Morgunblaðið - 11.12.1959, Qupperneq 15
F'östudaf’iir 11. öps. 1959
MORGUNBLAÐIÐ
15
Vestfjarðarvegi
ekki haldið opnum
ÍSAFJÖRÐUR, 8 .des. — Svo sem
kunnugt er komust Vestfirðir I
vegasamband við aðalakvega-
kerfi landsins nú í haust. Var
þá miklum áfanga náð og von-
uðu menn að þessari leið yrði
haldið opinni á meðan þess vaeri
nokkur kostur, því að við, sem
hér búum, teljum að við eigum
fullan rétt á því, eins og Sunn-
lendingar og Norðlendingar, að
vera í vegasambandi við Reykja-
vík. Nú er alauð jörð hér á ísa-
firði o geftir því, sem frétzt hef-
ir, þá er vegurinn tS Súganda-
fjarðar Orðinn fær af sjálfu sér.
Einnig er það mál manna að
mjög lítið þurfi að moka til þess
að leiðin suður verði akfær.
Fjöldi fólks hér hefir látið í
ljósi undrun sína á því að vega-
málastjórain skúli ekki sinna
Vestfirðingum á þessum sviðum.
Er þess að vænta að þessu verði
kippt í lag nú í þeirri sumar-
veðráttu, sem ríkir hér um slóð-
ir. — G. K.
Fórnarlömb
Þessi litla stúlka og amma
hennar ....
EINS og sagt hefir verið frá í
fréttum, gerðist það í Marokkó
fyrir nokkru, að um 10.000
þ manns lömuðust alvarlega og
Tónleikar
HLJÓMSVEIT Tónlistarskólans
heldur tónleika á morgun kl.
2 e.h. í Austurbæjarbíói. Hljóm-
sveitin er aðalega skipuð nem-
endum skólans, þeim sem lengst
eru komnir, einnig eldri nemend
ur er lokið hafa námi í skólan-
um. í sveitinni eru 27 hljóðfæra-
leikarar.
Hljómsveit Tónlistarskólans
hefir undanfarin vor komið fram
í nemendatónleikum Tónlistar-
skólans og verið tekið forkunn-
ar vel, enda hefir þar verið
spilað af lífi og sál. Stjórnandi
og kennari sveitarinnar hefir ver
ið frá byrjun Björn Ólafsson.
Á tónleikunum á morgun
verða flutt þessi verk: Concerto
grosso í D-dúr, eftir Corelli, fiðlu
konsert í e-moll, 1. kafli eftir
Nardini og tvær „Salzburger*
sinfóníur eftir Mozart. En þetta
æskuverk Mozarts samið þegar
hann var 16 ára gamall. Einleik-
ari á fiðlu verður Guðrún Guð-
mundsdóttir Hún hefur undan-
farin ár stundað fiðlunám í Tón-
listarskólanum og er tæpra 12
ára gömul. ,
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis, en þeir sem hug hafa á
að koma, verða að vitja aðgöngu-
miða í Tónlistarskólanum. Þeir
verða afhentir í dag milli kl. 5
og 7 e.h. meðan þeir endast.
nær 30.000 aðrir urðu ófærir
til vinnu, þó að ekki væri um
algera lömun að ræða. — Or-
sök þessara hroðalegu atburða
var sú, að smumingsolíu, sem
notuð er á flugvélar hafði ver-
ið blandað saman við matar-
olíu.
— ★ —
Á sl. sumri fór fram uppboð
á vegum bandaríska flughers-
ins í Marokkó á aukabirgðum
af smumingsolíu. Var hér um
að ræða 40 lestir, og keypti
einn heildsali í Casablanca
allt magnið. Síðan seldi haim
olíuna 25 kaupmönnum í Mek-
enes, Fez og Casablanca.
Menn þessir verzluðu með mat
vörur, og þá m. a. matarolíu,
en kaupin gerðu þeir sem —
bílaviðgerðamenn!
Síðan tóku þessir „heiðurs-
menn“ sig til og blönduðu
Ísmurningsolíunni, sem þeir
fengu á mjög lágu verði, sam-
an við matarolíu, í hlutföllun-
um 1:4, seldu síðan blönduna
við fyllsta verði — og græddu
.... og þessir drengir eru meff-
al þeirra tugþúsunda, sem löm-
uðust af því aff neyta matar-
olíu, sem svikulir og ófyrir-
leitnir kaupahéffnar höfðu
blandað snmiroliu.
