Morgunblaðið - 01.12.1959, Qupperneq 1
24 siður
46. árganguz
228. tbl. — Þriðjudagur 1. desember 1959
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stö&vun verðbójg/unncn og
frjáls utanríkisviðskipti
Gísli Sveinsson fyrrv.
Alþingisforseti látinn
GÍSLI SVEINSSON, fyrrv. Alþingisforseti og sendiherra, andaðist
í gær tæplega 79 ára gamall. Hafði hann kennt nokkurs lasleika
síðustu mánuðina, en lá aðeins rúmfastur nokkrar vikur. Hann
lézt í Landsspítalanum síðari hluta dags í gær.
Með Gísla Sveinssyni er til moldar hniginn einn af aðsópsmestu
stjórnmálamönnum þjóðarinnar á þessari öld, merkur maður, sem
mjög var viðriðinn mörg af merkustu hagsmunamáium samtíðar
sinnar. —
| Fjárfestingu einkaadila þarf að beina
meira i hagnýtan atvinnurekslur
Úr erindi René Sergenf, aðalforsfjára
O.E.E.C. i Háskólanum s.l. sunnudag
AÐALFORSTJÓRI Efnahagssamvmnustofnunar Evrópu,
René Sergent, flutti síðastl. sunnudag, erindi í hátíðasal
Háskólans, er fjallaði einkum um þau viðhorf, sem stofnun
viðskiptabandalaga sex- og sjöveldanna skapa viðskiptum
íslendinga í Vestur-Evrópu. René Sergent er víðkunnur fjár-
málamaður og hefur gegnt hinum ábyrgðarmestu stöðum.
Um skeið var hann aðstoðarforstjóri Atlantshafsbandalags-
ins, og fór þá með efnahags- og fjármál, og aðalforstjóri
O.E.E.C. hefur hann verið síðan í apríl 1955. Hann var á
ferð í Reykjavík í marz 1958 og flutti þá fyrirlestur um
myndun fríverzlunarsvæðis.
Minni viðskipti við Vestur-
Evrópu.
í upphafi máls síns, skýrði
René Sergent frá því, að hann
teldi, að það ástand, sem nú væri
að skapast í viðskiptamálum
Vestur-Evrópu, væri ekki varan-
legt. Jafnvel myndi það aðeins
standa skamma stund, þar sem
Hann var fæddur 7. des. 1880
að Sandfelli í Öræfum. Foreldr-
ar hans voru Sveinn Eiríksson
prestur þar og kona hans Guð-
ríður Pálsdóttir. Hann lauk
stúdentsprófi árið 1903 og emb-
ættisprófi frá Kaupmannahafn-
arháskóla árið 1910. Á háskóla-
árum sínum var hann um skeið
settur bæjarfógeti á Akureyri og
sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu.
Yfirdómslögmaður í Reykjavík
var hann 1910 til 1918. Sýslu-
maður Skaftfellinga var hann
skipaður árið 1918, og gegndi
hann því embætti til ársins 1946
er hann var skipaður fyrsti sendi-
herra íslands í Noregi. Sendi-
herraembættinu gegndi hann til
ársins 1951, en þá fluttist hann
aftur hingað heim og var búsett-
ur hér í Reykjavík til dauða-
dags.
Þátttaka í stjórnmálum
Gísli Sveinsson tók mikinn
þátt í íslenzkri stjórnmálabar-
áttu. í æsku skipaði hann sér þeg
ar í sveit hinna framsæknustu í
sjálfstæðisbaráttunni. Vakti hinn
snjalli málflutningur hans, ein-
urð og mergjað mál, mikla at-
hygli á honum þegar á unga
aldri. Hann var fyrst kosinn á
þing í Vestur-Skaftafellssýslu ár-
ið 1916 og var þá þingmaður
Vestur-Skaftfellinga til ársins
1921. Lét hann þá af þing-
mennsku sakir vanheilsu. Aftur
var hann kosinn á þing árið 1933
fyrir Vestur-Skaftfellinga og var
þingmaður þeirra til ársins 1942.
