki mun verða hjá því komizt að gera einhverja breytingu á högum þeirra, ef að því kemur, að Rússar hverfi með hersveit- ir sínar frá Berlín, því að samningur er milli hernáms veldanna um gæzlu fang- anna. Nokkuð er víst, að borgarstjórn Vestur-Berlín- ar mundi undir öllum kring umstæðum fagna því, ef þess ir þrír dýru fangar væru látnir lausir, eða a. m. k. fluttir úr borginni. ý Þrír af sjö í Spandau-fangelsinu sitja þeir enn, Rudolf Hess, Bald- ur von Schirach og Albert Speer, en fjórir nazistafor- ingjar, sem dæmdir voru um leið og þeir, hafa verið látn- ir lausir, þar sem þeir voru svo farnir að heilsu, að ekki þótti verjandi að halda þeim lengur í fangelsi. Dönitz flotaforingi, sem um skeið var utanríkisráð- herra Hitlers og síðar bar titilinn „verndari Bæheims", lézt árið 1956, en hafði tveim árum áður verið leystur úr haldi. — Walter Funk, efna- hagsmálaráðherra Hitlers, fékk frelsi sitt 1957. Hann er nú 68 ára gamall og á heima í Frankfurt. Heilsa hans er ekki upp á marga fiska, en þó berst hann stöð- ugt fyrir því að fá aftur um- ráðarétt yfir fyrri eignum sínum. — Raeder flotafor- ingi, sem sleppt var úr fang elsinu eftir að hafa „setið inni“ í 8 ár, er virkur með- limur í ýmsum samtökum uppgj af ahermanna. ý Hver er kostnaðurinn? Þeir þrír, sem eftir eru í Spandau — Hess, „staðgeng- ill foringjans", „æskulýðs- t „Staðgengillinn" • Rudolf Hess, 65 ára. — Hann varð snemma einn af nánustu samstarfsmönnum Hitlers. Var útnefndur stað- gengill foringjans. — Hann fylgdi Hitler í blindni og var oftast nálægur, þegar úrslita ákvarðanir voru teknar. — Segja má, að hann hafi gegnt næstæðstu stöðu þýzka rík- isins, þar til hann fór til Skotlands árið 1941. — Sú var ástæðan til þeirrar ferð- ar, að Hess taldi möguleika á því að sameina Breta og Þjóðverja gegn Sovétríkjun- um, ef hann fengi að flytja mál sitt milliliðalaust við brezka ráðamenn. En enginn vildi hlusta á hann. — Hann var tekinn fastur og var í haldi til stríðsloka í „Tower of London“. Við réttarhöldin í Núrn- berg gerði Hess sér upp minnisleysi og kom undar- lega fram á ýmsan hátt — og gerir það enn. — Meðfangar hans, sem látnir hafa verið lausir, halda því fram, að ý „Æskulýðs- leiðtoginn“ • Baldur von Schirach, 52 ára. — Hann var einn helzti skipuleggjari Hitlers- æskunnar svonefndu. Var útnefndur landstjóri nazista í Austurríki. Hann var ekki dæmdur fyrir það að hafa alið æsku lands síns upp í umburðarlausum hernaðar- anda, heldur eingöngu fyrir Gyðingaofsóknir í Vínar- borg. — Hann var kvæntur Henriette, dóttur Heinrich Hoffmans, einkaljósmyndara Hitlers. Þau eru nú löngu skilin, en hún og börn þeirra berjast þó stöðugt fyrir því, að hann verði látinn laus. — Hann eyðir tímanum einkum við að lesa barnabækur. Fað- ir hans heimsækir hann öðru hverju — og þegar hann sagði syni sínum fyrir nokkru, að hann væri orðinn hvítur fyrir hærum, varð Baldur von Schirach undr- andi og skelfdur — hann hafði ekki litið í spegil í mörg ár. — Fyrir 2—3 árum erfði von Schirach miklar fjárfúlgur frá ættingja, sem búsettur var í Bandaríkjun- um — en peningarnir eru „frystir" og koma honura að engu gagni. — Baldur von Schirach var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir „afbrot gegn mannkyninu“. t ,,Húsameistarinn“ • Albert Speer, 54 ára. — Hann er