Morgunblaðið - 01.12.1959, Síða 17
Þriðjudagur 1. desember 1959
MOTtC. T1NPT,AÐ1Ð
17
Eyjólfur frá Dröngum
Fallið er tjald að foldargrund,
farin er sál til hæða,
sofnuð í Guði sælan blund,
signuð af Drottins helgu mund,
burtu er böl og mæða.
Barin af stormi björk var hér.
Brimar af veðri hörðu.
Geislarnir sumars sýndu þér,
sólin hvar björt og heitust er,
græðari Guðs á jörðu.
Ungur þú kvaddir æskuslóð
öðrum að syni færður.
Fóstri þér snemma gjörði glóð,
góð þér sem móðir konan stóð,
sæll bæði varst og særður.
RACNAR JONSSON
hæstaréttarlögmaður
Vonarstr. 4 VR-húsið. Sími 17752
Lögfræðistörf og eignaumsýsla.
Iðin var mjög þín haga hönd,
hirði ég fátt að inna.
Smíðaðir báta, byggðir lönd,
bárunnar þekktir kalda vönd,
sjónum oft máttir sinna.
Tungan ei síður tamin var,
túlkaði mál af snilli.
Ljóðin á vörum bóndinn bar,
bjó yfir mætti stökunnar,
hafði guðsanda hylli.
Blessaði Guð þinn barnahóp,
borinn af tveimur konum.
Fjórtánda kátt í faðminn hljóp,
fleiri þér ekki Drottinn skóp,
södd var þín sál að vonura.
Ævi þín var um annað flest,
önnur en margra hinna.
Öldnum þér vakti allra mest
yndi, að metta svangan gest,
eða þá sjúkum sinna.
Húsið þitt ætíð opið var,
öllum á nótt sem degi.
Bjargaði mörgum „brauðið“ þar,
bitann við neglur Guð ei skar.
Sannleikann einan segi.
Trúin á Guð var traustið þitt,
trúin á betri heima.
Endar hér litla ljóðið mitt,
læt ég svo Guð um verkið hitt,
bið Hann þín börn að geyma.
Blessuð sé mæta minning þín,
mælir hvert vinar hjarta.
Hópurinn stóri’ og höndin mín,
heilsar þér næst er dagur skín,
ásjóna engilbjarta.
K. K.
og fullorðin stúlka Alla stund
síðan hefur þú borið svo hlýjan,
systur- og dótturhug til heimilis-
ins, að einstakt má telja, ekki þó
á kostnað þíns eigin, heldur
þvert á móti. Þetta finnst mér ég
mega til með að þakka einu
sinni enn.
„Margs er að minnast, margs
er að sakna“. — Og verður það
ekki allt upptalið hér. Þó er það
sérstaklega eitt ,sem aldrei verð-
ur fullþakkað. Þegar sorgin hef-
ur drepið á dyr mínar og ég
hef átt um sárt að binda, komst
þú ætíð, ótilkvödd og barst
smyrsl í sárin — af því greri
bezt. Ætíð minnist ég þess með
gleði, er ég kom með hópinn
minn til þín í gamla daga. Hvergi
hefur mér liðið betur utan heimil
Cuðfinna Friðbjarnar-
dóttir, Nípá, Minning
„Hryggjast og gleðjast
hér um nokkra daga,
heilsast og kveðjast,
það er lífsins saga“.
ÉG SKRIFA þessar línur í rökkri
en þó skín sólin í heiði — „og
fótur vor er fastur þá fljúga vill
önd“. í dag átt þú hug minn
allan. Þegar fólkið er að búast
til að kveðja þig hinztu kveðju,
læt ég hugann reika til liðinna
ára. Þar er svo margs að minn-
ast. Þótt við höfum ekki sézt eða
talazt við í 9 löng ár — 18 miss-
eri, þá hefi ég engu gleymt. Ég
man það vel, er þú komst til okk-
ar 12 ára gömul og reyndist okk-
ur hjónunum eins og bezta dótt-
ir, börnunum eins og góð syst-
ir og leystir störfin af hendi eins
Nýr heimilislexikon
Gyldendals opslagsbog
Undirr. óskar, að sér verði sendur endur-
gjaldslaust bæklingur um Gyldendals
opslagsbog.
