Morgunblaðið - 28.11.1959, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.11.1959, Blaðsíða 19
Laugardagur 28. nov. 1959 MORGVNBLAÐIÐ 19 Fjórir varnarliðsmenn hand- teknir fyrir árás og rán MORGUNBL.AÐINU barst í gærkvöldi eftirfarandi frétta- tilkynning frá Iögreglustjóran um á Keflavíkurflugvelli: Klukkan 21,25 í gærkvöldi fékk lögreglan á Keflavíkur- flugvelli tilkynningu þess efnis, að tveir íslenzkir menn hefðu orðið fyrir árás og ráni á bílastæðinu fyrir framan aðaldyr FlugvaUarhótelsins. Lögreglan fór þegar á vett- vang og voru þar fvrir Þórður Jónsson, Þórustíg 22, Ytri- Njarðvík, og Þórir Sigurðsson frá Brúarhrauni í Kolbeins- staðahreppi, Snæfellssýslu, háseti á ms. Geir, Keflavík. Sögðu þeir lögreglunni, að þeir hefðu komið til Flugvallar- hótelsins kl. 9 til að matast og dvalizt þar um 15—20 mínútur. En er þeir fóru út aftur að bíl þeim er þeir komu á, Ö-ll, segja þeir að 4 varnarliðsmenn hafi ráðizt að þeim og otað að þeim hnífum. Þórir segir að tveir mannanna hafi gripið um axlir hans, en hann var í óhnepptum jakka, sem honum tókst að losa sig úr. Báðir mennirnir komust undan og inn í Flugvallarhótelið, þar sem þeir hringdu á lögregluna. í jakka Þóris var veski í vasa að innanverðu og voru í því rúmar 800 krónur. Veski þetta tapaðist, en jakkinn fannst við bílinn. — Þess má geta að strax var reynt að hafa upp á árásar- mönnunum, sem þeir félagar sögðu að hefðu verið óeinkennis- klæddir varnarliðsmenn. í nótt var einn varnarliðsmað- ur tekinn fastur, grunaður um þátttöku í ráninu, og hefur hann nú í dag fyrir sakadómi Keflavík- ur játað að vera þátttakandi í rán inu. Nú í kvöld voru 3 aðrir varn- arliðsmenn teknir fastir, grunað- ir um að vera menn þessir. Þeir sitja nú allir í gæzluvarðhaldi. Rannsókn málsins er ekki lokið en þess má að lokum geta, að rannsóknarlögregla varnarliðs- ins hefur aðstoðað íslenzku rann- sóknarlögregluna á Keflavíkur- flugvelli eftir beztu getu við leitina að árásarmönnunum. 145.000 pund fyrír málverk eftir Cézanne LONDON. — Núna í vikunni var selt hér málverk eftir hinn þekkta málara Cezanne á hvorki meira né minna en 145 þúsund pund. Er það myndin Bóndi í — Arás Framh. af bls. 1. Nehru lauk ræðu sinni með þessum orðum: „Ég held, að engu ríki í heiminum sé annara um að tryggja friðinn en Sovétríkjun- um — en ég efast um, að nokkurt ríki hugsi minna um frið en Kína“. • Liðssafnaður Kínverja Undanfarið hafa ýmis indversk blöð flutt fregnir um það, að Kínverjar hafi safnað miklu liði við hin 800 km löngu landa- mæri Nepals og Tíbets. Telja fréttamenn, að fyrrnefnd yfirlýs- ing Nehrus bendi til þess, að fregnir þessar séu á rökum reist- ar. — Ekki er vitað til þess, að indverskar hersveitir séu í Nepal, eða að gerður hafi verið neins konar hernaðarsamningur með ríkjunum, en þau hafa haft náið samstarf á sviði efnahags- og menningarmála um langt skeið, og í sérstökum samningi milli ríkjanna segir að þau skuli veita hvort öðru fullar upplýsingar, ef upp komi misklíð með þeim og einhverju nágrannaríki. Háskólafyrirlestur AÐALFORSTJÓRI Efnahags- samvinnustofnunar Evrópu, hr. René Sergent, fer um Island á heimleið frá Bandaríkjunum og mun hafa hér nokkra viðdvöl og eiga viðræður við íslenzk stjórnarvöld um viðskiptamál. — Hann mun einnig flyjta fyrirlest- ur í hátíðasal háskólans sunnu- dag 29. nóv. kl. 2, um viðskipta- Voinaliðsmeon dæmdii