Morgunblaðið - 28.11.1959, Qupperneq 13
Laugardagur 28. nóv. 1959
Moncinsm.AÐ ið
13
Molasopinn
hættulegi
ÚT ER komið á forlagi Ið-
unnar dálítið kver eftir Erik
Olaf-Hansen, sem fjallar
um nýjustu rannsóknir á or-
sökum og afleiðingum offitu
og nefnist það „Grannur án
sultar“. Þýðinguna hefur
Kristín Ólafsdiittir læknir
gert. — í riti þessu er
ýmsar athyglisverðar
upplýsingar, en
I m e s t a athygli
! m u n það þó
1 vekja, að íslend
ingar eru mestu
, sykur- æ t u r á
i jarðarkrií'lunni,
1 enda er svo kom
1 ið að segja má
| að hér gangi
, ýmsir um ekki
, með bjórvömb
heldur sykur-
vömb. Sannleik-
urinn er sá, að
sykur er mjög
fitandi, samkv.
niðurstöðum nýj
ustu rannsókna.
En af hverju að
vera að hafa á-
hyggjur af of-
fitu? Ástæðurnar eru
vafalaust m a r g a r ,
bæði er nú erfitt að
ganga með þessa auka-
byrði hvert sem farið
er, og einnig hitt, að
offita getur verið lífs-
hættuleg. 75% af of-
fitufólki fær liðaverki,
margir fá bakverki og
eiga erfitt um andar-
drátt og fyrir hjartað
er offita mjög óholl, búkvídd
aukin um 5% eykur dauða-
hættu um 50%. Spikfeitt
fólk á erfitt um gang, ekki
sízt stigagang. Ef það þarf
að fara í heimsókn til vinar
síns, sem býr upp á annarri
hæð, stendur það á önd-
inni, þegar upp kemur og það
er eins og hjartað ætli að
springa og fæturnir séu úr
blýi. Talið er, að um % hluti
fullorðins fólks þjáist af of-
fitu. Hversu margir skyldu
þeir t. d. vera karlmennirnir,
sem eru 180 cm. á hæð meðal-
þreknir og vega 74 kíló, en það
er einmitt hin eðlilega þyngd.
Hagfræðilegar rannsóknir á
200 þúsund körlum yfir 21 árs
aldri hefur leitt í ljós, að 15—■
24% ofþyngdar eykur dánar-
töluna upp í 50% fram yfir
það, sem eðlilegt er. 5 kg. of-
þyngd á mönnum 45—50 ára,
eykur dánartöluna um 8%, 10
kg. 18% o. s. frv. Ef hálf-
fimmtugur maður er 25 kg.
of þungur, er hann í engu
minni hættu en þó hann þjá-
ist af alvarlegum hjartasjúk-
dómi. Þetta eru dálaglegar
upplýsingar, segja vafalaust
margir, en vonandi verða þær
til þess að menn borða heldur
minna — ekki af fitu, því hún
er ekki fitandi, eins og hingað
til hefur verið haldið, heldur
af kolvetnum. Það eru kol-
vetnin, sem safnast saman í
fitulögum í líkamanum. En
sá er bara hængur á að kol-
vetnin eru aðalfæðutegund
manna, enda ódýrasta fæðan
og þeir, sem lítið hafa handa
á milli borða mest af þeim.
Þetta verður s......_.o
þeir fitna úr hófi fram. Auð-
vitað eru kolvetnin nauðsyn-
legar fæðutegundir fyrir lík-
amann, en þau geta líka
myndazt út hvítuefnunum
og er því ekki talin nein
hætta á að menn skorti
kolvetni í likamann, þó þeir
minnki við sig þær aðalfæðu-
tegundir, sem hafa inni að
halda kolvetni, en þæreru:syk
ur, brauð, mjöl, grauti^r, hrís-
grjón, kartöflur, mjólkursyk
ur og aldinsafi. Fituefnin,
smjör, rjómi, mjólk, feitur ost-
ur, feiti og flesk og hvítu-
efnin, sem aðallega eru í kjóti,
fiski, eggjum, osti og mjólk,
þ. e. a. s. öllu úr dýraríkinu
eiga ekki að hafa í för með sér
offitu, segja þessar nýjustu
rannsóknir. Af þessum efnum
er sykurinn langhættulegastur
og er það ekki uppörvandi fyr-
ir okkur íslendinga, sem erum
mestu sykurætur af öllum
j'arðarbúum. Við borðum 51
kg. af sykri á íbúa á ári, en
þar næst kemur Ástralía með
46 kíló og Danir með sína bjór
vömb borða ekki nema 45 kg.
af sykri á íbúa á ári. Þetta eru
gamlar tölur, nýjustu tölur
segja að við borðum yfir 56
kg. af sykri á mann. Þetta er
gott fyrir okkur að vita, áður
en við bókstaflega springum af
offitu og sykuráti. Ef við
hugsum um það stundarkorn,
að í molasykri er kolvetmð
99,8%, þá sjáum við að mola-
sopinn sakleysislegi, sem freist
ar svo marga, er mun hættu-
legri fyrir líkamann en ýmsir
hyggja. f bókinni segir m. a.:
„Margir læknar leggja
til að tollur sé lagður á
sykur og halda því fram,
að drjúgur sykurtollur
myndi stuðla að aukinni
heilbrigði á sama hátt og
tollur á víni og tóbaki.
Telja þeir að auk þess að
afla ríkinu stórtekna,
mundi sparnaður á sykur
áti verða sterkur þátt-
ur í baráttunni gegn of
fitubölinu".
