Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 17
Föstudagur 11. des. 1959 MORGUNfíLAÐIÐ 17 Nýjor bækur NÝ LJÓÐABÓK eftir Jónas Tryggvason er nýlega komin út á Akureyri. Ber hún t titilinn: „Harpan mín í hylnum“. í kvæðabók þessari eru rúm- lega 40 frumort ljóð. Eru þau ort á 25 ára tímabili. í fyrsta kafla hennar eru kvæði frá ár- unum 1935—1941, í öðrum kafl- anum tækifæriskvæði frá ýms- um tímum og loks er í þriðja kafla bókarinnar kvæði frá síð- ustu 9 árum. Bókin er prentuð í Prentsmiðju Björns Jónssonar. Vesturfararnir eftir Vilhelm Móberg I>á er nýlega kominn út hjá bókaútgáfunni Norðra skáldsag- an „Vesturfararnir", eftir Vil- helm Móberg. Jón Helgason hef- ur þýtt bókina. Er hún prentuð í Prentsmiðjunni Eddu. Þessi bók er fyrsta bindi rit- verks um fólk, sem tók sig upp í sveitum Svíþjóðar um miðbik 19. aldar og fluttist búferlum upp á von og óvon til Vestur- heims. Þar er fyrst og fremst lýst lífi sveitafólksins sænska og sýnt inn í hug margra manngerða. Vilhelm Móberg er eins og kunnugt er í hópi allra fremstu rithöfunda á Norðurlöndum og eiga fáir rithöfundar jafn stór- an og tryggan lesendahóp og hann. Úr Axarfirði ÆRLÆK, 1. nóv. — Síðan í byrj- un september hefur hér verið eindæma góð tíð, frostlausar næt- ur en blíðviðri um daga að und- anskyldu smá hreti um kosning- arnar. Var þá einhver hrollur í sumum. Stór veikindi á mönn- um hafa ekki verið, en því meira kvef og hósti. Engar pestir hafa herjað búpeninginn svo spurzt hafi. Jarðargróður var allur með ágætum. Töðufengur mikill og víðast góður þó með nokkrum undantekningum hjá þeim, sem hey áttu úti í óþurrkakaflanum í ágúst. Kartöflur spruttu ágæt- lega. Varð jafnvel allt að tvítug- föld uppskera. Fjárleitum er nú að mestu lok- ið á þessu hausti. Heimtur eru nokkuð misjafnar. Hjá sumum ágætar, en nokkru lakari hjá öðr- um. Má þar mest um kenna áfell- inu um 17. þ.m. Nokkur kinda- hræ hafa fundizt í göngum í haust af sem þá hefur farizt í fönn. Hinsvegar hefur óvenju fátt fundizt afvelta, og ekkert svo vitað sé farizt af völdum tófu. Vigt dilka til frálags mun lítið eitt lakari en í fyrra, en fullorð- ið fé vænt. Skurðgrafa hefur unnið hér í ■veit í fyrsta sin í sumar. Grafn- ir voru framræsluskurðir, að lengd um 23 km. megstmegnis vegna fyrirhugaðrar túnræktar. Sýnir það, að þrátt fyrir allt, er þó nokkur ræktunarhugur í bændum. Mestar eru framkvæmd irnar í landi Sandsjarðanna. Póstgöngur eru hér ekki í góðu lagi. Póstar ganga einu sinni í viku í sveitunum, enda sjá menn sjaldan ný blöð. Kom þetta sér einkum illa um kosningarnar. Má t.d. nefna, að þriðjudaginn þann 27. okt. bárust blöð af íslendingi frá 14-, 17. og 21. sama mánaðar og litlu skárra mun hafa verið um önnur blöð. Má fara nærri um, að margt vísdómsorðið, sem blöðunum var ætlað að flytja kjósendum, þeim til glöggvunar og leiðbeiningar við kjörborðið, kom ekki fyrr en eftir dúk og disk. Rjúpur sjást hér sára lítið. Þó hefur ein gamalvön rjúpuskytta sargað upp 105 rjúpur. Það er Jón Pétur, sem nú dvelst sér til heilsubótar hjá skyldfólki sínu í Klifshaga. — J.S._________ Jóhannes Lárusson héraðsdómslögmaður lögfræðiskrifstofa-fasteignasala Kirkjuhvoli. Sími 13842. TJÖLD SVEFNPOKAR * BAKPOKAR VINDSÆNGUR (væntanlegar) PICKNICK- TÖSKUR ÁTTAVITAR SKÍÐI m/stálkönt. kr. 520 SKÍÐASTAFIR kr. 85.00. BARNASKÍÐI í miklu úrvali nýkomin. Jólagjafir AUSTURSTR. 17 HANZKAR með prjónuðu handarbaki verð frá kr. 173. MATRÓSAFÖT eru falleg jólaföt Sambyggður Afréttari og þykktarhefill, gerð „KAD 6“. Þessi vél, sem er mjög sterkbyggð, vinnur af mikilli nákvæmni. Afköstin eru mikil og þolir hún mikið álag við stöðuga vinnu. Einnig fyrir henni er fengin ágæt reynzla á mörgum íslenzkum verk- stæðum. Fjórar hefiltennur eru á hefilásnum. Stærsta hefilbreidd 630 mm (24’’). Mesta hefilhæð 200 mm (8”). Framdrifshraðar: 6,5 og 11,7 mtr. á mín. Afkast mótors er um 4,8 KW. 3000 snún/mín. Vélarnar eru framleiddar af: VEB STANDARD, Markanstádt b. Leipzig VEB KNOHOMA-WERKE, Schmölln, Bez. Leipzig Ctflytjendur: WMW-EXPORT, Berlin W8, Mohrenstr. 60/61. Deutsche Demokratische Republik. Einkaumboð á íslandi: HAUKUR BJÖRNSSON heildverzlun Reykjavík — Pósthússtræti 13 -— Símar: 1 05 09 — 2-43-97 — Símnefni: Valbjörn. TRESMIÐAVELAR FRÁ I-ÝZKA ALÞVÐULVÐVELDINU Nýtízku gerð — Sterkbyggðar — Afkastamiklar Sambyggð Hjólsög, fræsari og Borvél, gerð „KFBS“. Þetta er einkar hentug vél fyrir lítil og miðlungs- stór verkstæði. Fyrir hjólsögina fylgir vélinni sleði. Nú þegar eru margar vélar af þessari gerð komnar í notkun á íslandi og hafa þær reynzt mjög vel. — Topplega og tappasleði er byggður á fræsiborðið. Tryggur öryggisútbúnaður. I vélina eru innbyggðir tveir mótorar: Mótor fyrir hjólsög, afkast um 4,3 hö. 300 snún./mín. Mótor fyrir fræsara, afkast um 3,4 hö. 3000 snún/mín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.