Morgunblaðið - 01.12.1959, Page 24

Morgunblaðið - 01.12.1959, Page 24
228. tbL — Þriðjudagur 1. desember 1959 Hátídahöld á fullveldisdaginn Frú Ragnhildur Helgadóttir 8. þm. Reykvíkinga, í forseta- stóli neðri deildar Alþingis í gaer. Með henni á myndinni eru skrifarar deildarinnar, hægra megin Alfreð Gíslason,' bæjarfógeti, 8. Iandskjörinn þm., og vinstra megin Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunn- lendinga. Frú Ragnhildur er, sem kunnugt «-r annar vara- forseti deildarinnar, og er þetta í fyrsta skipti sem hún stýrir fundi. Tvær konur hafa áður stýrt fundum á Alþingi að því er bezt verður vitað. Voru það Ingibjörg H. Bjarnason, er var kjörin annar varaforseti efri deildar árið 1925 og Rannveig Þorsteinsdóttir, er var annar varaforseti sameinaðs þings á kjörtímabilinu frá 1949 til 1953. Stal svínakjöti r ..1 i olæoi KLUKKAN 6 á sunnudagsmorg- uninn veitti bílstjóri einn á BSR því eftirtekt, að mjög ölvaður maður stóð í miklum kjötflutning um suður á Bergstaðastræti. Bar hann birgðar sínar inn í húsa- garð einn. Bílstjórinn sá að hér myndi ekki allt með eðlilegum hætti og fór á eftir manninum inn í garð- inn. Þegar þangað kom var hann þar yfir 4 stórum svínslærum. Fór maðurinn með hinn ölvaða mann niður á lögreglustöð. Við rannsókn kom í ljós að kjötþjófurinn hafði sprengt upp lás fyrir hurð að kjötgeymslu í Síld & Fisk við Bergstaðastræti. Kom í Ijós að kjöt-þjófurinn hafði líka stolið 4 svínahryggj- um. Ekki hafði þessi maður verið að „draga björg í bú“, því hann er einhleypur. Kvaðst hann enga skýringu geta gefið á þessu hátta- lagi. Málþóf í algleymingi Fundur í efri deild Alþingis fram a nótt HÁTÍÐAHÖLD í tilefni fullveld- isdagsins verða á vegum háskóla- stúdenta eins og áður. Hefjast þau kl. 11 f.h. með guðsþjón- ustu í kapellu Háskólans. Próf. Þórir Kr. Þórðarson prédikar og prófessor Björn Magnússon þjón- ar fyrir altari. Aðalræðu dagsins flytur Jónas Haralz ráðuneytisstjóri og mun hún fjalla um eínahagsmál. Kæð- an verður flutt úr útvarpssal. Hátíðahöld stúdenta í hátíða- sal Háskólans hefjast kl. 4 síð- degis. Karlakör stúdenta syngur, formaður stúdentaráðs flytur á- varp, tveir stúdentar flytja stuttar ræður og flutt verður sam felld dagskrá, svipmyndir úr lífi Jóns Eiríkssonar. Að lokuu, verð- ur kórsöngur. í kvöid nalda stúdentar svo hóf á Hotel Borg. Þar flytur próf. Niels Dungal ræðu, Jón Sigur- björnsson, óperusöngvari, syngur einsöng, og Ómar Ragnarsson sér MÁLÞÓF Framsóknar og kommúnista var í algleym- ingi í efri deild Alþingis í gær. Stóð fundur í deildinni frá því kl. 1,30 e. h. og fram á nótt. Fimm mál voru á dag- skrá er fundur hófst, fjögur frv. um framlengingu ýmissa ákvæða, er lögfest hafa verið til eins árs í senn og loks frv. um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði í byrjun næsta árs. Voru frumvörp þessi rædd fram yfir kvöldmat, en ekkert þeirra varð útrætt. Af hálfu mál- þófsmanna fluttu lengstar ræður Ásgeir Bjamason, Páll Þorsteins- son, Alfreð Gíslason og Karl Kristjánsson. Af