Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 6
6 MORGVN BLAÐIÐ Föstudagur 11. des. 1959 Fjölbreytt starfsemi Norrœna félagsins AÐALFUNDUR Norræna félags- ins var haldinn í Þjóðleikhús- kjallaranum föstudaginn 27. nóv. sl. Formaður félagsins, Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, setti fundinn og stjórnaði honum. Framkvæmdastjóri félagsins, Magnús Gíslason, flutti skýrslu um starfsemina á liðnu ári og gerði grein fyrir tillögum um lagabreytingar, sem samþykktar höfðu verið á fundi í fulltrúaráði félagsins 24. sept. sl. Að því loknu las gjaldkerinn, frú Arnheiður Jónsdóttir, upp reikninga félags- ins og voru þeir samþykktir ó- breyttir. Fjárhagur félagsins er góður. Rösklega 7 þúsund krónur voru í sjóði um áramót. Tillögur fulltrúaráðsfundarins um breyt- ingar á lögum félagsins, voru sam þykktar. Þar eru m. a. ákvæði um að félagsdeildirnar hafi meiri áhrif á stjórn aðalfélagsins, en verið hefur. Þrír meðstjórnendur áttu að ganga úr stjórninni að þessu sinni: Arnheiður Jónsdótt ir, námsstjóri, Sigurður Magnús- son, fulltrúi og Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri. Þau voru öll endurkjörin til tveggja ára. Aðrir stjórnarmenn eru. auk for- manns, dr. Páll ísólfsson, tón- skáld, Sveinn Ásgeirsson, hag- fræðingur og Thorolf Smith, fréttamaður. Samkvæmt skýrslu fram- kvæmdastjóra hefur félagsstarfið verið fjölbreytt á sl. starfsári. Félagið hefur eins og að und- anförnu veitt fjölþætta fyrir- greiðslu í sambandi við ferðalög til Norðurlanda og námsdvalar þar um lengri eða skemmri tíma. Sumarið 1958 komu rösklega 100 gestir hingað á vegum félags- ins í vinabæjarheimsóknir. Þá fóru 15 íslenzkir kennarar í náms för til Danmerkur í boði Norræna félagsins danska, og danskra kennarasamtaka, sér að kostnað- arlausu í boði Norræna félagsins og íslenzkra kennarasamtaka. Reykjavík og ráði er að stofna nokkrar deildir í viðbót, síðar í vetur. Tólf íslenzkir bæir eru í vinabæjartengslum við norræna bæi, og líkur eru til að a. m. k. 6 íslenzkir bæir í viðbót efni til vinabæjartengsla á árinu 1960. Alls eru nú um 2200 manns í fé- laginu og hefur félagsmönnum fjölgað um rösklega 100 á síðasta starfsári. Styrktarfélagar Nor- ræna ^élagsins eru nú 112, en þeirra framlag hefur þegar orð- ið félaginu mikil lyftistöng Kristraann Guðmundsson „Ævintýri í himingeimn- um ' - ný bók eftir Krist- mann Cuðmundsson ÚT er komin ný bók eftir Krist- mann Guðmundsson, er nefnist „Ævintýri í himingeimnum". Er þetta framhald frásagna „Inga Vítalíns" af för hans til annarra hnatta. Kom sú bók út hjá Al- menna bókafélaginu á sl. ári, en útgefandi þessarar bókar er Prentsmiðjan Rún hf. Þegar bók Inga Vítalíns kom út vakti hún mikla athygli og ýmsum getum var að því leitt, hver væri höfundurinn. Menn þurftu þó ekki að bíða lengi í óvissunni, því raunverulegt nafn höfundar var fljótlega gefið upp. Þessi nýja bók Kristmanns um geimferðir er sjálfstætt verk, þótt aðelpersónurnar séu hinar sömu og í fyrri bókinni. Er hún ekki sízt ætluð unglingum, sem gaman hafa af að fylgjast með ævintýrunum út í geimnum. Merkir Borgfirðingar eftir dr. Eirík Albertsson Meðal bóka, sem Bókaútgáfan Leiftur gefur út fyrir jólin, er Merkir Borgfirðingar eftir dr. theol. Eirík Albertsson. — í for- mála segir höfundur meðal ann- ars: Albertsson skrifar um, má m. a. nefna Bjarna Pétursson, Daníel Fjeldsted, Guðmund Jónsson, Jón Blöndal, Runólf Sveinsson og Þóri Guðmundsson. — Bókin er 138 bls. Sparisjóður Norðfjarðar fœr fyrstu bankabók- haldsvélina á Austurlandi NORÐFIRÐI, 30. nóv. — Sl. laug- ardag bauð stjórn Spari- sjóðs Norðfjarðar tíðindamönn- um blaða að skoða nýjar bók- haldsvélar sem sparisjóðurinn cr að taka í notkun um þessar mund ir. Sparisjóðsstjórinn, Jón L. Bald ursson, skýrði frá þessu. Sparisjóðurinn hefur keypt bók haldsvél af Kienzlegerð, til að færa í hlaupareikning og spari- sjóðsfærslu. Vélin