Þá varð hann landskjörinn þing-
maður. Átti hann síðan sæti á
þingi til ársins 1946, er hann var
skipaður sendiherra íslands 1
Noregi. — Hann var forseti Sam-
einaðs Alþingis árin 1942, 1943
og 1944. Hann var því forseti Al-
þingis þegar lýðveldið var stofn-
að, og kom það í hans hlut að
lýsa lýðveldisstofnuninni yfir á
Lögbergi 17. júní 1944. '
Gísli Sveinsson átti sæti í
mörgum þýðingarmiklum nefnd-
um og sat í stjórnum ýmissa
stofnana. Hann var lengstum
forseti hinna almennu kirkju-
funda, var formaður í milli-
þinganefnd um stjórnarskrármál-
ið árið 1942, í kirkjuráði hinnar
ísl. þjóðkirkju átti hann sæti frá
stofnun þess árið 1931. Einnig
var hann formaður Fél. héraðs-
dómara um skeið.
Gísli Sveinsson var kvæntur
Guðrúnu Einarsdóttur, ágætri
konu, og áttu þau 4 börn, 3 dæt-
ur og einn son. Lifir frú Guðrún
mann sinn.
Verkfall lamar
samgöngur
PARÍS, 30. nóv. — Meira en
milljón ríkisstarfsmenn í Frakk-
landi gera 22 stunda verkfall á
miðvikudag til þess ið leggja á-
herzlu á kröfur um kjarab-etur.
Er þetta stærsta og víðtækasta
verkfallið, sem gert hefur verið í
tíð 5. lýðveldisÍMS. Verkfallið mun
m.a. hafa áhrif á póstþjónustu og
samgöngur. Pósthúsum verður
lokað, enginn póstur borinn út
né hirtur og flugsamgcngur til
Frakklands leggjast niður þenn-
an dag. Viðkomandi opinberum
skrifstofum verður einnig lokað.
ins væri ekki hægt að segja otn
það hvenær viðræður um slíka
samvinnu myndi fara fram og
því síður hverjar yrðu endán-
legar niðursiöður þeirra.
Ræðumaður kvaðst harnia
hve dregið hefði úr viðskiptum
íslendinga við Vestur-Evrópu á
síðari árum. Fyrir stríð hefði
80% af útflutningum héðan far-
ið til þessara að landa og á árinu
1949 hefði svipað verið upp á
teningnum. En síðustu 10 árin
hefðu viðskipti aukizt mjög við
vöruskiptalöndin, og nú færu
aðeins 40% útflutningsins til V-
Evrópu og landsvæða henni
tengd. Ýmislegt hefði valdið þess
um breytingum. Þannig hefðu
sumir vöruskiptasamninganna
verið eftirsóknarverðir og stjórn
málalegar ástæður valdið erfið-
leikum á sumum hinna eldri
markaða. Og Vestur-Evrópa virt-
ist ekki ætla að sýna sama frjáls
lyndi í sambandi við fisksölu, eins
og um sölu venjulegs iðnaðar-
vaxnings. Einnig hefði heildar
fiskneyzlan aðeins aukizt síðustu
árin vegna fólksfjölgunar, en fisk
neyzla á íbúa væri minni en fyrir
stríð.
Batnandi efnahagur — vaxandi
fiskneyzla.
En þá er að reyna að gera sér
Framh. á bls. 2.
René Sergent
mönnum væri almennt Ijós nauð
syn á að koma á náinni samvinnu
milli sex- og sjöveldanna, sem
síðar þyrfti einnig að ná til hinna
fimm aðildarríkja Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar er utan
bandalaganna standa, og þar með
til íslands. En á þessu stigi máls-
//
Margra flokka kerfi
óhugsandi,.
