Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 22
22 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 11. des. 1959 / Landsliðin gersigruðu ,blaðaliðin' t En leikirnir sem heild voru misheppnaðir 1 FYRRAKVÓLD fóru fram að Hálogalandi leikir „lands- liða“ og „blaðaliða“ í hand- knattleik. Var til leikjanna stofnað með nokkuð snöggum hætti og má hiklaust telja að meira gagn hefði af orðið hefði lengra verið látið líða frá nýafstöðnu Reykjavíkur- móti og heppilegri tími val- inn fyrir þá, en í miðjum jóla- önnum. Skortur áhuga ríkti við ýmislegt varðandi undir- húning og gætti jafnvel í leikj unum sjálfum. — Landsliðin fóru með yfirburðasigur af hólmi í báðum flokkum, sigr- uðu í kvennaflokki með 16 gegn 7 og í karlaflokki með 27 gegn 16. Leikur kvenna Allmargt áhorfenda var, en hvergi nærri fullt, þó um slíka úrvalsliðaleiki væri að ræða. — Kvennaliðin byr.iuðu og var leik- ur þeirra framan af jafn. „Lands- liðið“ áttaði sig ekki á leikaðferð „blaðaliðsins“ — að láta tvær stúlkur leika miðherja. Stóð um tíma 4:3 fyrir „blaðaliðið“. En þegar landsliðið áttaði sig bæði á leikaðferðinni og nýtti eyðuna sem við hana kom í vörn blaða- liðsins og tók upp línuspil, þá komu mörkin á blaðaliðið eins og á færibandi. Þeim einstefnuakstri tókst blaðaliðinu ekki að vega upp á móti fyrr en í leikslok. Þá FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur 1959 fór fram 8. des. í íþróttahúsi Í.B.R. að Hálogalandi. Glímufé- lagið Ármann hlaut 3 Reykjavík- urmeistara en U.M.F.R. 2. Ármann L^russon UMFR vann 1. fl. með 5 vinningum. 2. Kr. Heimir Lárusson UMFR 4 v. 3. . Sveinn Guðmundsson Á 3 vinn. Trausti Ólafsson Á bar sigur jafnaðist leikurinn aftur, en loka úrslit urðu 16 gegn 7, sem fyrr segir. Fáa mun greina á um að til leiks hafi verið valdar aðrar en þær ,,22 beztu“, enda er breiddin ekki mikil í kvennaflokki þó hún hafi mjög aukizt á síðari ár- um eins og sjá má á leikjum kvenna á nýafstöðnu Reykjavik- urmóti. Mikil verkefni bíða nú kvennalandsliðs íslands og er ekki að efa að stúlkurnar taki þau föstum tökum. ★ ÚrsUt í byrjun leiks Leikur karlaflokkanna byrjaði með miklum ósköpum fyrstu 15—20 minúturnar. „Blaðaliðið“ kallað saman úr öllum áttum náði ekki saman og kærulaus samleikur þess, hægur og leitandi gaf landsliðinu tækifærin — að komast „inn í“ sendingar og bruna án mótstöðu upp völlinn og skora. Þannig fengu þeir mörg mörk fyrirhafnarlitið og fyrr en varði stóð 11 gegn 1 fyrir Lands- liðið. Þar með var raunar gert út um leikinn, en það var ekki fyrr en þá að „blaðaliðið“ hafði áttað sig og fundið „sjálft sig“. Eftir það var leikurinn jafn og lyktaði hálfleik með 16:6. Síðari hálfleikurinn var jafn. í upphafi tókst blaðaliðinu að minnka forskot landsliðsins í 7 mörk (18:11) en það var aðeins um stundarsakir. Lokaúrslit urðu 27:16. Það veikti án efa blaðaliðið nokkuð að tveir af þeim mönn- um sem bera áttu liðið uppi mættu ekki til leiks, þeir Hörður Felixsson og Guðjón Ólafsson markvörður. úr bítum í II. fl. með 3- vinn. 2. Hilmar Bjarnason UMFR 2 v. III. fl. vann Hörður Smári Há- konarson Á og annar varð Svav- ar Guðmundsson Á. Unglingaflokk vann Gunnar Pétursson UMFR, 2. varð Garðar Erlendsson UMFR. Drengjaflokk vann Jón Helga- son Á og 2. varð Lárus Lárusson UMFR. IAthygli vekur að tveir menn — sinn í hvoru liði skoruðu sam- tals 15 af 43 mörkum leiksins. Markahæstur var Ragnar Jóns- son FH í landsliðinu með 8 mörk. Snerpa hans, skotharka og skot- hæfni nutu sín vel og vöktu at- hygli. Hinn var Geir Hjartarson í „blaðaliði“ sem skoraði 7 mörk. Kom hann sannarlega á óvart þó hann hafi löngum verið meðal