Morgunblaðið - 03.12.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.12.1959, Blaðsíða 11
10 MoncvTSnr.AÐiÐ rimmíudagur 3. des. 1959 Fímmíudagur 3. des. Útg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjöri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið. ALVÖRUÞRUNGIN AÐVÖRUNAR- ORÐ r IRÆÐU þeirri, sem Jónas Haralz ráðuneytisstjóri flutti á vegum háskóla- stúdenta á fullveldisdaginn, fól- ust alvöruþrungih aðvörunarorð, svo alvarleg, að engin hugsandi íslendingur má láta þau fram hjá sér fara. Jónas Haralz dró í hinni ágætu ræðu sinni upp glögga mynd af þróun íslenzkra efna- hagsmála á undanförnum árum, og gerði þjóðinni hreinskilnis- lega grein fyrir því, hversu ömur- lega er komið fyrir henni. „Ég fæ ekki betur séð, en að svo framarlega sem ekki verði gagnger breyting á stjórn efna hagsmálanna í náinni framtíð, blasi ekki annað við en greiðsluþrot út á við og upp- lausn inn á við,“ sagði ráðu- neytisstjórinn. „Verðbólgusprenging” Hann vitnaði síðar í ræðu sinni til ummæla sinna haustið 1958, í þann mund, sem vinstri stjórnin fór frá völdum, að „þjóð- in væri að ganga fram af brún- inni“. Hann kvað víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags á árinu 1958 og mánuðunum þar á undan hafa verið svo örar, að af því hefði leitt „verðbólguspreng- ingu“. Þannig var ástandið haustið 1958, þegar vinstri stjórnin hrökklaðist frá völdum. Verð- bólgan hafði vaxið gífurlega und- ir forystu hennar. Hermann Jó.i- asson var knúður til þess að lýsa því yfir, að enn „ný verðbólgu- alda“ væri risin, og að engin samstaða væri fyrir hendi innan rikisstjórnar hans um úrræði til lausnar vandanum. Djúptækar breytingar Um það, hvernig snúið verði vifí á þeirri óheillabraut, sem íslendingar hafa gengið síðustu ár í efnahagsmálum sínum, komst Jónas Haralz m. a. að orði á þessa leið: „Breytingar á þessum málum geta ekki fengizt með neinum yfirborðslagfæringum, og alls ekki með notkun neinna töfra- meðala. Lækning getur aðeins fengizt með djúptækum breyting um, sem að sjálfsögðu ekki geta skeð á skömmum tíma. Fyrsta skrefið til lækningar er að leið- togar okkar á öllum sviðum þjóð- lífsins horfist æðrulaust í augu við vandamálin, að þeir sannfær- ist um, að hér er um ekkert minna að tefla en það, hvort okk- ur tekst að byggja þetta land sem sjálfstæð og frjáls þjóð, og að í samanburði við það, skipta aðrir hlutir litlu máli. Ef þeir vísa leið- ina, er varla hætta á öðru en ís- lenzka þjóðin fylgi á eftir.“ Undirrót erfiðleikanna Engum blandast hugur um það, að undirrót erfiðleika okkar í efnahagsmálum er rik hneigð þjóðarinnar til þess að eyða meiru en hún aflar. Sú hneigð er orsök hins geigvænlega greiðslu- halla gagnvart útlöndum, sem ráðuneytisstjórinn benti á í ræðu sinni. Þennan mikla halla höfum við greitt með gjafafé og stór- feldum erlendum lánum. Nú er svo komið, að greiðslur vaxta og afborgana af erlendum lánum, munu á næstu tveimur árum nema 160—170 milljónum króna á ári, eða um 11% af heildar- gjaldeyristekjum landsins. Það er einnig alvarleg stað- reynd, að