Nafn .....................................
Heimili ..................................
Pósthús .............................
5 bindi —
2,700 bls.
500 heilsíðumyndir af merk-
um stöðum og atburðum —
1000 litmyndir af plöntum
og dýrum — 250 heilsíðu-
myndir af listaverkum —
250 litprentuð landabréf,
auk fjölda annarra mynda.
1 vönduðu
Innb. bandi
Gegn afb. kr. 1.780,00 kr. 2.140,00
Gegn staögr. kr. 1.425,00 kr. 1.700,00
Bókabúð Norðra
Hafnarstræti 4 — Sími 14281
$MíMíM^,$MíMíMí*^,íM$MíMíM^,$MíMíM>t*",íM$MíM$MíM$M$M$M$M$M$M$M$M$M$M$M$M^
is en í lága bænum á árbakkan-
um. Þar var ætíð hlýtt og bjart.
Ég man síðustu samfundi okk-
ar. Þá var heilsa þín tekin að
bila — því miður, en hjartahlýjan
og velvildin hin sama.
Góða vinkona, leiðir okkar
skilja nú að sinni. En góð verð-
ur heimkoma þín til föðurhús-
anna, því „þar bíða vinir í
varpa“, sem vel taka á móti.
Finnumst glaðar handa höf, heil-
ar að öllu leyti.
Með innilegri þökk fyrir allt.
Guðrún Oddsdóttir.
Læknir skipaður
r
í Arneshrepp
á Ströndum
FINNBOGASTÖÐUM, 27. nóv: —
Ágætis veður hefur verið hér
undanfarið, jörð alauð, hvergi far
ið að hýsa kindur.
Óvenjulítill reki hefur verið á
ströndunum á þessu hausti og það
sem af er vetri.
Mjög vont kvef hefur gengið
hér að undanförnu og er þrálátt
í sumum. Liggja sumir í þessu
kvefi í 7—10 daga með talsverðan
hita.
Læknislaust er hér og hefur
svo verið síðan í haust, en odd-
viti Árneshrepps, sem nýkominn
er úr Reykjavík kom hingað með
þau gleðitíðindi, að landlæknir
hefði nú skipað hér lækni frá 1.
desember að telja. Er það mikið
öryggi fyrir þetta fámenna, af-
vikna og vegalausa byggðarlag að
hafa lækni yfir veturinn. Vona
hreppsbúar að þessi læknir þurfi
ekki að vera af og til á Hólmavík
og gegna störfum héraðslæknis-
ins þar.
— Regína.
'wláusnin
vikurfélagið;
íbúðir til sölu
Til sölu eru mjög góðar 3ja og 4ra herb. íbúðir á
hæðum í fjölbýlishúsi við Stóragerði í Háaleitis-
hverfi. Hvérri íbúð fylgir auk þess sér herb. í kjall-
ara hússins auk venjulegrar sameignar í kjallarau
Ibúðirnar eru seldar fokheldar, með fullgerðri mið-
stöð, húsið múrhúðað og málað að utan, öll sam-
eign inni í húsinu múrhúðuð, allar útidyrahurðir
fylgja. Bílskúrsréttur fylgir. Mjög fagurt útsýnL
Hagstætt verð. Lán kr. 50 þúsund á 2. veðrétti fylgir.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
m
Gull-
og dýrir steinar
Skartgripir úr gulli og silfri settir dýrum
steinum og perium eða einalje og niello
Við höfum nú margt ágætra, sérstæðra gripa
sem smíðaðir eru á verkstæði okkar.
Viðfangsefni verkstæðanna er listsmíði í
gulli.silfri og dýrum steinum.
Jólasalan er þegar hafin.
Jön Slomunílsson
Skurlijnpuverzlun
c^npiir
er œ
tif vpicliá