Og ennfremur segir
í bókinni:
„Því fólki, sem
með kyrrsetum eða
hóglífi hefur safnað
að sér nokkrum ó-
þarfa p u n d u m ,
mundi b e z t að
minnka við sig kol
vetnin (brauð, kart
öflur og sykur) og
auka feitmetisátið,
því með því matar-
æði er beinlínis ráð
izt á orsakir offit-
unnar“.
Af þessu má sjá, að þeir,
sem halda vilja við gömlu
kenninguna til að megra
sig, fara í geitarhús að leita
ullar með því að minnka
við sig feitmetið. Tilraun-
ir hafa sýnt að það bætir ekki
úr skák, ef kolvetnin eru látin
eiga sig.
„Bezt er að gæta sín vel um
át á brauði, (55% kolvetni)
kornmat (73% kolvetni) graut
(í grjónum eru 65—75% kol-
vetnis) og kartöflum (20%
kolvetni).
Hveiti, sósur og jafninga
ber að varast, en nota heldur
soð með rjóma og smjöri eða
tómatsafa". — Þetta eru m.a.
þær ráðleggingar, sem Erik
Olaf-Hansen gefur. Hin nýja
aðferð er ekki í því fólgin að
minnka við sig mat, fnenn eiga
að borða eins og þá lystir, þeir
eiga aðeins að minnka við sig
þann mat, sem hefur að geyma
efni, sem safnast fyrir í fitu-
lögum í líkamanum.
Allir vita, hvernig fór fyrir
úlfinum í sögunni um hana
Rauðhettu, eftir að veiðimað-
urinn hafði sett hnullunginn
í magann á honum. Offita er
ekkert annað en slíkur steinn,
sem fyrr eða síðar leiðir til
þess að líkaminn gefst upp á
að bera þessa óþarfa byrði. Að
lokum má geta þess til gam-
ans, að í eftirfarandi efnum
eru mest kolvetni: Aldinsafa
50%, niðurskoðnum ananas
22%, appelsínumarmeðlaði
50%, þurrkuðum aprikósum
58%, þurrkuðum baunum
62%, þurrkuðum bláberjum
61%, brauðsalla 72%, bygg-
grjónum 70%, byggmjöli 72%,
döðlum 68%, eplaköku 37%,
eplaskífum 42%, þurrkuðum
fíkjum 65%, formkökum 53%,
þurrum gulum baunum 50%,
hafragrjónum 65% en aðeins
9% í hafragraut( auðvitað syk
urlausum!) svo ekki er nauð-
synlegt að gefa hann upp á
bátinn, hrísgrjónum 76%, hrís
mjöli 78%, hrökkbrauði 75%,
hunangi 80%, hveiti 73%,
hveitibrauði 55%, hveitigrjón-
um 75%, ís 20%, sultuðum
jarðarberjum 56%, kakó-dufti
34%, kartöflum 20%, kartöflu
mjöli 83%, kexi 75%, kjöt-
bollum 20%, kókósmakarón-
um 49%, konfekti 42%, krans-
kökum 9%, kringlum 55%, kúr
enum 67%, lakkrís 35%, maís-
mjöli 75%, maizennamjöli
85%, makkarónum hráum
75%, makkrónukökum 55%,
maltextrakt 70%, marzipan
30%, marmelaði 60%, mola-
sykri 88,8%, mysuosti feitum
50 %, svo dæmi séu tekin.
Og svo geta menn farið að
velta því fyrir sér, hvað þeir
ætla að borða á jólunum
ÓLAFUR J. ÓLAFSSON
löggiltur endurskoðandi.
Endurskoðunarskrifstofa.
Mjóstræti 6. — Sýni 3'l915.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Víkingur
Aðalfundur félagsins verður
haldinn mánud. 30. nóv. kl. 8,3tt
í Silfurtunglinu. — Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Laga-
breytingar. — Stjórnii.
Kennsla
SAMTAL 4 ENSKU
á eina sameiginlega hótelinu og
málaskólanum í Bretlandi
(Stjórnað af Oxfordmanni). Frá
£ 10 vikulega.
Tbe Regency, Ratnsgate, Engl.
LOFTUR h.f.
LJÓSMYNDASTOFAN
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 1-47-72.
ALLT 1 RAFKERFI0
Bilaraftækjaverzlun
Halldórs Ólafísonar
Rauðarárstíg 20. — Sími 14775.
Tilboð
óskast í Ford Custom 1958 og Ford Taunus ’59. Bif-
reiðarnar verða til sýnis við Leifsstyttuna í dag og
á morgun kl. 2—4.
Athugið
Ungan skrifstofumann vantar vinnu eftir kl. 5 á dag-
inn og um helgar. Hefur bílpróf.og getur haft bil.
Tilboð merkt: „Strax — 8619“ sendist á afgreiðslu
Morgunblaðsins.
Husnæði
4—5 herbergja íbúð óskast eða einbýlishús. Fyrir-
framgreiðsla ef óskað er. Allt fullorðið. Tilboð send-
ist afgreiðslu Morgunblaðsins strax merkt: „Húsnæði
— 8605“.
Hú'seigendur Kópavogi
Barnlaus ung hjón vantar 1—3ja herb. íbúð í Kópa-
vogi vinna bæði úti. Uppi. í síma 13097 milli kl. 8
og 10 á kvöldin.
Stúlka
barngóð, helst miðaldra, óskast. Á að vinna með
annari. Hátt kaup. Upplýsingar á skrifstofu Einars
Sigurðssonar Garðastræti 6 sími 19420.
Akranes
Til sölu er steinhús (einbýlishús) á eignarlóð, 5 herb.,
eldhús og bað á einni hæð og þvottahús og geymsla
í kjallara. Nánari upplýsingar veitir Valgarður Krist-
jánsson, lögfr., Akranesi, sími 398.
Hafnarfjörður
Stúlka óskast nú þegar, helzt vön.
Boðabúð
Hafnarfirði.