svo er_ nú komið, að ísland getur ekki fengið lán til langs tíma hjá þeim helztu pen- ingastofnunum í heiminum, sem slík lán veita. Þannig er þá komið lánstrausti þessarar þjóðar. Jónas Haralz vekur athygli á því, að þau stórlán, sem við höf- um tekið sl. 3 ár, hafa verið veitt úr sérstökum sjóðum, sem Banda- ríkjastjórn ræður yfir, en slíkra lána hafa aðeins fá lönd orðið að- njótandi undir mjög sérstökum kringumstæðum. Þær sérstöku kringumstæður voru m. a. þær, að vinstri stjómin fékk stórlán hjá Bandaríkjastjórn um leið og hún samdi við hana um áfram- haldandi dvöl varnarliðsins í landinu. Svona hyldjúpa gerði Her- mann Jónasson og vinstri stjóm hans niðurlægingu fs- lands. Hann hikaði ekki við að taka við beinni borgun í dollurum fyrir það að semja um áframhaldandi dvöl varn- arliðsins í landinu um ótil- tekinn tíma, þvert ofan í kosn ingaloforð flokks síns og mái- efnasamning ríkisstjórnar hans! Þannig lék vinstri stjómin sóma íslands og þjóðar þess. Önn ur eins óhappastjórn hefur aldrei farið með völd 1 þessu landi. Leiðir út úr vandanum Það er mikils um vert, að gera sér ljóst, hvernig ástandið er í efnahagsmálum landsmanna um þessar mundir. Ríkisstjórnin mun leggja á það höfuðkapp að gera þjóðinni það sem ljósast, leggja spil þrotabús vinstri stjórn arinnar opinskátt og hreinskiln- ingslega á borðið frammi fyrir alþjóð. En mest er þó um vert, að viturlegar leiðir verði fundn- ar út úr vandanum. Jónas Har- alz ræddi í niðurlagi ræðu sinn- ar nokkuð einstök atriði í sam- bandi við lausn efnahagsvanda- málanna. Hann minntist á tak- mörkun á lánsfé bankanna, vaxta breytingar, greiðsluhallalaus fjár lög, samræmingu á stórfram- kvæmdum í þágu framleiðslunn- ar, jafnvægi í greiðsluviðskipt- um ,breytingar á tengingu verð- lags og kaupgjalds, breytingar á skattalögum með það fyrir aug- um að gera atvinnutækjunum kleift að mynda fjármagn til eðlilegrar uppbyggingar, og aukn ingar framleiðslunnar. Öll var þessi ræða ráðuneyt- isstjórans, sem er einn af merkustu hagfræðingum okk- ar hin athyglisverðasta. Er vissulega ástæða til þess að ihvetja þjóðina til þess að kynna sér þá sögu, sem hann rakti og ábendingar hans um leiðir út úr því efnahagsöng- þveiti, sem þjóðin horfist nú í augu við. UTAN ÚR HEIMI ] Pólifískt sfríð „á öldum Ijósvakans" UM þessar mundir eru 20 ár liðin síðan brezka útvarpið (British Broadcasting Corp- oration) hóf sérstakar út- varpssendingar til megin- land Evrópu. — Útsending- amar til Austur-Evrópu hafa ekki gengið hljóðalaust á undanförnum árum. Komið hefir verið upp sérstökum útvarpsstöðvum til þess að trufla þessar sendingar — og svo er enn. Útvarp BBC á fjórtán Evróputungumálum er nú truflað þannig — fyrst og fremst til jámtjaldsland- anna svonefndu, en einnig útsendingar til landa eins og Finnlands og Grikklands. — En BBC heldur áfram að út- varpa til Austur-Evrópu í fullvissu um það, að tíminn vinni gegn slíku framferði. — ★ — Það var byrjað fremur smátt á þessu sviði. En mjór er mikils vísir. og innan tveggja ára var komin á fót sérstök deild