Smurningsolía þessi inni- ;
heldur ryðvarnarefni, sem
nefnist „triortho cresyl phos-
phate“, en aðeins tvö grömm
af því geta valdið alvarlegri
lömun. — Þetta vissu kaup- .
mennirnir 25 að vísu ekki, en
skeytingarleysi þeirra og svik-
semi ollu eigi að síður þjóðar-
reiði, sem vonlegt var. — Einn
lögreglumannanna, sem þátt
tók í að handsama hina seku
og varpa þeim í svartholið, lét
þau orð falla, að réttmætt
væri að steikja þá í þeirra
eigin olíu. — Mohammed kon-
ungur V gaf út tilskipun um
það, að kaupmennirnir 25
skyldu teknir af lífi fyrii
„glæp gegn heilbrigði þjóðai
innar“.
— ★ —
Stjórnarvöld í Marokkó báðu
Alþjóða Rauða krossinn um
hjálp til handa hinum nauð-
stöddu fómarlömbum gróða-
fíknar braskaranna, því að
öll sjúkrahús yfirfylltust á
skömmum tíma, og ekki reynd
ist unnt að taka við svipað því
öllum, sem sjúkrahúsvistar og
læknishjálpar þurftu. — Var
brugðið skjótt við þeirri
beiðni, og fyrir sl. mánaðamót
höfðu Rauða kross félög
Blíð varstu
bernskutíð -
ný barnabók
BLÍÐ VARSTU bernskutíð, heit-
,ir nýútkomin barnabók eftir
Steingrím Sigfússon á Patreks-
'firði. — Bókin, sem er 144 bls.,
bregður upp myndum úr lífi lítils
drengs og gerist að mestu í sveit.
Af kaflafyrirsögnum má t. d.
nefna: Síðustu jólin heima, Hjá
vandalausum, Bakkabolinn, Hey-
annir, Börnin gerast leynilög-
reglumenn, Haustdægur, Fyrstu
jólin að heiman.
Steingrímur Sigfússon hefir áð
ur gefið út nokkrar smásögur,
bæði sérprentaðar og í tímarit-
um, eg hefir hann þá skrifað
undir dulnefninu Valur Vestan.
— Að öðru leyti er hann þekktur
fyrir hin mörgu dægurlög, sem
hann hefir samið á síðari árum-
I gróðrafíknar braskarq
þannig ærið fé. Afleiðingamar Stjórnarvöldin fyrirskipuðu
létu ekki lengi á sér standa — víðtæka rannsókn, — og eftir
fólk tók að lamast í hrönnum, nokkrar vikur var málið upp-
og ótti og angist greip um sig. lýst, eins og að framan segir.
■ 0 »
ýmissa landa sent einn og tvo
lækna, sjúkrarúm og ýmiss
konar hjúkrunargögn til Mar-
okkó.
Vilja sameina
verzlunarsvæðin
LONDON, 9. desember. — Dillon,
aðstoðarutanríkisráðherra Banda
ríkjanna er nú á ferð í V-Evrópu
til þess að kynna sér verzlunar-
málin, afstöðu fríverzlunarsvæð-
isins til markaðsbandalagsins og
gagnstætt. Haft er eftir Dillon,
að Bandaríkjamenn vilji styðja
að því að þessi tvenn samtök sam
einist og myndi eina heild, en
Bandarikjamenn ætli aldrei að
láta verzlunarsamtök þessi njóta
neinna þeirra réttinda varðandi
( verzlun við Bandaríkin, sem önn-
ur ríki njóti ekki.
'
©
'ij /h
J
ÆT
0
L
1
9
5
9
p
it
SINALCO
SÓDAVATN
APPELSÍN
GRAPE FRUIT
Kj arnadrykkir
SPUR COLA
GINGER ALE
Hi-SPOT
LÍMONAÐI
QUINING WATER
PILSNER
B J Ó R
MALTÖL
HVlTÖL
— "' ■i !í<f .S|? í?S É*§
Si-L & ú iU: áJ . .. fc^fc iáia jíií B# Swfc Vssjf i&m-
I