Morgunblaðið - 03.12.1959, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 3. des. 1959
MORGVJUil AÐIÐ
19
-Nýtt fjármálakerfi
Framh. af bls. 6.
febrúarmánaðar. Það eru því
getgátur einar, þegar síðasti
ræðumaður vill gefa það í skyn,
að fjárlagafrv. verði ekki afgreitt
fyrr en einhvern tíma í vor eða
jafnvel á miðju ári.
Að sjálfsögðu verður að vinna
að því að fjárlög séu yfirleitt afgr.
fyrir áramót, ef þess er nokkur
kostur. Hins vegar hafa stjórn-
málin verið með þeim hætti, á
þessu ári, tvennar kosningar og
stjórnarmyndun ekki fyrr en í
næstsíðasta mánuði ársins, að
enginn maður getur með eðlileg-
um rökum ætlazt til þess að unnt
sé að afgreiða fjárlagafrumvarp-
ið fyrir 1960 fyrir áramót.
Fjárhagsyfirlit gefið í janúar.
Varðandi upplýsingar um fjár-
hag ríkisins á þessu ári og horf-
ur á næsta ári, sem Eysteinn
Jónsson lýsir eftir, þá vil ég taka
það fram, að yfirlit yfir fjárhags-
afkomu ríkisins á þessu ári verð-
ur að sjálfsögðu gefið strax þeg-
ar þingið kemur saman að nýju.
Ég ætla, að það séu heppilegri
vinnubröð og réttara og nákvæm
ara yfirlit fáist ef það er gef-
ið í janúarmánuði, heldur en í
byrjun desember. Þetta mál hef
ég sérstaklega rætt við ráðuneyt-
isstjórann í fjármálaráðuneytinu
og veit ég að hann er sammála
mér um það.
Varðandi yfirlit um framtið-
arhorfurnar, þá ætti 1. þingm.
Austfirðinga að vera það Ijóst
að slíkt yfirlit eða áætlanir er
erfitt að gera nú. — Þær tölur,
sem hæstv. forsætisráðhera hef-
ur nefnt, eru miðaðar við það,
að ef haldið væri óbreyttri
skipan, þeirri, sem nú gildir um
útflutningsuppbætur, mundi
þurfa milli tvö- og þrjúhundruð
millj. kr. á næsta ári til þess að
tryggja útflutningssjóð og ríkis-
sjóð.
Að fara að leggja fyrir Alþingi
nú sundurliðaða áætlun um þetta
atriði, tel ég ástæðulaust, þegar
af þeirri ástæðu, að það er yfir-
lýst stefna ríkisstjórnarinnar að
breyta frá þeirri skipan, sem nú
gildir, að taka upp nýtt fjármála
og efnahagskerfi. Ég sé ekki, að
þessar kröfur Eysteins Jónssonar
hafi við nein rök að styðjast.
— Harðar umræður
Framhald af bls. 9.
ur gert. Það er sem sagt ekki lífs-
lærdómurinn, sem Einar Olgeirs-
son í raun og veru metur, þó að
hann segi svo. Það er aðeins skóla
lærdómurinn, sem hann vill taka
mark á, en hann vill ekki gera
neitt úr þeirri miklu reynslu.
sem þessi maður hefur fengið um
fram flesta aðra.
Þar fyrir utan vil ég svo taka
fram, að ríkisstjórnin sá ekki
ástæðu til af sinni hálfu að taka
neitt fram um þessa ræðu Jón-
asar Haralz, ég tek það bara fram
til þess að orð 3. þm. Reykv., þar
sem hann vitnaði í mín orð, verði
ekki misskilin. Hér hefði engin
yfirlýsing um þetta efni verið
gefin, ef Einar Olgeirsson hefði
ekki borið fram alveg ákveðnar
spurningar, sem sjálfságt var að
svara satt og rétt eins og málið
liggur fyrir. Það mun vera með
ríkisstj. eins og með aðra lands-
menn, að við munum meta það
sem Jónas Haralz hefur haldið
fram eftir rökum hans málstað-
ar.
Gísli Einarsson
héraðsdómslögmaður.
Málf /u tningsst of a.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
LÚÐVÍK GIZURARSON
héraðsdómslögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Klapparstíg 29. Sími 17677.
Hörður Ólafsson
lögfræðiskrifstofa, skjalaþýðandi
og dómtúlkur í ensku.
Austurstræti 14.
Sími 10332, heima 35673.
— Afmæli
Framh. af bls. 2.
um skeið með vini sínum, Sigfúsi
heitnum Sigurhjartarsyni, ásamt
öðrum störfum, sem til féllu. Og
tók þó engu að síður, þegar fram
í sótti, nokkurn þátt í félagslífi,
reyndist t.d. vel liðtækur leik-
ari, svo að athygli vakti í skóla-
leikjum, og á söngpallinum naut
hann sín ágætlega í Stúdenta-
kórnum.