innan brezka útvarpsins — „BBC Europ- ean Service“ — sem hver Englendingur er stoltur af, enda er þessi útvarpsstarf- semi af mörgum talin eitt beittasta vopnið í baráttunni fyrir friði og gagnkvæmum skilningi ólíkra þjóða — þrátt fyrir baráttuna gegn henni, sem áður er á minnzt. • Frægar raddir Þegar Þjóðverjar höfðu lagt undir sig mikinn hluta Evrópu í styrjöldinni og London varð aðsetursstaður útlagastjórna ýmissa landa, varð „BBC European Serv- ice“ mikilvægasti tengiliður meginlandsins við hinn frjálsa heim fyrir utan. — Þjóðverjar trufluðu að vísu sendingarnar eftir mætti, en gegnum hávaðann frá trufl- Jafnvel finnar mega ekki heyra „röddina frá London" * Polland eina járn- tjaldsríkið sem ekki truflar sendingar BBC mætti segja, til þjóða, er lifa við pólitíska kúgun. — En þannig er því miður ástatt enn um margar þjóðir í Evrópu — og hið ósýnilega en háværa tákn einræðisins, truflanastöðvarnar, senda enn skerandi hljóð út yfir „öldur ljósvakans“. — ★ — BBC útvarpar samtals 223 klukkustundir á viku hverri Árið 1956 hættu Rússar reyndar um skeið að trufla BBC. Það var — af eðlileg- um ástæðum — þegar Krús- jeff og Búlganin heimsóttu England. Nokkrir mánuðir liðu svo, að brezka útvarpið heyrðist ágætlega austur þar, en svo hófust truflan- imar skyndilega á ný — sömuieiðis af eðlilegum ástæðum — þegar uppreisn- leyti, sem truflunum var hætt, lá verðmæti. sem nam 112 millj. zloty í stöðvunum og öllum útbúnaði þeim til- heyrandi, og rekstrarkostn- aður nam um 30 millj. zloty á ári — en það var um þriðj. ungur kostnaðarins af öllum rekstri pólska ríkisútvarps- ins. — Og nú var hægt að taka 42 stuttbylgju- og 11 miðbylgjusenda til annarra og nytsamlegri þarfa. til landa í Evrópu — fyrst in brauzt út í Ungverjalandi. og fremst til járntjalds- landanna, mest til Rússlands 0 Dvrt spaug (17Í4 klst.) og Póllands , . (1614). Síðast var byrjað að Po^nd er nu ema 3arn- útvarpa tU Rússlands, eða tjaldslandið, þar sem dag- ur sogunm. • Mun hverfa Skopmynd ur rússneska blað- Sjalfsagt verður þess enn inu „Krokodil“ W að b ða, að Sovétríkin af Maurice La- °g onnur jarntjaldslond fylgi tey, sem stjórn fordæmi Pólverja í J?essum ar útvarpssend e£num — ser ljost, ingum til Aust- að ,uPPgotvun Gobbels ger ir ekki þeim, er henni beita, slíkt gagn, að svari til fyrir- hafnar og kostnaðar sem henni er samfara. En, sem sagt, tíminn vinnur geg.n slíku atferli og fyrr eða síðar mun þetta tákn einræð is og skoðanakúgunar hverfa Þessi teikning er úr öðru tékknesku blaði — og teiknarinn kallar hana að- eins: „BBC-hIustandi“. — ur-Evrópu. skrá BBC heyrist hindrunar- laust. — Þegar Gomulka kom þar til valda 1956, var — ★ — Það er nefnilega svo — tilkynnt. að hætt yrði að sem nágrannar okkar í Dan- trufla erlendar útvarpssend- mörku og Noregi geta borið ekki fyrr en árið 1946. • Göbbels var höfund- urinn Skipulagðar útvarpstrufl- anir voru fyrst notaðar nokkru fyrir heimsstyrjöld- ina síðari — það var Göbb- els, áróðursstjóri Hitlers, sem „fann upp“ þessa aðferð og notaði hana á sama hátt og nú er gert: til