Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 5
Flmmtudagur 24. des. 1959 MORCJOTSBLÁÐÍÐ 29 Hannes Pétursson : ....En alþýðleikinn var ein- mitt dýpsti leyndardómurinn í eðli hans. Þúsundir gátu gengið framhjá ungum manni með Ijóst, drúpandi yfirskegg og hversdags legt, eitlítið slavneskt yfirbragð án þess að gruna að þar færi skáld, og það eitt hið mesta á vorri öld. Maður þurfti að kynn- ast honum náið til að skilja hve hlédrægnin var ríkur þáttur í fari hans. Hann Var ótrúlega lágvær í tali og allri umgengni. Bréf Þegar hann gekk inn í herbergi, þar sem mannfagnaður var, gerð- ist það svo hljóðlaust, að varla nokkur tók eftir því. Síðan sat hann þögull* og hlustandi, lyfti oft höfði ósjálfrátt, ef eitthvað vakti athygli hans, og þegar hann tók sjálfur til máls var það ætíð án tilgerðar og ákafa“. Þannig meðal annars lýsir Stefan Zweig Rainer Maria Rilke í ævisögu sinni, Veröld sem var (þýðing Halldórs J. Jónssonar og Ingólfs Pálmasonar). En þar er þess ekki getið,' að þessi hlé- drægi maður var einhver mesti bréfritari sem sögur fara af. Bréf hans skipta þúsundum. Hvar sem leið hans lá sat hann við bréfa- skriftir tímunum saman, gekk að þeim eins og fólk til vinnu -sinn- ar. Oft sendi hann frá sér mörg bréf á dag. Og þó segir Zweig Rainer Maria Rilke. heldur þau ljóð sem ekki birtust fyrr en að honum látnum og hann orti í einveru sinni í Sviss, þar sem hann lézt 29. desember 1926. Tíu af bréfum Rilkes eru sennilega þekktari en flest önnur af þeim aragrúa sem hann ritaði. Þau voru gefin út árið 1929 undir heitinu Bréf til ungs skálds, og hafa síðan þá verið endurprent- uð hvað eftir annað og þýdd á mörg mál. og eitt erindi lauslega, starði út í bláinn og kinkaði loks kolli: „Það hefur þá orðið skáld úr René Rilke sem ég kenndi einu sinni“. — Og prófessorinn fór að segja nemanda sínum það sem hann mundi um Rilke; hann hafði verið kennari hans í liðsforðingja skólanum í Sankt Pölten sem er skammt fyrir vestan Vín. Þannig atvikaðist það að Franz Kappus afréð að senda Rilke nokkur kvæði eftir sig. Og þeim lét hann fylgja bréf þar sem hann talar af hreinskilni og opin- skátt um það sem á hug hans hvíldi. Hann beið svars í margar vik- ur. En svo kom bréfið, þykkt með fagurri utanáskrift, innsigl- að með bláu lakki. Hann opnaði umslagið og las: París, 17. febrúar 1903. Bréf yðar barst mér ekki í hendur fyrr en nú á dögunum. Þér sýnið mér þar mikinn og fölskvalausan trúnað sem ég er yður þakklátur fyrir. Er víst lítið annað sem ég get tekið fram. Ég er ekki fær um að taka kvæði yðar til athugunar, því allt sem á skylt við bókmenntagagnrýni er mér fjarlægt. Ekkert er fjær því að komast í snertingu við listaverk en umsagnir um þau. Meira eða minna vel heppnaður misskilningur er allt og sumt sem á þeim er að græða. Ekki er jafn auðvelt að skilja állt eða segja og löngum er reynt að telja okk- ur trú um. Fæst af því sem við ber verður tjáð með orðum, held ur gerist þar, sem engin orð ná til. Og listaverkin eru ósegjan- legri en allt annað, gædd leynd- ardómsfullu lífi sem varir, gagn- stætt okkar eigin lífi sem hverf- ur hjá. Ég bið yður að hafa þetta í huga þegar ég segi: Kvæði yðar til ungs skálds frá Rilke þetta: „Hversdagslegustu sendi- bréf ritaði hann á valinn pappír og þar mátti