Morgunblaðið - 03.12.1959, Side 20

Morgunblaðið - 03.12.1959, Side 20
d a g u r ti I jola 21 d a g u r til jdla Hvaðan eru Smábarni bjargað í Sundlaugunum FYRIR nokkrum dögum bjarg- aði maður að nafni Guðm. Finn- björnsson, barni frá drukknun í Sundlaugunum í Reykjavík. Níu ára drengur var í laugun- um með 3—4 ára gamlan snáða. Mikil gufa var af vatninu þenn- an dag og skyggni því lítið. Allt í einu sá Guðmundur, sem var staddur undir heitu sturtunni á bakkanum, hvar litli drengurinn marraði í kafi í djúpu lauginni. Hafði sá stærri ekki gætt hans nægilega vel og hann gengið út í laugina í óvitaskap. Brá Guð- mundur skjótt við og dró snáð- ann upp. Hafði honum ekkert orðið meint af volkinu, enda búinn að vera örskamma stund í lauginni er eftir því var tekið. Blaðið átti í gær tal við einn sundlaugarvörðinn um þetta. — Sagði hann að óvarlegt væri að senda svo ung börn með svo litla krakka, sem ekki mætti sleppa hendinni af. Stærri börnin gleymdu sér í leik og hefðu ekki Finnlandsvinir minnast þjóð- hátíðardagsins FINNLANDSVINAFÉLAGIB Suomi minnist Þjóðhátíðardags Finna 6. des. með kvöldfagnaði fyrir félagsmenn og gesti þeirra í Tjarnarcafé uppi, sunnudaginn 6. des. kl. 8,30. Dagskrá kvöldfagnaðarins verð ur fjölbreytt. Sýndar verða kvik- myndir í eðlilegum litum, Kai Saanila phil. cand. stjórnar spurningaþætti fyrir samkomu- gesti alla. Jyrki Mántylá phil. cand. les upp Finnsk ættjarðar- ljóð. Báðir þessir finnsku stú- dentar, sem að framan eru nefnd- ir, dvelja hér við Háskólanám. Að lokum verður dansað. Allir Finnar, sem dvelja í Reykjavík og nágrenni, verða á kvöldfagnaðinum. Félagsmenn hafa ókeypis aðgang fyrir sig og gesti sína, sýni þeir félagsskír- teini við innganginn. Kíkhósti og kvef- sótt að ganga I NÝJUSTU fréttatilkynningu frá borgarlækni um sjúkdóma í bæn um eru kvefsótt og kíkhósti lang útbreiddust. Skýrslan nær yfir vikuna 15—21. nóvember og er gefin af 46 læknum. Kíkhóstatil- fellin eru 115 og kvefsóttartilfell in 170. Af öðrum sjúkdómum má nefna hálsbólgu, 94 tilfelli, iðrakvef 23 tilfelli og kveflungna bólgu 15 tilfelli. Sjúklingar með aðra sjúkdóma eru mjög fáir. næga ábyrgðartilfinningu. Sund- laugaverðir vísuðu oft á brott litlum börnum, sem væru í fylgd með öðrum börnum, lítið stærri, einkum þegar mikil gufa væri og því erfitt fyrir þá að fylgjast nægilega vel með því sem gerist alls staðar í lauginni. EITT varðskipanna kom hing- að til Reykjavíkur í gær með báða gúmbjörgunarbátana, er rak á fjörur norður á Langa- nesi á dögunum. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar og Hjálmar R. Bárðarson, skipa- skoðunarstjóri, komu báðir Skipsmenn varðskipsins yfir gúmmíbátnum. Það reyndist ógjörningur að blása hann upp á þilfarinu björgunarbátarnir ? um borð í varðskipið og at- huguðu bátana. Þar um borð var aðstaða slæm til slíks. — Bátarnir voru báðir óupp- blásnir. Skipaskoðunarstjóri taldi við lauslega athugun, að hér mundi vera um brezka báta að ræða. Notkunarreglur fyr- ir bátana í neyðartilfelli fund ust og eru þær á ensku. Mjög var letrið tekið að mást. Skipa skoðunarstjóri taldi líklegt að hér væri um eldri gerð gúm- báta að ræða. Nánari athugun fer að sjálfsögðu fram. En ekkert benti til þess af hvaða skipi bátarnir væru. Mun Skipaskoðunin rannsaka bát- ana eftir föngum. Síld komín í Miðnessjó KEFLAVÍK, 2. des.: — 23 bátar komu inn í dag með 1760 tunnur. Hæstur var Magnús Marteinsson með 200, Reykjaröst 170. Síldin veiddist öll í Miðnessjó og var sérstaklega stór og feit, og telja sjómenn að nú sé komin síldar- ganga aftur í Miðnessjó. — H.S.J. SANDGERÐI, 2. des.: — Níu rek- netjabátar komu inn með 724 tunnur. Hæstur var Guðmundur Þórðarson með 125 tunnur, næst var Guðbjörg með 110 tunnur, Hrönn II með 101 tunnu. Hringnótabátarnir hafa ekki getað athafnað sig undanfarna daga vegna' veðurs. — Axel. HAFNARFIRÐI. — Þrátt fyrir brælu á miðunum í fyrrinótt, fengu flestir reknetjabátarnir góðan afla, og mun það hafa stafað af því að þeir voru búnir að draga áður en hvessti upp. Höfðu margir þeirra frá 50 og upp í 100 tunnur og þar yfir, svo sem Guðbjörg 140 og Hafnfirðingur Ófullkomin sjókort ÞÓRSHÖFN. — Færeyskir fiskmenn, sem stundað hafa veiðar við Austur-Grænland í sumar, kvarta mjög yfir ófullkomnum sjókortum af ströndinni. Segjast þeir oft og tíðum