Morgunblaðið - 01.12.1959, Page 2

Morgunblaðið - 01.12.1959, Page 2
2 MORCVNBT AÐIÐ Þriðjudagur 1. desemb'er 1959 Mikojan gaf Helgu Ijósmynd og sagði *— Erindi René Sergent Framh. af bls. 1. grein fyrir hvað framtíðin kann að bera í skauti sínu. Líkur benda til, að eftirspurn í Vestur- Evrópu muni fara vaxandi eftir þeim fiskafurðum, sem íslend- ingar hafa bezta aðstöðu til að framleiða. Efnahagur batnar ár frá ári í þessum löndum og Efna- hagssamvinnustofnunin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að sú þróun haldi áfram. Þetta mun valda því, meðal annars, að fólkí sem er vant að neyta ódýrra fisktegunda, mun kaupa meira af annarri fæðu en jafnframt mun eftirspurnin auk- ast eftir freðfiski. Og milljónir manna, sem búa inni í löndunum og hafa varla nokkurn tíma feng- ið tækifæri til að neyta góðra fiskrétta, munu geta vegna hinna breyttu aðstæðna, keypt hrað- fryst fiskflök og er ekki að efa að þeim muni líka þau vel. Bæði vegna bragðsins og þess, hve þau eru auðveld til matreiðslu og þar með vinsæl hjá húsmæðrunum. Þama er um að ræða vaxandi markað, sem íslendingar hafa allra þjóða bezt aðstöðu til að nýta, þar sem þeir hafa forystu < í hraðfrystingu sjávarafurða. Á síðasta ári hefur Efnahags- samvinnustofnunin gert sérstakar ráðstafanir til þes að reyna að auka áhugann fyrir freðfisksölu í Frakklandi og á Ítalíu. Hefur þetta ekki hvað sízt verið gert með tilliti til hagsmuna íslands. Vonir standa til, að þetta mu.ii bera tilætlaðan árangur, en hann mun þá koma í ljós smám saman. Áhrif hinna nýju viðskipta- sambanda. Enn er ekki að fullu Ijóst hver áhrif stofnun hinna nýju við- skiptabandalaga mun hafa á fisk- verzlunina. Nú nýlega munu sex veldin hafa ákveðið hver skuli vera sameiginlegur innflutnings- tollur þeirra á fiskafurðum, þ. e. 15%. Innflutningstollur á hrað- frystum þorski hefur verið 10% í Vestur-Þýzkalandi, 31,5% í Frakklandi og enginn á Ítalíu. — Þarna opnast því nýir möguleik- ar á markaðnum í Frakklandi og þrátt fyrir tollahækkuina í Vestur-Þýzkalandi ætti að líta allvel út með sölu þangað. Þar vex nú óðfluga dreyfingarkerfi fyrir hraðfryst matvæli og svo er íslenzki fiskurinn að jafnaði betri að gæðum, en afli þýzkra fiskimanna. Um fríverzlunarsvæði sjöveld- anna er það að segja, að þau munu ekki hafa neina sameigin- lega tolla útávið og verða þeir því væntanlega hinir sömu og verið hafa í hinum einstöku löndum. Aftur á móti getur fisk- sala á milli þeirra haft áhrif á að- stöðu utanaðkomandi landa til fiskútflutnings. Hvað freðfisk- inum viðvíkur mun Bretland, sem er aðalinnflytjendinn, leyfa tollfrjálsan innflutning á 24.000 tonnum árlega frá hinum lönd- unum innan fríverzlunarsvæðis- ins. En íslenzkur freðfiskur mun tollaður 10%, eins og áður. Þó er ekki útilokað að hægt verði að auka freðfiskútflutnihg frá Is- landi til Bretlands. Freðfisksölur til Austurríkis og Sviss eru nær alveg frjálsar og má búast við, að þar geti síðar orðið verulegur markaður. Að- stæður til saltfisksölu til Portú- gal verða þær sömu og áður. En erfitt