þess að hindra að „óæskilegar“ skoð- anir og fréttir bærust út til almennings. — Að stríðinu loknu, þegar bandamenn stóðu yfir höfuðsvörðum þeirra manna, sem voru höf- undar truflanastöðvanna, héldu menn, að slíku yrði ekki framar beitt sem póli- tísku vopni. En þegar „kalda stríðið” var farið að harðna fyrir alvöru, tók truflana- surgið að segja til sín á nýj. an leik. — Rússar riðu hér á vaðið — byrjuðu að trufla in2ar- — Andúðin á þessari um af eigin reynd frá stríðs sendingar BBC fyrir 10 ár- ,,starfsemi kom vel i ljos í árunum — að þrátt fyrir o- um, tveim árum síðar fylgdu uPPreisninni í Poznan þetta þægindi þau sem af hinum pólsk stjórnarvöld fordæmi úr. Þá réðist fólkið jöfnum skipulogðu truflunum stafa, Moskvuherranna í þessu efni höndum á fangelsin og trufl- hlustar almenningllr ekki l og árið 1953 voru starfandi anastoðvarnar. . truflanastöðvar í öllum hin- Þetta dæmi frá Póllandi annað meira en hinar er- um kommúnisku löndum segir líka aðra sögu. Það hef ,en<lu útvarpssendingar, sem Þar var Göbbels, áróÖurs- stjórí Hitlers, sem fyrstur beitti skipulögðum utvarps- truflunum til að utiloka óæskilegar66 skoðanir 99' Evrópu. ir verið upplýst, að um það þannig eru leiknar. Selur ollt tU uð hjólpa fúvitum LONDON. — Fjörutiu og níu ára gamall enskur verk- smiðjueigandi hefir ákveðið að gefa tveim elztu samstarfs mönnum sínum hina stóru húsgagnaverksmiðju sína. — Hins vegar ætlar hann að selja stóra og glæsilega ein- býlishúsið sitt, sem hefir m.a. sex svefnherbergi — og síð- an ætlar hann og kona hans að verja lífi sínu hér eftir til hjálpar nauðstöddum börn- um. Pelling — en svo heitir verksmiðjueigandinn — og kona hans eiga eitt barn, 18 ára son, sem er fáviti. — Þau ætla að koma á fót sérstöku heimili fyrir slík börn, þar sem þau njóti umönnunar fólks, er hefir hlotið sérstaka menntun á þessu sviði. — Þarna á sonur þeirra einnig að fá að dveljast, svo lengi sem hann lifir. — Við hjónin vitam, hver kross það getur verið for- eldrum að eignast slík börn, segir Pelling, og við vitum líka, hve nauðsynlegt það er, að þau njóti umönnunar hæfra manna. Myndin er úr tékknesku vikublaði — og með henni stóð svohljóðandi texti: „Á hvaða málshátt minn- ir þessi mynd yður? — Svar: Lýgin er lágfætt". anastöðvum þeirra heyrðust margar frægar raddir: Churchill, Vilhelmína Hol- landsdrottning, Hákon Nor- egskonungur, Benes forseti Tékkóslóvakíu og de Gaulle hershöfðingi — og síðast en ekki sízt munu menn minn- ast raddar Eisenhowers, þá yfirhershöfðingja, er hann tilkynnti um innrás banda- manna í Frakkland. Þetta tilheyrir nú sögunni. BBC er hætt að halda uppi sérstökum útvarpssending- um til Vestur-Evrópu. Þörf- in er ekki lengur fyrir hendi, því að hlutverk slíkra send- inga hefir frá upphafi verið það að byggja „brú“, ef svo Kort, skrifað um borð í „Titanic" RAUNVERULEIKINN er oft ótrúlegri en nokkur skáldsaga, og ef eftirfarandi frásögn sem vér höfum eftir norsku fréttastofunni NTB, er sannleikanum samkvæm, þá er hún vissulega enn ein sönn un þess, hve ótrúlegar sögur lífið getur