öðrum ræðu- mönnum má nefna Jón Þorsteins son, 9. landskjörinn þm., er flutti jómfrúræðu sína á Alþingi. Á kvöldfundi efri deildar var lagt fram nýtt þingskjal, frv. til laga um bráðabirgðabreytingu á framlengingu nokkurra laga. Var frv. þetta tekið á dagskrá með afbrigðum og gerði fjármálaráð- herra, Gunnar Thoroddsen, grein fyrir því. Kvað hann í þessu frv. Ágæt fiskveiði DJÚPUVÍK, 30. nóv. — Sólar- tindur hefur róið frá Djúpuvik í haust og fiskað ágætlega þegar gæftir hafa verið. — Hann var að koma úr róðri kl. 5 í dag og fiskaði 5000 pund á 50 lóðir. — Mikið af aflanum var ýsa. — Frá Landshappdrættinu: Drætti frestað til 15. janiíar ÞAÐ hafði á sínum tíma verið ákveðið, að dregið skyldi í Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins nú í dag, 1. desem- ber, en þar sem þetta happdrætti er mjög umfangsmikið og uppgjör og skilagreinir ókomnar ennþá frá allmörgum umboðsmönnum og öðrum aðilum, þá hefir sú ákvörðun verið tekin að fresta drættinum um sinn, — um leið og menn eru beðnir að virða það á betri veg. Ákveðið hefir verið, að dráttur skuli fara fram 15. janúar næstkomandi — og verður að sjálfsögðu við það staðið. HAPPDRÆTTISNEFNDIN sameinuð fimm frv. um framleng ingu bráðabirgðaákvæða, er leg- ið hefðu fyrir deildum þingsins. Hefði eftir atvikum þótt rétt að sameina þau í eitt frv. Var um- ræðum nú haldið áfram um þetta frv. Kl. 11 var gert hlé á fundi til kl. hálftólf en gert var ráð fyrir að reynt yrði að Ijúka annarri um ræðu um frv. bráðabirgðafjár- greiðslur úr ríkissjóði, en 1. um- ræðu um sameinaða frumvarpið lauk laust fyrri miðnætti. Var því vísað til 2. umr. og fjárhags- nefndar. Er blaðið fór í prentun stóð enn yfir fundur í efri deild. Sæmd Fálkaorðu FORSETI fslands hefir hinn 27. nóvember 1959, að tillögu orðu- nefndar, ssemt þessa íslendinga heiðursmerkjum hinnar íslenzku fálkaorðu: Ungfrú Maríu P. Maack, yfir- hjúkrunarkonu, Reykjavík, ridd- arkrossi fyrir hjúkrunarstörf og störf að mannúðarmálum. Séra Svein Víking, fyrrv. biskupsrit- ara, riddarakrossi, fyrir embætt- isstörf. Reykjavík, 28. nóvember 1959. Orðuritari. Eru sauðfjárveikivarn- irnar kák eitt? HÚSAVÍK, 30. nóv.: — Garna- veiki í sauðfé og kúm hefur dálít- ið orðið vart hér á Norðurlandi, en á svæðinu milli Skjálfanda- fljóts og Jökulsár á Fjöllum hefir veikinnar ekki orðið vart. En vestan Skjálfandafljóts hefur hennar dálítið orðið vart og hafa ýmsar varnir verið hafðar, til þess að koma í veg fyrir að veikin bærist austur fyrir Skjálfanda- fljót. Allir sauðfjárflutningar eru bannaðir frá svæðinu vestan fljóts og sömuleiðis hefur verið áiitið að ekki væri heimilt að flytja kýr yfir fljótið. En þær taka einnig þessa garnaveiki. Vegna þessa banns hefur verið komið upp sláturhúsi að Ófeigs- stöðum í Köldukinn. Skapar það mikinn tilkostnað að þurfa að slátra þar. í haust var slátrað þar ym 400 fjár og kjöt og aðrar af- urðir fluttar jafnóðum á frysti- hús á Húsavík. Nú er mér kunnugt um að Barn orsakar bíla- árekstur SKÖMMU eftir hádegi í gær varð umferðaslys