húsameistari að Albert Speer 1945 gerði Speer sér ljóst, að styrjöldin var Þjóðverj- um töpuð — og þá reyndi hann að bjarga því, sem bjargað varð. Honum tókst til dæmis að forða nokkrum frönskum þrælum Þjóðverja frá pyndingum og bráðum bana — og að forða mikil- vægum framleiðslutækjum frá eyðileggingu. — Enda þótt hér hafi sjálfsagt verið um að ræða „tækifærispóli- tík“, hefir þessi stefnubreyt- ing eflaust verið færð tekna- megin hjá Speer við réttar- höldin í Núrnberg. En þrátt fyrir það var hann dæmdur fyrir „stríðsglæpi, glæpi gagnvart mannkyninu al- mennt — og þrælahald“. — En hann slapp þó með 20 ára fangelsi. — Hann „drep- ur tímann“ með því að gera teikningar að hinum og þess um byggingum. — Hann hef- ir neitað að borða með von Schirach, þar sem honum er ofraun að horfa upp á eymd þessa félaga síns. ý Ströng varzla Fanganna þriggja er gætt af mikilli nákvæmni, eins og sést af því, sem fyrr er sagt. Það má ekki færa þeim nema tvær bækur á mánuði. Aftur á móti mega þeir fá eitt dag- blað á degi hverjum, en úr því er klippt allt það, sem hægt er að flokka undir stjórnmál. Þeir mega skrifa eitt bréf á mánuði — og fá eitt bréf í viku. Ættingjar og vinir fá að heimsækja hina „dýru fanga“ einu sinni á tveggja mánaða fresti — hálftíma í senn. — í 9 varð- turnum á múrnum umhverf is fangelsið eru alltaf her- menn á verði, sem hafa 'vak leiðtoginn" von Schirach og hann sé algerlega sturlaður. Speer, fyrrverandi vopna- og vígbúnaðarmálaráðherra — eru oft nefndir „dýrustu fangar heimsins", og má það víst til sanns vegar færa. — Augljóst er, að það hlýt- ur að vera dýrt spaug að halda þrem mönnum í fang- elsi, sem getur tekið 300 fanga. — Starfsliðið er eftir- farandi: 10 fangaverðir, 11 matsveinar, 14 vikapiltar og Sennilega er það rétt — og ef til vill hefir hann misst vitið, áður en hann hlaut dóm sinn — þ. e. þegar hann var fangi í Tower of London. Hann skríður um á fjórum fótum eins og dýr, segja fangaverðirnir, — og vill ekki hafa neitt sam- band við meðfanga sína eða umheimin. — Hess var dæmdur í lífstíðarfangelsi menntun. — Varð ungur á- hangandi nazismans, og frá árinu 1933 fékk hann hvert embættið öðru meira. — Hann var skipaður vopna- og vígbúnaðarmálaráðherra árið 1942. — Snemma á árinu I sumardölum andi auga meo föngunum, þegar þeim er hleypt út í garðinn. — Tíundu hverja mínútu eiga þessir varðmenn að styðja á bjölluhnapp, svo að varðstjórinn geti verið þess fullviss, að þeir séu vakandi á verðinum. Hannes Pétursson: í sumardölum. Ljóð. 79 bls. Helgafell og Almenna bókafélagið (nóvember- bók), Reykjavík 1959. ÖNNUR ljóðabók Hannesar Pét- urssonar, „í sumardölum", ber nafn með rentu. Hún er full af sumarangan, lífsjátningu og lífs- nautn, ást á öllu sem lifir á þess- ari jörð: „Jörðin er allt og miklu meira en nóg / ef mennirnir kynnu að lifa“. „Jörðin er bikar sætleikans sem ég girnist, / míns svaladrykkjar“. Stefið um sum- arið og jörðina er leikið í ýms- um tilbrigðum, en stefið um dauðann og vagnhljóð stríðsguðs- ins heyrist eins og viðlag leikið á lágfiðlu eða selló. Því er ekki að leyna, að Hannes nær fyllri og þróttmeiri hljómi úr lágu tón. unum, þó þeir hærri séu honum kannski meir að skapi. Ljóðin í þessari bók bera tals- vert annan svip en ljóðin í „Kvæðabók" hans, sem kom út fyrir fjórum árum. Þau eru