stund um samið: ♦ Sænsk kona, frú Alice Bengtson í Falkenberg, fékk ný- lega kveðjupóstkort, sem verið hafði harla lengi á leiðinni. Kortið var frá bróður hennar, Karl Roberg Carlson, sem fórst með stórskip nýkomið fram inu „Titanic“ árið 1912. — Það enu sem sé nær 50 ár síðan skrifað var á kortið, en ekkert er vitað um „ferðir“ þess fyrr en nú allra síðustu árin. ♦ E3 Það var fyrir um það bil þremur ár- um, að skátadrengur einn fann þetta kort af tilviljun við Ljung- vatnið í Hollandi. — Ekki hafa menn lwig- mynd um hvemig það hefir þangað komizt, en síðan er sagan ljós. — Drengurinn geymdi kortið, þar sem honum þótti það merkilegt vegna dagsetningarinp ar, en það var skrifað 10. apríl 1912 um borð í Titanic. — En svo gleymdi hann fundi sínum þar til hann fyrir nokkmm mánuð um sá kvikmynd um Titanic-slysið. Þá á- kvað hann að reyna að hafa uppi á viðtak- andanum. ♦ CE3 Kortið var stílað til Emanuels Carl sons, jarðyrkjumanns, Falkenbergv — Eftir víðtæka eftirgrennslan tókst loks að fá vitn- eskju um Carlson þennan, en hann hafði látizt árið 1931. Það var þó upplýst, að hann var faðir fyrr- nefnds Karls Robergs Carlsons — og nú tók skátadrengurinn að leita að öðrum ætt- ingjum. — Þar kom líka, að hann hafði uppi á frú Alice Bengt son, sem er systir Karls Robergs. Svo einkennilega vill til, að hún á heima skammt þar frá, sem Emanuel Carlson bjó — í Falkenberg, eins og stóð á póstkortinu. CE3 I samtali við sænskt blað sagð- ist frú Bengtson hafa orðið mjög hrærð, er hún fékk þessa hinztu kveðju frá bróður sín- um með svo óvenju- legum hætti. — Eins og fyrr segir var kort- ið skrifað 10. apríl 1912 um borð í Titanic en hinn 14. sama mán aðar rakst hið nýja og glæsta skip á borgarís- jaka og sökk. Svíinn ungi var í hópi þeirra rúmlega 1600 af áhöfn og farþegum þess sem þarna fórust. — Hann var á leið til Banda- ríkjanna, ásamt vini sínum — til þess að leita gæfunnar......... MORCVNBLAÐIÐ 11 Virkjum Dettifoss FÁ framboð fyrir haustkosn- ingarnar munu hafa vakið meira umtal og athygli en framboð Bjartmars Guð- mundssonar, bónda á Sandi í Aðaldal, er skipaði þriðja sætið á lista Sjálfstæðisflokks ins í Norðurlandskjördæmi eystra. Varð það ljóst strax, er framboðið var tilkynnt, að andstæðingar listans höfðu beyg af því, að vinsældir Bjartmars yrðu þeim til fylgistaps. Úrslit kosninganna sýndu líka, að listi Sjálfstæðis manna hafði unnið á í kjör- dæminu og Bjartmar Guð- mundsson fór á þing sem 10. landskjörinn þingmaður. Er hann skrifari efri deildar Alþingis og á sæti í landbún- aðarnefnd og samgöngumála- nefnd deildarinnar. mæðiveikinni, og kúnum fjölg- ar enn meira, a. m. k. í sveitun- um, sem næst liggja mjólkursam- lagi Kaupfélags Þingeyinga. Ærn ar eru tvílembdar og gefa þar af leiðandi all góðar afurðir, þetta um 50—90% tvílembt. — Hvað um atvinnulífið á Húsa vík? — Þar er aðalmiðstöð austur- hluta Suður-Þingeyjarsýslu og at- vinnuafkoma manna þolanleg um þessar mundir, byggist þó held- ur mikið á byggingarvinnu. En þar hefur mikið verið byggt af myndarlegum íbúðarhúsum, sem