lenda í miklum vand- ræðum við Grænland af þess- um sökum, og að þeir hafi oft þurft að grípa til þess ráðs að fá lánuð sjókort hjá Norð- mönnum á þessum slóðum, sem hafa miklu fullkomnari kort. i Eru upplýsingar þessar komnar frá færeyska þing- manninum í danska þinginu. Kvartaði Johan Poulsen yfir þessu, þegar Grænlandsmál voru á dagskrá fyrir nokkru, og óskaði eftir því, að Færey- ingar fengju fullkomin sjó- kort af bæði vestur- og austur strönd Grænlands. í svari dönsku stjórnarinnar til Færeyinga segir svo, að bráðlega megi vænta nýrra sjókorta af ströndum Græn- lands. um 110. Til Jóns Gíslasonar bár- ust í gær um 300 tunnur. — Ekki gátu bátarnir farið út aftur sök- um storms. AKRANESI, 2. des.: — 12 rek- netjabátar lönduðu hér í dag 1200 tunnum síldar. Það má jafnan telja góða veiði ef hún jafnar sig upp með 100 tunnur á bát. Afla- hæstir voru Sigurvon 163 tunnur, Sveinn Guðmundsson 142 og Sæ- fari 127 tunnur. Síldin er öll ýmist söltuð eða fryst. — Oddur. 5 4 L. - imfJttkl })• i 9 Hjalmar R. Bárðarson, skipa- (r skoðunarstjóri og Sigurður Ej\ $ Árnason, 1. stýrimaður, at- & I, huga áletrun á bátnum. a i a Ungur lisfamuður leikur einleik ú sinfoníuhljómleikum SÍÐUSTU tónleikar Sinfóníuhljó hljómsveitarinnar fyrir jólin verða á föstudagskvöldið í Þjóðleikhúskjallaranum klukkan 8,30. Það telst til tíðinda í sambandi við þessa hljóm- leika, að þá kemur fram með hljómsveitinni sem sólóisti henn- ar Einar Grétar Sveinbjörnsson. Þetta verða fimmtu tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar á þess um vetri og verður Henry Swoboda stjórnandi hljómsveit- arinnar, en hann stjórnaði hljóm sveitinni í síðustu viku. Að þessu sinni leikur hljóm- sveitin tvö litrík og áhrifamikil tónverk, sem hljómsveitin hefur ekki áður flutt. Er hér um að ræða ,,Þríhyrndi hatturinn“, sem er balletsvíta eftir spænska tón- skáldið de Falla og Sinfónía nr. 2 í h-moll eftir rússneska tón- skáldið Borodin. Einar Grétar Sveinbjörnsson leik ur einleik á fiðlu með hljómsveit- inni en hún flytur Fiðlukonsert eftir Mendelsohn. Hefur Einar Grétar sem lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum hér, stund að framhaldsnám í fiðluleik við Curtis Institute of music í Fila- delfíu í Bandaríkjunum. Er hann sonur Sveinbjörns Einarssonar út gerðarmanns hér í bænum, og ný kominn heim vestan frá fram- haldsnámi sínu. Kvöldvaka Stefnis HAFNARFIRÐI. _ í kvöld gengst Stefnir, fél. ungra Sjálf stæðismanna, fyrir kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu. Spilað verður hið vinsæla spil Bingo, sem náð hefir all víða miklum vinsældum. Verð Iaun verða veitt. Er öllum heimill aðgangur á kvöldvökuna meðan húsrúm leyfir og er ókeypis aðgangur. Fundir á Alþingi fram á nótt f GÆR var fundur í samein- uðu Alþingi, en deildarfundir að honum loknum. Frá um- ræðum í sameinuðu þingi er sagt pnnars staðar í blaðinu. Fuudir í deildum hófust á fjórða tímanum og var eitt mál á dagskrá í hvorri deild. í neðri deild frv. um bráða- birgðafjárgreiðslur úr ríkis- sjóði til 1. umræðu. Lauk henni laust fyrir miðnætti og var málinu vísað til annarrar umræðu og fjárhagsnefndar. í efri deild var frv. um bráðabirgðabreytingu og fram lengingu nokkurra laga til ann arrar umræðu. Var henni ekki Iokið er blaðið fór í prentun í nótt. Hvalkjötið malað og brætt BLAÐID spurðist í gær fyrir um það hjá fréttaritara sínum á Dal- vík, hvað orðið hefði um hval- kjötið, eftir að upp kom að sumt af því var ekki nægilega gott til að það fengi skoðunarvottorð til manneldis. Skýrði hann svo frá, að þá hefði verið búið að frysta allt að helming, á að gizka 30 lestir, en það, sem eftir var hefur verið malað á Akureyri í fóðurmjöl og spik brætt. Mundi fást um 50% af fitu úr því. Ekki væri enn hægt að segja um það hver útkoman yrði á málinu. Það fyrsta sem fryst var af hvalkjötinu væri a. m. k. ágæt is vara, og væri í athugun hvað hægt væri að gera við það. Loftvogin féll LOFTVOGIN féll óvenju mik- ið í gær. Hér í Reykjavík fór hún lægst í gærkvöldi niður í 942 millibara eða 706 mm. Um 100 km. suður af Vest- mannaeyjum mun loftþrýst- ingurinn hafa verið lægstur, en þar var lægðarmiðja. Nokkur dæmi eru til þess að loftvog hafi áður orðið nokkru lægri hér á landi. Sjá nánar veðurkortið á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.