Að loknu háskólanámi dvald-
ist Árni árlangt í Danmörku, og
var þá m.a hjá frænda sínum,
Valdemar Erlendssyni frá Ási í
Kelduhverfi, hinum góðkunna
lækni í Friðrikshöfn.
Og eftir þetta allt hófust loks
veruleg kynni okkar Áma. En þá
lágu leiðir saman hér fyrir norð-
an. Það var sumarið 1933. Og þá
var mikið um sólskin og sunnan-
vind í Eyjafirði, eins og margir
muna. En það sumar er mér og
okkur hjónum samt minnisstæð-
ast einmtit vegna komu Árna
læknis til Akureyrar, og íininar
imgu og glæsilegu konu hans,
Ingibjargar Guðmundsdóttur. Og
spillti það ekki, að hún var Sunn
lendingur. Varð brátt mikil vin-
átta okkar fjögurra og milli
heimilanna tíð samganga og
greiður vegur. Þurftum við þó
jafnan meira og fleira að sækja
til þeirra læknishjónanna en þau
til okkar, áttum t.d. hjá þeim
öruggt athvarf í öllum okkar
kaupstaðarferðum, og m.a.s. fast
heimili einn dapran hausttíma,
eftir húsbrúna hér á staðnum.
Væri því sú skuld nú orðin nokk-
uð stór, sem við ættum þeim hjón
um að gjalda, ef eftir væri geng-
ið.
Árni var um rúmlega tuttugu
ára skeið starfandi læknir á Ak-
ureyri. Hann var þar í rauninni
gamall heimamaður, umkringd-
ur traustum frændgarði og vina,
og vann þar fljótt allra hylli
vegna lipurðar sinnar og ljúf-
mennsku, glaðlegra og skemmti-
legra umgengnishátta, og ham-
ingju í öllum störfum. Hann var
læknir við sjúkrahús bæjarins
frá upphafi, fyrst í tíð Steingríms
heit. Matthíassonar, sem hafði
mikið dálæti á þessum unga kol-
lega sínum og fól honum oft
þungan vanda. Þá var Árni yfir-
læknir gamla spítalans um skeið
og settur héraðslæknir í Akur-
eyrarhéraði. En eftir að Fjórð-
ungssjúkrahúsið komst upp, varð
hann yfirlæknir á röntgendeild
þess um árabiL
Annars læt ég það öðrum eftir
að dæma læknislist Árna, en far-
sæl hafa þau störf hans reynzt,
og hlýjar munu þær kveðjur, sem
honum berast nú, á þessum tíma-
mótum, frá öllum þeim fjöd-
mörgu, sem fyrr og síðar hafa
notið ljúfmennsku hans og líkn-
arhanda.
Og óhætt er mér að segja, að
fleiri en einkavinir hörmuðu sárt
brotthvarf þeirra læknishjón-
anna héðan að norðan, er þau
fluttust til Reykjavíkur haustið
1954. En þar hefur Árni starfað
síðan, á Röngendeild Landsspít-
alans og við almennar lækningar.
Er því ekki að leyna, að sum-
um þótti þá nokkuð djarft teflt,
þegar læknishjónin brugðu á það
ráð að flytja suður, eins og öll
aðstaða þeirra hér sýndist góð
og hagkvæm. En miklir mann-
kostir þeirra beggja hafa ekki
síður dugað þar, og á skjótum
tíma vann Árni læknir á nýjum
vettvangi það traust og álit, sem
allir hér vissu fyrir löngu, að
hann átti skilið, flestum framar.
Þau hjónin, Árni og Ingibjörg
hafa eignazt fjögur böm, tvo syni
og tvær dætur. Eldri sonurinn,
Guðmundur Örn, er skógfræðing-
ur og nýkominn heim frá námi
í Noregi. Hinn drengjanna er
Haukur Kristinn, vel á vegi stadd
ur með að ljúka læknisnámi, og
dæturnar, Þórunn og Svava, í
foreldrahúsum.
Berast nú þeim hjónum og
börnum þeirra, hvaðanæva, hlýj
ar kveðjur og heillaóskir.
Og ófáir munu nú eiga leið í
Barðavog af þessu tilefni. En
þar stendur heimili þeirra lækn-
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlögmaður
Vonarstr. 4 VR-húsið. Sími 17752
Lögfræðistörf og eignaumsýsla.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstarcttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræt: 8. — Sími 11043.
QRN CLAUSEN .
hér aðsdómslögm að ur
Málflutningsskrifstofa.
Bankastræti 12. — Sími 18499.
ishjóna með engu minni reisn og
prýði en forðum á Bjarmastig.
Og mætti nú þangað aðeins
gjarna vera skemmri leið héðan.
„En til góðs vinar liggja gagn-
vegir, þótt hann sé firr farinn“.