aldrei standa yfir- strikað orð. Ef honum líkaði ekki setning eða orðatiltæki, endur- skrifaði hann allt bréfið af sinni fágætu þolinmæði. Frá Rilkes hendi kom aldrei neitt annað en það, sem óaðfinnanlegt var“. Hinn ótrúlegi dugnaður skálds- ins við bréfaskriftir er næsta auðskilinn þegar að er gáð. Rilke var maður fámáll og fór oft ein- förum borg úr borg og land úr landi, en með bréfaskriftum sín- um tókst honum tvennt í senn: að halda nánu sambandi við fjölda fólks, menn og konur, og segja hug sinn betur en flestum er unnt í samtölum við aðra. Bréf Rilkes hafa reynzt ómet- anlegar heimildir um innra líf hans og hafa hjálpað mönnum til aukins skilnings á skáldskap hans. Þau hafa leitt í ljós, hvílík alvara bjó að baki hverri við- leitni hans til dýpri skilnings á mannlegri tilveru og hve strang- ar kröfur hann gerði til sjálfs sin sem skálds. Hvert bréf sem hann ritar er í raun og veru liður í sókn hans að því marki sem honum tókst að ná skömmu fyrir andlát sitt: að túlka í Ijóðum nýtt viðhorf til lífsins, viðhorf sem var að mótast með. honum alla ævi frá því hann náði fullum þroska sem skáld og þar til hon- um heppnaðist árið 1922, þá 47 ára að aldri, að Ijúka við hinar tíu elegíur, kenndar við höllina Dúníó við Adríahaf, og yrkja auk þess langan sonnettuflokk, Son- ettur til Orfeusar. Hið nýja lífs- viðhorf sem þessi verk birta og fólgið er í orði skáldsins sjálfs „Weltinnenraum“ búið í form frábærrar snilldar, lyftir skáld- skap Rilkes upp yfir flest það sem ort hefur verið á 20. öld. Og þó eru farnar að heyrast raddir um að þessi tvö verk séu ekki hátindurinn í list hans. Bréf þessi eru rituð á árunum 1903—8, og þá var Rilke sjálfur ungt skáld (f. 1875), en orðinn þroskað skáld, sem sent hafði frá sér margar bækur. Hann var bú- inn að ferðast til ítalíu og tvisvar til Rússlands. Tók hann miklu ástfóstri við það land, en hafði ekki áhuga fyrir byltingunni þegar að henni kom. Fyrsta bréfið er ritað í París, borginni sem hann dáði meir en allar aðrar borgir sem hann kynntist. Hann hafði komið þangað árið áður í því skyni að semja bók um August Rodin fyrir þýzkt útgáfufyrirtæki. Olli sú ferð þáttaskilum í lífi hans og skáldskap, því hann hreifst svo mjög af Rodin og verkum hans að hann gerðist einkaritari meist arans um all-langt skeið og sökkti sér af slíkri einbeitingu niður í verk hans og aðra högg- myndalist að ljóðagerð hans tók gagngerum breytingum í sam- ræmi við þá lærdóma sem hann þá aflaði sér: Ljóð hans urðu eins konar „Objektivation des Gefúhls", eins og komizt er að orði í einni af ævisögum hans. Unga skáldið sem hér á hlut að máli hét Franz Kappus, og kemur hann ekki við bókmennta- söguna að öðru leyti en því að hafa átt í þessum bréfaskiptum við Rilke. Þegar þau hófust var hann nemandi í liðsforingjaskóla í Vin, tæplega tvítugur að aldri. í formála fyrir útgáfu bréfanna rekur hann tildrög þess að hann sendi Rilke nokkur kvæði eftir sig til umsagnar. Síðla hausts 1902 hafði hann setið úti í trjá- garðinum við skólann, niður- sokkinn í að lesa ljóðabók eftir hann. Bar þá að einn kennara hans, prófessor Horacek: „Hann tók bókina úr höndum mínum, leit á kápuna og hristi höfuðið. „Kvæði eftir Rainer Maria Rilke?