Morgunblaðið - 11.12.1959, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.12.1959, Qupperneq 3
Fðstudagur 11. des. 1959 MORGUISBLAÐIÐ 3 I : FKÉTTARITARA Mbl. i Ton- don, Jóhanni Signrðssyni, var boðið um borð í brezka her- skipið Duncan, þegar það kom í heimsókn til borgarinnar fyrir skömmu, en skip þetta hefur undanfarna mánuði gegnt því „virðuiega“ hlut- ▼erki að vernda lögbrot brezkra togara í íslenzkri land helgi. Koma skipsins til Lon- don vakti allmikla athygli. Frásögn Jóhanns fer hér á eftir: „Við hlökkum ekki til að vera við ísland á jólunum, en einhver verður að vinna þetta verk“, sagði T. O. S. Bryan Simpson frá Liverpool, einn af ungu sjóliðunum á H.M.S. Duncan. H.M.S. Duncan lagðist við bauju fyrir utan Battle Bridge um 500 metra fyrir ofan Tower Bridge kl. 8 f.h. í dag, mið- vikudaginn 9. des. Veður var mjög gott og sól- in rétt að koma upp úr skýja- bakkanum. Kl. 9,25 kom bát- ur að bryggjunni, frá H.M.S. Duncan, til að ná í blaðamenn frá stóru dagblöðunum og BBC. Eg var í hópi 15 blaða- manna sem voru boðnir um borð, til að hitta skipstjórann Capt. St. St. Bracken, er tók á móti okkur. Hann er meðal maður á hæð, alskeggjaður, brosleitur og mjög virðulegur. Eftir að okkur hafði verið gef- ið kaffi, hófust umræður við skipherra. Hann hvað H.M.S. Duncan hafa verið við ísland síðan 21. okt. 1958, meira og minna. Þetta er forustuskip deildarinnar, en samtals eru 10 skip í henni. Áhöfn skips- ins eru 140 þ. á. m. einn lækn- ir en enginn prestur, svo Capt. messar yfir áhöfninni, Á skip- H.M.S. Duncan fyrir ofan Tower-brúna. r a inu er einnig svartur og hvít- ur köttur sem heitir „Skó fluga“. Hún er 6 mánaða gömul sjóhraust og þykir ísl. fiskurinn góður. Áhöfnini er oft gefið í soðið af togurunum og þykir þeim nýi fiskurinn mjög góður. Það var aðallega talað um dægradvalir sjóliðanna því þeim leiðist mjðg skammdeg- ið. Mikið er spilað af lúdó og öðrum slíkum „spilum“, en mest þykir þeim gaman af 3D O—X. (Núll og krossar), sem er nýjasta spilið hjá sjó- hernum. Skipið mun dvelja hér í sex daga en heldur síðan til Skot- lands. Það siglir til íslands 16. des. og verður á miðunum til 10. janúar 1960. Þeir munu taka allan jóla- matinn í London ásamt bjór, sem þeir mega nú hafa um borð. Jólabúðingurinn var bú- inn til fyrir þrem dögum síðan og miklu af rommi skelt í hann. Skipið verður allt skreytt um jólin og verðlaun veitt fyrir fallegasta salinn. Skipstjórinn Capt. St. St. Bracken var í flugdeild sjó- hersins £ stríðinu og dvaldi 5 mánuði á íslandi, frá júní til nóvember 1940. Hann var bæði í Reykjavík og Akureyri og kunni mjög vel við sig. í dagstofu skipherra er rak- hnífur adm. Nelson’s, og heiðraður mjög. Ástæðan er sú, að Nelson var á sínum tíma yfirmaður þessarar deild- ar (fiskiskipavernd). Hnífur- inn er ekki notaður enda hef- ur skipstjóri alskegg. Eitt sjúkraherbergi er á skipinu, sem hefur tvö rúm. Áhöfn skipsins er að miklu leyti frá Suður-Englandi, nokkrir frá Mið- og Norður- Englandi og svo frá Skotlandi, en þar er skipið staðsett. Eg talaði við T. O. S. Bry- an Simpson frá Liverpool, sem hefur verið á H.M.S. Dun- can síðan í sept. Hann sagði að þeim leiddist myrkrið og eini „sólargeislinn“ væri þeg- ar bréfin kæmu að heiman. Oftast koma þau með tog- urum fara um Hull og Grims- by, en RAF hefur flogið ' til vonazt er til að þeir komi með vonazt er til að þeir komi með jólapóstinn. Bryan Simpson sagðist ekki hlakka til jólanna við íslands- strendur og vonast til þess, „að fólkið sem borðar fisk í Bretlandi um jólin hugsi til þeirra“. Comm. C. C. B. Mackenzie tók á móti H.M.S. Duncan að hálfu sjóhersins en litlu mun- aði að skipið væri of seint vegna stórveðursins, sem þeir lentu í við Skotlandsstrendur. Það hjálpaði þeim að rokið var beint á móti, en samt brotnaði rúða í einum brúar- glugganum. Branckea — með rakhnif Nelsons. jé Móttökur Herjólfur hefur hreppt Herjólfi búnar móttökur í Vesfmannaeyjum VESTMANNAEYINGAR munu á morgun, laugardag, fagna hinu nýja skipi, hinu 500 lesta flutningaskipi Herjóifi, sem þá kemur í fyrsta skipti til hafnar í hinum athafnamikla kaupstað. storma á leiðinni heim, svo að reyna mun á sjóhæfni hans þeg- ar í þessari iómfrúrferð skipsins, svo og vélar pess og annan út- búnað. En