markahæstu handknattleiks- manna okkar á mótum. Lék Geir mjög vel þetta kvöld. En sá sem mest kom á óvart var Heinz Steinmann í landsliði. Hefur hánn ekki í annan tíma sýnt betri leik, bæði í vörn og sókn. Var hann liði sínu mikil stoð þetta kvöld. Leikur landsliðsins var mun heilsteyptari og betri en blaðaliðs ins, en þó voru það fyrst og fremst byrjunarmörkin sem réðu úrslitum leiksins. í heild voru báðir leikirnir ekki eins vel heppnaðir og æski- legt hefði verið, og má hiklaust ætla að betra hefði verið að geyma þá þar til milli jóla og nýárs eða strax upp úr nýári — að byrja nýtt ár með tveimur góðum leikjum eftir hæfilega hvíld eftir langt og erfitt Reykja- víkurmót. — A.St. —Erlendir viðburðir Frarnh. af bls. 10 örfárra afturhaldssinna og er- lendra leiguþýja. Hætt er við að þessar stað- hæfingar Kadar-stjórnarinnar reynist haldlitlar, þegar kemur fram fyrir dómstól sögunnar, enda fer fyrir henni, eins og oft fer fyrir þeim sem bera rangan vitnisburð fyrir dómi, að henni er hætt við mótsögnum. Ein versta mótsögn hennar er að hún gerir alkunna marxista að aðalsökudólgum og píslarvott- um byltingarinnar. Imre Nagy forsætisráðherra sem tekinn var af lífi í fyrrasumar hefur allt frá æsku verið sanntrúaður marx isti og þrír kunnustu fangar ung- versku kommúnistastjórnarinnar í dag eru þeir Dery, Hay og Tibor, allir kommúnískir rithöfundar og stjórnmálamenn. Til samlíkingar mætti segja að það væri eins og fangelsa Jóhannes úr Kötlum, Thor Vilhjállmsson og Harald Jóhannesson. Yrðu þeir með nokkrum sanni fordæmdir aftur- haldssinnar? Skýrsla Sameinuðu þjóðanna er merkilegt sönnunargagn um uppreisn ungversku þjóðarinnar og þá atburði sem gerðust fyrir allra augum á strætum Búdapest og annarra borga í landinu. Um hitt hefur hún færri upplýsingar, hvað var að gerast um þessar mundir í herbúðum Rússa, með hvaða móti ákvörðunin um beit- ingu rússnesks herliðs var tekin o. s. frv. Yfir því hefur hvílt al- ger leynd. Þar á enn eftir að fylla í eyður og safna öruggum upplýsingum. um orsakir uppreisnarinnar f síðasta yfirliti mínu minntist ég lítillega á það, að Krúsjeff einvaldur Rússlands hefði farið í heimsókn til Ungverjalands og gat þess að honum væri lítill sómi að slíkri ferð. .Af för hans hefur hins vegar orðið athyglisverður árangur, — ekki svo að skilja að kjör ung- versku þjóðarinnar muni batna. En í ræðum sem Krúsjeff flutti kom hann með brot ýmissa upp- lýsinga, sem merkar munu þykja fyrir sögurannsóknir framtiðar- innar. Meðan ungversku kommúnist- arnir halda því fram að bylting- in hafi verið verk afturhaldssinna sagði Krúsjeff eftirfarandi á flokksþinginu í Búdapest: „Það voru ekki hugsjónir kommúnismans sem biðu gjald- þrot, heldur aðeins leiðtogarnir, sem gleymdu hinum helgu grund- vallarreglum Marx-Leninismans. Þessir armstóla leiðtogar einangr uðust frá múgnum og fóru að segja múgnum fyrir verkum. Með röngum aðgerðum sínum beittu þeir alræði verkalýðsins ekki gegn andstæðingum verka- lýðsins, heldur gegn sinni eigin þjóð. Þeir höfðu hafizt til for- ustu, en gátu ekki notað valdið, þeir styrktu ekki alræði verka- lýðsins, heldur beindu þeir skot- hríð gegn eigin þjóð og byltingar- öflunum. Þetta var upphaf enda- loka slíkra leiðtoga. Það er augljóst, að ef gagn- byltingunni tókst að valda trufl- unum, þó ekki væri nema stutt- an tíma, þá var það að mestu leyti því að kenna að fyrrverandi forusta Ungverska Yerkamanna- flokksins og þá sérstaklega Mat- hyas Rakosi gerði alvarleg mis- tök, sem grófu undan forastu- hlutverki flokksins og veiktu al- ræði öreiganna. Þeir fengu það inn í höfuðið, að þeir gætu elcki gert