er að segja um freðsfisk- markinn í Svíþjóð, þar sem nú er 17% innflutningstollur. Sjálfsagt er að vara við óhóf- legri bjartsýni, en jafnvel undir þeirri skipan, sem nú er að kom- ast á í viðskiptamálum Vestur- Evrópu gætu íslendingar aukið viðskipti sín við þessi lönd, þó að ástæður verði að ýmsu leyti erfiðari en áður. íslendingar flytja út góða vöru og þurfa að gæta þess að hún sé ávallt í úr- valsflokki. Og jafnframt þarf verðið að vera samkeppnisfært. KEFL A VÍ KURFLU GVELLI, 30. nóv. — Mikojan, varafor- sætisráðherra Sovétríkjanna, kom við á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt síðastliðins sunnu- dags. Ráðherrann kom í sömu flugvél og hann flaug með, er hann fór til Mexikó á dögun- um. Flugvél Mikojans lenti um kl. 5 um morguninn eftir 314 klst. flug frá Gander. Á flug- Þetta leiðir beint yfir í hugleið- ingar um önnur mál. Mikil fjárfesting í íbúðarhúsum og landbúnaði. Mikil verðbólga hefur gert að- stöðu sumra landa mjög erfiða, svo sem Tyrklands, Frakklands og íslands. Afleiðingar verðbóig- unnar eru margvíslegar, m. a. þær, að mikil fjárfesting verður í ýmsum lítt arðbærum greinum. Það vekur furðu, að nær helm- ingur fjárfestingarinnar hér á landi er í íbúðarhúsum og land- búnaði, eða sem svarar 16% af þjóðarframleiðslunni, á móti 5%, að meðaltali, í sömu greinum í Vestur-Evrópu. Vissulega eru íbúðarhús nauðsynleg, en engin þjóð má þó eyða meiru í þau en hún hefur ráð á. Og það getur ekki verið rétt af íslendingum að eyða miklu meira í húsnæði, en aðrar Evrópuþjóðir gera. Fjárfesting í landbúnaði er auð vitað ajálfsögð, en skilyrði til landbúnaðar eru vlssulega ekki svo góð á íslandi, að þau rétt- læti miklu meiri fjárfestingu x þessari atvinnugrein, en gert er annars staðar í Evrópu. Vitað er að mikið af þessari fjárfestingu hér á landi er því ekki hagkvæm þjóðarbúinu. — Og á sama tíma vantar fé til endurnýjunar fiski- skipaflotans. íslendingar munu almennt sammála um það, að stöðva þurfi verðbólguþróunina. Og sem sjálf stæð þjóð getið þið ekki haldið áfram að taka erlend lán í jafn ríkum mæli og gert hefur verið. Það er mikill misskilningur, sem sumir álíta, að ekki sé hægt að sigrast á verðbólgu nema með því að rýra kjör flestra þjóðfélags- borgaranna. Frökkum tókst þetta t. d. án þess að atvinnuleysi skap aðist, þegar þeir loksins fengu nægjanlega einbeitta ríkistjórn, og munu margar fyrri ríkisstjórn ir þeirra undrast, hve það var í rauninni auðvelt í framkvæmd, að koma á heilbrigðu efnahags- kerfi. Helztu ráðstafanir sem nauðsyn- legt er að gera. Ég álít að það séu sex atriði, sem íslendingar þurfa að fram- kvæma til þess að stöðva verð- bólguna varanlega, sagði René Sergent að lokum: 1) Draga þarf úr aukningu almennrar neyzlu, sem er ailt annað en að núverandi neyzla þurfi að minnka. 2) Fjárlög þurfa að vera í betra jafnvægi. vellinum beið rússneski sendi- herrann, ásamt starfsliði rúss- neska sendiráðsins, sem komið var til að taka á móti hon- um. Höfðu þeir með sér þrjá áttunga af íslenzkri síld, fall- ega innpakkaðri, færðu Mik- ojan einn og tveimur úr fylgd- arliði hans hérna. Verður því sjálfsagt íslenzk síld með vod- kanu á borðum í Moskvu í kvöld. 