færir jafn- framt dagbókarfærslur þessara reikninga, en þeir eru meginhluti af daglegum rekstri Sparisjóðs- ins. Það er einkum tvennt sem vinnst við notkun slíkra véla, mjög aukinn flýtir í daglegum afgreiðslum og minni hætta á skekkjum. Sparisjóðurinn hefur undan- farin tvö ár lagt til hliðar í sér- stakan vélasjóð, samtals kr. 50 þús. Kostnaðarverð vélarinnar einnar er um 70 þús., en með ýmsu tilheyrandi mun þessi nýj- ung kosta um eða yfir 100 þús. í tilefni af þessu fékk frétta- ritari Morgunblaðsins nokkrar upplýsingar um starfsemi Spari- sjóðs Norðfjarðar. Sparisjóðurinn tók til starfa 15/9 1920 og voru innlög þá 4039 í 43 sparisjóðs- bókum. Fyrstu stjórn Sparisjóðsins skipuðu þeir Páll Þormar kaup- maður formaður, Sigdór V. Brekk an kennari gjaldkeri og Ingvar Pálmason bókari. Daglega af- greiðslu önnuðust gjaldkeri og bókari. Árið 1927 tók Tómas Zoega við afgreiðslu Sparisjóðsins og var síðar sparisjóðsstjóri en var jafnframt stjórnarformaður. Hann hætti stjórn sparisjóðsins 1. sept. 1955 vegna vanheilsu og andaðist árið eftir. f stjórnartíð Tómasar Zoega óx Sparisjóðurr inn mjög og ávann sér traust hvarvetna. Um langt skeið ann- aðist hann mikil viðskipti vegna útgerðarinnar hér, m. a. í sam- vinnu við Landsbanka íslands á Eskifirði. Var það mikill styrkur fyrir útgerðina, t. d. vegna hinna erfiðu samgangna áður en Odds- skarsvegur var lagður. Núverandi sparisjóðsstjóri, Jón L. Baldursson, réðist bókari tU Sparisjóðsins 1. febr. 1941 og hef- ur starfað þar óslitið síðan, þang- að til hann tók við Sparisjóðs stjórninni unnu þeir Tómas Zoega einir í Sparisjóðnum. Síðan hafa nokkrir menn gegnt bókarastörf- um hans. Núverandi bókari er Jakob H. Hermannsson. Innlög eru í dag um 7,5 millj. í Sparisjóðsdeildinni á um það bil 200 reikningum. Hafa inn- lögin rúmlega tvöfaldazt undan- farin 4 ár, voru 3,7 millj., þegar Jón L. Baldursson tók við Spari- sjóðsstjórninni. Innstæða í hlaupa reikningi er nú um 3,5 millj. en sú fjárhæð er oft háð skyndi- legum breytingum eins og búast má við. Fjárhagur Sparisjóða Norðfjarðar er góður og er skuld- laus eign hans í dag 1 millj. 330 þús., auk skrifstofuhúsnæðis og innbús. Sparisjóður Norðfjarðar hefur aðallega stutt að byggingum íbúð arhúsa í Neskaupstað og smærri fyrirtækjuf almennings og bæjar félagsins með lánastarfsemi sinnu Þá hefur hann greitt fyrir verzl- unarrekstri í bænum og í seinni tið hefur hann lánað talsvert til fiskiðnaðarfyrirtækja. Auk lána- starfsemi annast lánasjóður Sparisjóðs Norðfjarðar öll venju- leg bankaviðskipti. Núverandi stjórn Sparisjóðs- ins skipa Jón L. Baldursson for- maður, Reynir Zoega verkstjóri. Niels Ingvarsson, yfirfiskimats- maður, Jóhannes Stefánsson for- stjóri og Ármann Eiríksson út- gerðarmaður. — Fréttaritari. Á árunum 1958 og 1959 hefur félagið haft milligöngu um ókeyp is eða ódýra skólavist á norræn- um skólum, aðallega lýðháskól- um og búnaðarskólum, fyrir 118 íslenzka nemendur, 73 í Svíþjóð, 27 í Danmörku, 15 í Noregi og 3 í Finnlandi. Óvenjumargar um- sóknir hafa borizt um ódýra vist á skólum á Norðurlöndum næsta sumar. Tveir norrænir nemendur fá ókeypis skólavist héT í vetur fyr- ir atbeina Norræna félagsins. Sænsk stúlka á Reykholtsskóla og danskur piltur á Reykjaskóla í Hrútafirði. ,Rit félagsins, Norræn tíðindi, hef ur komið út í tveimur heftum á ári sl. fjögur ár. Síðara hefti ritsins á þessu ári verður sent félagsmönnum ásamt gjafabók í þessum mánuði. Nítján deildir eru nú starfandi innan félagsins auk félagsins í Ég hef tekið saman í þessa bók tíu þætti um borgfirzkra merkismenn. Ég hef ekki getað haft stuðning af neinum ævisögu- ágripum um þá, nema dálítinn ævisögukafla, sem Guðmundur Jónsson á Hvítárbakka hafði skráð um sjálfan sig. Að öðru leyti hef ég stuðzt við ritgerðir um þessa menn í dagblöðum eftir því, sem ég hef getað til náð, og má með nokkrum sanni segja, að ég sé fremur skrásetjari en höf- undur að þessum þáttum, enda þótt nokkurt efni í þeim sé frá mér komið .... í sumum ævi- söguþáttunum eru birtar ræður og ræðukaflar eftir mig, er ég flutti við útför þessara vina minna .... Megináform mitt var að safna saman í bók sem mestu af því, sem varpað gæti birtu á æviferil þessara manna, en ekki rita fagurfræðilegar ritgerðir.'