á Langholtsvegi, í nánd við Sunnutorg. Barn hafði hlaupið út á veginn, fyrir framan bíl sem þar var á ferð. Snar- hemlaði bifreiðastjórinn til að forða slysi, en við það lenti bif- reiðin, sem á eftir honum ók, aftan á bíl hans. I aftari bílnum voru kona og , barn. Meiddust þau bæði lítils- ! háttar, en bifreið þeirra er mjög I mikið skemmd. þrjár kýr hafa verið fluttar aust- ur yfir Skjálfandafljót, úr Eyja- firði í Bárðardal, þrátt fyrir að hér sé talið að þetta sé bannað. Sagt er að sauðfjársjúkdóma- nefnd hafi veitt undanþágu með þessum flutningi. Mörgum mönn- um hér finnst því að þessar sauð- fjársjúkdómavarnir séu hálfgert kák, þegar veittar eru slíkar undanþágur sem þessi. — Fréttaritari. Jónas Haralz um skemmtiþátt. Karlakór stud- enta syngur. Svavar Guðnason forseti BÍL í GÆR var haldinn aðalfundur í Bandalagi ísl. listamanna. For- seti bandalagsins var kjörinn Svavar Guðnason listmálari. Við fyrstu atkvæðagreiðslu hlutu þeir jöfn atkvæði Jón Leifs, tónskáld, og Svavar, en er kosið var aft- ur hlaut Jón 14 atkvæði og Svav- ar 15. Aðrir í stjórn eru Jón Leifs, Sigríður Ármann, Brynjólfur Jóhannesson, Guðmundur Matt- híasson, Kjartan Sigurðsson og Þóroddur Guðmundsson. Þungum járnkassa stolið um hábjart- an dag EFTIR hádegi í gær var stolið . járnkassa af hornlóðinni á Grænu hlíð og Bogahlíð. Er kassinn um 1 m á hvern veg, og svo þungur og fyrirferðarmikill að óhugsandi er að hægt hafi verið að fara með hann nema tveir eða þrír menn hafi verið þar að verki. Hafi einhverjir orðið varir við ferðir manna með slíkan kassa, eru þeir beðnir um að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna. Ómerktir gúmmíbjörg- unarbátar finnast HÚSAVÍK, 30. nóv. — Á laug- ardaginn bánust hingað þær fregnir, að rekið hefði gúmmí- björgunarbát á Læknesstaða- f jörur á Langanesi, og hefði sá bátur verið heillegur mjög, annar gúmmíbjörgunarbátur- inn sem rekur á þessum slóð- um. í fyrstu fylgdi það fregn- inni að lík hefði verið í gummi bátnum, sem var með tjaldi yfir. Hafði læknir farið á stað- inn, en þessi sögusögn reynd- ist tilhæfulaus með öllia. Ekk- ert var í bátnum, er bent gæti til þess að þar hefðu menn hafzt við í lengri eða skemmri tíma. Ekkert skipsnafn ber báturinn, en áletranir eru á honum. En báturinn sjálfur blágrár á litinn en tjaldið yfir honum gult. Báturinn, sem rekið hafði um það bil viku íður, en nákvæmlega eins. — Hann var verr farinn og rak hann á fjörur að Sævarlandi í Þistilfirði. Báðir eru bátarnir 4—5 m í lengd. Var báturinn á Læk- nesstaðafjöru uppblásinn og lítið loft lekið úr honum og hann var einnig reimaður aft- ur að nokkrn leyti. Úr hin- um bátnum var loftið að mestu farið, svo erfitt er að fullyrða um hvort hann hefur verið blásinn út. Merkin á bátunum eru: — LD 100, LH 27/6, þá 22.331,985 /2RR. Blaðið spurðist fyrir um það hjá hernum á Keflavíkur- fliugvelli, hvort þeir þekktu þessi merki, en svo var ekki. Verða bátarnir fluttir suður til frekari rannsóknar. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.