per- sónulegri, opinskárri. en eiga hins vegar ekki í heild þá full- komnun formsins sem einkenndi fyrri bókina.Hins vegar eru þau nærgöngulli við lesandann, krefj ast meiri alúðar af honum, rík- ari tilfinningar. Ef gera ætti sam anburð á bókunum, mundi ég segja að ,.Kvæðabók“ væri gott dæmi um leikni og formgáfu skáldsins, en ,,í sumardölum" væri játningabók hans, árangur aukins þroska og dýpra innsæis í mannleg kjör. Slíkur samanburð- ur er aldrei fullkomlega réttmæt- ur eða sanngjarn, en hann gefur kannski til kynna höfuðmuninn þessum tveim verkum hins unga skálds. Seinni bókin túlkar á dýpri og samræmdari hátt við- horf hans til lífsins, hún hefur sterkari heildarsvip og flytur beinni boðskap. Blærinn 'á þessari bók er blár og hreinn, ef svo má til orða taka Það er eftirtektarvert að algeng- ustu lýsingarorðin í ljóðunum eru „blár“ og „hreinn", en nafn- orðið sem oftast kemur fyrir er „ilmur“. Satt að segja virðist ilmanin vera næmasta skilningar vit skáldsins. Hannes Fétursson Bókinni er skipt í fjóra megin- kafla: í faðmi sólarinnar, Ástir, Sumardalirnir munu blikna og Söngvar til jarðarinnar. Síðasti kaflinn, sem er flokkur 12 ljóða, er þeirra jafnbeztur og áhrifa- ríkastur. Þar eru nokkur þau ljóð sem Hannes hefur bezt ort: „Undarleg ó-sköp að deyja“, „Handan við lífið er ekkert, ekkert“ og „Bezt eru vorin“. 1 þessum ljóðaflokki vekur skáldið upp bernskuminningar úr Skaga firði, þegar vit hans voru næm og opin fyrir yndisleik náttúr- unnar, og vefur inn í þær hug- leiðingum um lífið og dauðann. Andstæðurnar verða sterkar og áhrifamiklar. Ljóðin um dauð- ann örva lífsskynjunina í náttúru ljóðunum, en þau síðarnefndu gera aftur dauðakenndina sann- ari og sárari. Um fyrsta kafla gegnir svipuðu máli og þann síðasta: Ljóðin um dauðann eru máttugust: „Höllin“ og „í kirkjugarði". Samlíkingar í þeim eru hnitmiðaðar og lífræn- ar. Önnur ljóð í þessum kafla, sem mér urðu minnisstæð, eru „Þegar dagurinn hljóðnar", „Kristallar", „Orðin sem ég aldrei finn“ og „Talað við laufg- að tré“. Þau eru heilsteypt og mjög myndræn, sem er höfuð- prýði skáldskapar. Fjögur ljóð í þessum kafla skera sig úr Ijóðum bókarinnar að því leyti, að þau eru skilgetin afkvæmi 20. aldarinnar: „Kreml“, „Líkbrennslustöðin í Dachau“, „Flugvélar“ og „Geimflaugar“. Af þeim er fyrstnefnda ljóðið at- hyglisverðast, mjög frumleg og hvöss ádeila, en kannski í bein- skeyttara lagi, þó fæstir mundu neita því að hún styðjist við staðreyndir sögunnar. „Lík- brennslustöðin í Dachau“ dreg- ur upp nýstárlega mynd, en ekki nægilega sannfærandi: skáldið er of hlutlaust gagnvart efninu eða kemst ekki í samband við það, ljóðið verður hugleiðing fremur en upplifun. Af þessum fjórum ljóðum er „Kreml“ eina „játningaljóðið“ og nær fyrir vikið sterkustum tökum á lesand* anum. Miðkaflarnir tveir eru mátt* lausari en fyrsti og síðasti kaflú Ástaljóðin eru átakalítil þó mörg séu þau haglega smíðuð, eins og t.d. „Á bláum skógum draum- anna“. Beztu ástaljóðin eru tví- mælalaust ,,Þú varst mér ofjarl“, „Vísur um rjóðan munn“ og „Vínlönd", öll snjallar smámynd- ir. Þriðji kaflinn, „Sumardalirnir munu blikna", hefst á hljóm- fögru og lýrísku ljóði, „Þú spyrð mig um haustið", sem ætti að ná svipuðum vinsældum og „Hjá fljótinu" á sínum tíma. önnur góð ljóð í þessum kafla eru „í veizlulok" og „Fyrsti snjór“, en annars er kaflinn furðúþunnur. Hannes Pétursson er eitt þeirra nútíðarskálda, sem vefa saman gamalt og nýtt í ljóðformi sínu. Hann notar yfirleitt háttbundna rrynjandi, en gefur henni sinn eigin blæ og beitir ósjaldan því bragði að rjúfa hana, skipta um hljómfall, sennilega til að forða lesandanum frá að gleyma sér 1 sönglanda alltof taktfastrar hrynj andi. Dæmi um þetta er t.d. ljóð- ið „Haustvindurinn séður J anda“: Hvaðan ber þig vindur? Þitt vota hár flaksast. Valdirðu leið um úrg fjöll og sjó? Hvar brast undir þínum fingrum fiðlan mjúka? Þú fellir hljóð tár yfir mó. Hvar tæmdust ilmkerin þungu, þau sem þú barst þegar þú komst hér í vor —> yfir bláa hnjúka? Ljóð Hannesar eru flest mynd- rík og víða er hann alldjarfur i táknmáli, en samlíkingar hans eru skýrar og „hreinlegar", eins og hann mundi sennilega orða það. Ljóð hans eru hvorki tor- skilin né margræð, þau „liggja í augum uppi“. Þau eru öllu helzt vitræns eðlis, en næm tóngáfa skáldsins gefur þeim hljómfeg- urð. Honum er tamt að nota sjaldgæf og jafnvel fornfáleg orð, og stundum er orðalagið dálítið Framh. á bls 18. Gamli bærinn í Odda, sem séra Matthías bjó í árin 1880—1887. — Hann var rifinn 1890. f BÓKINNI „Bréf Matthíasar Jochumssonar til Hannesar Hafsteins“ lýsir séra Matthías óveðri á Suðurlandi fyrir 77 árum. Lýsingunga sendi hann í bréfi til ísafoldar í maí 1882. f fróðlegum skýringum Krist- jáns Albertssonar í fyrméfndri bók er m. a. komizt svo að orði um „hretið": Um sandfellishretið, sem hann skrifaði ísafold í maí 1882. Lýsir hann því fyrst hvernig jörð var „öll eins og sviðin" eftir grasleysi hafís-sumarsins árið áður, en síðan kom einn hinn hrakviðramesti vetur.Um páska virtist kominn bati, „var þá flestallur búsmali kominn að nástrám". „En einmitt er vonir manna voru sem sárast- ar, kom hið mikla og minnis- stæða fellishret og sandstorm- ur; hófst hann hér 23. apríl- mánaðar og stóð allt til 4. dags maímánaðar með 6-9° R frosti, heiptar stormi og stundum rokið enn svartara, að sögn, á Landinu og hærra á völlum i þessari sveit. Allar ár lögðust strax undir sterka ísa, öll SandfellishretiÖ Úr bréfi frá Matthiasi Jochumssyni til Hannesar Hafstein snjóbyl, en með þeim ódæm- um af sandroki, að vart sást í viku á milli húsa hér á Rang- árvöllum, og þó háloftið væri oftast nær heiðskírt, grillti eigi nema við og við til sól- ar; var þó bylurinn eða sand- mannferð hætti engir sáu aðra meðan þessi undur stóðu, því stormurinn hélt öllu lifandi innibyrgðu, en allt sem úti var og ekki hafði náð húsi, krókn- aði eða rotaðist til bana. Sand- fokið sótti og inn í húsin. blandaði allan mat og drykk og jafnvel munnvatn manna. Víða gjörðist fólk hrætt og örvinglað, enda voru þá flest- ar bjargir bannaðar, þar sums staðar var engin lífsnæring til fyrir fénað og sums- staðar skorti allt: hey, mat, og eldivið; lagðist þá vesalt fólk fyrir, fól sig Guði og lét fyrir berast unz kynj- um þessum tók heldur að létta 2. og 3. maí Óhætt má fullyrða, að ofviðri þetta hafi í þessum tveim hreppum drepið hátt á annað þúsund fjár .... Þar sem sauðburður er byrjaður deyja almennt lömbin eða fæðast dauð“. Aleyðst hafi yfir 20 jarðir og býli, en fjöldi ann- arra orðið fyrir stórskemmd- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.