3) Fjárfestingu einkaaðila þarf að beina meira í hagnýtan at- vinnurekstur. 4) Draga verður úr útlánum banka. 5) Almennt verðlag, kaupgjald og verð landbúnaðarafurða má ekki vera jafnbundið innbyrðis og nú er. 6) Fjármálakerfinu verður að koma í það horf, að hægt sé að reka útflutningsatvinnuvegina styrkjalaust. Og við þetta má svo bæta sjö- unda atriðinu, sem ekki skiptxr minnstu máli, en það er að veru- legur hluti innflutningsins sé gerður frjáls. Það er engin til- viljun, að þetta síðasta atriði hefur verið eitt helzta verkefni Efnahagssamvinnustofnunarinn- ar. Fjölmörg lönd hafa á undan- förnum árum hagnast á auknu frjálsræði í viðskiptum og má gera ráð fyrir, að ísland myndi gera það alveg sérstaklega. En nú er aðalatriðið að gera öflugar ráðstafanir til að vinna gegn verðbólgunni og duga engin vettl- ingatök í því sambandi. Ef vanda- málið er tekið föstum tökum mun Efnahagssamvinnustofnun- in gera allt til aðstoðar, sem í hennar valdi stendur. Kærði herrann UNG norsk stúlka hefur kært til rannsóknarlögreglunnar peninga- þjófnað, alls um 1850 krónur. Þessi stúlka hafði um helgina verið að skemmta sér ásamt nokkrum stúlkum öðrum á heim- ili einnar þeirra og höfðu verið með þeim í gleðskapnum tveir karlmenn. Á sunnudaginn veitti stúlkan því eftirtekt, að um 1850 krónur voru horfnar úr veski hennar, en hún hafði farið með tæplega 2000 krónur. Á sunnudagskvöldið handtók rannsóknarlögreglan annanmann anna, sem verið hafði með stúlk- unum í gleðskapnum, og situr hann í varðhaldi. Stúdentablaðið STÚDENTABLAÐ 1. des. 1959, kemur út í dag eins og að und- anförnu. Er blaðið mikið að vöxtum, heilar 68 síður í störu broti, og vandað að efni og öllum frágangi. Rita þar margir þjóð- kunnir menn greinar og hug- vekjur og nokkur ljóð eru í blað- inu, sem einnig er prýtt fjölda mynda. Helga Tryggvadóttir, flug- freyja Flugmálastjórnarinnar, fór um borð í flugvélina, til að veita farþegum fyrirgreiðslu eins og venja er. Að skammri stundu liðinni birtust þau Mikojan og Helga í dyrum flugvélarinnar. Hélt Mikojan í hönd hennar og brosti út að eyrum og leiddust þau þannig niður tröppurnar. Mik- ojan gekk fram og aftur um flugvélastæðið og ræddi við sendiherrann meðan flugvélin stóð við, en ekki kom hann ii' n í flugstöðvarbygginguna að þessu sinni. Áður en Mikojan fór, gaf hann Helgu Tryggvadóttur ljósmynd af sér með efgin- handaráritun. Þakkaði hún þá „bless" fyrir og vildi Mikojan þá læra einhver kveðjuorð á íslenzku. Reyndi Helga að kenna hon- um að segja ,vertu sæl“ en Mikojan gekk illa að ná fram- búrðinum. Endaði íslenzku kennslan með því, að Mikojan lærði að segja bless og gekk það ágætlega. Héðan hélt flugvélin beint til Moskvu eftir klukkustund- ardvöl. —B. Þ. Skeiiimtifundur í Nordmannslaget KVÖLDVAKA í Nordmannslaget verður haldin í Breiðfirðinga- heimilinu, Skólavörðustíg 6 B á 2. hæð, miðvikudagskvöldið kl. 20,30. Sýnir Vigfús Sigurgeirsson