setja svip á bæinn. Hinsvegar er útgerð þar ekki mikil, höfnin er grunn og of opin fyrir hafátt- inni, þó þar hafi að vísu verið umbætt nokkuð hina síðustu ára- tugi. Þar er hraðfrystihús, sem vinnur úr afla hinna smærri báta og gengur rekstur þess nú ágæt- lega. Stærri bátar gera aðallega út frá Suðvesturlandi á vetrar- vertíð og fylgir þeim margt manna suður, bæði sjómenn og aðrir til að vinna í landi. Bjartmar Guðmundsson hinni sviplegu stíflu í ánni í hrfll um á dögunum, þegar allt orku- svæði Laxárvirkjunar varð eld- laust, ljóslaust og sumt upphit- unarlaust í fleiri sólarhringa. — Nokkuð fleira í sambandi við hagsmunamál ykkar þar norður frá? — Já, margt. En ég nefni að lokum aðeins eitt. Stundum er talað um stórvirkjanir í landinu í sambandi við stóriðnað, t.d. Þjórsá eða Dettifoss. Dettifoss ætti að verða fyrir valinu, ef menn vilja koma í veg fyrir að hólminn okkar sporðreisist. Óumræðilega þreytandi þingræður — Hvernig fellur þér að sitju á Alþingi og hvérnig lízt þér á andrúmsloftið þar? — Þar eru margir mætir menn. En þingræður eru óumræðilega þreytandi, þegar þær snúast mest um allt annað en fyrir ligg- ur að ræða, máske dögum sam- an fram á nætur. Mann langar ekki beinlínis að heyra endur- sagðar kosningaræður eða efni blaðagreina um 20—30 ár. Aftur á móti er nokkuð gott að hlusta á hálftíma ræður um Kötlugos og frostaveturinn 1918 í sam- bandi við skemmtanaskatt og fag uryrði um ljósmæður og lauga- trog í sambandi við tollskrár. svo hólminn okkar ekki sporðreisist Tíðindamaður Morgunblaðsins hitti Bjartmar að máli og spurði hann um helztu æviatriði og hugð arefni og ýmis baráttu- og á- hugamál byggðarlaganna norður þar. Fer samtalið hér á eftir: Mest baksað við búskap — Þú vildir kannske byrja á því, Bjartmar, að segja mér frá uppvaxtarárum þínum og skóla- göngu? — Ég er fæddur á Sandi 7. júní árið 1900 og hef alltaf átt þar heimili. Ég er elztur af 12 krökkum og fór auðvitað að vinna strax og ég gat eitthvað. Þetta var stór jörð, en talin erfið, mikil engjajörð, mikið um fugla- líf, dálítið um veiðiskap. Skóla- ganga var ekki mikil og ég hef mest baksað við búskap. Þó var ég einn vetur á unglingaskóla og einn vetur á Alþýðuskólanum á Eiðum. Framan af stóð ég fyrir búi föður míns, sem þá var far- inn að slá slöku við, eftir því sem möguleikar leyfðu. Nú bý ég sjálfur með konu og nokkra krakka. Ég byggði nýbýli á Sandi. Þar er nú fjórbýli, tvö nýbýli og tvíbýli á gömlu jörð- inni. Opinber störf? — Ég lenti í hreppsnefnd árið 1931 og hef verið þar síðan, og oddviti nú síðustu árin. Leiðinda- starf. Þá hef ég einnig verið í sýslunefnd síðan 1934 og kallað- ur hreppstjóri frá 1943, en um þetta varðar engan. •— Þú vildir kannske áður en lengra er haldið segja mér frá tildrögum þess, að þú fórst í framboð? Takmörkuð þingsetuþrá — Nokkuð af nýjungagirni, en þó mjög takmörkuð þingsetuþrá, tilviljun, máske eitthvert stjörnu- merki hér uppfrá, beiðni vina minna sumra, sem lengi hafa set- ið í sínu núlli með áhrifalaus at- kvæði en aðallega þó lítil von um að fá