þrátt fyrir illviðri hefúr skipinu sótzt ferðin vel yfir hafið. Skipi og skipshöfn eru búnar móttökur þegar Herjólfur leggst að bryggju, undir skipstjórn Tryggva Blöndals, sem áður var skipstjóri á olíuskipinu Þyrli. Það er ákveðið að hafnarsjóður Vestmannaeyja annist afgreiðslu skipsins. Verður vöruafgeymsla skipaafgreiðslunnar í húsi því er togaraútgerð Vestmannaeyinga lét forðum byggja til fiskvinnslu Enginn fótur fyrir „vanskilum44 f SAMBANDI við frétt sem birt- ist í Þjóðviljanum í gær um það, að legið hafi við að flugvélar Loftleiða væru kyrrsettar erlend is vegna skulda, sneri Mbl. sér til Kristjáns Guðlaugssonar, for- manns stjórnar Loftleiða og spurði um sannleiksgildi fréttar- innar. Kristján sagði að enginn minnsti fótur væri fyrir þessari frétt. Loftleiðir hafa aldrei lent í neinum vanskilum og frásögn Þjóðviljans af fundarhöldum við „ráðamenn, bankastjóra og önn- ur stórmenni" í sambandi við þetta er því staðlausir stafir og óskiljanleg, sagði Kristján. Það hefur aldrei komið til greina, að við stæðum í vanskilum með eitt eða neitt, bætti hann að lokum við með áherzlu. Togarar tef jast ÓVEÐRIÐ í Norðursjó hefur haft þær afleiðingar að nokkrir ísl. togarar sem eru á leið með ís- varinn fisk til Bretlands og V.- Þýzkalands hafa tafizt allveru- lega, t.d. var búist við sölum á fiski í gær í báðum löndunum, en svo hafa togararnir tafizt, að þeir náðu ekki á tilsettum tíma. 8TAKSTEII\IAB Hver á að segja fyrir verkum? Einn af ræðumönnum Fram- sóknarflokksins i útvarpsumræS- unum á mánudagskvöldið, komat m.a. að orði á þessa leið, er hann ræddi um þingfrestunina: „Samkvæmt íslenzkum stjórn- arháttum er það ótvírætt Alþingi, sem á að segja ríkisstjórninni fyrir verkum. en ekki öfugt. Og það er ekki ríkisstjórnin ein, sem þarf á starfsfriði að halda. Al- þingi á einnig heimtingu á starfs- friði“. Þetta voru ummæli Framsókn- arþingmannsins, sem einnig «r prófessor í lögfræði. Þessum fróða manni hefur sézt yfir það, að kjarni íslenzkra stjórnhátta er sá, að ríkisstjórninni ber að hafa forystu um mótun stjórnar- stefnunnar. Þá stefnu mótar hún að sjálfsögðu í samráði við meiri- hluta Alþingis. Núverandi ríkisstjórn ..'yrir- skipaði Alþingi ekki neitt um frestun funda þess. Hún lagði þvert á móti fram tiliögu um það, að þingið veitti sér heimild til að fresta fundum þess um til- tekinn tíma. Og meirihluti Al- þingis veitti þessa heimild. Tíminn styður Rockefeller f forystugrein Tímans í gær er því lýst yfir, að Nelson Rocke- feller ríkisstjóri í New York, sé „framsýnasti leiðtogi Republik- ana í Bandaríkjunum". Vafalaust þykir Rockefeller vænt um að heyra þetta. Hann á nú í harðri samkeppni og baráttu við Nixon varaforseta um fram- boð við forsetakosningarnar, sem fram eiga að fara í Bandaríkjun- um á næsta ári. Virðist Tíminn hafa tekið þá ákvörðun, að j styðja „Rocky“ til framboðs, hvort sem það dugir honum eða ekki til þess að sigrast á Nixon. Eins og kunnugt er, er Nelson Rockefeller einn af auðugustu mönnum Bandaríkjanna. Hafa sumir flokksbræðra hans talið, að það kynni að vekja nokkra tortryggni gagnvart honum og draga úr sigurmöguleikum hans sem forsetaefnis. En nú hefur „Rocky“ fengið stuðning Tímans og má vera, að það bæti aðstöðu hans eitthvað! New York Times og varnarliðið Síðan New York Times birti frétt um það, að til stæði að fækka nokkuð varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, hafa Tíminn og Þjóðviljinn keppzt um að lýsa því yfir, að íslenzka ríkisstjórnin sé mjög andvíg þeirri ráðagerð. Beindi Einar Olgeirsson fyrir- spurn um þetta atriði til ríkis- stjórnarinnar á Alþingi nokkra áður en fundum þess var frestað. Svaraði utanríkisráðherra þeirri fyrirspurn með þessum orðum: „Út af þessari fyrirspurn vil ég skýra frá því, að fyrir örfáum dögum síðan fóru fram viðræður á milli ríkisstjórnar fslands og sendiherra Bandaríkjanna um skipun varnarliðsins á íslandi. Var ekki um það rætt að draga úr vörnum landsins á nokkurn hátt, né fækka í varnarliðinu á íslandi, eða breyta fjölda varnar- liðsmanna. Var hins vegar ein- göngu um það talað, hvort ekki væri nauðsynlegt að gera nokkr- ar skipulagsbreytingar á varnar- liðinu sjálfu og samsetningu þess“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.