Noregsmynd sína frá Noregsför forseta íslands sumarið 1955. Á eftir verður kaffidrykkja. Eru allir félagar og Noregsvinir vel- komnir. aust-norðaustur. Veðurhorfur fyrir daginn í dag,- SV miðin, breytileg átt og skúrir en bjart á milli fyrst, Þing Farmanna- og fiskimanna- sambands Islands NÍTJÁNDA' þingi Farmanna- og fiskimannasambands íslands lauk 29. nóvembér. Margar álýktartir og samþykktir voru gerðar varð- andi sjávarútvegsmál og hags- muna- og skólamál sjómanna. Forseti sambandsins var ein- róma kjörinn Ásgeir Sigurðsson skipstjóri, en hann hefur verið forseti þess frá byrjun eða í 23 ár. Meðstjórnendur voru kjörnir Sigurjón Einarsson, Jónas Guð- mundsson, Guðmundur H. Odds- son, Egill Hjörvar, Bjarni Bjarna son og Henry Hálfdánsson. — Samþykkta þingsins verður getið síðar. „Tmiglflaugin66 -- ný rK jörbók“ Isafoldar í GÆR kom út ný bók í „Kjör- bókaflokki ísafoldar", en í þeim flokki eru bækur ætlaðar ungl- ingum á aldrinum 11—20 ára. Þessi nýja „*kjörbók“ er Tungl- flaugin, eftir Jules Verne í þýð- ingu ísaks Jónssonar, skólastjóra. Jules Verne, sem er höfundur „Kringum jörðina á 80 dögum“, var tæpri öld á undan samtíð sinni, er hann samdi Tunglflaug- ina. Hann lætur þar ævintýra- menn stíga upp í málmhylki, hefj ast á loft og komast til tunglsins. í bókinni segir frá undirbúningi ferðarinnar og ferðinni sjálfri. Bifreið stolið SÍÐASTLIÐINN laugardag var ljósgrænni bifreið af Ford Consul gerð, model 52, stolið úr Túngöt- unni framan við Landakot. Bif- reiðin bar einkennismerkið VLE- 526. Þeir sem kynnu að hafa orð- ið varir, eru beðnir að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna. að. SA-land og miðin: austan gola og bjart veður fyrst þykknar upp með vaxandi austan átt. Veðurfregnir SÚ nýjung er nú tekin upp hér í blaðinu að birta daglega veðurkort frá Veðurstofunni sem nær yfir svæðið frá Labrador og Nýfundnalandi og austur um V-Evrópu. Á kortið eru markaðar útlínur land- anna með daufu striki og auk þess veðurstöðvar á þessu svæði. Við stöðvarnar er skrif- að hitastig og ennfremur sýnd vindátt og vindhraði með ör. Vindhraðinn er táknaður með örvum, og hver heil fjöður á örvunum táknar 10 hnúta vind hraða. 2 fjaðrir 20 hnúta o.s.frv. Úrkomusvæði eru merkt inn á og auk þess lægð- ir og hæðir. Loftþrýstingur er skrifaður í millibörum og hita stig í Celciusgráðum. Vonast blaðið til þess að þessi nýbreytni erði vinsæl, þar eð fólk getur með þessu móti betur fylgzt með vernig loftstraumar liggja og öðru sem veðri viðkemur. f' NA /5 hnúior s SV 50 hnútar X Snjókoma 9 ÚÓi \7 Skúrir í£ Þrumur Kutíasti/ Hitoski/ H HatÍ L LotnS Veðurlýsing kl. 22 í gær- kvöldi: Fyrir sunnan og vest- an land er lægð, sem hreyfist lítið úr stað. Önnur lægð fyrir norðaustan Nýfundnaland, fer hún dýpkandi og hreyfist gengur í vaxandi austan-átt og þykknar upp síðdegis. SV- land til Norðurlands, SV-mið til norðurmiða, A-gola víðast léttskýjað. NA-land og Aust- firði, NA-mið til Austfjarða- miða hægviðri, víða léttskýj-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.