aðstöðu til að hafa áhrif á mál, sem legið hafa i hvílu vanrækslunnar. Nóg að gera — Það væri gaman að heyra um það sem efst er á baugi í héraðinu. Hvernig er með at- vinnu þar norður frá hjá ykk- ur — Nóg að gera, byggja, rækta og svo þetta venjulega, á túni. í fjárhúsum og í fjósi. En þó eru tekjur bændanna rýrar þetta 30—70 þúsund nettó, eins og skattaskýrslurnar segja og sýna. Þó fjölgar bæði ásauðum og kú- gildum, svo nú mun vera mun fleira sauðfé í Þingeyjarsýslu en nokkurn tíma áður, og allt stál- hraust, síðan við sigruðumst á Sildina vantar — En síldin og síldarsöltunin? — Þrjár munu vera söltunar- stöðvarnar á Húsavík. En síldina vantar í tunnurnar nú sumar eft- ir sumar. Skipin vilja ekki sigla inn til Húsavíkur, þó síldarmið- in séu stundum þar rétt fyrir ut- an. Þar er að vísu síldarbræðslu- verksmiðja, en lítil og afkasta- smá. Þó er enn verra að þróa- rúm er afar takmarkað, og síld- arskipamenn vilja ógjarna sigla inn, þangað sem þeir geta ekki losnað við þá síld, sem ekki reynist söltunarhæf. Nú er bæj- arstjórnin að beita sér fyrir að fá þrær verksmiðjunnar stækk- aðar. Á því er mikil nauðsyn. Rabbað við Bjartmar albm. á Sandi um buskap, skáldskap og hagsmunamál Þingeyinga — Stundum heyrist talað um hitaveitu Húsavíkur. Hvað 'líður því rnáli? — Nú eru undirbúnar borun- artilraunir eftir heitu vatni í grennd við kaupstaðinn. Sumir vænta mikils þar af, aðrir hugsa sem svo: — Er þetta ekki til þess að tefja hitaveitu simnan frá Hverum, sem hlýtur að koma fyrr en seinna. í 30 ár hefur ver- ið bollalagt um hitaveitu þaðan fram og aftur. í fyrra fór fram athugun og áætlun gerð um kostnað. Ekki vil ég dæma um það, hvort rétt sé að gera þessar borunartilraunir, en ólíkt væri það glæsilegra fyrirtæki að leiða hitann að sunnan með greinum til beggja hliða um allt Reykja- hverfi norður úr, en þar gætu staðið þrefalt fleiri bæir en nú eru, því allt land er þar ræktan- legt sunnan frá Hveravöllum norður fyrir Kaldbakssund. Úreltir vegir — Hvað um vegakerfið? — Heim á flesta bæi í héraðinu eru nú akfærir vegir að nafm til yfir sumartímann. Annars er að- alvegakerfið mjög gamalt víðast hvar og illa haldið við. Flestir helztu vegirnir eru því gerðir fyrir allt önnur ökutæki en nú tíðkast og sumar brýr of mjóar, bæði fyrir stóra bíla og jarðrækt- arverkfæri. Þó er enn verra hvað vegirnir eru lágir og liggja því á kafi undir snjó tímum saman. Byrjað er þó á umbótum í þessu efni. Má þar helzt til nefna 10 km. kafla frá Húsavík að Laxa- mýri. Er þar komin undirbygg- ing að vegi á hlið við gamla veg- inn ,sem er svo hár, að snjó fest- ir þar sjaldan. Þetta er enn ómal- borið, en til mikilla bóta samt á vetrum, þegar frost er komið, en hinn vegurinn í kafi. Annar kafli sunnar, Aðaldalshraunið, er oft illfær vegna snjóa eða ófær. Væri afar mikil nauðsyn að hækka hann líka og má undir engum kringumstæðum dragast teljandi lengur. Fegursta andastöð veraldar —Stundum heyrist talað um kísilvinnslu úr Mývatni. Gerist nokkuð í því máli? — Gerist og gerist ekki. Þetta er í undirbúningi að ég