* Af mönnum þeim, sem Eiríkur _jJuj lýsenáur /' Athugið Auglýsingar, sem birtast eiga í jólablaðinu, þurfa að hafa bor- izt auglýsingaskrifstofunni, sem allra fyrst, og í síðasta lagi fyrir n.k. laugardag 12. þessa mán- aðar. Sími 22480. skrifar úr dagiega lífinu * Hvers eigum við að gjalda Fyrir alllöngu kom kona á fund Velvakanda með bréf, sem dregizt hefur nokkuð lengi ag koma á framfæri. „Hvers eigum við að gjalda, starfsstúlkur á Keflavíkur- flugvelli?, skrifar hún. Hvað liggur til grundvallar því að menn eru farnir að nota blöð og útvarp til þess að reyna að hafa af okkur æruna? Það er ekki langt síðan að maður, sem telur sig meðal betri sona þessa lands, lét sér þau orð um munn fara í útvarpserindi um íslenzkt mál, að málfar okkar væri það lélegt að við værum ekki hæfar til að kenna börn- unum okkar íslenzku. Einnig las ég um það, að við hefðum í Tímanum verið kallaðar „lauslætiskonur". Vita þessir menn ekki að þeir eru að drýgja glæp gagnvart börnum okkar, að þau geti virt for- eldra sína, en það er börnum af arnauðsynlegt? “ Konan skýrði Velvakanda frá því, að það, sem hefði komið sér til að fara að kvarta á opinberum vettvangi, væri að hún hefði orðið þess vör, að bcjrnin hennar væru farin að leggja eyrun við slíkum óhróðri. En það er einmitt af því, að hún hefur fyrir heim- ili að sjá, að hún þarf að hafa góða vinnu, sem hún hefur fundið á KeflavíkurflugvellL Segir hún, að með sér vinni um 30 íslenzkar stúlkur, sem séu upp til hópa vandaðar stúlkur, stundi sína vinnu með prýði og séu ættlandi sínu ekki á nokkurn hátt til skammar. Ekki kvaðst hún fylgjast mjög vel með högum samverkakvenna sinna, en sínum börnum gangi sízt ver íslenzkunám í skólum en öðr- um. „Mér sárnar, þegar menn fara með slíkt fleipur, til að slá sig til riddara, án þess að athuga, hvað þeir eru að fara með“, skrifar hún að lokum. Eru nú engir riddarar lengur til, sem taka upp hanzkann fyrir varnarlausar konur?“ * 111 veður og góður fiskur Margir hafa komið að máli við Velvakanda og látið í ljós ánægja sína yfir veðurkortun- um frá Veðurstofunni, sem blaðið er farið að birta á ann- arri síðu daglega. Síðan við byrjuðum að birta kortin, 1. þessa mánaðar, hef- ur líka verið ákaflega athygl- isvert veðurlag á Norður- Atlantshafi. Alla fyrstu vik- una var ein djúp lægð hér við ísland, sem stjórnaði bók- staflega veðrinu hér á Norð- urlöndum, allt til Bandaríkj- anna í vestri, Norðurlanda í austri og suður á meginlandi Evrópu. Það er vissulega ekki eintómt grín, þegar Bretar, og reyndar fleiri, segja að frá íslandi komi ill veður og góð- ur. fiskur. En þessi lægð var ekki kröpp og olli því ekki neinu óveðri hér, en hún gerði annað af sér. Loftþrýstingurinn var svo lár, að sjónum tókst að lyfta sér hærra en venjulega og flæða á land. Og nú í þessari viku hefur verið hægt að flygjast með óveðrinu á Norðursjó, Eystra- salti og sunnanverðu Atlants- hafi á veðurkortunum. Með því að athuga hvert örvarnar snúa, má sjá vindáttina og vindhraðann með því að telja fjaðrimar á örvunum. Hver heil fjöður táknar 10 hnúta. * Auðveldara að skoða kort Hafa margir lýst ánægju sinni yfir þessari nýbreytni að birta veðurkort. Þeir sem eiga aðstandendur á sjónum, geta þá betur fylgzt með veð- urlagi þar sem skipin eru, og þeir sem eiga unglinga við nám erlendis, fylgjast gjarnan með hitastigi í nágrannaborg- unum o. s. frv. Miklu auð- veldara er að skoða teiknað kort, en átta sig þegar lesin er upp runa af staðanöfnum og lýsing á veðri þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.