BLAÐAFULLTRÚI Upplýs- ingaþjónustu Bandaríkjanna hér í bænum ,skýrði frá því í gærkvöldi, að herréttur á Keflavíkurflugvelli hefði kveðið upp dóma í málium fjögurra varnarliðsmanna, er gerzt höfðu brotlegir. Er hér um að ræða menn er í sumar er leið brutust út úr fanga- geymsllu á flugvellinum og struku hingað til Reykjavík- ur. Voru þeir handteknir hér í bænum, vestur í Knoxbúð- um af lögreglunni. Menn þessir sem verið hafa í haldi síðan þetta gerðist, voru dæmdir í 2 ár þrælkunarvinnu af hinum bandaríska herrétti, sviptir öllum stöðum og virðinga merkjum hersins, og verða þeir sendir til Bandaríkjanna til þess að taka þar út dóminn. horfur fslands í Vestur-Evrópu. Herra René Sergent er frakk- neskur. Hann er víðkunnur fjár- málamaður og hefur gengt hinum ábyrgðarmestu störfum, m. a. verið aðstoðarforstjóri Atlants- hafsbandalagsins, og fór þá með efnahags- og fjármál, og forstjóri Efnahagssamvinnustofnunar Ev- rópu hefur hann verið síðan í apríl 1955. Hann var hér á ferð í marz 1958 og flutti þá fyrirlestur í háskólanum um myndun frí- verzlunarsvæðis. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku, og er öllum heimill að- gangur. Fullveldisfagnaíiur Stúdentafélagsins EINS og ságt hefur verið frá áður heldur Stúdentafélag Reykjavík- ur fullveldisfagnað í Sjálfstæðis- húsinu á mánudagskvöldið, 30. nóvember. Hefst hann kl. 7 með borðhaldi. Ræðumaður kvöldsins verður Jón Pálmason fyrrverandi forseti sameinaðs Alþingis, þá verða kveðnar rímur og loks skemmta þeir Kristinn Hallsson söngvari, Bessi Bjamason leikari og dr. Páll ísólfsson tónskáld. Að vanda verður mikill almennur söngur, og að lokum verður dans- að til kl. 3 eftir miðnætti. Aðgöngumiðar, ef einhverjir verða eftir, verða seldir í Sjálf- stæðishúsinu kl. 5—7 e. h. í dag. blárri blússu og var áður í eigu manns 1 Bandaríkjunum. Þeir, sem keyptu voru hinir kunnu málverkakaupmenn, Rosenberg og Stiebel í New York. Var fyrsta upphæðin, sem boð- in var í það 110 þús. pund, og er það álitin hæsta upphæð, er verið hefir í fyrsta boði mál- verka. Fjöldi annara málverka var á uppboði þessu, svo sem eitt eftir Gaugúin. Beðið eftir bréfi, sem fór á 130 þús. pund, sem er mesta verð fyrir Gauguin málverk, sem um getur. — Alls voru seld á uppboði þessu málverk fyrir um 689 þúsund pund. Leiðrétting í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um nýju frímerkin, var sagt að blaðið hefði átt samtal um þetta við Pétur Eggertz Stefánsson. Hér átti að standa Pétur Eggertz póstmálafulltrúi, en hann er son- ur Péturs Eggertz Stefánssonar, sem er fulltrúi í varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins. Leiðréttast þessi mistök hér með. — — Ungverjaland Framh. af bls. 1. ★ Ósamræmi Skýrsla Munros mun að lík- indum verða rædd í Allsherjar- þinginu í næstu viku, þrátt fyrir eindregin mótmæli kommúnista- ríkjanna, sem halda því fram, að hér sé um að ræða algert innan- ríkismál Ungverjaftnds, og því séu SÞ ekki bærar um það að fjalla. — „Þessi fullyrðing“, segir Munro, „er vissulega ekki í sam- ræmi við yfirlýsingar ungversku stjórnarinnar og sendinefndar hennar hjá SÞ um, að „erlend öfl“ hafi komið uppreisninni 1956 af stað. — Jafnvel ung- verska stjórnin hefur ekki reynt að neita því, að það voru rúss- neskir skriðdrekar, sem réðust gegn ungverskum verkamönnum og skutu á þá, þegar þeir voru að reyna að koma á sjálfstæðri ríkisstjórn