hygg og athugun. Kísill er líka í Aðaldal á þurru landi, en úr Mývatni er hugmyndin að taka hann með sogdælum. Ég held að miklar von ir standi til, að úr þessu verði eitthvað, máske stórmikið. Og ekki er talið að kísilvinnsla úr vatninu muni eyða þar fugli eða fiski, en á öðru mega Mývetning- ar vara sig, því að veiða ekki of mikinn silung. öll ofveiði hefnir sín. Og enn síður mega þeir drepa fuglinn og ungann í net sín, sem alltaf fara fjölgandi, eins og þeir hafa gert undanfarm ár — ekki samt af ásetningi. — Fegursta andastöð veraldar er talin vera við Mývatn. Henni má ekki eyða eða spilla meira en orðið er. Eldlaust, ljóslaust og upphitunarlaust —Þú vildir kannske segja mér eitthvað um rafmagnið frá Lax- árvirkjun? Og svo er stöðin alltaf að bila vegna skorts á vatni. — Já, það er ekki allt í sóman- um er þetta snertir. Mikil orka er enn ónotuð í Laxárvirkjun, en næstu sveitir rafmagnslausar. Engin lína var lögð þaðan á þessu ári og lítið eða ekkert í fyrra ,og voru þó línur þaðan á hinni frægu 10 ára áætlun þessi ár. Svo var verið að gera mikið mannvirki í einni af þrem aðal- kvíslum, er í Laxá falla úr Mý- vatni. Því verki var ekki lokið í haust og mun viðskilnaðurinn þar að einhverju leyti valdur að Trkja sér til heilsubótar — Að lokum langar mig til þess að leggja fyrir þig eina spurningu, Bjartmar. Þú yrkir, er ekki svo? —Nei, ég fiktaði eitt sinn við það lítilsháttar, eins og aðrir unglingar þá, en mínar tær náðu ekki að hælum þeirra ,sem á und an gengu, fannst mér, svo ég hætti þessu. Jónas Jónsson hefur einhversstaðar sagt, að 12 Þing- eyingar hafi um og eftir alda- mótin orkt vel og ágætlega en enginn nú. Ég vil ekki þrátta um það, en segi þó, að enn yrkja margir norður þar sér til heilsu- bótar og til að þjálfa sig í máls- meðferð. Það er atriði fyrir sig og ekki lítilsvert atriði. — Þú vilt ekki lofa mér aS heyra eitt ljóð eða svo? — Nei, ég er búinn að gleyma því öllu. — En þú semur sögur? Eins og hvert annað föndur _ — Já, ojá öllu má nafn gefa. Ég hef stundum fiktað við það í tómstundum mínum, en tóm- stundirnar hafa oft verið fáar. Eitthvað verða menn að gera sér til gamans, þegar þeir hafa af sér velt reiðingnum, eins og Stephan G. orðar það í einu kvæði. Sannast sagt hef ég af þessu mjög mikið gaman, eins og sumir aðrir af skák, spilum eða frímerkjasöfnun. Þetta er eins og hvert annað föndur við eitthvað. En úr engu verður neitt verulegt af þessu tagi, nema menn leggi sig alla í eitt og hið sama. — Hefurðu ekki í hyggju að gefa út sögur? — Ég veit ekki. Það er þá Hagalín að kenna ef svo fer. Á hann skelli ég skuldinni, fari svo að til skuldasöfnunar komi fyr- ir það. Hinsvegar vil ég sjálfur hirða ávinninginn, ef einhver kynni að verða. Og er þá ekki allt við hæfi og í samræmi við tíðarandann? sagði Bjartmar að lokum. Við þökkum alþingismannin- um, bóndanum og skáldinu á Sandi fróðlegt og ánægjulegt við- tal og óskum þessum glæsilega þingfulltrúa stéttar sinnar og héraðs síns alls velfarnaðar. J. H. A.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.