Slikt leiðir alltaf ti! andbyltingar,
segir Kadar
BUDAPEST, 30. nóvember. — Janos Kadar, aðalleiðtogi ung-
verskra kommúnista, sagði í dag, að rússneski herinn mundi
dveljast í Ungverjalandi um óákveðinn tíma og að minnsta kosti
á meðan ástandið í alþjóðamálum væri ekki tryggara en það er
nú. Kadar skýrði frá þessu í ræðu, er hann setti þing ungverska
kommúnistaflokksins í dag. Kadar var eins og kunnugt er í
fylkingarbrjósti ungverskra kommúnista, þegar Rauði herinn
braut byltinguna á bak aftur haustið 1956. Þetta er fyrsta flokks-
þingið, sem haldið er síðan byltingin varð.
Kadar sagði ennfremur í ræðu
sinni, að óhugsandi væri, að í
Ungverjalandi yrði tekið upp
margra flokka kerfi, því slíkt
fyrirkomulag leiddi alltaf til
andbyltingar. Og í viðurvist
Krúsjeffs og annarra postula
kommúnista viðurkenndi Kadar,
að jafnvel innan ungverska
sinnuð öfl að verki. En hann
sagði, að það væri ekki þess
vegna að rússneskur her væri
enn í landinu, ekki vegna innan-
landsástandsins — heldur vegna
ástandsins á alþjóðavettvangi.
En Kadar hélt áfram: — Jafn
lengi og heiðarlegt og einlægt
fólk byggir Ungverjaland mun
kommúnistaflokksins væru hægri verða minnzt með þakklæti hjálp
arinnar 1956, sem Sovétríkin
veittu samkvæmt beiðni bylting-
arstjórnar verkamanna og
bænda, til þess að bægja frá ógn-
unum andbyltingarsinna og
heimsvaldasinna. Og því næst
fór Kadar háðulegum orðum um
Sameinuðu þjóðirnar vegna um-
ræðnanna þar um „hið svo-
nefnda Ungverjalandsmál", eins
og hann orðaði það.
Þá beindi Kadar orðum sínum
til „andbyltingarsinnanna", sem
vonað hefðu, að rússneskur her
væri á förum úr Ungverjalandi.
Þetta væri aðeins óskhyggja,
sagði Kadar, en þegar herinn
færi, þá gætu andbyltingasinn-
arnir verið vissir um það, að
það gagnaði þeim ekkert.
Byltingaröflin (kommúnistar)
í Ungverjalandi hafa lært hvað
þau verða að gera og hvernig
þau geta varið skipulag sitt gegn
hinum alþjóðlega óvini, sagði
Kadar.
Hann hélt áfram og skýrði frá
því, að byltingartilraunin 1956
hefði valdið miklu tjóni á mann-
Framh. á bls. 23.
Aðeins eiim á mæl-
endaskrá
NEW YORK, 30. nóv. — Stjórn-
málanefnd Sameinuðu þjóðanna
tók Alsírmálið til meðferðar i
dag. Franski fulltrúinn mætti
ekki til fundar til þess að leggja
áherzlu á þá skoðun stjórnar sinn
ar, að hér væri um innanríkis-
mál Frakklands að ræða og Sam-
einuðu þjóðirnar hefðu ekki rétt
til að taka málið fyrir. Þetta er
fimmta árið í röð sem Frakkar
mæta ekki á fundi innan S.þ.
þegar Alsírmálið er rætt.
Aðeins einn nefndarmanna var
á mælendaskrá í dag. Það var
fulltrúi Túnis. Að hans ræðu lok-
inni var fundi frestað, því aðrir
nefndarmenn höfðu ekki undir-
búið sig nógu rækilega.
Londhelgisróð-
stefnan hefst
17. marz
NEW YORK, 30. nóvember: _
Önnur alþjóðaráðstefnan um
réttarreglur á hafinu mun hef j
ast í Genf 17. marz n.k. að því
er tilkynnt var í aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í dag.
Sennilegt er, að ráðstefnunni
Ijúki 14. apríl. Tvö aðalmál
verða rædd á ráðstefnunni:
Víðátta lögsögulandhelginnar
og fiskveiðilandhelgin, aðal-
lega með tilliti til hve einka-
réttur strandríkja til fiskveiða
skuli vera víðtækur. 89 ríkj-
um hefur verið boðið að senda
fulltrúa til ráðstefnunnar, þar
af eru 82 meðlimir S.þ.