Stígurinn milli okkar Áma og
heimila okkar vex varla háu
grasi, þó að fundir verði ekki í
þetta sinn. Og, þegar við hittumst
næst, verðum við þá ekki sömu
unglingarnir eins og svo oft áð-
ur?
Sú er ósk mín og von og —
afmæliskveðja.
Heill og hamingja fylgi ykkur,
góðu vinir, nú og æviniega!
Möðruvöllum, Hörgárdal,
Sigurður Stefansson.
Líftrygginga-
deild SJóvá
ÞEGAR skýrt var frá 25 ára af-
mæli Líftryggingadeildar Sjóvá
í blaðinu í gær var meinleg prent
villa. Þar stóð, að frá félaginu til
líftryggingadeildarinnar hefðu
runnið 18 millj. króna á þessum
25 árum, en átti að vera 1,8 millj.
— Og þar sem rætt var um starfs-
menn deildarinnar féllu niður tvö
nöfn, þeirra Egils Daníelssonar,
forstöðumanns deildarinnar og
Matthíasar Matthíasarsonar, að-
alumboðsmanns, en þeir hafa
báðir starfað við deildina frá
stofnun hennár.
Auglýsing
um umferð í Reykjavík
Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Reykjavíkur hafa
verið sett upp stöðvunarmerki samkvæmt 5. gr. B
13 í reglugerð um umferðarmerki o. fl. á eftirtöld-
um gatnamótum:
Miklubraut við Suðurl andsbraut.
Grensásvegi við Miklubraut
Háaleitisvegi við Miklubraut.
Seljalandsvegi við Miklubraut.
Njarðargötu við Hringbraut.
Hofsvallagötu við Hringbraut.
Bræðraborgarstíg við Holtsgötu.
Bræðraborgarstíg við Vesturgötu.
Ægisgötu við Vesturgötu, norðanmegin
Frakkastíg við Hverfisgötu, sunnanmcgin
Laugarnesvegi við Borgartún og Sundlaugav.
Laugalæk við Sundlaugaveg.
Njarðargötu við Laufásveg, norðanmegin.
Njarðargötu við Sóleyjargötu, norðanmegin
Vonarstræti við Suðurgötu.
Þar sem sett hefur verið stöðvunarmerki, ber öku-
manni skilyrðislaust að nema staðar. Þegar ekið er
af stað aftur, er skylt að sýna ýtrustu varúð og
víkja fyrir umferð frá báðum hliðum, hvort sem um
aðalbraut er að ræða eða ekki.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
30. nóvember 1959.
SIGUKJÓN SIGUKÐSSON
Hjartanlega þakka ég öllum vinum og vandamönnum
sem heimsóttu mig með gjöfum og skeytum á fimmtugs.
afmæli mínu 31. október og gjörðu mér daginn ógleyman-
legan.
Guð blessi ykkur öll.
Svava Sölvadóttir.
Innilegustu þakkir færi ég öllum ættingjum og vin-
um fyrir gjafir, heillaskeyti, heimsóknir og þann hlýhug,
sem ég var umvafin á 80 ára afmæli mínu 29. nóv. —
og gerði mér daginn ógleymanlegan.
Guð launi ykkur öllum og blessi.
Þorbjörg Bjarnadóttir, Litla-Hvammi
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl. 1—4.
Verzlunin DAGNÝ Skólavörðustíg 13.
Móðir okkar
JÓNlNA JÓNSDÓTTIK
frá Skúmsstöðum, Eyrarbakka,
andaðist þriðjudaginn 1. desember í hjúkrunardeild
Hrafnistu.
Fyrir mína hönd og systkina minna.
Sveinn Pálsson.
Maðurinn minn og fósturfaðir
GlSLI SÆMU NDSSON
lézt af slysförum 1. desember.
Ragnheiður Ólafsdóttir, Nína Björk
Fósturmóðir mín
FR(j INGIBJÖRG ÓFEIGSDÓTTIR
Landagerði 2
lézt að heimili sínu miðvikudaginn 2. desember.
Áslaug Ásgeirsdóttir
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og bróðir,
JÓSEP HtÍNFJÖRÐ
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju ,föstudag. 4. þ.m.
kl. 1,30 eJi.
Eiginkona og ættingjar
Elsku sonur okkar
tLFAR
sem lézt að slysföram 26. nóv. s.l, verður jarðsunginn
frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn 3. des.
kl. 2 e.h.
Elísabet Berndsen, Jón Þórarinsson
Útför systur okkar
INGIBJARGAR GRlMSDÓTTUR
frá Syðri-Reykjum
fer fram frá Dómkirkjunni, föstud. 4. des. kl. 1,30.
Athöfninni verður útvarpað.
Eyrún Grímsdóttir,
Ágústína Grimsdóttir,
Herdís Grímsdóttir.