mistök, að þeim væri allt leyfilegt og þeir þyrftu ekkert tillit að taka til skoðana vinnandi fólks. Þeir af- námu hvatningu semí grundvall- araðferð við stjórn múgsins og fóru að stjórna með tilskipunum“. Höfðu einhverjir samvizkubit? f annarri ræðu sem Krúsjeff flutti í Ganz-Mawag vélsmiðjunni miklu í Búdapest gaf hann svo- litla innsýn í umræður meðal Rússa um þá ákvörðun að beita vopnavaldi í Ungverjalandi. — Hann sagði m.a.: „Við ihuguðum það í Rússlandi, hvernig við gætum hjálpað ung- verska verkalýðnum í baráttunni gegn gagnbyltingaröflunum. Sumir rússnesku félagarnir Iýstu yfir áhyggjum vegna þess, að sérhver aðstoð yrði rangtúlk- uð. En við sögðum að þeir myndu komast á okkar skoðun að lok- um og að við yrðum að hjálpa verkalýðnum". Þessi ummæli Krúsjeffs hljóta að vekja mestu athygli. Hér kem- ur það í ljós, sem vitað var eftir öðrum leiðum, að það var hann sjálfur, sem ákvað að beita rúss- nesku vopnavaldi í Ungverja- landi. En hann upplýsir einnig, að raddir hafi heyrzt, jafnvel á æðstu stöðum í Rússlandi um að ekki skyldi beita hervaldi. Upp- lýsingarnar eru mjög naumar, en það skyldi þó aldrei vera að gætt hafi hjá sumum forustu- mönnum Rússa snerts af sam- vizkubiti yfir þeim óstjórnlegu grimmdaraðgerðum sem stórveld- ið var að brugga Ungverjalandi, þessum smælingja í hópi Evórpu- landanna. Athyglisverð er einnig helzta röksemdin sem Krúsjeff gaf í ræðu sinni fyrir beitingu vopna- valií í Ungverjalandi: „Nikulás I Rússakeisari," sagði hann „hik- aði ekki við að beita vopnavaldi 1848. Hvernig gátu Sovétríkin þá setið hjá 1956“. Að áliti Krúsjeffs er því að sjá sem engin breyting hafi orð- ið á frá keisaratímunum, nema það, að nú heitir zarinn: Krús- jeff I. Brottflutningur herliðs Enn er um það rætt, að til mála geti komið, að Rússar dragi her- lið sitt á brott frá Ungverjalandi. Kvislingurinn Janos Kadar lýsti því að vísu yfir, að ungverskir kommúnistar þyrftu ekkert að óttast, rússneska herliðið yrði kyrrt í landinu til að vernda þá. Þrátt fyrir ummæli Kadars er enn ekki talið loku fyrir það skot- ið, að herliðið fari burt, m.a. vegna þess að það getur alltaf verið til reiðu að fara inn í Ung- verjaland, hvenær sem „aftur- haldssinnarnir gera byltingu gegn verkalýðnum", svo notað sé orðfæri ráðamanna þarna. — Búdapest er aðeins í rúmlega 200 km fjarlægð frá rússnesku landa- mærunum, það er nokkurra klukkustunda ferð og greiðar sam göngur á þjóðvegum og með járn- brautum. En er ekki dæmalaus ótti „ung- verka verkalýðsins" við þessa ör- fáu „afturhaldssinna“, að hann skuli skjálfa á beinunum í hvert skipti sem ýjað er að því að vernd ararnir flytjist í nokkurra klukku stunda fjarlægð frá höfuðborg- inni? ■m wmMmmmMmMMMmmmmmm Þrjár nýjar bókafo rlagsbækur Ú FÖÍIAI KEISARAKS eftir Sigurð A. Magnússon Þessi nýja bók Sigurðar A. Magnússonar fjallar fyrst og fremst um bókmenntir innlend- ar og erlendar. Bókin er fjölbreytt að efni og líkleg til að vekja uinræður. 290 bls. Verð kr. 175,00. HRAKHÖL AR og HÖLUB6ÖL SÍSLUMAAISSOIRII eftir Magnús Björnssoik í bók Magnúsar kennir margra og ólíkra grasa, eins og í fyrri bók hans. „Mannaferðir og fornar slóðir“. Þetta er bók sem engan svíkur, en ailir sækja mikið til. 728 bls. Verð kr. 168,00. wm Bókaforlag Odds Bjömssonar o e ewmgm • eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur Þetta er íslenzka ástarsagan, sem hlotið hefur miklar vin- sældir hjá lesendum tímaritsins Heima er bezt. 131 bls. Verð kr. 60,00. NMI ■»»*>(■ -ríwm|.: iiii:: iSÍÉIr: r ÍÍÉÍ** • Sil Ármann Lórusson sigruSi TTpplýsingar Krúsjeffs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.