“ spurði hann hugsandi. Hann blaðaði í bókinni, las eitt eru sérkennalaus; þó örlar á við- léitni til sjálfstæðrar sköpunar. Verð ég þess einkum var í kvæð- inu „Sál mín“. Þar leitar fram í dagsljósið eitthvað sem á rætur í sjálfum yður. Og ef til vill má segja að í kvæðinu „Til Leo- pardi“, sem er fallegt, komi fram viss skyldleiki við það mikla og einmanna skáld. Þrátt fyrir þetta eru kvæðin ófullburða, ósjálf- stæð og er síðasta kvæði syrp- unnar og kvæðið til Leopardi ekki undanskilin. Hið vingjarn- lega bréf sem kvæðunum fylgdi varpar ljósi á ýmsa þá annmarka sem ég varð áskynja meðan ég las þau, án þess að geta gert mér fyllilega grein fyrir þeim. Þér spyrjið hvort kvæði yðar séu góð. Þér spyrjið mig. Þér hafið áður spurt aðra. Þér sendið þau timaritum, berið þau saman við önnur kvæði og eruð með áhyggjur, vísi einhverjar rit- stjórnir frumsmíðum yðar frá. Fyrst þér leyfið mér að koma með ráðleggingar, þá bið ég yður lengstra orða: Hættið öllu þessu. Þér hugsið um hvað aðrir segja, en það megið þér allra sízt gera eins og nú er málum háttað. Eng- inn getur ráðlagt yður né hjálp- að, alls enginn. Til er aðeins eitt ráð: Skyggnist inn í sjálfan yður. Gerið yður Ijóst hvað það er sem knýr yður til að yrkja. Gangið úr skugga um hvort sú þörf muni runnin frá dýpstu rótum hjart- ans, grafizt fyrir um hvort þér kysuð það eitt að deyja ef yður yrði meinað að yrkja. Umfram allt: Spyrjið sjálfan yður áhljóðri næturstund: Verð ég að yrkja? Leitið djúpt í hugann eftir svari. Sé það játandi, ef þér getið hik- laust sagt: Ég verð — hagið þá lífi yðar í samræmi við þá nauð- syn. stóru jafnt sem smáu verður það að vera tákn og vitnisburður þeirrar knýjandi innri þarfar. Með því móti nálgizt þér yðar innsta eðli, þá leitizt þér við að tjá það sem þér sjáið og reynið, elskið og það sem yður glatast, eins og þér væruð hinn fyrsti maður. Yrkið ekki ástarkvæði. Forðizt fyrst í stað yrkisefni sem orðin eru töm og venjubundin: þau eru örðugust viðfangs, því mikinn mátt og þroska þarf til að leggja eitthvað sjálfstætt af mörkum á sviði þar sem til eru mörg góð og jafnvel frábær lista- verk. Á þann hátt bjargizt þér úr klóm hinna almennu yrkisefna og getið sinnt þeim sem hversdags- leikinn umhverfis yður hefur upp á að bjóða. Lýsið dapurleika yðar og óskum, hugsunum sem koma og fara og trú á fegurð, sama hver hún er. Lýsið öllu þessu með einlægri, hljóðlátri og auðmjúkri hreinskilni. Til þess að tjá hug yðar skuluð þér skír- skota til nánasta umhverfis, grípa til mynda úr draumum yðar og til liðinna atvika. Finnist yður hversdagsleikinn óskáldleg- ur, skellið þá ekki skuldinni á hann, heldur sjálfan yður, segið eins og er, að þér séuð ekki nógu mikið skáld til að nema gullið úr greipum hans. í augum hins skap andi listamanns er engin hvers- dagsleg fátækt til, enginn staður sem honum finnst tómlegur og stendur á sama um. Sætuð þér í dyflissu sem byrgði úti hvert hljóð, ættuð þér þá ekki athvarf þar sem er æska yðar, hinn dýr- mæti, konunglegi fjársjóður, gull kista endurminninganna? Beinið athygli yðar að henni. Reynið að vekja upp frjótt líf þeirra löngu liðnu daga. Fersónuleiki yðar öðlast festu, einmanaleikinn hefst í æðra veldi og breytist í rökkurhljóðan samastað, hús þar sem ys og þys umheimsins líður hjá í fjarska. Ef svo skyldi fara, að aftur- hvarfið