í landi sínu“. — Hvernig er hægt að kalla það innanríkismál, óviðkomandi öllum öðrum, þegar þjóð eins lands verður fyrir barðinu á hernaðaraðgerðum er- lends valds? — Að halda slíku fram, væri að kippa grundvellin- um undan þeirri stofnun, sem við nefnum Sameinuðu þjóðirnar, segir Munro. •k Engin breyting 1 skýrslunni segir ennfrem- ur, að frá því að hann var skip- aður sérstakur fulltrúi SÞ í Ung- verjalandsmálinu á síðasta ári, hafi „ekki komið fram sannanir um neina grundvallarbreytingu ástandsins í Ungverjalandi, er réttlætt gæti, að SÞ hættu að fylgjast þar náið með málinu". — Enn fremur segir: „Sovézkar hersveitir eru enn í landinu, þrátt fyrir óskir Allsherjarþings- ins um að þær yrðu kvaddar á brott“. ST J ÖRNUBÍÓ sýnir um þessar mundir norska kvikmynd, sem nefnist „Út úr myrkri“. Myndin hefur vakið mikla athygli og þá ekki sizt leikur Urda Arneberg í aðalhlutverkinu. SVEINBJÖRN DAGFINSSON EINAR VIÐAR Málflutningsskrifstofa Hafnarstræti 11. — Sími 19406. Sameining Kóreu New York, 27. nóv. (NTB/AFP). SAMÞYKKT var í stjórnmála- nefnd Allsherjarþings S. Þ. í dag ályktunartillaga 14 landa um aS þingið leggi enn áherzlu á stefnu samtakanna í Kóreumálinu. — í ályktunartillögunni, sem nú verður lögð fyrir Allsherjarþing ið ,segir m.a., að það sé markmið S. Þ. að sameina Kóreu á friðsam legan hátt sem óháð lýðræðis- ríkL Þar er og gert ráð fyrir því, að S. Þ. skori á þau kommúnisk stjórnvöld, sem málið varðar, að tjá sig samþykk því, að frjálsar kosningar verði haldnar í allri Kóreu svo fljótt, sem auðið er. — Tillagan var samþykkt með 49 atkvæðum gegn 9 atkv. kommúnistaríkjanna, en 19 full- trúar sátu hjá. Innilegustu þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig, með heimsóknum, skeytum og gjöfum á 85 ára afmæli mínu, þann 22. nóvember s.l. Sigtryggur Eyjólfsson, Stykkishólmi. Hjartanlega þakka ég ættingjum og vinum sem glöddu mig á 60 ára afmæli mínu 19. nóv. með heimsóknum, skeytum, gjöfum og blómum. Gæfan fylgi ykkur 4 ófarinni ævileið. Kristín Guðmundsdóttir, Eskiholti. Þakka innilega vinum og vandamönnum er sýndu mér vinsemd og kærleika á 80 á.ra afmælinu 7. nóvember. Þorbjörg Erlendsdóttir, Hamarsheiði. Innilegustu þakkir færi ég börnum mínum, barna- börnum og öðrum ættingjum og vinum fyrir gjafir, heimsóknir og heillaskeyti á áttræðisafmæli mínu 23. nóv. 1959. Guð blessi ykkur öll. Friðrik Finnbogason, Sunnubraut 18, Keflavík. Innilegar þakkir færi ég öllum vinum og vandamönn- um er glöddu mig á sextugsafmæli mínu 24. október s.L með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlýjtim hand- tökum, og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Lifið heil. Þórhallur Bjarnason, Hvammstanga. INGIBJÖRG GRlMSDÓTTIR frá Syðri-Reykjum, andaðist á Bæjarspítalanum aðfaranótt fimmtudagsins 26. þ.m. Aðstandendur. Jarðarför móður minnar GUÐRÚNAR þorsteinsdöttur fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. nóvember kl. 1,30 e.h. Alfreð Gíslason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför sonar okkar og bróður ÞORSTEINS KONRÁÐSSONAR Sérstaklega vildum við þakka læknum og hjúkrunarliði Barnadeildar Landsspítalans fyrir frábæra umönnun og hjúkrun. Steinunn Vilhjálmsdóttir, Konráð Þorsteinsson og dætur. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eiginkonu minnar HELGU JÖNSDÓTTUR Einar Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.