til hins innra, sú köfun 1 eigin hug sem ég talaði um, hefði í för með sér ný kvæði, mun yður ekki til hugar koma að spyrja Pétur eða Pál hvort þau séu góð, né gera nokkra tilraun til að vekja athygli timarita á þeim: þér finnið að ■“* kvæðin eru yðar kvæði, kær og sjálf- gerð eign, brot af lífi yðar, rödd yðar. — Listaverk er gott, sé það sprottið af nauðsyn. Það er hún sem kveð- ur upp dóminn yfir þvi. Eng- inn annar úrskurður er til. Af þessum sökum get ég ekki ráð- lagt yður neitt annað betra en þetta: Skyggnizt djúpt niður í hin leyndu hugarfylgsni þar sem líf yðar á sér upptök. Þar finnið þér svarið við spurningunni, hvort þér verðið að yrkja. Takið svarinu eins og það er, reynið ekki að ráða frekar í það. Ef til vill kemur á daginn að það sé köllun yðar að vera listamaður. Takizt þá það hlutskipti á herðar og berið það, þunga þess og mik- illeik, án þess að æskja nokkurra ytri launa, því hir.n skapandi listamaður verður að vera heim- ur út af fyrir sig, í sjálfum hon- um og náttúrunni þar sem hann festir rætur verður allt það að búa sem hann leitar að. En eftir að þér kafið í eigin hug, innstu vitund, kann ef til vill svo að fara að þér séuð knú- inn til að segja skilið við skáld- skapinn. Og eins og ég sagði, er engum leyfilegt að verða skáld ef honum finnst hann geta lifað án þess að yrkja. En sú sjálfs- prófun sem ég bið yður að gera yrði þó ekki til einskis. Frá þeirri stund munuð þér ávallt finna lífi yðar eigin leiðir, og ég óska þess heitar en orð fá lýst að þér eigið heilladrjúga, gjöfula og langa ævi fyrir höndum. Hvað er þá eftir að taka fram? Mér virðist ég hafa lagt áherzlu á allt sem máli skiptir. Að síð- ustu aðeins þetta: Mætið innri þroska yðar með stillingu og al- vöru. Þér getið ekki staðið í vegi fyrir honum á annan hátt meir en þann að hugsa um álit fólks og vænta þaðan lausna á vanda- málum sem enginn er fær um að finna svör við nema ef til vill yðar innsta vitund, algerlega óáreitt. Það gladdi mig að sjá yður minnast á prófessor Horacek. Ég ber í brjósti mikla virðingu fyr- ir þeim vingjarnlega lærdóms- manni og þakklæti sem ekki fyrn ist. Viljið þér gera svo vel að gefa honum þetta til kynna. Það var mjög vingjarnlegt af honum að geta mín; kann ég að meta það. Kvæðin sem þér voruð svo vænn að trúa mér fyrir, sendi ég hjálagt til baka. Og ég þakka yður aftur mikinn og einlægan trúnað. Þar sem ég er yður með öllu ókunnugur hef ég reynt að sýnast hans nokkru verðugri en ég í rauninni er, með því að svara bréfi yðar eins hreinskiln- islega og mér er unnt og eftir beztu vitund. í einlægni og vinsemd: Rainer Maria Rilke. (jtk(e9 féd Fiskbúðin Bústaðahverfi og Sogaveg 158. } gUiLfjóH J Dömutízkan v Laugaveg 34. CjLkLq jót! Farsælt nýtt ár. Björn Kristjánsson, Heildverzlun, Vesturg. 5 I | í ( í ( 1 I I í | <3 uaugavcg =i. >5 l t\ gji(e9 fó(! Sigurður Kjartansson Laugaveg 41. % CjLkLy jót! og farsælt nýtt ár. Þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum. M O S A I K h.f., Eskihlíð A. CjLkLf jót! Verzlun Guðbjargar Bergþórsdóttur Öldugötu 29 Q(Ji(e9 jó(! Verzlunin Pétur Kristjánsson Sf. Ásvallagötu 19 QLkL9 jófí Gott og farsælt nýjár. — Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Silfurtunglið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.